Vísir - 21.06.1952, Síða 2

Vísir - 21.06.1952, Síða 2
V I S I B Laugardaginn 21. júní 1952 2 (ftiitl og þetta Dag nokkurn gekk kona inn : a ísbar og bað um 5 „ísa“. Af- ;■ greiðslumaðurinn leit hvass- lega á hana: „Hafið þér pen- :inga fyrir þeim?“ spurði hann. Konan kinkað kolli mjög undrandi. „Jæja, setjið þér þá ; peningana á borðið." Konan fálmaði niður í töskuna sína, •:.og er hún hafði framkvæmt rskipunina, fór afgreiðslumað- •arinn að fylla ísformin. Er hann hafði lokið því, rétti : hann konunni ísformin, hall- ; aði sér fram á borðið og sagði: .„Jæja, Nú geri eg ráð fyrir að þér séuð undrandi yfir því, ' hvers vegna eg lét yður setja peningana á borðið, áður en eg . afgi-eiddi yður. Jæja, því er ?l>anníg farið: Þér komið inn og " 'biðjið um 5 „ísa“. Eg fylli 5 :form og rétti yður. Þér spyrjið, hve mikið þau kosti. Eg segi 1 7.30. Þér réttið mér aftur form- :ín svo þér getið náð í pening- ; ana. Ef til vill þarf eg að gefa yður til baka, svo eg rétti yður : formin aftur, svo að þér getið ■ -tekið við afganginum, og þá ■verð eg að rétta yður þau í 3. :skiptið.“ Svo færðist bros á andlit ' hans: „Sleppum allri aukavinnu < pg spörum tíma.“ Eg hefi tapað hundrað og ; sjötíu pundum, frá því að eg ■ sá þig síðast. Hvernig getur það verið? iiMér sýnist þú ekki hafa horazt. Nei. En bóndinn er stokkinn : frá mér. Við vorum mjög undrandi, þegar flutningavagninn hafði Isomið og farið frá auða húsinu, •aog við höfðum ekki ennþá séð “íil ferða neins kvenmanns. Síðdegis sama dag kom ung- ur maður út úr húsinu, leit í 'Jkringum sig og kallaði hátt: . .„Billy — Bill-ííí.“ Augnabliki síðar kallaði hann aftur og í ' þetta skipti „Henry •— Henn- ::ríí!“ Enginn svaraði, svo að þegar hann kallaði í þriðja skipti „Dennis — Denn-íís, ; stóðst eg ekki lengur mátið. Eg gekk yfir garðinn og ::.spurði: „Tapaðist nokkuð í -flutningunum?" Hann leit á ■ mig og brosti góðlátlega. „Nei, : :nei. En konan mín átti barn í gær — dreng — og eg var bara . að vita, hvaða nafn hljómaði lbezt.“ Cihu Aimi tiar.... í bæjarfréttum Vísis 21. júní H927 var þessi frétt: . Af reksmerk j amótið hélt áfram í gærkveldi og ■ fyrst keppt í 14 rasta hlaupi. . Þátttakendur voru 6 og náðu ; allir tilskildum tíma. Þessir -voru fyrstir: Sígurður Jafets- • son á 38 mín. 17.5 sek., Sigurð- ur Ólafsson (38 mín. 22.1 sek.) Ingimar Jónsson (39 mín. 19.8 : .sek.), þá kepptu 17 menn í 20 xasta- hjólreiðum. Var farið frá Vatnsþrónni upp að Baldurs- ' haga og sömu leið suður á ..íþr'óttavöll. Tólf keppendur voru undir lágmarkstíma, en - fimm féllu og munu reyna aft- • nr. Tími var ekki tekinn, en þessir urðu fljótastir: Sigurð- : ur Halldórsson, Sigtryggur .(Árnason. Ekki úrskurðað hver 'Var þriðji. Til þrastarhjónanna á Akureyri, afh. Vísi: N. N. 15 kr. Erlingur og Nanna 20. Gömul kona 10. N. N. 10. Lítil stúlka 5. Kona 10. Tveir dýra- vinir 20. A. O. S. 10 kr. Eimskip. Brúarfoss fór frá Reykjavík 16. júní til Reyðarfjarðar, Vopnafjarðar, Akureyrar, Siglufjarðar og ísafjarðar. Dettifoss fór frá New York 13. júní; væntanlegur til Rvk. um miðnætti 21. júní. Goðafoss fór frá Rvk. 18. júní; væntanlegur til K.hafnar á hádegi 21. júní. Gullfoss fer frá Rvk. á hádegi í dag 21. júní til Leith og K.hafnar. Lagarfoss er í Kefla- vík; fer þaðan væntanlega um hádegi 21. júní til Hull, Rotter- dam og Hamborgar. Reykja- foss fór frá Rvk. 19. júní til vestur- og norðurlandsins. Sel- foss kom til