Vísir - 04.07.1952, Page 5
Föstudaginn 4. júlí 1952
V I S I R
3
Mesti kjarnakljúfur heims
verður reistur í Evrópu.
Fyrirhuguð samvinna Evrópuþjóða
um atomkjarnarannsóknir.
Viðfal við dr. Þorbförn Sigurgeirsson^
Hvert skal halda?
Skemmtiferðir um næstu helgi.
Fyrir skömmu lauk í Kaup-
mannahöfn móti kjarnorkusér-
fræðinga. — Voru þar mættir
um 100 sérfræðingar frá 14
löndum og voru flestir þeirra
frá 13 Evrópulöndum, en
nokkrir frá Bandaríkjunum.
Þorbjörn Sigurgeirsson magi-
ster sat mótið í boði hins
heimskunna kjarnorkusérfræð-
ins dr. Niels Bohr.
Tíðindamaður frá Vísi hefir
fundið Þorbjörn að máli og
fengið hjá honum eftirfarandi
upplýsingar um mótið:
Það var haldið í því skyni,
að athuga skilyrðin fyrir sam-
vinnu Evrópuþjóða um atóm-
kjama rannsóknir. Eins og
stendur eru allir hinir stóru
kjarnakljúfar heims í Banda-
ríkjunum. Evrópulöndin eru
ekki komin eins langt tækni-
lega og Bandaríkin, enda ekk-
ert þeirra líkt því eins mikils
megandi efnahagslega, og því
mikil nauðsyn að athuga skil-
yrðin til þess að koma upp sam-
eiginlegri kjarnorkustöð. — Á
mótinu var rætt um nýjustu
rannsóknir á eðli atómkjarn-
anna, tilraunir þar að lútandi
og nýjar kenningar á því sviði.
Einna mesta athygli vöktu til-
raunir Powells prófessors í
Bristol á Englandi og sam-
verkamanna hans varðandi áð-
ur óþekktar efnisagnir, svo-
nefndar þungar mesónur. Agn-
ir þessar myndast, þegar mjög
hraðskreiðar kjarnaagnir rek-
ast á kyrrstæða atómkjarna.
Hefir það lengi verið ósk eðlis-
fræðinganna að fá tæki, sem
gætu gefið frá sér nægilega
hraðskreiðar agnir til þess að
mynda mesónur við árekstra á
atómkjarna. Þetta tóks 1947,
þegar hinn stóri kjarnakljúfur
tók til starfa í Berkeley í
Bandaríkjunum. Síðan hafa
fleiri slík tæki verið byggð í
Bandaríkjunum, en utan þeirra
er ekki vitað um neitt tæki,
sem framleitt gæti mesónur.
Þetta þykir eðlisfræðingum
Evrópu óviðunandi ástand og
hófust því handa um samvinnu
Evrópulandanna um að koma
upp sameiginlegri rannsóknar-
stöð sem áður var sagt, og er til
samvinnunnar stofnað innan
vébanda UNESCO og taka flest
Evrópuríkin þátt í henni að
Austur-Evrópu undanskilinni.
Nokkur Vestur-Evrópulönd,
þeirra á meðal ísland hafa ekki
tekið ákvarðanir um þátttöku
í þessari samvinnu.
Að mótinu lonku var haldinn
fundur fulltrúa þeirra landa,
sem hugsa til að taka þátt í
þessari samvinnu. Var á þess-
um fundi ákveðið hversu haga
skyldi undirbúningi sameigin-
legra rannsókna fyrir Evrópu.
Verða þessar fyrirhuguðu
rannsóknir frjálsar — engin
Ieynd á yfir þeim að hvíla —
og öllum Evrópuþjóðum stend-
ur til boða að taka þátt í þeim.
Eðlisfræðingamótið var hald-
ið í þeim tilgangi að komast að
niðurstöðu um hvaða verkefni
væri heppilegast að taka fyrir
í fyrirhugaðri rannsóknarstöð
og hvaða tæki skyldi byggja.
Fulltrúar samvinnuríkjanna
skipa svonefnt Kjarnorkuráð
Evrópu (The European Coun-
cil of Nuclear Research) og á
tveggja dagá fundinum tók
ráðið ákvarðanir um hversu
haga skyldi undirbúningsat-
hugunum varðandi fyrirhugað-
ar rannsóknarstöðvar. Fjórir
flokkar eðlisfræðinga vinna á
vetri komanda að athugunun-
um. Einn þeirra starfar í París
undir stjórn L. Kowarski pró-
fessors að almennri skipulagn-
ingu stöðvarinnar, annar í
Hollandi undir stjórn G. J.
