Vísir - 28.06.1952, Síða 8

Vísir - 28.06.1952, Síða 8
LÆKNAB OG LYFJABÚÐIB Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í Læknavarðstofuna, sími 5030. Vörður er Ingólfs Apóteki, sími 1330 Laugardaginn 28. júní 1952 LJÖSATlMI bifreiða og annarra ökutækja er kl. 23.25— 3,45. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 22,15. Bæði um árás og rán að ræða. MSjtiM'ffiiÉ'sítefstittBÍi() ttppiýst. Þjóðverjar rannsaka geislaraagn í Hveragerði í sumar. heirhööin þar virðast hafa tnikinn icekningatnátt til að hera. Eins og skýrt hefir verið frá í Vísi hlaut Árni Björnsson, lónskáld, áverka á Bjargarstíg aðfaranótt 14. þ. m. og hefir legið þungt haldinn síðan. Nú hefir komið í ljós við framhaldsrannsókn þess máls, Æið um árás hefir verið að ræða í\ Árna og Tómas Albertsson, prentara. Málsatvik eru þau, að 13. þ. m. var haldið samkvæmi •tónlistarmanna í Þrúðvangi við Laufásveg, og voru þeir þar staddir Ámi og Tómas. Héldu þeir heimleiðis síðla nætur og slógust í för með þeim Jón Sig- urðsson járnsmiður og Sveinn .'Einarsson rennismíðanemi, báð- ir til heimilis að Miðstræti 10. Þegar þeir félagar voru ikomnir á Bargjarstíg mun Jón hafa ráðist að Árna og barið Lann niður, og einnig að Tómasi Albertssyni. Við yfirheyrslur í málinu bar Sveinn Einarsson 'jþað, að árásin hafi verið að til- <efnislausu. Fékk Árni við þetta áverka mikinn, sem ítarlega hefir verið rakinn í fréttum áð- ur. Auk þess mun Jón hafa farið í vasa Tómasar meðan hann lá meðvitundarlaus í götunni, og etolið af honum 220 kr. Afli á togaramiðum fyrir yestan land hefir verið ágætur að undanförnu. Afli hefir og verið ágætur við Grænland, en eitthvað tregðast, a. m. k. hjá sumum skipum í jbili. Hvalfell sem er á veiðurn 5 salt hér við land, er væntan- [iegt á mánudag eftir liðlega þriggja vikna veiðiferð, með a. »m. k. 250 lestir. — Helgafell, gem kom af saltfiskveiðum hér yið land nýlega, hafði sem fyrr Jvar getið rúmar 232 lestir, en á leið hingað lagði skipið upp 50 ftestir af nýjum fiski á ísafirði. Helgafell fer nú til veiða við Grænland, og siglir til Esbjerg með aflann. — Ekki mun hafa yerið eins margt togara á mið- «num fyrir vestan land að und- anförnu sem oft áður. Jón Þorláksson býst nú á sildveiðar. Búist er við, að Árni Björnsson hefir legði þungt haldinn í spítala síðan þetta gerðist, en Tómas að mestu náð sér eftir árásina. Hvað er títt utaa úr heimi? Utanríkisráðhérrar Þríveld- anna ræddu Þýzkalandsmál í gær, sameiginlegt svar við seinustu orðsendingu Rússa um Þýzkaland, og horfur í franska Indokína. ★ 15—16 þús. Þjóðverjar flýðu í þessum mánuði frá A.-Þýzka- landi til V.-Berlínar og V.- Þýzkalands, og samtals 57.000 fyrstu 5 mánuði ársins. ★ Á þriðjudag ræðir neðri málstofan ályktunartillögu frá jafnaðarmönnum, sem felur í sér gagnrýni á stjórnina, fyrir að sjá ekki um, að rætt væri fyrirfram um jafn mikilvægar ákvarðanir og loftárásir á orku- ver N.-Kóreu. Egill Skallagrímsson fari á síldveiðar, og svo er um Siglufjarðartogarana Elliða og Hafliða og Akureyrartog- arann Jörund, og þannig má heita víst, að 5 nýsköpunar- togarar fari á síldveiðar, en allsendis óvíst að fleiri fari. Ingólfur Arnarson losar Bjarnareyjarfisk í Esbjerg, en Skúli Magnússon er á leið það- an og væntanlegur á mánudag. Hallveig Fróðadóttir er farin aftur á ísfiskveiðar. Þorsteinn Ingólfsson er í Færeyingahöfn að taka salt. Pétur Halldórsson er væntanlegur frá Grænlandi á mánudag. Jón Baldvinsson er við Grænland og Þorkell máni leggur brátt af stað heimleiðis. Hann fór héðan 31. maí s.l. Kjósiö Bjarna Jónsson. Kjósendur! Kjósendum skal á það bent, að kynna sér vandlega auglýsingu kjörstjórnar um skiptingu bæjarins í kjör- svæði, og að farið er eftir búsetu manna við manntal haustið 1951. ----. Fór í róður eftir strand. Válbátiurinn Stígandi, sem strandaði í gær út af Skaga, náðist út um kl. 3 í gær eftir miðdag. Báturinn var óskemmdur og fór hann í róður í gærkvöldi. Þegar Vísir átti tal við frétta- ritara sinn á Skagaströnd í gær, sagði hann, að veður væri þar gott en þoka. Vorið var þar kalt, sem víðar, og skepnur ennþá á einhverri gjöf. ---------- 3000 hafa kosih fyrirfram. Fyrirframkosning héldur á- fram, og