Bíldudals 20 júní; fer þaðan til Patreksfjarðar, Stykkishólms og Rvk. Trölla- foss fór frá Rvk. 13. júní til New York. Vatnajökull kom til Leith 19. júní; fer þaðan 20. júní til Rvk. Sé hörundið ranit og þurri hefir NIV E A-C R E M E reynzt framúrskarandi vel. Nivea inni- heldur m.a. eucerit, efni sem er náskylt eðlilegri húðfitu og hefir sömu áhrif. — Allir, sem væta hendurnar mikið, allar húsmæð- ur og ailir, sem starfa úti við með berar hendur, ættu þvi að nota NIVEA-CREME. — Þeir, sem það nota, komast að raun um það, sér til furðu og ánægju, hversu hörundið verður slétt og þenjanlegt. Laugardagur, 21. júní, 173. dagur ársins. Útvarpið í kvöld. Kl. 20.30 Tónleikar (plötur). — 20.45 Upplestur: „Makar Chudra“, saga eftir Maxim Gorki. (Einar Pálsson leikari). — 21.40 Tónleikar (plötur). — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Danslög (plötur) til kl. 24. Útvarpið. (Sunnudag). Kl. 8.30—9.00 Morgunútvarp. — 11.00 Messa í Dómkirkjunni. (Síra Jón Auðuns dómprófast- ur). — 15.15 Miðdegistónleik- ar frá Akureyri: Kórsöngur og lúðraleikur. — 18.30 Barna- tími. (Baldur Pálmason): a) Upplestur: Inga Hákonardóttir les ævintýri. b) Tónleikar. c) Bréf frá krökkunum. d) Tóm- stundaþáttur barnatímans. (Jón Pálsson). — 19.30 Tónleikar (plötur). — 20.20 Samleikur á flautu og píanó. (Ernst Nor- mann og dr. Victor Urbancic). — 20.40 Frá Þjóðræknisfélagi Vestur-íselndinga: íslenzkar landvættir; ræða flutt í Winni- peg 2. þ. m. (Síra Valdimar Eylands). — 21.05 Tónleikar: „Les Sylphides“, ballettmúsik úr verkum Chopins. (Philhar- moniska hljómsveitin í London leikur; Sir Malcolm Sargent stjórnar). — 21.30 Upplestur: Úr gamanpistlum Ludvigs Hol- berg. (Elith Foss leikari frá Konunglega leikhúsinu í Kaup- mannahöfn). — 21.45 Tónleik- ar (plötur). — 22.05 Danslög (plötur) til kl. 23.30. Áheit á Strandarkirkju, afh. Vísi: N. N. 10 kr. A. B. 20 kr. Hans Hátign Friðrik IX. hefir þóknast að sæma hæstaréttarmálaflutn- ingsmann, Lárus Fjeldsted, Reykjavík kommanderkors Dannebrogsorðunnar. HnMfáta m. 1646 Messur á morgun. Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h. Síra Jón Auðuns. Laugarneskirkja: Messað verður kl. 11 f. h. sunnudaginn 22. júní. Síra Þorgrímur Sig- urðsson prédikai-. Landakotskirk j a: Lágmessa kl. 8.30 árd. Herra kardínálinn syngur messu kl. 10 árd. Hann mun ganga til kirkju kl. 9.45 frá prestshúsinu í fylgd með Jóhannesi Hólabiskupi, klerk- um, klausturfólki og kaþólsk- um mönnum. Öllum er heimill aðgangur að kirkjunni'. Þeir, sem ekki taka þátt í skrúðgöng- unni, eru vinsamlega beðnir að fara ekki inn í kirkjuna fyrr en skrúðgangan er komin inn. Fríkirkjan: Messa kl. 2. Síra Magnús Guðmundsson prestur í Ólafsvík prédikar. Síra Þor- steinn Björnsson. Sjóbaðstaðurinn í Nauthólsvík verður opnaður í dag. Bað- vörður hefir í sumar, eins og undanfarin ár, eftirlit á staðn- um frá kl. 1—7 e. h. alla daga. — Sjóbaðstaðurinn hefir verið standsettur eins og tök eru á, fjaran hreinsuð, flekar, stigar og skýli máluð, og grasblettir og básar slegnir. Sjóbaðstaður- inn er hinn vistlegasti, og sjá bæjarbúar vonandi sóma sinn í að ganga vel um hann. — Baðvörður verður hinn sami og í fyrra, Karl Guðmundsson, íþróttakennari. Húsfreyjan. Blaðinu hefir borizt tímarit- ið Húsfreyjan, sem gefið er út af Kvenfélagasambandi fs- lands, 2. tbl. 3. árg. Meðal greina má nefna: Neytendurnir átta sig, eftir Grethe Holmen, H. Á. S. ritar greinina „Við ætlum að reisa byggðir og bú“, þá er fræðsluþáttur, þátturinn spurningar og svör, Ilelgi Þor- láksson skrifar um árangur skólastarfseminnar, þá er smælki um Jón Trausta, frá Laugalandsskóla fyrir 74 árum, hannyrðir, kökuuppskriftir og fleira. Allt um íþróttir. Maíhefti tímaritsins, Allt um íþróttir, hefir borizt blaðinu, fjölbreytt að vanda. Grein er þar um knattspymvi, ritað er um Ólympíuleikana, þá er fréttabréf frá Svíþjóð, og rætt er um vormót Í.R. Sagt er frá hinum þýzka íþróttamanni, Gunther Dohrow, viðtal við Guðmund Hermannsson, og Brynjólfur Ingólfsson ritar um skipulagningu íþróttamóta. Að lokum eru erlendar fréttir o. fl. Afli togaranna. Lokið er löndun úr Jóni Baldvinssyni, sem var að veið- um við Bjarnarey. Hann hafði 299,2 lestir af saltfiski og 32.4 lestir af fiskimjöli. — Egill Skallagrímsson sem leggur upp í frystihúsin, hafði 249,1 lest. — Búið er að landa úr Neptún- usi, sem var á Grænlandsveið- um, tæplega 350 lestum, en slatti er enn í togai-anum, sem er nú í slipp. Neptúnus kom með fullfermi, sem fyrr var getið. Ríkisskip.. Hekla er á leiðinni frá Sví- þjóð til Rvk. Esja er á Aust- fjörðum á norðurleið. Skjald- breið er væntanleg til Rvk. í dag að vestan og norðan. Þyr- ill fór frá Krossanesi í gær austur um land til Seyðisfjarð- ar. Skaftfellingur fór frá Rvk. í gærkvöldi til Vestm.eyja. Skip S.LS. Hvassafell er í Rvk. Arnar- fell losar köl fyrir Norðurlandi. Jökulfell fór frá New York 14. þ. m. til Rvk. Loftleiðir h.f. Hekla fór í morgun frá Aþenu til Róm, Genfar, Ham- borgar og Stavanger. Lárétt: 2 Glerílát, 6 or, 8 á skipi, 9 eggjárn, 11 meistaramót, 12 hlé, 13 lýsti, 14 ryk, 15 hressa, 16 fiskur, 17 mynt. Lóðrétt: 1 Land við Eystra- salt, 3 stafur, 4 hvíldist, 5 run- an, 7 við slátt, 10 ólæti, 11 hress, 13 bóla, 15 stafur, 16 fisk. Lausn á krossgátu nr. 1645. Lárétt: 2 Hilmi, 6 EB, 8 sá, 9 róni, 11 öl, 12 lak, 13 err, 14 ÍS, 15 asna, 16 ösp, 17 gúrkan. Lóðrétt: 1 Kerling, 3 ÍSÍ, 4 lá, 5 illrar, 7 Bóas, 10 nk, 11 Örn, 13 espa, 15 ask, 16 ör. Próf í verkfræði í Háskóla íslands. — Þessir stúdentar hafa lokið fyrra prófi í verkfræði: Bragi Erlendsson, I. einkunn, 6.80 stig. Einar Sig- urðsson, II. eink., 5.77 stig. ís- leifur Jónsson, I. eik., 6.55 stig. Jóhannes Guðmundsson, I. eink., 7.37 stig. Karl Ómar Jóns- son, II. eink., 5.85 stig. Leifur Hannesson, 1. eink., 6.03 stig. Rafn Jensson, II. eink., 5.42 stig. Ríkharður R. Steinbergs- son, I. eik., 6.53 stig. Sigurður J. Sigvaldason, II. eik., 5.27 stig. Steingrímur Arason, I. ágætis einkunn, 7.52 stig. Þór- hallur Jónsson, I. eink, 6.84 stig. Hjónaband. Gefin verða saman í hjóna- band í dag af síra Jóni Auðuns ungfrú Margrét Viðar (Gunn- ars Viðar bankastjóra) og Jón Hannesson, læknir (Hannesar Jónssonar heitins dýralæknis). Heimili þeirra verður að Sól- vallagötu 59. TiVkyniting Irá bæjarverkfræðsngnum í Reykjavík. Að gefnu tilefni er vakin athygli á því, að torfrista á erfðaíestulöndum svo og á öðru landi bæjarins er bönnuð, nema sérstök heimild bæjai-verkfræðings komi til. Þeir, sem gerast brotlegir gegn fyrirmælum þessum verða látnir sæta ábyrgð skv. lögum. Bæjarverkfræðingur. Bálför Jóliannesar úrsmiðs, fer fram mánudaginn 23. júní og hefst með kveðjuathöfn í Ðómkirkjunni kl. 2 e.h. Bíóm og kransar afþakkaðir, en í þess stað njóti þess einhver líknarstarfsemi. Ása Norðf jörð. NIVEA.CREME

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.