Vísir - 14.03.1952, Blaðsíða 1
42. árg.
Föstudaginn 14. marz 1952
61. tbl.
393,500 at-
Bretlandi.
Atvinnuleysi-ngjar í Brét-
landi voru 15 þús. fleiri 15.
febr, en 15. janúar.
Samtals voru þeir 393.500 í
sl. mánuði og hafði Vs þeirra
verið. atvinnulaus í 8 vikur..
6.800 fleiri menn unnu i. kola-
námunum í febrúar en jajiúar.
inn ffimna
af matvælum.
Bretar flytja inn minna af
matvælum en fyrir stríð, en
liafa þó aukið innflutiiing mat-
væla frá samveldislöndunum.
Frá þessu er s.agt í nýbirtri
skýrslu, þar sem greint er frá
því, að framleiðsla landbúnað-
arafurða sé yfirleitt talsvert
meirj. í samveldinu en fyrir
stríð.
Dr. Graham,, sátíasemjari S.
Þj. í Kashmirdeilunni, heldur
áfram málamiðlunartilraunum
EÍnum.
Hann er nýkominn aftur til
•Nýju Ðehli,-eftir að hafa dval-
ist 8 daga í Karachi, til. við-
. ræðna við: ríkisstj órn. Pakistan.
Öryggisráðið hefir beðið dr.
Graham að skila.. skýrslu um
árangurinn af tilraunum hans
íyrir lok þessa mánaðar.
,vr®
Kairo. (U.P.). — Farouk
konungur hefir keypt ei(t
stærsta fiðrildasafn, sem tií
var í einkaeign í Frakklandi.
Hafði hann séð það í brúð-
kaupsför sinni í Cannes á sl.
ári, en nú hefir hann símað
eigandanum 4500 stpd. boð og
keypt safnið. Ætlar hann að
hafa það í höll sinni.
Bandaríkin hafa komið sér
upp mikilli upplýsingaþjón- ,
ustu, til að vinna gegn áróðri V Töluverður leki var kominn
eroi i
/>
Norskt fiskflptningaskip. send skipinu til aðstoðar, enda
strandaði nm hálffjögur leytið1
í.nótt út af Sandgerði, eji komst
kluldcustundu síðar á flot aftur
af, sjálfsdáðum. •
Kosnlngar i Þýzkalaiidi éilii
atbugaðar
í Bonn hafa tveir fundir ver-
ið lialdnir í vikunni um frum-
drög að samningum, sem komi
í stað hernámssamningsins.
Fulltrúar Vesturveldanna og
sambandsstjórnarinnar í Bonn
hafa setið fundi þessa og hefir
verið lýst yfir af hálfu Vestur-
veldanna, að samkomulagsum-
leitanirnar séu svo vel á veg
komnar, að vænta megi þess, að
fullnaðarsamkomulag náist
bráðlega.
Meðal ágreíningsatriða má
telja, í fyrsta lagi hvert vera
skuli framlag V. Þ. til varnar-
samtakanna. 2) Eftirlit banda-
manna með iðnaði V. Þ. og 3)
Hversu mikinn herafla Vestur-
veldin megi hafa í V. Þ.
Tillögur Rússa um friðar-
samninga við Þýzkaland hafa
fengið daufar undirtektir með-
al Vesturveldanna og í Vestur-
Þýzkalandi. Talsmaður sam-
bandsstjórnarinnar í Bonn
sagði, að ef tillögur Rússa væri
samþykktar, yrði að fallast á
Oder-Neisse línuna, og þar með
gengju stór landsvæði í austur-
hluta landsins Þýzkalandi að
fullu úr greipum. Ennfremur
vakti hann athygli á, að Rúss-
ar minntust ekkert á frjálsar
kosningar í öllu Þýzkalandi
undir alþjóðaeftirliti.
