Vísir - 03.01.1952, Blaðsíða 4

Vísir - 03.01.1952, Blaðsíða 4
V í S I R Fimmtudaginn 3. janúar 1952 irlsm DAGBLAÐ Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofur Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm.línur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan tí.f. A áramótum. Nýtt ár er gengið í garð. Gamla árið hefur kvatt með öllum þess átökum og áhyggjum, en líkur eru til að horfur verði friðvænlegri í heiminum með áraskiptum. Þróunin hefur öll miðað að aukinni hervæðingu stórra þjóða og smárra, en reynsl- an sannar að slíkt kapphlaup hlýtur að leiða til ófriðar fyrf eða síðar, nema því aðeins að unnt sé að skapa jafnvægi með frið- samlegum samningum, svo sem Sameinuðu þjóðirnar leitast nú við að gera. Má með fullum rétti segja að vonir mannkyns- ins sé tengdar við starf S. þ., þótt oft hafi vonbrigðin reynzt mikil er veikleiki þeirra samtaka hefur leitt til undansláttar við ofbéldisþjóðir, er fórnað hafa mannslifum í tugþúsundatali rtil þess að vinna einræðisstefnum fóstfestu inn á við eða út á við. Aðalritari S. Þ., Norðmaðurinn Tryge Lie, ávarpaði allar þjóðir heims um áramótin og gerði nokkra grein fyrir viðhorf- unum í alþjóðamálum. Ekki verður sagt að boðskapur hans hafi hvatt til aukinnar bjartsýni, enda mun Lie sjaldan hafa verið svartsýnni, á árangur af starfi samtakanna. Vígbúnaðarkapphlaup þjóðanna hefur leitt til þess, að lagðar hafa verið þungar byrðar á almenning í öllum löndum hins vestræna heíms, en einræðisríkin herða jafnframt stöðugt þrælatök sín á þjóðum og.einstaklingum, til þess að búast gegn ófriði. Smáþjóðirnar hafa ekki komist hjá því, að færa þung- bærar fórnir vegna vígbúnaðarins og nægir þar að skírskota til Norðmanna og Dana, sem aldrei fyrr hafa haft slíkan við- búnað til þess að verjast árásum. Rússneski björninn ógnar í austrinu og hvað eftir annað hafa blöð Ráðstjórnarríkjanna baldið uppi hátrömmum árásum á þessar friðsömu smáþjóðir, sem verður að telja sem beinar ógnanir, er leitt geta til friðslita, váeri þeim framfylgt. Aðalhættan vofir þó sennilega ekki yfir þessum þjóðum nú um áramótin, en miklu meiri líkur eru til að átökin í Austurlöndum kunni að leiða til heimsófriðar, sem smáþjóðirnar súpa því næst seyðið af. Af þeim sökum og öðrum vígbúast ailar vestrænar menningarþjóðir í varnarskyni. Fómir íslenzku þjoiarinnar. *|Tslenzka þjóðin hefur allt til þessa komist hjá að færa fórnir -*• vegna vígbúnaðar, en hinsvegar höfum við lagt fram okkar skerf til sameiginlegs öryggis vestrænna þjóða, með þvi að leyfa Bandaríkjum Norður-Ameríku hersetu hér um stund, sem ávallt hlýtur að hafa nokkur óþægindi í för með sér og enginn æskir eftir á friðartímum. SÍík fórn er þó léttvæg, en þess verður einnig að vænta að hún nái tilgangi sínum og varnir landsins reynist öruggar, ef í odda skerst. Æskilegast hefði verið að ís- lenzka þjóðin sjálf gæti að einhverju leyti séð fyrir og tryggt öryggi sitt, með því að sjálfs er höndin hollust. En hið næst bezta er að stórþjóðirnar tryggi varnir landsins vegna sameigin- legs.öryggis, og geri það á fullnægjandi hátt. Afleiðingar síðustu styrjaldar hafa reynzt okkur íslendingum þungbærar og verður ekki talið að það sé með ölíu sjálfskapar- víti þótf betur hefði mátt.til takast um stjórn innanlandsmála síðustu áratuginn. Verðbólga sú, sem þjóðin á enn við að stríða •stafar fypst og fremst af hernámi landsins og hervernd á styrjaldarárunum, en þá tókst ekki að hafa hemil á kaupgjaldi og verðlagi sökum yfirboðs setuliðsins, sem sprengdi jafnframt allar stíflur, sem ætlað var'að halda verðbólguflóðinu í skefjum. Af skammsýni og vanþroska þjóðarheildarinriar og máttleysi rikisvaldsins leiddi svo aftur að afleiðingar verðbólgunnar verða filfinnanlegri en þurft hefði að vera, og er þó ekki séð fyrir endann á slíkum ófögnuði og mestu erfiðleikarnir ef til vill framundan. Þegar skygnst er um öxl verður ekki annað sagt, en að árið, sem nú er liðið, hafi verið farsælt á margan