Vísir - 15.01.1951, Síða 1
41. árg,
Mánudaginn 15. janúar 1951
11. tbL
Um 11-kytið á íaugardags-
kvöld féll snjóflóð í Ljósa-
vatnssltarði og sópaói með
sér háspennuh'nu frá Laxár-
virkjuninni út í Ljósavaín á
rsokkru svæði. Hefir Akur-
eyri verið nær rafmagnslaus
síðan.
Snjól’Ióð tók með sér 7
staura háspennulíriunnar með
vírum og öðru tilheyrandi og
sópaði því út j Ljósavatn.
Bfast ísinn undan þunga
flöðsjns og fór allt í kaf.
Nokkrar varabirgðir Lands-
símans voru þarna einnig,
staurar og annað, og fór það
cirinig í kaf.
Þarna er illt um aðgerðir
og veður óhagstætt, fann-
koma og hvassviðri. Firnrn
menn úr nágrenninu eru
teknir að vinna að viðgerð-
inni, en aðrir fóru í morgun
á skíðum frá Akureyri.
Verður unnið að því að
setja upp bráðabirgðaloft-
línu, en því verki verður
fráleitt lokið fyrr en á mið-
vikudag.
Er þetta n\esta bilun á Ijín-
unni síðan árið 1942, en þá
féll snjóflóð á sömu slóðum,
en viðgerðin tók viku þá.
Glerárstöðin gamla er í
íagi, og ennfremur fæst raf-
magn frá mótorum í Iijalt-
eyrarverksmiðj unni. Fæst
rafmagn til sjúkrahússms og
menntaskólans, en Akureyri
er rafmagnslaus að öðru
leyti Miklar samgönguteppur
hafa orðið og mjólkurfJutn-
ingar stöðvazt.
Það voru þrýstl-
íoftsflugvéiar.
Margir urðu undrandi yfir
gufurákum þeim, sem birt-
ust á vestur- eða suðurvestur-
himni rétt. fyrir klukkan
þrjú í gær.
En orsökin er ofur-eðlileg,
því að þarna voru amerískar
þrýstiloftsflugvélar á ferð.
Höfðu komið til Keflavíkur
fjórar sprengjuflugvélar
knúnar þrýstiloftshreyflum.
Eru tveir hreyflar á hvorum
væng og geta flugvélar þessar
flogið nærri heint upp, svo
sem sjá mátti i gær af gufu-
stróknum, sem myndaðist í
lofti, er útblástur lireyflaima
jþéttist í köldu lofíinu.
Snjókoma hefir verið mik-
il norðanlands undanfarna
daga cg jarðbönn eru nú í
heilum héruðum.
Samgönguerfiðleikar eru
miklir víða, mjólkurflutuing-
ar hafa tafizt eða lagzt alveg
niður í bili og samgöngur
mill bæja torveldazt.
Sunnanlands og vestan er
miklu betur ástatt, enda litil
sem engin snjókoma, logn og
hreinviðri seinustu daga.
Færð héfir spillzt dálítið í
Bröttubrekku, en þar verður
mokað í dag. Greiðfært er úr
Borgarnesi vestur í Stykkis-
hólm.
1 morguri var hægviðri um
vesturhluta landsins, en enn
norðanátt um austurhluta
Iandsins, víða 6—8 vindstig
og éljagangur norðaustan-
lands. Ánnars úrkomulaust
hér á landi og heiðskírt sunn-
anlands og vestan.
Mest frost kk 8 í morgun
var 10 stig á ÞingA’öllum, í
Reykjavík 6 stig, við strönd-
ina yfirleitt 2—6 stig.
----------
Fer ekki á
fundinn.
Hinn 12. janúar barst utan-
ríkisráðunyetinu boð dönsku
ríkisstiórnarinnar um að
hafa fulltrúa á fundi í Kaup-
mannahöfn hinn 16. janúar,
þar sem norska, sænska og
danska stjórnin hafa kornið
sér saman um að ræða utan-
ríkismál. Ríkisstjórn Islands
getur ekki komið því við að
hafa fulltrúa á fundinum.
----♦-----
Norsk skógræktarmynd
sýnd hér.
Skógrækt ríkisins frum-
sýndi í gær norska litkvik-
mynd frá Tromsfylki í Nor-
egi.
