Vísir - 22.06.1951, Page 5
Fcsluclagmn 22. júní 1951
v i s i a
9
Kólnandi veðurfar Iiér á
landi undanfarin 3-4 ár.
€weíur þ& &khi tilefni til að óttast
ianfj&aramdi iinldatímabil.
Ymsar gctg'átur hafa kom-
Sð fram um, að veðurfar væri
að breytast á norðurhveli
jarðar og bað um leið á Is-
landi.
Fyrir nokkurum árum
hnigu flestar spárnar i þá
átt, að veður færi hlýnandi
<og batnandi, en nú hafa kom-
ið 2—3 ár kaldari en þau
næsíu á undan. — Og nú spá
menn kólnandi veðráttu,
jafnvel þvi að ný ísöld sé i
"vændum.
Vísir hefir í tilefni af þessu
snúið sér til Jóns Eyþórsson-
ar veðurfræðings og spurt
aun álit hans í þessu efni.
. . Jón taldi það í fyllsta mála
hæpið að fullyrða nokkuð
nm væntanlegar veðurfars-
breytingar hér á landi. Hann
æagði að vísu að undangengin
3—4 ár hefði ýmsir mánuðir
'verið kaldari en algengt hafi
verið á ca. 20 árum þar áð-
ur. Þannig hafi t.d. síðast-
liðinn marzmánuður verið
sá ’addasti hér á landi frá
])ví árið 1919. Var hitinn í
aharz s.l. -a 3 stig, en 1919
var harih a- 3,4 stig. Árið
1947 var marzmánuður líka
nok’mð kaldur eða a- 2,7
stig.
Aftur á móti var maímán-
uðúf í vor fyrir ofan meðal-
iag hvað hila snerti, eða 6,9
stig. ðíeðal hitinn (miðað við
árabiUð 1901—1930) er tal-
inn vera 6,1 stig. En heitasti
maímánuður, sem sögur fara
;af frá því reglubundnar hita-
eru gerðar. Síðustu tvö árin
hafa sumir skriðjöklar, sem
áður fóru minnkandi ár frá
ári, ýmist staðið í stað eða
jafnvel færst fram. Má í þvi
sambandi t.d. benda á Breiða-
merkurjökul, austan Jökuls-
ár, sem færzt liefir fram um
allt að 40 metrum á árinu
sem leið.
Þetta gefur þó engan veg-
imi tilefni til neinna spádóma
um veðurfar í framtiðinni,
því til þess er þetta ekki
nægjanlega haldgóður grund-
völlur. Þarf þetta ekki að
vera annað en smávægilegur
afturkippur í annars góðæris-
tímabili.
Að síðstu benti Jón Eyþórs-
son á það, að nærri árlega
kæmi einhversstaðar fram
spádómar, ýmist uni batn-
ándi eða versandi .veðurfar.
M. a. gaf hinn kunni danski
jarðfræðingur Niels Nielsen
ekki allsfyrir löngu í skyn, að
ný ísöld lcynni að vera í
vændum. En Jón gat þess
jafnframt að ekkert væri á
slíkum spádómum að hyggja,
því það væri á einskis manns
færi að segja fyrir um þessa
hluti. Og þeim mönnum, sem
mest vita, er ljóst hvað þeir
vita lítið, og þeir þegja.
Á s EsBgiansié:
Nú í vikunni harst mér
bréf, þar sem eg var beðinn
að fara til Birmingham, og
fylgjast þar með skákmóti.
Einn þátttakenda þar vrði
íslendingur, Friðrik Ólafs-
son.
Eg fór að athuga málið,
enda þótt eg hefði þegar tek-
ið saman föggur mínar og
ætlaði til Norðurlanda innan
tveggja daga. Um Birming-
ham vissi eg ekkert, utan að
horgin væri i Mið-Englandi
og mikil iðnaðarborg. Hug-
mælingar voru gerðar hér í i boð hafði eg um, að þar hefði
Bcykjavík var árið 1935. Þá lifað maðiir, sem hjó til
komst hitinn í maímánuði skrúfur og varð ríkur og tók
i m-wm wnótiðm
mpp í 9,3 stig.
Að veðurfar
fer kólnandi
þátt í pólitík. Sá liét Jósep
Gliamberlain, en synir hans
má ennfremur marka af ^ tveir urðu kunnir fyrir af-
jöklrmæhngum, sem árlega skipti sín af stjórnmálum, og
mun Neville Chamberlain
einkum minnisstæður fyrir
afstöðu 'sina og framkomu
fyrir heimsstyrjöldina síðari.
Þetta var nú ekki mikið, en
gérði ekkert til, úr þvi mátti
bæta á staðnum.
Hjálpað
áleiðis.
Ilitl var verra, að eg viss
ekkert um þetta skákmót, o:
fann engan, sem gæti leið
beint mér að gagni, og af þ\
að eg hefði lítinn tíma, þá lé
eg deigan síga, söðlaði um o.
hélt til Birmingham að aflíö
andi hádegi 13. júní.
í lestinni hitti eg roskim
mann, góðlegan, og spurí
hann um skákmót þelta. Yiss
liann að skákmót
standa yfir í Birmingliam, en
lengra náði þekldng lians
ekki. Ilinsvegar var liann bú-
settur í borginni, en þetta
varð til þess, að þegar þang-
að kom, tók hann mig að sér,
og vildi ekki sleppa af mér
hendi, fyrr en eg væri „kom-
inn tii skila“. Virðist mér
það sameiginlegt Bretum,
sem eg hefi hitt og spurt um
eitthvað, að þeir eru alúðleg-
ir og greiðviknir og virðast
blátt áfram hafa gaiiian af
að leiðbeina mönnum og
greiða fvrir þeim.
tína) fæddur 1934, Friðrik
(Island), Larsen (Danmörk),
fæddir 1935. Eru þessir tveib
síðarnefndu því vngslu kepp*
endurnir, Daninn fimm vik-<
um yngri en Friðrik.
