Vísir - 23.05.1952, Blaðsíða 1
42. árg.
Föstudaginn 23. maí 1952
114. tbh
Söguburður varðar við
lög hjá Peron.
B. Aires (AP). — Lögreglan
tilkynnir, aS alimikiií hópur
manna hafi verið handtekinn
hér í borg.
Mönnum þessum er öllum
gefið.að sök að hafa breitt út
flugufregn um stjórn Perons
og væntanlegar fyrirætlanir
hennar á ýmsum sviðum.
Ofurefli V.-
Evrópu,
seffir MaMih.
Einkaskeyti frá AP.
New York í gær.
Afvopnunarnefnd S. bj. er nú
að ganga frá fyrstu skýrslu um
störf sín.
Á fundi nefndarinnar í gær
flutti Malik ræðu og kvað vest-
rænu þjóðirnar hafa 5 millj.
manna undir vopnum í Evrópu,
og hefðu þær helmingi meira
lið en Rússar. Ekki nendi hann
neinar tölur um herstyrk Rússa
og þeirra þjóða í A.-Evrópu,
sem þeir hafa neytt til fylgis við
sig, en því hefir verið haldið
fram í lýðræðislöndunum, að
Rússar einir hafi 3 millj. manna
undir vopnum.
Svíar ættla að fjöl-
menna til Helsinki.
Meginþorri sænskra ferða-
manna fer í sumar á olympisku
leikana í Helsingfors.
Húsrúm er af skornum
skammti í höfuðtsað Finnlands
og geta Finnar ekki hýst nærri
alla Svíana, sem heimsækja
þá. Þeir hafa því tekið það ráð,
að senda farþegaskip með
ferðamennina og láta þá búa
um borð. Slysavarnafélag Svía
lætur björgunarbáta fylgja
farþegaskipunum, sem verða
mismunandi traust og allhlað-
in fólki, en siglingaleiðin ekki
alveg hættulaus. Sennilega
mun helikopterflugvél einnig
verða eitthvað til aðstoðar.
fVicGfflw freslár
för sirnile
Samkvæmt tilkynningu frá
blaðafulltrúa E. J. McGaw
hershöfðingja hefir brottför
hershöfðingjans verið frestað
fyrst um sinn.
Var svo ráð fyrir gert, að
McGaw legði af stað síðdegis
í dag, og færi fyrst til Was-
hington og Norfolk, flotastöðv-
arinnar, þar sém Lynde
McCormick flotaforingi hefir
bækistöð sína. Seint í gær barst
hinsvegar skeyti urn það, að
McGaw skyldi fresta för sinni,
unz honum bærust frekari fyr-
irmæli, en nánari fregna af
þessu er að vænta, bráðléga,; 1 ‘
Hér sást, hvernig bifreiðin var útíeikin, þegar henni hafði verið
lyft upp á bryggjuna. Hún hefír stungizt á endann í botninn og
oltið síðan á þakið. Var hún á hvolfi, þegar kafað var niður að
henni. (Pétur Thomsen tók myndirnar).
Ýtan skilin eftir við
jökulröndina i gær.
Fijúfjandi virhi fótrst tí jöhlinum
1943 « en atlir h&nenst nf
í gær var farið með ýíuna,
sem nota á við snjóruðning á
slysstaðnum á Eyjafjallajökli,
upp að jökuíröndinni og hún
skilin þar eftir.
Veður var þá svo óhagstætt á
jöklinum, að ekki var viðlit að|
halda lengra, en vonazt var til
þess, að hægt yrði ef til vill að
komast upp í dag. Frá jökul-
röndinni, þar sem skilið var við
ýtuna, eru um það bil 5 km. að
flakinu. Leiðangursmenn hafa
auk þess tvo bíla á skriðbeltum
til umráða, svo að þeir eru
fljótir að flakinu, þegar fært'
er vegna veðurs. Leiðsögumað-
ur er Páll Arason, en vegamála-
stjórnin hefir lánað ýtustjór-
ann.
Menn munu nú vera að kom-
ast á þá skoðun, að einhverjir
áhafnarinnar hafi lifað árekst-
urinn, hvað sem síðan hefir
orðið af þeim, og er þá furðu-
legt, að fregnum um þetta skuli
ekki bera saman frá degi til
dags. Leit er haldið áfram að
þeim, er af kunna að hafa kom-
izt, í undirhlíðum jökulsins.
Flugslysið 1945.
Vísir hefir frétt það, að haust-
ið 1945 hafi fljúgandi virki far-
izt á Eyjafjallajökli, á nær
'sama stað og Albatros-vélin. —
Virkið kom þó ekki harðara nið
ur en svo, að áhöfnin — 13
menn— komst af, og þegar rof-
aði til yfir jöklinum, sáu flug-
mennirnir ljós á bæjum í Fljóts
hlíðinni. Lögðu þeir af stað nið-
ur af jöklinum, og gengu á ljós-
in, en einn*drukknaði í Mark-
arfljóti.
Russar mótmæla
við Persa.
Einkaskeyti frá AP.
Teheran í morgun.
Rússar hafa sent persnesku
stjórninni mótmælaorðsendingu
vegna þess, að Persar þiggja
hernaðarlega aðstoð Banda-
ríkjanna.
