Vísir - 05.04.1951, Blaðsíða 1
41. árg.
Fimmtudag'-P.n 5.
77. tbí.
Kaffi kemur
á
fe®
Goöafoss er með 2-3ja
mánaða birgðir.
Á mánudaginn kemur geta
reykvískar húsmæður aftur
keypt kaffi í nýlenduvörubúð-
um að vild.
Undanfarna daga hefur kafíi
verið nær ófáanlegt í verzlun-
um, en nú rætist brátt úr
þessu, með því að í ,,Goðafoss“,
sem kemur í kvöld, er allmik-
ið magn af kaffi, sem talið er
að nægi landsmönnum næstu
2—3 mánuði.
,,Goðafoss“ kemur frá Ant-
werpen í Belgíu með kaffið,
en það er annafs frá Brazilíu.
Yerður strax hafizt handa
um að brenna kaffið og setja
það í umbúðir og má vænta
þess, að það verði á boðstólum
næstkomandi mánudag.
Attlee i sjúkrahúsiv
Atllee, forsætisráöherra
Bretlands, liggur enn í
sjúkrahúsi, en þangað fór
hann til læknisskoðunar fyr-
ir skemmsiu. Mun hann
verða að dveljast þar enn um
sinn.
Ný
tillaga frá
Gromyko.
Gromyko lagði fram í gær
nýja breytingartillögu við
fyrsta lið tillagna Rússa um
dagskrá að fjórveidafundi.
Fallast Rússar nú á, að rætt
verði eigi einungis um afleið-
ingar ókyrrðarástandsins
heiminum, heldur og orsakir
þess. En ekki hafa Rússar
slakað neitt til um afstöðu
sína til þess, að rætt verði um,
hversu Búlgarar, Rúmenar og
Ungverjar hafa staðið við
skuldbindingar friðarsamning-
anna, en á þetta leggja Vest-
urveldin mikla áherzlu.
Seinustu breytingartillögur
Gromykos eru sagðar heldur í
tilslökunarátt, og hafa fulltrú-
ar vesturveldanna þær nú til
athugunar.
É»essi mynd er af foringja Galatheti-leíðangursins danska dr.
1 Anthon Bruun, sem athugar djúphákarl. Leiðangurinn hef-
ir þegar farið mjög langa leið og gert all-merkilegar upp-
götvanir.
Það var verið að
reykja síld.
Um kl. 2 nótt töldu menn,
aö eldur væri uppi á Lauga-
vegi 20 B og kölluðu á
slökkvihðið.
Kom það þegar á vettvang,
en þegar til átti að taká
reyndist enginn óeðlilegur
eldur uppi, heldur rauk
hressilega úr reykofni þar á
bak við, þar sem verið var að
reykja síld. Varð slökkvilið-
ið því frá að hverfa að
þessu sinni. Annars bar ekk-
ert til tíðinda hjá slökkvi-
liðinu í nótt, að þvi er Vísi
yar fj'áð í morgun.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra.
ar verða að
|a landinn varnir.
Áwúsarsstentt gges'ts sjfis*leiit
fassik ú
íi fMif# a MM&sMam s@r.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra flutti í gær útvárps-
ávarp í tilefni af stofnun Atlantsliafsbandalagsins, og fara aö-
alatriði bess hér á eftir.
Hersveitir S.Þ. búa um
norðan 38. breiddarbaugs
A©/isÞti'sssiss e* i gýees%
Vélahersveitir úr Banda-
ríkjahernum í Kóreu bjuggu
um sig í gærkvöldi í nýjum
stöðvum norðan 38. breiddar-
baugs.
í fregnum í morgun segir,
að hersveitir Sameinuðu þjóð-
anna hafi rekið nokkurra kíló-
metra langan fleyg inn í varn-
arbelti kommúnista í Norður-
Kóreu.
Þetta hefur áunnizt hægt og
hægt undanfarna daga, en
hvergi er um hraða sókn að
ræða.
Brezkar hersveitir úr 7. stór-
fylkinu eru nú komnar norð-
ur yfir bauginn. Sóttu þær
fram yfir jarðsprengjusvæði,
þar sem og var komið fyrir
þéttum gaddavírsflækjum.
Allmikil átök voru í lofti í
gær. Bandarískar þrýstilofts-
flugvélar, sem fóru til árása
skammt frá mansjúrísku landa-
mærunum, lentu í bardögum
við þrýstiloftsflugvélar af
rússneskri gerð. Var ein hinna
síðarnefndu skotin niður, en
2—3 löskuðust. Bandaríkja-
menn urðu ekki fyrir flugvéla-
tjóni.
Komúmstar dæmdir
til dau5a á hdiandi.
N. Belhi (UP). — Hæsti-
rétlur IncIIands hefir staðfest
dauðadóma yfir 12 kommún-
istum.
