Vísir - 20.06.1952, Blaðsíða 4

Vísir - 20.06.1952, Blaðsíða 4
V I S I R Föstudaginn 20. júní 1952 DAGBL&Ð Bitstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson, Skrifstofur Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. 'Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm Iínur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. (Heimskringla, 11. júní). Upp úr miðri síðastl. viku heimsóttu Winniþeg sex íslend- ingar sunnan frá Florida. Voru það Guðmundur Þorvaldsson, bóndi á Brekku í Borgarhreppi, 'kona hans Guðfríður Jóhannes- dóttir, tvær dætur þeirra hjóna og menn þeirra. Er önnur dótt- irin Jóhanna, gift Thorolf Smith en hin heitir Kristín, og er mað ur hennar Hilmar Skagfield. Hann er sonur Sigurðar Skag- Attundi landsfundur Kvenréttindafélags fslands stendur yfir - field, .eins elskulegasta söngvara þessa dagana hér í höfuðstaðnum, en kvennadagsins 19. úslenzku þjóðarinnar á sinni tíð. júní var minnst með guðþjónustu og samsæti, er konur héldu. Hilmar á nú heima í Florida, Jafnframt gaf Kvenréttindafélagið út blaðið „19. júní“, sem ritað hefir stundað háskólanám þar Landsfufldur kvenréttkxiafélagsms Gestum héðan fagnað vel í Winnipeg. Möfföu ehiö punffuö frú Wíúríúu. Guðmundar, eru því systra- börn. Helgi og Guðmunaur eru og kunnugir að fornu. Hér var því um allstóran skyldmenna .og kunningjahóp Borgfirðinga að ræða, samankominn fjarri ættjörðinni. Thorolf Smith er fréttaritari blaðsins Vísi. Ekki höfðum við hér vestra kynnst honum fyrri, að öðru en því, er eftir hann hefir birzt í Vísi síðustu vik- urnar um ferð hans hér vestra og þegar vöktu eftirtekt í. blafi- inu. Annars á blað hans inni hjá oss Vestur-íslendingum fyrir hvernig hinir góðu ritstjórar er af ýmsum forystukonum, innlendum og erlendum, en efni þess varðar bæði réttindamál kvenþjóðarinnar og hagsmuna- mál þjóðfélagsins í heild. Nú er af sú öldin,, er amast var við réttindabaráttu kvenþjóð- arinnar, og brautryðjendur í baráttunni voru hafðar að háði og narri. Allir viðurkenna nú að konur þær, sem fyrstar hóf- ust handa í þessu efni, hafa unnið merkilegt og þjóðnýtt starf, sem þegar nýtur fullrar samúðar og viðurkenningar. Hins- vegar skortir enn nokkuð á að konur njóti fyllsta réttar á borð við karlmenn og beinist barátta þeirra að því frekast að leiðrétting verði gerð í skattalöggjöf að því er álögur varðar, er hjónin vinna bæði fyrir kaupi utan heimilis, og ennfremur að konur njóti sömu launa og karlmenn fyrir sömu störf og virðist það ekki ósanngjörn krafa sé um sömu afköst að ræða. Hitt er svo annað mál að vafasamt er, hvort heppilegt sé að konur vinni aðallega utan heimilis, með því að annars- vegar getur það þýtt vanrækslu í uppeldi barna, en hinsvegar leiðir af því samkeppni um vinnuna, sem ekki er mikil fyrir og ekki fullnægir eftirspurninni eins og sakir standa. Slíkt val á að vera einstaklingnum frjálst og án allrar þvingunar. Er fyrsta skilyrði þess að vænta megi heppilegs árangurs af aukinni vinnu kvenna utan heimilis, er að þær uppfylli skil- yrði að því er varðar alla kunnáttu og geti þannig staðist sam- keppni um stöðurnar. Konur hafa aðgang að öllum mennta- stofnunum og öllum störfum, þannig að ekki er hlutur þeirra fyrir borð borinn að því leyti, og stendur það þá nokkuð í valdi þeirra sjálfra hvert lífsstarf þeirra verður. En konur hafa ekki gætt þess sem skyldi, að það eitt er ekki nóg að krefjast réttinda, heldur verða þær einnig að sinna skyldum sínum, sem felast í því að tryggja kynsystrum sín- um almenna fræðslu. Sem dæmi mætti nefna að aðstoðar- stúlkur á heimilum njóta ekki nauðsynlegrar fræðslu áður enn þær ráðast í vistir og ýmsar líta þær með vanþóknun á þann starfa og velja sér vafasamari lífsferil. Vel rækt innan- hússtörf ættu þó að vera best metin af öllum, sem þeirra eiga að njóta, enda skiftir mjög miklu máli hvert ,,lifibrauð“ al- mennings er, hvernig matur er tilbúinn og framreiddur og hverrar hagsýni