hátt og hvetji til aukinnar bjartsýni, sem ein getur bjargað þjóðinni verði henni þó í hóf stillt. Aukin vinria, aukin framleiðsla, þolgæði og hóf- semi verða að skapa tryggan grundvöll fyrir allri afkomunni og atvinnurekstrinum í heild. Það er ömurlegt tímanna tákn að atvinnuleysis hefur orðið vart síðustu árin, sem bitnað hefur þunglega á sumum landshlutum, þrátt fyrir allt peningaflóð styrjaldaráranna. Þess má vænta að vísu, að slíkt atvinnuleysi hljóti ávallt að leiða af óblíðum skilyrðum til atvinnrekstrar í landinu, miðað við árstíðir, þannig að slíkt ástand reynist ekki varanlegt. En hins ber að minnast að versta sóunin og skað- vænlegásta til frambúðar, er . ónotað vinnuafl og skortur sá og neyð, sem flýtur í kjölfari atvinnleysisins. Á þeim voða verð- ur þ§óðdn að sigrast, með -gát en þó bóflegri djörfung. /Eskan og framtsðin eru Ávarp forseta íslands á Nýárs- dag. Kæru áheyrendur! Enn er ár liðið í aldanna skaut. Eins og önnur ár skilur það eftir misjafnar minningar, sumar sárar, aðrar Ijúfar. Eg hefi ástæðu til að þakka sérstaklega fyrir g'amla árið, — alla þá alúð og hlýju, sem mér var sýnd sjötugum og í sjúk- leika mínum að undanförnu. Einnig vil eg þakka viðtökur þær, er eg hlaut á ferðum mín- um um landið. Eg kom á nýj- ar slóðir, hitti margt fólk, sem mér var ókunnugt áður eða kunnugt af afspurn einni. Náttúrpfegurð íslands er rómuð af útlendum og innlend- um, formfegurð fjallanna hríf- ur hvern mann. Sífelldur breytileiki í línum og litum mætir auga ferðamannsins. En fulla nautn af fegurð landsins, og annan skilning á því fá menn aðeins með því að kynnast fólk- inu, sem byggir það. Þetta hef- ir verið fyrri reynsla mín á ferðum mínum um landið og staðfestist hún fullkomlega á ferðum mínum í sumaf. Kynni mín af fólkinu voru mér til uppörvunar og ollu mér aldrei vonbrigðum. Hvergi varð eg var við barlóm/ vonleysi um framtíðina né vantrú álandiðog gæði þess. Viða mátti sjá slík- ar framkvæmdir undanfarinna ára og fullur áhugi ríkti um að halda í horfinu, bæta við, sækja á brattann. Á þetta við bæði um jarðrækt og aðrar verklegar framkvæmdir. Eg kom á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri við Arnarfjörð. Þótt fátt minni þar nú á bernskuspor hinnar miklu frelsishetju og aðeins standi eftir af baðstofunni sem hann fæddist í, einn fallandi veggur, er enn ilmur úr jörðu á þess- um stað. Byggðin þar er fá- menn og víða annars staðar þar sem eg kom hafði safnazt saman fleira fólk. En þarna var þó meira af ungu fólki, að því er mér virtist. Á Hrafnseyri er óbrotinn minnisva'rði urri Jón Sigurðs- son. Það er gott að höggva í stein minningar um forna frægð og unnin afrek til örvunar síðari kynslóðum, en þjóð, sem horf- ir fram og vill ekki einungis una við ljóma liðins tíma, þarf fyrst og fremst að leggja alúð við menntun og uppeldi æsku- lýðsins, sem innan stundar á að leysa hina eldri af hólmi, Nú á tímum heyrast oft radd- ir um það, sem miður er í fari íslenzkrar æsku, hóglífi hennar, gleðifíkn og eyðslusemi. Margt af þessu er rétt og fullkomið áhyggjuefni. En mér finnst ekki ástæða til þeirrar bölsýni, sem stundum gætir í þessu sam- bandi. Vér skulum minnast þess, að slíkum dómum hefir ekki einungis æska vorra tíma orðið að una. Æskuna og oss hin eldri, sem slíka dóma fell- um, virðast stundum skilja mikil höf. Rosknir menn gleyma því sumir furðu fljótt, hvernig þeir voru sjálfir í æsku. Eg vil með þessum orðum benda á, hve skeikulir dómar vorir geta verið og hvetja menn til að vera ekki miður skyggnir á kosti unga fólksins en galla þess, til að sýna skilning og mildi í dómum og leita orsaka þess, sem aflaga fer. Vera má, að nokkur sök finnist hjá þeim, sem eldri eru. Þeir eru margir, sem vanda um við æskulýðinn, en hve margir eru þeir, sem hann getu'r með stolti tekið sér til fyrirmyndar? Ef menn krefjast reglusemi, elju og hófsemdar af fólkinu, sem er að vaxa upp, þá verður það að finna þessa kosti í fari þeirra, sem ráða fyrir