Nefnd Sameinuðu þjóðanna,
sem falið var að fara til Þýzka-
lands og athuga skilyrðin fyrir
að halda frjálsar kosningar í
öllu Þýzkalandi fer þangað í
næstu viku, en eins og kunnugt
er af fyrri fregnum, hefir aust-
ur-þýzka stjórnin tilkynnt, að
nefndinni verði ekki leyft. að
koma til A.-Þ. (Kristján Al-
þertsson á sem kunnugt er
sæti í nefnd þessari).
kommúnista um heim allan
gegn lýðræðisríkjunum. Yfir-
maður stofnunarinnar er dr.
Wilson M. Compton, sem hér
birtist mynd af. Hann er
þekktur menntamaður vestan
hafs.
Báðar deildir franska þjóð-
þingsins hafa samþykkt ráð-
stafanir, sem miða að því að
treysta aðstöðu ríkissjóðs
Frakklands.
í fyrsta lagi er heimiiað að
fresta greiðslu bráðabirgðaláns-
ins, sem Frakklandsþanki veitti
ríkissjóði nýlega,, til þess að
forða honum frá greiðsluþroti.
í öðru lagi. er Erakklands-
banka heimilað að nota 22 lestir
gulls, sem nazistar. lögðu hald
á, en skilað hefir verið, til
greiðslu á skuldum Frakklands
við Greiðslubandalagið. Verð-
mæti gullsins er um 10 millj.
stpd.
SLMBwdtímui* ai íí«*áeess*íiis egse. ats :
Enn er vörnum gegn kaf-
bátum mjög ábótavant.
Þeir „sökktu" mörgum skipum á æfingunum.
Róm (UP). — Flotaæfingar
þær, sem fram fóru á Miðjarð-
arhafi nýverið, leiddu í ljós,
að enn stafar skipum milsil
hætta af kafbátum þrátt fyrir
öflugar varnir.
Kafbátamergð var látin „ráð-
ast á“ skipalest, sem sigldi frá
Möltu til Gibraltar, og voru
gerðar á hana fleiri ,,árásir“ en
nokkra skipalest Breta á Mið-
jarðarhafi á stríð-sárunum, og
var' þó oft atgangur mikill þar.
Til varnar skipalestinni voru
herskip af ýmsum stærðum,
meðal annars flugstöðvarskip,
en árásir voru gerðar úr lofti
á skipalestina á tveggja stunda
fresti og úr kafi á fimm stunda
fresti í samtals sex daga.
Kafbátar „hæfðu“ meðal
annars tvö flugstöðvarskip,
f jögur beitiskip, sex fylgdarskip
og yfir 60 flutningaskip, en a
hinn bóginn var mörgum kaf-
bátum „grandað" af fylgdar-
skipum og flugvélum flota-
deildarinnar, sem verndaði
skipalestina.
Helzta afrek kafbátanna var
það, að franskur kafbátur
komst gegnum allar varnir
flotans og kom skoti á f-lug-
stöðvarskipið Midway, sem er
mjög stórt.
Það, sem læra raá.
Æfingarnar leiddu* í ljós, að
þrátt fyrir mjög miklu full-
komnari tæki, sem nú væru til,
væri kafbátahættan ekki upp-
rætt. Enn þyrfti ný og full-
komnari tæki til að geta bægt
henni betur frá — en Vestur-
veldin eru vongóð um, að þau
verði fullgerð bráðlega.
að skipinu og tók Sæbjörg það
í drátt hingað til Reykjavíkur,
en seinna var vitakipið Her-
móður sendur , Sæbjörgu-til að-
s.toðar við það að draga skipið
til hafnar.
Norska skipi§, heitir Tourkis
og hafði lesfað saltfiskfarm í
Keflavík, sem fara átti til Ítalíu.
Klukkan 3.29 í nótt sendi
skipið frá sér neyðarskeyti,
kvaðst vera strandað og að
mennirnir væru að fara.í björg-
unarbátana.
Enda þót.t yeður væri þarna
enganveginn óhagstætt, bað
Slysavarnafélagið skipverja að
hætta við þá ákvörðun að fara
í björgunarbáta nema brýn
nauðsyn væri til, þar-til að-
stæður til björgunar hefðu ver-
ið athugaðar úr landi. Létu
skipverjar sér þetta að kenn-
ingu verða og héldu kyrru fyr-
ir í skipinu.
