Vísir - 21.07.1949, Síða 2
V I S I R
Finimtudaginn 21. júli 194(J
Fimmtudagur,
21. júh', — 202. dagur ársins.
i
Næturvarzla.
Næturlæknir er - í Lækna-
varðstofunni ;"sími 5030. Nætur-
vöröur er í Reykjavikur-apó-
teki; sínii 1760. Næturakstur
annast Hreyfill; sími 6633.
Sjávarföll.
ArdegisflóS kl. 2.20.
degisflóS kl. 15.00.
SÍS-
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í
lijónaband af sira Jóni Thor-
aresen, GuSmunda Stefáns-
dóttir og Gunnar Petersen. —
Heimili þeirra er aS Hraunborg
viS Karfavog.
Bjarni Bjarnason,
bæjarfógeti á SiglufirSi, mun
verSa i framlsoSi þar fyrir
Sjálfstæöisflokkinn viS næstu
alþingiskosningar. Bjarni lauk
lögfræSiprófi viS Háskóla ís-
lands áriS 1936, en siSan í fyrra
liefir hann gegnt bæjarfógeta-
embættinu á SiglufirSi.
Ung'barnavernd
I.íknar, Templarasundi 3, er
opin þriSjudaga og föstudaga
kl. 3.15—4 e. h.
Síra Kristinn Stefánsson,
fríkirkjuprestur í Hafnar-
firSi, verSur fjarverandi næsta
hálfa mánuS, Gísli Sigurgeirs-
son, verkstjóri, Strandgötu 19,
HafnarfirSi, gefur í fjarveru
lians vottorö úr kirkjubókum.
Heimilisritið,
júli-heftiS, er komiS út og
flytur aS vanda ýmislegt létt
efni til skemmtilestrar.
1
Jazz-blaðið,
5.—6. tbl. 1949, er komiS út.
BlaSiS er prentaS á góSan
pappir og prýtt nokkurum
myndum.
Siglufjarðarskarð
fært bifreiðum.
Unniö hefir verið aö því aö
undanförnu, að ryðja Siglu-
fjaröarskarö; Verkinu er nú
lokið og er skaröiö fært bifreiö-
um, að þvi er fréttaritari V.isis
á Siglufirði símaSi i gær.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.20 Tónleikar: „Nætur
í görSum Spánar- eftir de Falla
(plötur). — 20.45 Dagskrá
Kvenréttindafélags Islands. —
Upplestur: a) „Hörtvinnakefl-
iö“, smásaga eftir frú Sonju
Karlssón (höfundur les). b)
Sigríöur Einars frá Munaðar-
nesi Ies frumort kvæði. — 21.10
Tónleikar (plötur). — 2115
Tónleikar (plötur). — 21.15
hard). — 21.30 Tónleikar : Létt
lög (plötur). — 21.45 Á inn-
lendum vettvangi (Emil Björns-
son). — 22.00 Fréttir og veSur-
fregnir. — 22.05 Symfónískir
tónleikar (plötur) : a) Fiðlu-
konsert í D-dúr eftir Paganini.
b) Symfóníetta eftir Janácek
(nýjar plötur). — 23.05 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip: Hekla er í Rvk.
Esja fór frá Rvk. kl. 22 í gær-
kveldi vestur um Iand til Akur-
evrar. Heröubreið fór frá Rvk.
kl. .19 í gærkvöldi austur um
land til Bakkafjarðar. Skjald-
breiö fór frá Rvk. k'l. 20-i gær-
kvöldi til Húnaflóa-, Skaga-
fjaröar- og Eyjafjarðarhafna.
Þyrill er i Rvk.
Skip Einarssonar & Zoéga:
Foldin er i Glasgow. Linge-
stroom er í Álaborg.
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Gautaborg 18. júlí til Rvk.
Dettifoss fór frá Rvk. 18. júli
til Cardiff. Fjallfoss hefir vænt-
anlega fariö frá Wismar í
fyrtadag til Rvk. Goöafoss
kom til Rvk. 18. júli frá Gauta-
borg. Lagarfoss kom til Rvk í
morgun. Selfoss er á Sigluf.
TröIIafoss fór frá Rvk. 16. júlí
til New York. Vatnajökull
fermir í Hull 18.—20. júlí til
Rvk.
Flugið.
í gær var flogið til Vestrn.-
eyja, Akureyrar, Isafjaröar,
Patreksfjarðar og Siglufjarðar.