Landbúnaðarráðuneyti
Noregs liefir gefið Skógrækt
ríkisins kvikmynd þessa, en
lmn sýnir líf og háttu manria,
en þó einkum skóga og skóg-
rækt í næst nyrzla fyllvi
Noregs,
Þannig- var umhorfs á vu'gstöðvunum í Kóriu, þegar árið 1951 gekk í garð. Það er ekkí
vandalaust að óska hver öðrum gleðilegs nýárs, þegar sprengjur springa allt í kring
og dauðinn e r á næsta leiti.
Varnarsveitlrnar hafa haldið
éllufn síniim stöðvum, þrátt
fyrlr iáfiausa bardaga í viku.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Vísir hefir aflað sér, er
ekkí vitað með vissu, að in-
fluenza hafi komið til bæjar
ins, en þó er ekki útilokað,
að væg tilfelli hafi kom.ið
fyrir.
í byrjun síðustu viku kom
fjölskylda frá Norðfirði hing-
að til bæjarins, kona með
fjögur börn, og veiktust tvö
þeirra eftir komuna hingað,
en batnaði skjótt.en batnaði
en batnaöi skjótt.,
Konan tilkynnti um þetta,
er hún las í blöðunum um
influenzuna. Einnig er vit-
að um sjúkling rétt við bæ-
inn meö influenzueinkenni.
Fiugþernan
bjargaði
10 manns.
Skymasterflugvél fórst í
gær í lendingu í Filadelfia
og biöu 5 konur og tvö
börn bana í flugslysi
þessu. Flugþerna vélar-
innar sýndi mikla hug-
dirfsku og snarræði, er
hún hjálpaði farþegum út
úr vélinni og er talið að
henni einni hafi tekizt að
bjarga 10 manns, en sjálf
brann hún inni í vélinni.
Bardagar hafa verið geisi-
harðir á miðvígslöðvunum í
Kóreu, aðallega hjá Wonju,
en þar hafa franskar, holl-
enzkar og bandarískar fót-
gönguliðssveitir yerið til
varnar. Má heita að bardag-
ar hafi á þessum slóðum ver
ið látlausir í heila viku, en í
morgun . munu .. bardagar
hafa legið þar niðri.
Hersveitíum S.Þ. hefir yf-
irleitt tekist að halda öllum
sínum stöðvum á Wonju-
svæðinu og þótt kommúnist-
um hafi tekízt aö hrekja þær
úr varnarstöðvum sínum,
hafa þær ávallt gert gagn-
áhlaup og hrakiö kommún-
ista úr þeim aftur,,
Hœlla á einangrun.
Nú stafar þessuni hersveit
um S.Þ. aðallega hætta af
því að verða einangraðir, en
við austurenda varnarlínu
S.Þ., hefir nokkrum þúsund-
um kommúnista tekizt að
brjótast í gegnum varnirnar
og við vesturenda hennar
gera þeir ítrekáðar tilraunir
til þess að rjúfa varnirnar og
hefir orðiö nokkuö ágengt.
Takist þeim þetta munu her
sveitirnar, sem eru til varn-
ar hjá Wonju vera 1 mikilli
hættu.
Collins í eftirlitsferð.
Collins hershöfðingi, yfir-
maður landhers Bandaríkj-
anna, fór í gær flugleiðis frá
Tokyo til Kóreu og mun
hann fara í tveggja daga eft-
irlitsferö um víglínuna., —
Hann sagði í aðalbækistöðv-
um 8. hersins í morgun, að
hann gæti engu spáö um
framtíðina, en nú væri það
ásetningurinn aö verjast í
Kóreu og fara hvergi. Hann
taldi ekki líkur á að hægt.
yrði að senda neinn veruleg-
an liðsauka strax ,en eftir
nokkra mánuði mætti vænta
aukins liðs, ef þúrfa þætti.
Herforingjar í Tokyo.
Hershöfðingjarnir Bedell-
Smith, Vandenberg og Coll-
ins, eru allir komnir til Tok-
yo til þess að ræöa við Mac-
Arthur um ástand og horfur
í Kóreu og öðrum Asíulönd-
um„ Hefir talsmaður þeirra
sagt, að þeir séu þar í boöi
MacArthurs, en ekki 1 neinni
óvenjulegri eftirlitsferð.
, ---—♦-----
Kamtdasljórn viIB
Iictitii ekki.
Kanadiska stjórnin hefir
bannað Campell, ritstjóra
brezka. kommúnistablaðsins
Daily Worker, að koma til
Kanada, eins og hann haföi
ætlað sér. Eru brezkir kom-
múnistar mjög reiðir Kan-
adastjórn fyrir tiltæki þelta.