í fyrstunni vissi skipstjórinn
ekkert hvar skipið hafði strand-
að og kvaðst enga hugmynd geta
gert sér um það. Þetta varð til
þess að Slysavarnafélagið sendi
björgunarsveitir; út frá Sand-
gerði, Garði og Höfnum og stóð
auk þess í sambandi við mið-
unarstöðvarnar á Garðskaga og
Akranesi.
Nokkru seinna barst skeyti
£
frá Tourkis, þar*sem það telur
sig vera strandað út af Stafnesi
og skipstjórinn taldi sig sjá
Stafnesvitann. Við eftirgrennsl-
an kom þó í ljós að þetta gat
ekki verið rétt og skömmu síð-
ar barst frétt um það, að skips-
ins hefði orðið vart frá Sand-
gerði og að það myndi vera
strandað þar undan.
Áður en slysavarnasveitin úr
Sandgerði var kominn á strand-
staðinn kl. hálf fimm í nótt,
losnaði skipið sjálfkrafa og
komst á flot.
Voru þá slysavarnasveitirnar
allar sendar heim, en Sæbjörg
var stýrisútbúnaður þess bilað-
ur og auk þess kominn að því
allmikill leki. Á tímabili hélt
skipstjórinn á Tourkis að skip-
ið væri að sökkva, en sem bet-
ur fór voru allar líkur taldar á
því að unnt myndi verða að
bjarga skipinu til Hafnar. Um
áttaleytið í morgun var Sæ-
björg með Tourkis í drætti út
af Garðskaga á leið til Reykja-
víkur, en hafði þá beðið vita-
skipið Hermóð að koma til að-
stoðar.
Vísir átti tal við SIF laust
fyrir hádegi. Hpfðu þá borizt
fregnir um, að Sæbjörg og Her-
móður vqsru á, leið hingað til
Reykjavíkur með skipið í eftir-
dragi. Leki mun ekki ,eins mik-
ill og í fyrstu var ætlað, og
standa vonir til, að skipin verði
komin hingað um fjögurleytið.
Skip þetta er nýtt. Farminn
tók það á Vestfjörðum og höfn-
um hér í flóanum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sölusamhandi Íslenzkra fisk-
framleiðenda fór Tourkis héð-
an í gær með. 1000 lestir af
saltfiski eða fullfermi. áleiðis til
Ítalíu.
Vísitalan hækkaði
nm eitt stig í feb.
Vísitala framfærslukostnað-
ar hækkaði um 1 stig í s.l. mán-
uði.
Kauplagsnefnd og Hagstofan
hafa reiknað út vísitölu fram-
færslukostnaðar og reyndist
hún vera 156 stig 1, marz s.l. og
hafði hækkað um 1 stig frá 1.
febrúar.
Útflufningur til doliara-
svæðisins minnkar.
Útflutningur frá Bretlandi til
Norður-Ameríku (Bandar. og
Kanada) nam í feþrúar sam-
kvæmt bráðabirgðaskýrslu 17%
millj. stpd.
Er það 2% miilj. stpd. minna
en meðalútflutningur á seinasta
fjórðungi ársins 1951.
Enn vantar fanga-
skrár í
Fulltrúar S. Þ. í Panmunjom
hafa enn farið fram á, að fá á-
reiðanlega skrá með nöfnum
allra stríðsfanga á valdi kom-
múnista.
Vöktu þeir athygli á, að enn
hefðu kommúnistar ekki gert
fullnægjandi grein fyrir um
50.000 föngum.
Alþjóða Rauði krossinn hef-
ir_ boðist til af nýju að rann-
saka ásakanir kommúnista í
garð S. Þ. um, að þær heyi
bakteríuhernað í Norður-
Kóreu, en að því tilskyídu, acS
báðir aðilar í styrjöldinni heiti
samvinnu. Fyrra tilboði Alþjóða
Rauða krossins í þessu málj
sinntu kommúnistar ekki. , ,