Vísir - 21.05.1952, Blaðsíða 2
y 1 s i b
Miðvikudaginn 21. maí 1952
Hitt og þetta
f Austurlöndum biðjast Mú-
Ihameðstrúarmenn fyrir á göt-
tinum.
: Það þykir ekkert nýstárlegt
í Vesturlöndum. Þar verða all-
ir fótgangandi menn að biðja
fyrir sér.
Á skemmtistað í Parísarborg
^tóku margar ungar og fallegar
stúlkur þátt í skemmtiatriðum
l»eim, sem sýnd voru. Ríkis-
maður kom auga á eina þeirra
og trúlofaðist henni. Þegar hún
kom svo í búningsherbergið til
stallsystra sinna hlakkaði hún
mjög til þess að þær tæki eftir
l»ví að hún hafði sett upp dem-
antshring og forvitnuðust um
hvernig á honum stæði. En eng-
5n tók eftir hringnum. Sagði
iún þá: Húh, hvað er heitt
héma. Eg held eg verði að taka
ofan hringinn og sjá hvort mér
Jtólnar ekki!
•
Kæra dóttir mín, maðurinn
þinn skuldar mér svo mikla
peninga að eg held að hann geti
omögulega ætlast til þess að
«g láni honum meira.
Jæja, pabbi minn, en ein-
hversstaðar verður hann að fá
peningana. Og það er nú svona
með hann, að það er eins og
honum þyki það eitthvað við-
hunnanlegra að skuldheimtu-
mennirnir sé í fjölskyldunni.
~ •
Sorglegur misskilningur. —
Hjónin voru ung og fyrir
skömmu gift en heldur gekk
hjónabandið skrykkjótt og lá
við skilnaði því að gamall
frændi bjó hjá ungu hjónunum.
í>au þraukuðu samt í átta ár
og þá dó öldungurinn. Þegar
hjónin héldu heimleiðis eftir
jarðarförina sagði maðurinn:
Elskan mín, mér hefði verið
hann Hans frændi þinn alveg
óþolandi, ef eg hefði ekki elsk-
að þig svona heitt.
Hann frændi minn? sagði
frúin undrandi. Eg hélt að hann
væri frændi þinn.
BÆJ AR
jettir
Miðvikudagur,
21. maí, — 139. dagur ársins.
Dómkirkjan.
Messa á uppstigningardag kl.
11. Síra Jón Auðuns. — Engin
síðdegismessa.
Útvarpið í kvöld:
Kl. 20.30: „Básavík“, sögu-
þættir eftir Helga Hjörvar; IV.
(Höfundur les). — 21.00 Tón-
skáldakynning. — Sigurður
Helgason tónskáld: a) Erindi.
(Baldur Andrésson). b) Lög
eftir Sigurð Helgason (plötur).
— 21.45 Erindi: Lénharður fó-
geti og Eysteinn úr Mörk; síð-
ara erindi. (Pétur Sigurðsson
háskólaritari). — 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. — 22.10
„Leynifundur í Bagdad“, saga
eftir Agöthu Christie. (Her-
steinn Pálsson ritstjóri) VIII.
—22.30 Undir ljúfum lögum:
Carl Billich o. fl. flytja dægur-
lög. — 23.00 Dagskrárlok.
Cí'hu Aimi ýar....
í bæjarfréttum Vísis 21. maí
1947 segir svo um listamanna-
styrk, sem þá hafði verið út-
hlutað:
Styrk til skálda og listamanna
hefir stjórnin nýlega úthlut-
að sem hér segir: 1000 krónur
fengu þessir fjórir: Stefán frá
Hvítadal, Jakob Thorarensen,
Jón Leifs og Sig. Skagfeldt.'—
500 kr. fengu: Ólína Andrés-
dóttir, Herdís Andrésdóttir,
Guðm. Hagalín, Sigurjón Frið-
jónsson, Ásmundur Sveinsson
(myndhöggvari), Freymóður
Jóhannsson, IJggert Stefánsson
og Guðm. J. Kristjánsson
söngvari.