Hafa. þeir verið j haldi síð-
an árið 1948, er Hyderabad
var kúgað til hlýðni, en þá
myrtu þeir fjóra menn. Þeir
liafa tvisvar skotið máli sínu
til æðri rétta, en dómurinn
jafuan verið staðfeslur.
í dag er rétt tvö ár liðin síð- j
an varnarsamningur Norður-
Atlantshafsríkjanna var und-
irritaður í Washington. At-
burðir þessara tveggja ára og
þá ekki sízt síðustu þriggja
ársfjórðunga hafa sannað svo,
að ekki verður um deilt, að
varnarbandalag þetta var ekki
stofnað að ófyrirsynju.
Eitt af frumskilyrðum þess,
ao ekki hefjist allsherjarstríð,
er, að varnarleysi hinna frið-
sömu ríkja sé eigi svo algjört,
að það bjóði árás heim. Þátt-
tökuríki Norður-Atlantshafs-
bandalagsins, sem öll eru frið-
söm í eðli og höfðu afvopnazt
eftir síðustu styrjöld, hafa
sýnt skilning sinn á þessu með
þeim miklu átökum, sem þau
hafa gert til að koma upp nægi
lega sterkum, sameiginlegum
vörnum.
Við undirskrift samningsins
var það berum orðum sagt af
hálfu íslands, að aðild okkar
að samningnum sýndi, að bæði
sjálfra okkar vegna og annarra
vildum við svipaða skipan á
vörnum landsins og var í síð-
ustu styrjöld, ef ný brytist út,
sem við vonum og biðjum að
ekki verði, sem sé, að hinar
engilsaxnesku þjóðir annist um
þær.
Öllum þeim, er sjá vilja og
skilja, er ljóst, að ísland hlýt-
ur að dragast inn í styrjöld, er
háð kann að verða á þessum
slóðum, vegna þeirrar úrslita-
þýðingar, sem landið hefur um
öryggi landanna við Norður-
Atlantshaf. Þess vegna verða
íslendingar að tryggja landinu
varnir. Það er hins vegar und-
ir mati á stjórnmálaaðstöðu
allri og styrjaldarhættu kom-
ið, hvenær íslendingar telja
nauðsynlegt að vörnum sé kom
ið fyrir í landinu. Árásarmenn
gera yfirleitt ekki boð á und-
an sér og ráðast sjaldan á garð -
inn þar sem hann er hæstur.
Vissulega hafa atburðir síð-
ustu mánaða verið svo ískyggi
legir og friðleysið í heiminum
svo geigvænlegt, að íslenzka
þjóðin hefur haft þungar
áhyggjur af varnarleysi lands-
ins. Ríkisstjórnin hefur þess
vegna að sjálfsögðu haft náið
samráð við aðrar bandalags-
þjóðir og stofnanir bandalags-
ins um eðli og alvöru hættunn
ar, og mun á hverjum tíma
hiklaust gera það, sem hún að
öllu athuguðu telur nauðsyn-
legt til að draga úr árásar-
hættunni og þar með tryggja
frelsi og öryggi íslands.
Dýrkeypt reynsla hefur
kennt lýðræðisþjóðunum, að
öflugar varnir þeirra sjálfra
eru bezta tryggingin gegn því,
að á þau verði ráðist. Varnar-
samtök Norður-Atlantshafsríkj
anna, sem stofnuð voru fyrir
tveimur árum, eru byggð á
þessari staðreynd. Vonandi
verða þau nógu sterk til að
eyða árásarhættunni og tryggja
varanlegan friði í heiminum.
Brefar hækka verð vi5
Ný-Sjáiendinga.
Bretar bafa fyrir skömmu
fallizt á að kaupa egg, smjör
og aðrar landbúnaðarafurðir
hærra verði en áður af Ný-
Sjálendingum og Ástralíu-
mönnum. Hefir og verið boð-
að, að matvælaverð muni
liækka í Bretlandi á þessu
ari.
Rússar banna
ritverk Sartres.
London (U.P.). — Sovét-
stjórnin hefir bannað ritverk
eftir ýmis þekkt skáld og rit-
höfunda.
• Meðal þeirra eru Jean Paul
Sarlre, Graliam Greenc, T. S.
FJIiol og James Joyce, en
menntamálaráðuneyti Sovét-
rikjanna tilkynnir, að allir
Jiessir höfundar séu mann-
félagsfjendur og ali upp í
inönnum morðfýsn.
Konungíeg botnlangabóiga.
Konungurinn í fran hefir
bolnlangabólgu og hefir
neyðzt til að fres.ta ferðalagi
til Transjordaniu, en þan^-
að ætlaði Iiann í opinbcra
heimsókn. *