Vísir - 26.10.1951, Page 7

Vísir - 26.10.1951, Page 7
Fösíudaginn 26. október 1951 V I S I R 7 S. W'teÉeher: Lausnargjald Lundúnaborgar. £a$a m eiturtnjtlara. í FYRSTI ÞÁTTDR. Efelgarhvtld forsætisráðherrans. 1. KAP. Á SOMERBOURNE. Hildebrand Arthur Pontifex forsætisráðherra var einn þeirra nútímasinnuðu manna, sem ekki geta hugsað sér að hanga í London yfir helgar. Þegar Parlamentið sat á fundum, var sú sjón sögu rikari, að hann fór á burt úr embættisbústað sinurn i Downing Street árdegis á hverj- um laugardegi, eða stundum jafnvel siðdegis á föstudög- uin. Á hverjum sunnudegi var sagt frá þvi í blöðunum, aö forsæjtisráðherrann liefði farið úr bænum, og stund- um var þess getið hvert hann hefði farið. En venjulega var sagt að hann hefði farið eitthvað út í sveit. Það voru fáir sem eiginlega vissu til hlítar hvar for- sæíisráðherrann dvaldi um helgar, og átti hann þó marga kunningja. Yæri hann gestur Péturs hertoga eða Páls greifa fékk almenningur að vita um það i blöðunum. En þegar hann vildi laumast á burt frá samkvæmismasinu, þurfti hann ekki að vísa bilstjóranum sínum til vegar. Ilann hafði keypt sér fallegan búgarð i fögru héraði í Suður-Eng'landi. Húsakynnin voru ekki mikil, en nægðu saint til þess að liýsa einn eða tvo kunningja sem honum var svo hlýtt til, að hann hleypti þeim inn í þessa paradis sína. Þessi jörð hét Somerbourne. Hún var um 12 kilómetra frá næsta kaupstað og 5 kilómetra frá næsta þorpi, og það voru áreiðanlega elcki margir i nágrenninu sem vissu, að fríði gráhærði maðurinn, sem kom akandi í bílnum sinum hér um bil á hverjum laugardegi, var forsætisráð- herra þjóðarinnar. Flestir héldu að þetta væri einhver auð- kýfingur frá London, sem gerði það sér til dundurs, að ala upp verðlaunakýr. En þetta með verðlaunakýrnar var mál, sem aðeins vildarvinir ráðherrans vissu nokkuð um. Engum, sem sá hann ganga um þingsalinn, gat dottið i hug að hann hefði gaman af nautgriparækt. Það var sagt að hann gengi betur til fara en nokkur annar for- sætisráðherra hefði gert, og það segir ekki litið, jafnvel þó að það þýði ekki mikið. Þegar liann sást á götunni kom hann fólki fyrir sjónir sem sá maður er hann í rauninni var, — lifandi ímynd meiri háttar lögfræðings. Allir vissu, að hann hafði verið fljótur að hælcka i mann- félagsstiganuin. Ilann hafði skarað fram úr í Oxford. Hann hafði verið fljótur að koma fótum undir málaflutn- ingsstofu sína og náð miklu áliti sem lögmaður, orðið þingmaður kornungur og komizt í stjórnina áður en hann varð 35 ára. Um fimmtugt var hann orðinn for- sætisráðherra. Hann var frábær ræðumaður, mikils met- inn greinahöfundur ýmsra tímarita, — lika var hann kunnur bókasafnari og átti úrval af góðu postuhni. Allt þetta vissi almenningur um. En að hann fengist við að ala upp verðlaunkýr! Gladstone liafði gaman af að liöggva skóg. Balfour slundaði golf í flestum tómstundum. En Pontifex átti ekki annað yndi betra en að skoða blessaðar kýrnar sín- ar, í fyrirmyndarfjósinu, sem hann hafði látið byggja. Hann yngdist um tuttugu ár, sagði hann, í hvert sinn sem hann gat skroppið til Somerbourne, farið i vaðmáls- fötin sín og sett upp gamla húfu og gengið um með vel tilreykta pípu — og gleymt hæði orðsendingum og fjár- lögum. Ot í guðs græna náttúruna og blessað sveitaloftið! Ef til vill hefir áhugi hans fyrir kúabúinu stafað af því að það var fátt sem batt hann við heimilið. Konan lians dó tveim árum áður en hann varð forsætisnáðherra, og hann átti aðeins eina dóttur barna, Lesbiu. Hún var eigin- lega ekki neitt augnayndi,e en vel látin bæði af konum og körlum. Ekki gat hun heitð gáfuð lieldur, en hún var gam- ansöm og orðheppin. Þegar faðir hennar varð forsætisráð- herra gátu sumar stallsystur