Þjóðbúningar.
Þeir, sem hafa í hyggju að
fá sér þjóðbúning fyrir 17. júní,
eru vinsamlega beðnir að skrifa
nöfn sín og heimilisfang á ein-
hvern af áskriftarlistum þeim,
sem liggja til sýnis í verzlun-
um.
Ný Skymastervél.
Samkvæmt skeyti.'er skrif-
stofu Loftleiða hefir borizt frá
New York, hefir hin nýja Sky-
masterflugvél Loftleiða verið
afhent umboðsmönnum félags-
ins í New York í gær. — Flug-
vélin er væntanleg til Reykja-
víkur næstu daga og verður þá
nánar skýrt frá íilhögun á
rekstri hennar á næstunni.
Prestskosning.
Sunnudaginn 11. þ. m. fór
fram prestskosning í Hofsós
prestakalli í Skagafirði. Var að-
eins einn umsækjandi, cand.
theol Ragnar Fjalar Lárusson.
327 sóknarmenn voru á kjör-
skrá við prestskjörið og kusu
107 og fekk Ragnar Fjalar 103
atkvæði, en 4 seðlar voru auð-
ir. Kosningin er ólögmæt vegna
þess að helmingur kjósenda
neytti ekki atkvæðisréttar. —
hrcAtyáta m. I6Z2
Lárétt: 1 Stéttarfélag
(skammst.), 3,eldur, 5 í lagi,
6 kall, 7 ósigur, 8 á útlim, 10
glundur, 12 óhljóð, 14 fara á
sjó, 15 menn taka hann eftir
dauða, 17 röð, 18 slitna.
r Lóðrétt: 1 Hreinsa háls, 2
íþróttafélag, 3 viðgerðir, 4
röltir, 6 urn rödd, 9 púkar, 11
fara hægt, 13 fræ, 16 lands-
bókavörður.
Lausn á krossgátu nr. 1621:
Lárétt: 1 lás, mót, 5 JS, 6
ko, 7 föl, 8 má, 10 e úð, 12 als,
14 afi, 15 fót, 17 nr, 18 útarfa.
Lóðrétt: 1 Ljóma, 2 _ás, 3
molna, 4 traðir, 6' kös, 9 álf : 11
úfna, 13 sóa, 16 TR.
Talning fór í gær fram í skrif-
stofu biskups.
Messur á morgun:
Laugarneskirkja: Messað á
morgun kl. 11 f. h. (Ath.
breyttan messutíma. Sr. Garðar
Svavarsson).
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af síra Garðari
Svavarssyni ungfrú Katrín
Marteinsdóttir verzlunarmær,
Laugarnesveg 85, og Jón Ósk-
arsson skipasmiður, Framnes-
veg 26 A. Heimili þeirra verð-
ur á Laugarnesvegi 85.
Viðeyjarkirkja:
Gjöf frá F. f. kr. 50, áheit frá
A. A. kr. 50, H. J. kr. 50, J. H.
kr. 50. E. H. kr. 25. M. H. kr.
25. — Þakkir K. h.
Listamannakvöld
Norræna félagsins.
N. k. sunnudag heldur Nor-
ræna félagið Listamannakvöld
í Þjóðleikhúskjallaranum. —
Á listamannakvöldinu mun
Holger Gabrielsen lesa upp úr
verkum Holbergs, H. C. And-
ersens og Kaj Munks. Hann
hefir lengi verið einn af beztu
leikurum og leikstjórum Dana
og lengst af starfað við Kon-
unglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn.
Þá gefst Reykvíkingum einn-
ig kostur á að heyra hina víð-
kunnu og vinsælu söngkonu
Elsu Sigfúss, syngja dægurlög.
Óþarft er að kynna Einar
Kristjánsson, óperusöngvara,
en það er nú orðið allangt síð-
an hann söng hér síðast.