er gætt í búrekstrinum, sem hvílir að veru- legu leyti á herðum aðstoðastúlkna auk húsmóðurinnar sjálfrar. Öll vinna er^öfug og allt starf er skemmtilegt, ef kunnátta er fyrir hendi. Að sama skapi verða öll störf leiðinleg bresti á kunnáttu og'.leikni og verður þá áhuginn fyrir starfinu eng- inn. Aukin kunnátta aðstoðarstúlkna leiðir til kjarabóta fyrir þær, sem margborgar .sig fyrir hina, sem aðstoð þeirra þurfa að kaupa. Eitthvert mesta menningarmál, sem kvenþjóðin ætti að beita sér fyrir, er aukin fræðsla slíkra kvenna, sem standa nú að ýmsu leyti höllum fæti í lífsbaráttunni, og veroa ýms- ar meinlegum örlögum að bráð sökum kunnáttu og áhuga- leysis við störfin. Kaupstaðamenning leiðir af sér að einmitt þessar stúlkur þurfa umönnunar og aðstoðar við, til þess að hlutur þeirra verði gerður bærilegri og að þær uppfylli jafn- fram þær kröfur, sem til þeirra ætti að mega gera um lágmarkskunnáttu og umgengnisháttu. „Heilbrigðir þurfa ekki lækningár við“ og úr vankunnáttu þeirra, sem verst eru á vegi staddar þarf að bæta, þeim og þjóðinni allri til nyt- semdar. Kvenréttindafélögin um land allt ættu að beita sér fyrir námsskeiðum fyrir starfsstúlkur á heimilum, til þess annarsvegar að veita þeim nauðsynlega fræðslu um venjuleg störf, en auk þess allar kurteislegar umgengnisvenjur og hátt- prýði. Myndi þá staða þeirra og starf fljótlega njóta verð- skuldaðrar viðurkenningar allra þeirra, sem aðstoðar þeirra njóta og teljast með mestu trúnaðarstörfum, sem góðra launa væru verð. Nokkuð hefur þess gætt að fulltrúar kvenþjóðarinnar hafa verið einna ómildastar í dómum um rnisfellur í fari kynsystr- ánna á síðari árum, en er slíkt ekki vanrækslusynd kvenþjóðar- innar í heild. Væri meira gert fýrir unglinga, sem uppfræðslu og' menntunar þarfnast, myndu lífshættir þeirra fljótlega færast í heildbrigt og eðlilegt horf. Þá væri ef til vill réttast áð leggja meginkapp á að rétta við hag þeirra, sem þess þurfa helzt með, frekar en að berjast aðallega fyrir hinna hag, sem bezt eru settar þótt hvorttveggja geti verið réttmætt og nauðsynlegt. í tvö ár í bókhaldi (Chartered Accountancy) og unnið fyrir sér jafnframt.Fæst af okkur hér höfðum séð hann, en hann var hér hylltur undir eins og nafn hans var getið og minningin um föður hans hér vaknaði í hugum manna. Að heiman kom Hilmar því ekki í þetta sinn, eins og hinir gestirnir, hjónin Guðmundur og Guðfríður úr Borgarfirðin- um, er lögðu af stað frá íslandi 3. maí, og Thorolf Smith og kona hans, er um svipað leyti fóru vestur. — Guðmundur leit inn á skrifstofu Heimskringlu í gær og var það vissulega á- nægjulegt, að hugsa til þess, að bændur og konur á íslandi brygðu sér nú sem ekkert væri suður til Florida á fund skyld- menna sinna. í Florida býr ein dóttir þeirra hjóna, Ragnheið- ur Pepper, gift bandarískum manni. Það var til að finna þau, sem borgfirzku hjónin komu vestur og brugðu sér hingað í bíl til að finna einnig skyldfólk ihér nyrðra. En það er fjöl- skylda Helga Jónssonar, húsa- 'smiðs, í Winnipeg. Ásta heitin kona Helga og Guðfríður, kona Guðmundar voru systur. Börn Helga og Ástu hér og dætur þess minntust þeirra árið 1946, í tilenfi af ferðalöngum er þá fóru heim, ritstjórum íslenzku vikublaðanna að vestan. Það var ein bezta greinin í það sinn, er við rákumst á. í gær var þessum Florida- gestum fagnað með mið- degisverð, er haldin var á Fort Garry Hotel og Þjóðræknisfé- lagið stóð fyrir. Séra V. Eylands bauð gestina velkomna. Einnig héldu ræður E. P. Jónsson rit- stjóri, próf. Finnb. Guðmunds- son og Thorolf Smith er þakk- aði fyrir sig og gestina. Þessir góðu gestir leggja af stað í dag (11. júní) suður til Florida, því þaðan var komið í bíl með Hilmari, og mun þaðan verða haldið til íslands flug- leiðis, eins og þangað var kom- ið. iiistasoti í íjármálaráiuneytínu Hinn 18. þ.m. féllust hand- hafar forsetavaldsins á að veita Magnúsi Gíslasyn skrifstofu- stjóra í fjármálaráðuneytinu lausn