er kosið daglega í skrifstofu borgarfógeta kl. 10 —12 f. h. og 2—6 e. h., og svo á kvöldin frá 8—10. Hafa nú um 3000 kosið fyrirfram, og 'eru stuðningsmenn og kjósendur séra Bjarna Jónssonar minntir á að kjósa hjá borgarfógeta, ef þeir skyldu vera fjarverandi á kjördag. Nánari fyrirgreiðslu annast skrifstofa Sjálfstæðis- flokksins, opin x dag frá kl. 10—22, sími 7104. '' ♦----- Hafnarfjarðarbát- ar fara á síld. Bátar £ Hafnarfirði búast nú á síldveiðar. Edda, eign Einars Þorgilsson- ar & Co., fór í fyrradag, og er fyrsta síldveiðaskipið úr Firð- inum, sem fer norður. Nokkrir bátar eru í þann veginn að verða ferðbúnir og munu fara um og upp úr helg- inni og svo hver af öðrum. Júlí kom af karfaveiðum í vikunni með 3350 lestir. í sumar er von á þýzkum vísindamönnum hingað til lands til þess að rannsaka geislamagn á jarðhitasvæðinu í Hveragerði, en sýnt þykir að leirböð þar hafi mikil heilsu- bætandi áhrif á gigt- og löm- unarveikt fólk. Á undanförnum tveimur sumrum hefir Hveragerðis- hreppur starfrækt leirböð fyrir sjúkt fólk þar á staðnum. Var það prófessor Jóhann Sæ- mundsson sem hafði forgöngu um málið og hratt því af stað, en Magnús Ásgeirsson héraðs- læknir í Hveragerði hefir haft eftirlit með sjúklingunum. Böðin hafa verið starfrækt 2 —3 mánuði hvort undan- genginna sumra og hafa sam- tals sótt þau um eða yfir hálft þriðja hundrað manns. Alls hafa verið afgreidd um 2400 leirböð á þessu tímabili. Það eru fyrst og fremst gigt- ar- og lömunarsjúklingar sem sækja böðin og hafa sumir þeirra náð miklu skjóíari og betri bata en menn þorðu nokkurn tíma að gera sér von- ir um. Margir þeirra sem þarna hafa verið telja sig hafa fengið verulegan og varanlegan bata. Reynslan hefir og sýnt að bat- inn hefir verið eftir því betri, sem böðin hafa verið fleiri. Fólkið sem kemur í böðin til lækninga er hvaðanæfa að af landinu og hefir Hveragerðis- hreppur séð því fólki fyrir dvalarstað, sem þess hefir ósk- að. Böðin voru tekin í notkun í vor um sl. helgi. Hafa margir spurzt fyrir um þau og er lík- legt að þar verði fjölskipað þegar líður á sumarið. Eins og frá er skýrt hér að ofan er von á þýzkum vísinda- mönnum, sennilega í ágústmán- uði í sumar, til þess að rann- saka geislamagn á hverasvæð- inu í Hveragerði. Koma menn þessir á vegum Elli- og hjúkr- unarheimilisins Grundar, en eins og frá hefir verið skýrt lauslega áður mun í ráði að byggja vistheimili’ fyrir gam- alt fólk í Hveragerði. Sendiherra Bslands talaði fyrir gestina. Landssamband norskra bænda hélt ársþirrg sitt að Hænufossi um sl. helgi. Um 10,000 manns voru við- staddir setningu þingsins, og flutti Bjarni Ásgeirsson sendi- herra kveðju frá erlendum gestum og talaði einkum um hið mikilvæga hlutverk bónd- ans — matvælaframleiðsluna. - ■ - ♦---- Barst 40 nL eftir holræsi. Sá óvenjulegi atburður skeði á Siglufirði um hádegi í fyrra- dag, að 3ja ára drengur rann um liolræsi um 40 metra veg, alla leið út í sjó. Drengurinn, sem heitir Gunn- laugur Jónasson, sonur hjón- anna Jónasar Tryggvasonar og konu hans Kristínar Baldurs- dóttur, var að leik með öðrum börnum á svipuðum aldri við opið holræsi. Féll hann í ræsið og tók vatnssvelgurinn hann og sópaði í gegnum pípuna. Kona, sem var nærstödd, varð var við atburð þenna og hljóp niður að sjónum, þar sem hol- ræsið endaði og gat þar bjargað drengnum. Atburður þessi skeði út við Bakka utanvert við Sigluf j arðarkaupstað. Drengurinn var kaldur og blóðugur, er hann náðist, en leið furðu vel í gærkvöldi, er blaðið átti tal við fréttaritara sinn á Siglufirði. -...♦------ Uppreistarmenn í Indokína réðust í gær úr launsátri á franska og Vietnam herflokka 100 kg. S.A. af Hanoi, en urðu að flýja eftir að hafa mist tug'i manna fallna o gsærðra. Kjósið Bjarna Jónsson. Góður afli fyrir vestan. Tregðast hjá «1111111111 við Grænland. Bílasímar stuðningsmanna sr. Bjarna Jónssonar. Miðbæjarskólahverfi 7100 (5 lín.) Austurbæjarskólahverfi 1050 (4lín.) Laugarnesskólahverfi 1400 (3 lín.) Upplýsingamiðstöð stuðningsmanna séra Bjarna Jónssonar á kjördegi er í VR-Von- arstræti 4. Sími 1275 (4línur) Eflið þjóöareimingu. — Kgósið sr. fíþsrttn,

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.