íslenzkar getraunir
hafa nú starfað í 5 vikur og á
þeim tíma hefir þátttakan þre-
faldast.
Nú um hvítasunnuna fara
fram 5 íslenzkir leikir, sem
verða á getraunaseðli þeirrar
viku. Fara þeir fram víðsvegar
um landið, á Akureyri leika
Þór og K. A. í meistaraflokki,
á ísafirði Vestri og Hörður, í
Vestmannaeyjum Þór og Týr,
í Hafnarfirði Haukar og F. H.
og í Reykjavík leika íslands-
meistararnir Akumesingar
gegn enska atvinnumannaliðinu
Brentford. Auk þess munu
verða norskir og sænskir leikir
á seðlinum.
Útvarpið á morgun:
8.30—9 Morgunútvarp. 11.00
Messa í Laugarneskirkju. (Sr.
Garðar Svavarsson). 12.15—
13.15 Hádegisútvarp. 15.15 Mið-
degistónleikar: Útvarp af seg-
ulbandi frá hljómleikum sym-
fóníuhljómsveitarinnar í Þjóð-
leikhúsinu 13. þ. m. Stjórnandi:
Olav Kielland). 19.30 Tónleik-
ar: Richard Tauber syngur
(plötur). 20.20 Píanótónleikar:
Jón Nordal leikur (tekið á seg-
ulband í Austurbæjarbíói 2.
apríl). 20.55 Erindi: Tíðindi úr
Árnasafni (Jón Helgason próf.)
21.15 Tónlistarfélágskórinn
syngur; dr. Victor Urbancic
stjórnar. 21.40 Upplestur (sr.
Jón Thorarensen). 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.05 Danslög
(plötur) til kl. 23.30.
Veðrið á nokkrum stöðum.
Grunn og nærri kyrrstæð
lægð yfir Grænlandshafi. Veð-
urhorfur fyrir Suðvesturland,
Faxaflóa og miðin: SV og V
gola, skúrir.
Veðrið kl. 9 í morgun: Rvík
SSV 4, +7, Sandur SV 3, -j-8,
Stykkishólmur SV 3, -f-7, Hval-
látur SV 3, Galtarviti SV 2,
Hornbjargsviti SV 3, —6, Kjör-
vogur VSV 3, +8, Blönduós SV
2, +7, Siglunes VSV 2, +8,
Akureyri SSA 3, +10, Loftsalir
V 3, +7, Vestmannaeyjar VSV
3, +7, Þingvellir SSV 1, +7,
Reykjanesviti SV 3, +7, Kefla-
víkurvöllur SSV 4, +6.
Hafnarfjörður.
Aflamagn og ráðrafjöldi
Hafnarfjarðar-línubáta var sem
hér segir miðað við 10 maí sl.
(Róðrafjöldi i svigum):
Ásdís, 255.230 kg. (66). Björg.
233.655 kg. (56). Dóra, 178.885
kg. (43). Draupnir, 171.215
kg. (47). Guðbjörg, 257.750 kg.
(65). Hafbjörg, 274.710 kr.(67).
Hafdís, 305.750 kg. (67). Hafn-
firðingur, 229.710 kg. (53).
Heimir, 186.110 kg. (55). fs-
Skipaútgerðin.
Hekla er í Noregi. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
norðurleið. Þyrill er á leið frá
Vestfjörðum til Eyjafjarðar.
Oddur var væntanlegur til
Reykjavíkur snemma í morg-
un. Ármann er í Reykjavík.
leifur, 159.390 kg. (47). Stefnir,
290.665 kg. (63). Sævar,
254.420 kg. (65). Von, 309.900
kg. (51). Vörður, 302.130 kg.
(53).
Þorlákshöfn.
Gæftir voru þar góðar fram
til 9. maí, en þá hættu flestir
bátanna veiðum, enda var afli
þá orðinn mjög tregur, eða frá
3—6 lestir í lögn.