Þegar þetta er skrifað,
voru aðeins fjórar umferðir
búnar, og lítið hægt að ráða
um úrslit. Friðrik hafði unn-
ið fyrstu og fjórðu skákina,
þá Joyner frá Kanada og
Eikrem frá Noregi, en tapað
annari og þriðju, fyrir Harris
(England) og Júgóslavanum
Ivkov, sem talinn er einu
sterkasti maður mótsins.
Skákkeppni
til minningar.
Annað, sem mér var ó-
kunnugt um, var, að í Birm-
ingham stóð yfir önnur
skákkeppni — til minningar
um að hundrað ár voru liðin
27. maí s. 1. síðan fyrsta al-
þjóðaskákmótið hófst í Lon-
don. Enskur meistari, How-
ard Staunton, hratt því móti
af stað, en sigurvegari þá
varð Andersen, Þjóðverji,
Framkvæmd og fyrirkomu-
lag þessa fyrsta alþjóðaskák-
móts var ýmsurn örðugleik-
um bundin, einkum vegna
togstreitu og rígs tveggja
skákfélaga í London. Nú er
ekki slilcu til að dreifa, en
annar Glámur og hættulegri
hefir komið til sögunnar.
Stjórnmálin, sem víða teygja
hrammana, hafa einnig
blandað sér í skákmólin, með
þeim afleiðingum, að þátt-
taka í mótinu varð ekki eins
og skyldi. Skákin er alþjóð-
legust allra íþrólla, en þeir i
Piússlandi létu sig það litlu
varða. Vegna þess, að Júgó-
slövum var hoðin þátttaka,
og þeir tilkynntu, að þeir
myndii verða með, svöruðu
Rússar boði um þátttöku
engu, og komu ekki til móts-
ins. Brást þannig sú von, að
fá alla helztu og sterkustu
skákmenn heims til þess að
kappa á þessu afmælismóti.
Lofsamleg ummæli
um Friðrik.
Umsögn um Friðrik birtist
annars í bæklingi eða leik-
skrá um mótið, og er hún
þannig í þýðingu:
„Það er óþarft að lcynna
íslendinginn F. Ólafsson
fyrir skákmönnum í Birm-
ingham. Hann náði fjórða
sæti í liinu alþjóðlega hátíða-
móti með athyglisverðri1
„positions“ skák, og allir,
sem til lians sáu, vænta aS
liann verði einn hinna miklu
meistara.“
Þess skal getið hér til1
skýringar, að mót það, sem
um ræðir, var hátíðamót S
Warwickhéraði, lialdið í1
Birmingliam í fyrra, og var
Friðrik þátttakandi, en alls
voru keppendur þar 20, 9
Bretar en 11 frá öðrum þjóð-
um.
Samkvæmt þessari um-
sögn, virðist Friðrik liafa
vakið athygli í fyrra, og verið
sér og þjóð sinni til sóma.
En það er við ramman reip
að draga, flestir eru keppend-
urnir tveim, þrem eða fjór-
um árum eldri en Friðrik, og
það gerir mikinn mun þroska
og þekkingar á þessu aldurs-
slceiði.
Birmingham, 15. júní 1951.
Bjak.
-----------
Sl. vetur íéúu feikileg L:..,,uíioð í ölþunu . . ý '
sín, en alí margir íétu líí'ið. V£Sa liggja ska: snj
jS eé fram í júní, svj
Þrír heltast
Iúr lestinni.
Uppliaflega tilkynntu tutt-
ugu þjóðir, að þær mundu
liver senda einn keppenda á
(ungmennamótið. Á síðustu
stundu tilkynnti Grilckinn
veildndi, ítalinn gat ekki
komið vegna prófa, sem hann
var að ljúka, en uni Portúgal-
ann og ástæður hans var ekki
vcl Ijóst. Keppendur urðu þvi
17, og til þess að ekki stæði á
stöku, var Englendingi bætt
við. Þessir eru lceppendur:
Barlter og Harris (Eng-
landi), Burstein (Fraklc-
land), Nyreen (Sviþjóð),
Bliend (Sviss), allir fæddir
1931, Jackson (Skotland)*
Walsh (írland),. Berriman
(Astralía), Joyner (Kanada),
Goosemans (Belgía), Selzer
(Austurríki), Eilcrem (Nor-
egur), Asker (Svíþjóð),
fæddir 1932, Rosen (Þýzka-
land), Ivkov (Júgóslavía),
fæddir 1933, Cruz (Argen-
Bæjarstarfsmenn
fá uppbætur.
Bæjarstjórn Reykjavíkur
samþykkti einróma á fundi
sínum í gær aS greiða starfs-
mönnum bæjarins og bæjar-
fyrirtækjum verðlagsuppbæt-
ur á föst laun í samræmi við
samning atvinnurekenda og
verkalýðsfélaganna frá 21.
maí s.1.
Flutti Gunnar Tlioroddsen
horarstjóri tillögu um þetta
og gat þess, að hann hefði
látið athuga, liver kostnaður
bæjarsjóði yrði af að greiða
slíkar upphætur, og liefði sú
athugun leitt í ljós, að út-
gjaldaaukhing bæjarsjóðs
vegna þessa yrði 840 þúsund
krónur, er miðað er við hálft
ár. —
Verður síðar athugað, með
hverjum hætti aukinna tekna
verður aflað til þess að mæta
auknurn útgjöldum.