Segir í orðsendingunni, að
raunveruleg sé persneski her-
inn undir stjórn Bandaríkja-
manna, og sé því hér um óvin-
samlega framkomu nágranna-
ríkis Rússa í þeirra garð að
ræða. — Aðstöðin er m. a. í því
fólgin, að Bandaríkjamenn hafa
sent sérfræðinga til endur-
skipulagningar hers og lögreglu
auk þess. sem herbúnaður er
Dséttur.
Yfir 100 þrýstilofts-
flugvélar á ferB hér.
Mikill fjöldi þrýstiloftsflug-
véla kom til Keflavíkurflug-
vallar á miðvikudaginn.
Fóru þá um völlinn á annað
hundrað véla á leið austur um
haf. Sumar hcldu för sinni á-
fram samdægurs, en aðrar
héldu áfram í gærmorgun.
Fór út af krikanum við • „hatteríið".
Það válega slys vildi til við
Reykjavíkurhöfn í gærkveldi,
að bíl var ekið í sjóinn af
Ingólfsgarði. Bifreiðarstjórinn,
Friðgeir Sveinsson, gjaldkeri
hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins, drukkn-
aði.
Um tildrögin að slysi þessu
er allt í mikilli óvissu. En lög-
reglunni barst tilkynning kl.
9.10 í gærkveldi að bíll hefði
farið í höfnina við Ingólfsgarð.
Voru það 4 menn frá Ólafsfirði,
sem stóðu um þetta leyti úti á
Faxagarði og sáu að eitthvað
hafði dottið í sjóinn í krikan-
um framan við salthúsið gamla
við Battaríið. Þar myndaðist
fyrst mikil skvetta, en síðan
sáu þeir hvar ljósleitur bíll —
og að því að þeir töldu fólks-
StuBningsmenn
sr. Sjama.
Sjálfstæðismenn og aðrir
stuðningsmenn séra Bjarna
Jónssonar, vígslubiskups, við
forsetakjörið.
Þeir, sem hafa með höndum
meðmælendalista, eru vinsam-
lega beðnir að skila þeim í dag.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokks-
ins í Sjálfstæðishúsinu veitir
meðmælendalistum móttöku.
— Sími 7100.
Friðgeir Sveinsson.
bíll — hvarf í djúpið.
Lögreglan gerði þegar ráð-
stafanir til björgunar, fékk
hafnarbátinn og annan bát til
björgunar og kafara frá vél-
smiðjunni Héðni. Ennfremur
var fenginn vindubíll frá björg
unarfélaginu Vöku og loks
kranabíll frá Eimskip til björg-
unarstarfsins.
Bíllinn var á hvolfi.
Björgunarstarfið gekk all- ;
seint og klukkan var nokkuð
farin að ganga tólf þegar kaf-
arinn fór niður og festi bönd á
bílinn. Bíllinn reyndist vera
ca. 12—15 metra frá kverkinni
þar sem hann hafði farið í sjó-
inn og mun hafa verið á 4—5
metra dýpi að því er talið var.
Lá hann á hvolfi í sjónum.
Klukkan var orðin rúmlega
hálf eitt í nótt þegar bíllinn
náðist á land. Framrúður
í honum voru brotnar og bíll-
inn nokkuð laskaður og skemmd
ur að sjá, en enn er ekki vitað
hve miklar skemmdirnar eru.
Lík Friðgeirs heitins lá í aft-
ursæti bifreiðarinnar þegar
hún var dregin upp og var það'
þegar flutt í líkhús er búið var
að ná því úr bílnum.
Áður en bíllinn hafði verið
dreginn upp úr sjónum byrgði
kafarinn bæði skrásetningar-
merki hans til þess að ekki
kvisaðist neitt á meðal fóJks
hver maðurinn eða bíllinn var,
en þarna var samankomimx
mikill fjöidi forvitinna áhorf-
;nda og munu þeir hafa skipt
mörgum hundruðum ef ekki
þúsundum, því slysasagan kvis-
aðist fljótt út um bæinn.
Tildrög eru ókunn.
Tildrögin að slysinu eru með
öllu ókunn, því að sjónarvottar
voru ekki aðrir — sem enn er
vitað um — en þeir fjórmenn-
ingarnir frá Ólafsfirði sem áður
greinir og þeir sáu ekki til bíls-
ins fyrr en hann var kominn í
sjóinn. Hins vegar sáust för
þar sem bíllinn rann fram af í
kverkinni, og benda þau til að
bíllinn hafi komið sunnan göt-
una sem liggur frá Skúlagöt-
unni meðfram gamla salthús-
inu og út á Ingólfsgarðinn.
Um leið og bíllinn hefir
steypst, hefir hann brotið úr
planka á bryggjubrúninni. Mun.
eitt hjólanna hafa lent í planka-
endanum og brotið úr honum.
Friðgeir Sveinsson var 33 ára
að aldri, fæddur 11. júní 1919.
Hann var prúðmenni mikið og
vel gefinn og stóð framarlega
í ýmsum félagsmálum. Hann
var kvæntur og lætur eftir sig
4 börn.
KranabíII var notaður til þcss:
að lyfta bifreiðinni upp að upp-
fyllingunni, en síðan var hærri
krani látinn taka við.