Vetrarvertíð í Þorlákshöfn
hófst að þessu sinni hinn 18.
jan. og stóð til 9. maí, svo sem
fyrr er sagt. Segja má að ver-
tíðin í heild hafi verið mjög
sæmileg, eða töluvert betri en
í fyrra.
Heildarafli bátanna og róðra-
fjöldi er sem hér segir: (Aflinn
er miðaður við fisk upp úr sjó.)
Þorlákur 604.260 kg. 90 róðr.
Brynjólfur 472.514 — 78 —
JónVídal. 180.985 — 34 —
ísleifur 551.228 — 88 —
Ögm. 533.270 — 86 —
Viktoría 516.000 — 60 —
GLIN6AR
fremur rýr eða frá 2—7.5 lest-
ir í róðri. Farnir voru 9 róðrar
á hvorum bát og var afli þeirra
samtals 72 lestir. Útilegubát-
arnir hafa ekki lagt afla sinn á
land það sem af er mánaðarins.
Sandur.
Tveir dekkbátar róa þaðani
með línu. Gæftir hafa verið
fremur stirðar, en hins vegar
er afli allsæmilegur og fremur
að glæðast. Mestur afli í róðri
var um 5Vz lest. Alls hafa þess-
ir tveir bátar aflað frá 1.—15.
maí 43 lestir í 13 róðrum.
Skip Eimskip.
Brúarfoss fór frá Rotterdam
18. maí til Rvk. Dettfoss fór
frá Súgandafirði í gær til Bíldu-
dals, Patreksfjarðar og Faxa-
flóahafna. Goðaifoss fór frá
Rvk. í gærkvöldi til Húsavík-
ur , Antwerpen, Rotterdam og
Hamborgar. Gullfoss fór frá
Leith 19. maí til Rvk.'Lagar-
foss kom til Gdynia 19. maí;
fór þaðan í gær til Álaborgar
og Gautaborgar. Reykjafoss
kom til Kotka 18. maí; fer það-
an til íslands. Selfoss fór frá
Akureyri í gær til Húsavíkur
og Gautaborgar. Tröllafoss
kom til New York 16. maí frá
Rvk. Foldin fer frá Rvk. í kvöld.
21. maí til Akureyrar og Siglu-
fjarðar. Vatnajökull lestar £
Antwerpen til Rvk.
Skip S.I.S.
Hvassafell er í Rvk. Arnar-
fell er á Akureyri. Jökulfell
losar og lestar í Eyjafirði.
Stúlka
óskast.
Uppl. í síma 2423 kl. 6—8
í kvöld.
Veitiingastofan Vega,
Skólavörðustíg 3.
Stykkishólmur.
Frá Stykkishólmi róa 2 bát-
ar með línu en þar að auki eru
2 bátar þaðan sem eru í útilegu.
Gæftir voru góðar, en afii
„Fýkur yfir hæðir“.
Austurbæjarbíó hefir tekið
þessa ágætu mynd til sýningar
aftur, en þó aðeins í kvöld, því
að síðan verður hún send til út-
landa aftur. Aðalhlutverkin
leika Laurence Oliver og Merle
Oberon.
Stangaveiðifél. Reykjavíkur
biður að geta þess, að veiði í
Meðalfellsvatni er stranglega
bönnuð til 20. júní n. k.
ALETTE GOLDENS
HUSMORSKOLF
Berby Herregard, Prestebakke
st. Norge.
5 mán. námsk. byrjar 10. jan. og.
1. ág. Alhliða kennsla í mat- og
hússtj. og handavinnu. Góður
viðurgerningur. — Gamall og
þekktur staður í undurfögru um-
hverfi. Biðjið um skólaskýrslu.
Byrjið sumarið snemma
og notið
0SRAM
háfjaliasól
Vela- og raftækjaverzlunin
Bánkastræti 10. Simi 2852.
Tryggvagötu 23. Sími 81278.
beztaðauglysaivisi