Einnig var íariö í sjúkraflug til
ísafjarðar.
1 dag er áætlað að íljúga til:
Vestm.eyja (2 ferðir), Akur-
eyrar, ísafjarðar, Sands, Bíldu-
dals og Patreksfarðar.
A morgun er áætlaö aö fljúga
til: Vestmannaeyja (2 feröir),
Akureyrar, ísafjaröar, Þingeyr-
ar og Flatevrar.
Hekla kom i gær kl. 15.30 frá
•Osló og Stavanger með 25 far-
þega. Gevsir kom i gær kl. 18.00
frá K.höfn meö 42 farþega. Fer
kl. 8.00 i íyrramálið til Prest-
wick og K.hafnar, fullskipaöur
farþegum. Væntanlegur aftur
um kl. 18.00 á laugardag.
Flugfélag íslands: í dag
veröa áætlunarferöir til Akur-
eyrar (2 feröir), Vestm.eyja,
Keflavikur, Fáskrúðsfjarðar og
Reyðarfjaröar. Frá Akurevri
eru áætlaðar ferðir til Siglu-
íjaröar og Ölafsíjarðar.
A morgun eru ráðgeröar
flugferöir til þessara staða:
Akureyrar (2 feröir), Vest-
mannaeyja, Keflavíkur, Kirkju-
bæjarklausturs, Fagurhóls-
mýrar, Hornafjarðar og Siglu-
f jarðar.
í gær var flogið til Akureyr-
ar (2 íeröir), Vestm.evja, ísa-
fjarðar, Hólmavíkur og Kefla-
víkur. Þá var einnig flogið frá
Akureyri til Siglufjarðar og
ísafjarðar.
Gullfaxi, millilandaflugvél
Flugfélags íslands, kom i gær
frá London og Prestwick, full-
skipaður farþegum. Flugvélin
fer kl. 8.30 á laugardagsmorg-
un til K.hafnár.
Línudansari og loítfimleikamenn
íTivoli í kvöld,
Gengið á línu upp í 15 m. hæð
I kvöld byrja nýir loft-
fimleikamenn að sýna listir
sínar í Tivoli, skemmtigarði
Rvíkinga, ennfremur línu-
dansari, sem gengur upp línu
á 15 metra háa stöng.
Tivoli hefir ráðið loftfim-
leikafólkið Maggie og Marco
og línudansarann Marcos hjá
Ernst Sahlström í Kaup-
mannahöfn, en hann annast
ráðningar á kunnum ofur-
hugum og fimleikamönnum
fyrir þekktustu skemmtistaði
Norðurlanda, svo sem Tivoli
í Khöfn, Holbergliaven, einn-
ig í Khöfn og Liseberg i
Stokkhólmi. Ætti þetta að
erar“ upp línuna upp í 15
metra hæð og hefir ekkert
öryggisnet undir, en slíkt er
aðeins á meðfæri hinna ör-
uggustu (og að sjálfsögðu)
djörfustu línudansara.
Bók um Blárra tinda
blessað land,
Árni Óla blaðamaður hefir
sent frá sér nýja bók, allstóra
og prýdda fjölda mynda, er
hann nefnir „Blái-ra tinda
blessað land“.
Ferðasögur Árna Ola,
Hfí gagns &g gasnnns •
tínMcfáta hk S6S
Hr Vísi fyrir
35 árunt.
Bréfspjald
af austfirzkum sagnaþul, Jó-
hannesi Árnasyni, hefir Rík-
arður Jónsson, myndhöggvari
látiö gera eftir einni af sínttm
góðu teiknimyndum er hann
gerði á ferð sinni um æsku-
stöðvar sínar í fyrra suntar. —
Jóhannes sá, sem myndin er af,
er sagður einkennilegur karl og
margar smásögur eftir honum
haföar. Rikaröur hefir í
hyggju aö gefa út fleiri bréf-
spjöld með fleiri andlitum, sem
hattn hefir teiknaö og hafa sér-
stök einkenni ....
£mœlki —
„Ætlar þú að taka að þér þessa
konu, og gera hana að löglegri
eiginkonu þinni?“ sagði negra-
presturinn, og virti fyrir sér kon-
una sem var 200 pund og ntann-
inn sem var hundrað pund.
„Eg tek ekki neitt,“ svaraði
brúðguminn, „það er eg sem er
tekinn.“
í sumum ríkjum í Suður-Anter-
iku er orkidé ntjög algengt blóm
og kostar aðeins 2 eða 3 cent
stykkið. Tízkukonum þar þykir
þvi lítið til þeirra blóma koma,
cn í Evrópu eru þessi blónt rán-
dýr og ntjög í tízku.