því. Ann- ars er engin von um árangur. Vér skulum gera oss ljóst, að æskulýður nútímans hefir ekki ástæðu til að vera hrifinn af allri sinni arfleifð. Þegar æsk- an og ellin horfast í augu, þá er meiri ástæða fyrir hina eldri til að líta undan. Ef vér tileinkuðum oss meira af kjarna kristindómsins, þá myndi ferill mannkynsins ekki sýna eins miklar sjálfskapaðar hörmungur og raun ber vitni. Vér þurfum að tileinka oss meiri sanngirni, meira umburð- arlyndi, meiri góðvild, meiri mildi. Vér þurfum að læra að bera meiri virðingu fyrir skoð- unum hvers annars þótt oss greini á, en ætla okkur ekki að dæma eða ráða einir. Það er trú mín, að þau vanda- mál séu fá, sem eigi er unnt að leysa með góðvild og gætni. Æskan og framtíðin eru óað- skiljanleg hugtök. Ef vér vilj- um skapa þessari þjóð betri tíð en vér búum sjálfir við, þá þurfum vér að leggja alúð við uppeldi ungu kynslóðarinnar. Vér megum ekki láta oss nægja, þótt vér vitum, að oft vaxi styrkir stofnar umhirðulaust á víðavangi, því að kræklumar eru miklu algengari við slík skilyrði. Ræktun lýðsins er ekki vandaminni en ræktun lands- ins, en allir vita hvernig fer í þeim efnum, ef menn leggja sig ekki alla fram. Hver kynslóð á að ala næstu kynslóð upp og láta hana njóta þess bezta, sem hennar eigin og fyrri kynslóða reynsla hefir skapað, gera hana skyggna á bresti, sem háðu fortíð og nútíð og benda á brautir, sem geta leitt til meiri farsældar. Góð menntun, samúð og góð- vild eru þau leiðarljós, sem munu leiða oss til betra lífs í landi voru, því að hvorttveggja er gott: landið og fólkið. í þeirri trú árna eg öllum Is- lendingum árs og friðar. BERGMAL Þá er árið 1951 „liðið í aldanna skaut, og aldrei það kemur til baka“, eins og þar stendur, en nýtt ár, með nýjum vandamálum og við- fangsefnum tekur við. Það er ekki á mínu meðfæri að spá neinu um það, sem það kann að fela í skauti sínu, en ástæða er þó til að vona, að hollvættir vaki yfír þessu landi nú sem fyrr. * . ' l' Það er gamaíl og góður siður að staldra við um áramót,! skyggnast um öxl og líta yfir farinn veg. Jafnframt er það venja margra að gefa ýmisleg íyrirheit, ákveða, að nú skuli hitt og þetta tekið öðrum og fastari tökum en áður, en síðan er svo undir hælinn lagt, hve tnikið úr framkvæmdunum vérður. Allt um það er ekki hema mannlegt að hafa ýmis- legar fyrlrætlanir á prjónunum, enda. þótt eitt sinn hafi verið 6Ggt, að vegurinn, til vítis væri lagð.ur..góðum áfpnhttm. Sjálf- sagt hefir þú, lesandi góður, lofað sjálfum þér einu og öðru, þegar Dómkirkjuklukkan sló á miðnætti 31. desember 1951, en flugeldar teygðu logafingur sína mót himingeiminum. Kannske þú hafir hugsað þér að hætta að reykja, bragða ekki áfengi vera vinnusamari, blíð- íegri í viðmóti við heimafólk þitt eða þar fram eftir götunum. Hver veit. * A8 minnsta kosti er þetta fjarska. algengt, og víst er Um það, að þetta undarlega auknablik, þegar gamla árið kveður, en hvítvoðungurinn rekur upp fyrstu skælurnar, hefir margs konar dularfull áhrif á okkur velflest. En svo koma fleiri dagar, og líf- ið færist aftur í sínár vana- legu skorður, og árið 1952 iíður þegjandi og hljóða- laust, eins og ÖII hin, sem að baki eru. ' ? '• . .[■ . * :>i. “ .. . ; 1 • j. Vænt þætti mér um að fá Unu frá þér, lesandi góður, um eitthvað, sem þú telur máli skipta, og ástæða er til að hreyfa á prenti á þessum vett- vangi. Tilskrif þitt þarf ekki að vera langt, og aldrei verður riafn neins bréfritara getið, riema til þess sé beinlínis ætlast. Bergmál stendur enn sem fyírr opið þeim, sem eitthvað hafa fram að færa, til umvöndunar eða ábendingar og um flest þau málefni, sem efst eru á baugi á hverjum tíma. — Að svo mæltu slæ eg botninn í þetta og óska ykkur öllum enn einu sinni gleðilegs og gæfuríks árs. — ThS. Gáta dagsins. Hvað er það, sen margir leita ráða til, stemþegir alltaf, en segir !»• alltaf sannleikann? Svar við síðustu gátu: 'í Talaði við annan sÉr meiri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.