hennar ekki stillt sig um að skella á lærið og spyrja hvernig í ósköpunum maðurinn ætti að halda samkvæmi og liafa ekki aðra en hana Lesbiu í húsmóðurstöðunni. En henni tókst þetta, og meira að segja vel. Pontifex hafði ávallt verið talinn siðfágaður og orðheppinn, meðan hann var lögmaður. Eftir að Lesbia tök við starfi, sem eigi ér yandaminna en knattspyrnudóm- arans, varð hún brátt annáluð fyrir árvekni, háttprýði og gestrisni og þótti bera af flestum húsmæðrum í London. Sumir sögðu meira að segja að forsætisráðherrahn færi í smiðju til dóttur sinnar þegar.hann vildi komast hjá að ráðfæra sig við samverkamenn sína í stjórninni. En hvort sem það var satt eða logið þá var svo mikið víst, að sainbúð feðginanna var hin bezta, báðum til gagns og ánægju. Daginn sem þessi saga hefst hafði Pontiféx haft lag á að laumast frá London á föstudagskvöldi klukkan sjö, og átti því tvo frídaga framundan er hann vaknaði á laugar- dagsmorgun. Um klukkan 10 á laugardagsmorgun var hann að labba um garðinn sinn með gömlu húfuna á koll- inum og pípuna i munniniun. — Lesbia var með honum. „Þetta verður vonandi skemmtileg lielgi,“ sagði hún. Pontifex svaraði ekki, — hann stóð og góndi á blóma- beð. — „Mér sýnist,“ sagði hann loksins, „að það sé þörf á að græða þess beð að nýju, — eða hvað finnst þér?“ „Mér finnst þau falleg eins og þau eru,“ svaraði Lesbia. „Eg held eg mundi ekki hreyfa við þeim, mætti eg ráða. Mér finnst skemmtilegast að þau séu áfram í sömu mynd og þau voru þegar við keyptum jörðina. Og liún er svo mikils virði — að minnsta kosti þér.“ „Það segirðu satt, góða! Jú, þú hefir vitanlega rétt fyrir þér. Eg lief svo oft hugsað um, að þegar eg dreg mig í hlé, einhvern tíma kemur að þvi, — þá væri gaman að setjast hérna að. Hvað segir þú um það?“ „Þú mátt ekki hugsa um það ennþá. Þér dettur varla i liug að draga þig í hlé, sem ekki ert nema fimmtiu og tveggja ára? Þú verður vafalaust forsætisráðherra bæði tvisvar og þrisvar áður en þú verður sjötugur, og þá get- urðu farið að hugsa um að di-aga þig í hlé — kannske.“ Pontifex settist á beklc og tróð í pípuna. „Mér þykir vænt um að ekki koma hingað aðrir en Jocelyn í þetta sinn, — það er svo gaman fyrir okkur að fá að vera i næði.“ Lesbia liafði slitið upp rós og settist lijá föður sínum. Hún klappaði honum á handarbakið, og um leið leit hún á hann, undan breiða barðinu á liattinum sínum. „Pabbi,“ sagði hún, „það legst í mig að Jocelyn þurfi að segja eitthvað við þig i dag.“ Pontifex kinkaði kolli, eins og ósjálfrátt. Stundum var hann allmjög viðutan, og sumir af stjórnmálavinum hans sögðu meira að segja að hann væri blátt áfram lieimskur á köflum. Á þessari stundu skildi hann að minnsta kosti ekki að eitthvað lá á bak við það, sem dóttir hans sagði. NYJA EFNALAUGIN Höfðatúni 2 og Laugavegi 20B Simi 7264. Bomsur Kven- og barnabomsur. Gœfan fylgir hringunum frá SÍGURÞÓR, Hafnarstræti 4. Margar geröir fyrirligc/jandi. SlmakútiH GARÐUR Garðastræti 2 — Sími 7299. KAUPHÖLLIN er miðstöð verðbréfaviðskipt- anna. — Sími 1710. „Miele“- þvottavél Viðgerðir eru alltaf dýrar og hvimleiðar. — Kaupið þess vegna „Miele“ þvottavélina. Hún er traust og vönduð. — Getur soðið þvottinn. Véla- og raftækjaverzlunin Tryggvagötu 23. Sími 81279. Bankastrœti 10. Sími 6456. c a. Sumufki, —TARZAIM— 990 Lukah mælti hátiðlega: „Aldrei mun „Þú mátt treysta. því, að þér mun . IMerala var nú æf af reiði. Hún skip- Nú kom risinn M’Lunga og fleiri eg gleyma, hvernig þú hefir bjargað verða launað rikulega það, sem þú hefir aði svo fyrir, að farið skyldi með verðir til þess að sækja fangana og lífi minu." gjört.“ fangana til aðalsalarins. fara með þá á brott.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.