Húsbóndinn: „Það eru hornar
tíu krónur úr peningakassanunt
mínutn, og enginn hefir lykla að
kassanum nema þú og ég.“
Skrifstofupilturinn: „Ætli við
borgum þá ekki sinar fitntn krón-
urnar hvor og fámst svo ekki unt
það meira?“
Á Englandi er til óvenjulegur
skóli sem undirbýr ungar stúlk-
ur og pilta til þess að taka við
störfum þjónustufólks á lieimil-
m konungsæltarinna, en þar eru
venjulega um það bil 1500 þjón-
ar. Skólinn var stofnsettur fyrir
lmndrað árum og stendur á lándi
Windsor kastalans. Nemendur fá
kennslu i mörgu, því að stöður
í þjónustu konungsættarinnar
eru af mjög mörgum tegundum.
Kennslan er saumaskapur, skóg-
argæzla, akstur, ■símavarzla og m.
fl.
Krossgáta nr. SoS.
Lártt: 2 Höfuðbúnaði, 5
þjóö, 6 forsetning, 8 tveir eins,
10 brúki, 12 drykkjar, 14 rækt-
að land, 15 tónn, 17 fangamark,
18 óheflaða.
Lóðrétt: 1 Drykkjarföng, 2
ílát, 3 eldstæði, 4 þrætur, 7
biblíunafn, 9 í ljósi, 11 ferðalag,
13 eldstæði, 16 forsetning.
Lausn ,á krossgátu nr. 807.
Lárétt: 2 Garmi, 5 ófum, 6
smó, 8 al, 10 Alma, 1 tik, 14
auð, 15 atar, 17 Nu, 18 karfa.
Lóðrétt: 1 Hófatak, 2 gus, 3
ainma, 4 iönaður, 7 Óla, 9 líta,
11 mun, 13 kar, 16 R.F.
þjóðlífslýsingar hans og
vera nokkur trygging þess,1 atburðafrásagnir eru öllum
að hér er um góða skenunt- lesfúsum Islendingum löngu
un að ræða, ekki sízt línu-
dansarinn.
Maggie og Marco og línu-
dansarinn hafa jsýnt víða um
Evrópu, í Frakklandi, Spáni,
Englandi, Tékkóslóvakíu og
Þýzkalandi. Héðan fara þau
til Bandaríkjanna, en sýna
fýrst í Gaulaborg.
Maroc línudansari „spáss-
Pólverji dæmdur
fyrir njósnir.
Pólverji nokkur hefir ver-
ið dæmdur í þriggja ára
fangelsi í Bretlandi fyrir
njósnir.
Var maðurinn sekur fund-
inn um að njósna uin flug-
lieri Breta og Bandarikja-
manna fyrir erlent stórvcldi.
Maður þessi var áður for-
ingi í stórskotaliði pólska
hersins.
kunnar. Frásagnastíll Árna
er í ágætasta lagi, lipur og
látlaus og þeim lcostum bú-
inn að draga að sér athygli
lesendanna í sterkri og stig-
andi frásögri.
Bókin skiptist í tíu aðal-
þætti: Á næstu grösum,
Ferð um Snæfellsnes, Frá
Dölum og Ströndum, Frá
Vestfjörðum, Ferð um
Skaptafellssýslu, Frá Siglu-
firði, Sesselja í Skóguni,
Elzta mannvirki á íslandi,
Kapellan á Vaðmúlastöðuni,
Skátamót á Þingvöllum, Að
lokum.
Bókm er á 4. hundrað bls.
að stærð, prýdd fjölda
mynda og fallega gefin út.
Dtgefandi cr Bókfellsútgáfan
h.f.
BEZT AÐ AUGLYSAIVIS!
Systídni mín,
Guðrún María
Og
Ágúst I. Ámtann,
létust 19. þ.m.
Fyrir hönd ættingja og vina.
Sigbjörn Ármann.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
Guðbjargar Vilhjáimsdóttur,
Háteigsveg 11, sem andaðist 15. júlí fer fram
frá kapellunni í Fossvogi kl. 2 föstudaginn
22. þ.m.
Eiginmaður og börn.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við fráfall og jarðarför sonar míns og bróður
okkar,
Péturs Guðjóns Auðunssonar.
Auðun Sæmundsson og börn.