frá embætti frá og með 1. júlí 1952, samkvæmt ósk hans. Jafnframt var Sigtryggur Klemenzson lögfræðingur skip- aður skrifstofustjóri í- fjár málaráðuneytinu frá og með sarna degi að telja. Magnús Gíslasson skrifsofu- stjóri á mrkan starfsferil að baki í ríkisins þjónustu og nýt- ur vinsælda og trausts allra þeirra, er samskifti hafa við hann átt og honum hafa kynnst. Ber þar til að hann er ljfmenni, se maldrei gerir sér manna- mun, en hefur ávalt reynt að leysa hvers manns vanda af samúð og skilningi. Jafnframt hefur hann álla tíð verið af- kastamaður mikill við störf og nákvæmur í öllum embættis- rekstri, stjórnsamur með hógværð, en svo geðprúður að hann sást ekki skifta skapi. Munu þeir er hann þekkja bezt og störf hans telja hann í mynd hins ágæta og samvizkusama embættismanns, sem almenn- ingur getur leitað til trausts. og halds og fengið beztu úr- lausn mála sinna, sem hverju. sinni er unnt að veita. Magnús Gíslason er listelskur gáfu- maður og ágætur lögfræðing- ur, — einn af þessum fágætu mönnum, sem öllu snúa á betra veg og öllum verða til góðs. Magnús Gíslason er fæddur 1. nóvember 1884 og þannig. tæplega 68 ára að aldri. Lög- fræðisprófi lauk hann við há- skólann í Kaupmannahöfn, en. stundaði lögfræðistörf hér í Reykjavík á árunum 1913— 1916. en þá réðist hann í ríkis- ins þjónustu og varð fulltrúi í fjármálaráðuneytinu. Var hann settur sýslumaður um skeið í Suður-Múlasýslu og síðar Ár- nessýslu,en skipaður var hann. sýslumaður í Suður-Múlasýslu 2. maí 1921 og gengdi því em- bætti til ársins 1939 er hann gerðist skrifstofustjóri í Fjár- málaráðuneytinu. Á Alþingi sat Frh. a' 8. síðu. GMAL 4 Þrastahjónin. Sagan um hreiðrið, sem þrest- irnir bjuggu sér undir palli vörubíls á Akureyri hefir bor- izt víða, og er greinilegt að margir hafa mikinn áhuga fyrir því, að ungarnir litlu megi halda lífi, verða fleygir og komast úr hreiðrinu litla, er foreldrarnir gerðu af lítilli fyr- irhyggju, en stunduðu þó af kappi, og létu ekki á sig fá þótt það væri, ásamt bíínum, á stöð- ugu ferðalagi. Söfnunin vinsæl. Undir eins og söfnunin hófst og þess var getið, að framlög- um mætti koma til skrifstofu Vísis, hafa verið að berast smá- ar og stórár upphæðir. Söfnun- in hófst reyndar með því að einn einstaklingur tók sig til og safnaði um 300 krónum og myndaði þar með sjóðinn. — Fyrsta framlagið eftir það var frá hróðugum föður, er gaf í sjóðinn upphæð frá syninum, Þresti. Síðan hafa upphseðir verið að berast og vonandi verður bráðlega hægt að skýra frá því, að nóg sé koinið. Einstakur atburður. Þessi atburður er alveg ein- stakur i sinni röð, og mjög ánægjulegt til þess að vita, að undirtektir álmennings skyldu strax í upphafi vera jafn góð- ar og reyndin sýnir. Það hefði verið mjög hrygg'ilegt', ef færa hefði þurft hreiðrið og eiga það þá í hættu, að foreldrarnir hræddust sína eigin unga, yfir- gæfu þá svo að ungarnir syltu í hel. Nú hefir þessu máli vænt- anlega verið bjargað fyrir til- stilli góðra manna, sem ást hafa á dýrum, og þá ekki sízt litl- um fuglum. Fuglarnir á Tjörninni. Vel á minnzt. Það hefir ver- ið rætt um það, að færri- andir séu á Tjörninni hér í Reykja vík en undanfarin sumur. Er ekki gott að vita hvað veldur, en þeir, sem kunnugastir eru, segja að margir ungar muni hafa látið lífið í norðanáttinni á dögunum. Enníremur munu álftirnar eiga nokkra andar- unga á samvizkunni. Reynist það rétt, að álftirnar drepi litlu andarungana, þá er það einsætt að þær verða að hverfa af Tjörninni, eða þeim og öndun- um verði tryggilega stíað sundur. Fuglalífið á Tjörninni er hvorki fjölbreytt né viðamikið, en andirnar og ungarnir þeirra eiga marga vini meðal bæjar- búa, og þá einkum þeirra yngstu, sem eru á svipuðu reki. kr. Gáta dagsins. Nr. 169. Með þrjátíu augum sá ég segg, sér þó ei með neinu, hefir til fæðis foldar skegg á fjórum stendur greinum. Svar við gátu nr. 168. Ullarkambar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.