Bakkers prófessors, að því að
undirbúa byggingu kjarna-
kljúfs ,,synchron-cyclotrons“)
svipuðum þeim, sem byggður
var í Berkley, og á að geta gef-
ið frá sér efnisagnir með 600
millj. elektron-volta orku, en
það er nokkru meira en stærstu
tæki, sem nú eru starfrækt í
Ameríku gefa frá sér. Þriðji
flokkurinn vinnur í Noregi
undir stjórn O. Dahls prófess-
ors að undirbúningi að bygg-
ingu svokallaðs „Kosmotrons“
sem á að gefa frá sér efnis-
agnir með 10—15 milljarða
elektron-volta orku eða 20—
30 sinnum meiri orku en „syn-
chron-lyclotron“ tækið, sem
hægt er að nota til að fram-
leiða léttar mesónur, en vonir
standa til að Kosmotrontækið
geti framleitt hinar þungu me-
sónur, sem fundizt hafa í geim-
geislunum seinustu tvö árin.
Ef smíði þessa tækis tekst
má telja víst, að það verði öfl-
ugasti kjarnakljúfur veraldar.
Fjórði hópurinn starfar í Kaup-
mannahöfn undir stjórn Niels
Bohrs prófessors og er ætlast
til, að í þeim hópi verði einn
sérfræðingur frá hverju þátt-
tökuríkjanna. Hlutverk þessa
flokks er að afla yfirlits um
þróun atómkjarnarannsókn-
anna, bæði að því er varðar
kenningar og árangur tilrauna.
Einnig er þessum flokki ætl-
að að skipuleggja samvinnu
stofnana, sem þegar starfa að
atómkjarnarannsóknum í Ev-
rópu, og koma á samstarfi eðl-
| isfræðinga Evrópu um geim-
geislarannsóknir.
Ekki verður ákveðið fyrr en
á næsta fundi Kjarnorkuráðs-
ins í haust hvar stöðin verður
reist. Enn sem komið er eru
ekki fjárveitingar fyrir hendi
til byggingar fyrrnefndra
tækja, hedlur aðeins til undir-
búningsathugana, og hvert
þátttökuríkjanna um sig verð-
ur svo að samþykkja fjárveit-
ingar til framkvæmda.
Mjög lauslegar áætlanir gera
ráð fyrir, að bygging tækjanna
taki sjö ár og að heildarkostn-
aður verði 20—25 millj. dollara,
en þessar áætlanir verða að
sjálfsögðu endurskoðaðar þeg-
ar álit fyrrnefndra flokka
liggja fyrir.
Frakkar fá að
fara heim.
Einkaskeyti frá A.P. —
París í gær.
Eitthvað að liði Frakka í
Indokína fær að fara heim á
þessu ári.
Er það í fyrsta skipti, síðan
styrjöldin brauzt út fyrir 6 ár-
um, að nokkuð lið að ráði verð-
ur sent heim.
Letourneau skýrði frá þessu
í fyrradag, én hann er ráðherra
sá, sem fer með mál er varða
Indókína. Kvað hann þetta
kleift vegna þess, að langt væri
komið þjálfun Vietnam-her-
sveita, sem taka eiga við af
frönsku hersveitúnum, er heim
verða fluttar. .
Gin- og klaufaveiki
enn á meginlandinu.
Gin- og klaufaveiki er enn
að skjóta upp kollinum á meg-
inlandinu, í Þýzkalandi, Hoi-
landi, Danmörku og víðar.
í Noregi og Svíþjóð hefir
veikinnar ekki orðið vart síðan
sl. vetur. — Til Finnlands —
og írlands, sem fyrr hefir verið
getið — hefir veikin ekki bor-
izt. — í Kanada gaus veikin
upp vestur í Saskatchewan í
vetur, og tókst með röggsam-
legum aðgerðum að hindra út-
breiðslu hennar.
Ferðir héðan úr Reykjavík á
vegum ferðafélaga, einstaklinga
og ferðaskrifstofa verða á næst-
unni þær sem hér segir:
Ferðafélag íslands.
Ferðafélag íslands hefir á á-
ætlun sinni ferð austur í Þjórs-
árdal um næstu helgi. Lagt
verður á stað á laugardag og
komið aftur á sunnudagskvöld.
Allir markverðustu og falleg-
ustu staðir í dalnum verða
skoðaðir.
Þá efnir Ferðafélagið til 6
daga óbyggðaferðar sem hefst á
laugardaginn. Ferð þessi er til
Hagavatns og norður um Kjöl.
Gengið verður á Langjökul,
Jarlhettur, Bláfell, Kerlingar-
fjöll og í fleiri fjöll eftir því
sem veður og aðrar aðstæður
leyfa.
Farfuglar.
Farfuglar efna til gönguferð-
ar á Hrafnabjörg. Verður gist á
Þingvöllum aðfaranótt sunnu-
dagsins.
Ferðaskrifstofan
efnir til ýmissa ferða um
næstu helgi. Efnt verður til
ferðar um Fljótshlíð og Eyja-
fjöll að Skógafossi, og lagt af
stað á laugardag kl. 14, og gist
að Múlakoti. Á sunnudag verð-
ur ekið allt að Skógafossi. Kom-
NORÐANKUL á íslenzku
sumri fagnaði mér, þegar eg
steig út úr flugvélinni á Kefla-
víkurflugvelli í fyrramorgun.
Eg segi „fagnaði", því að enda
þótt dásamlegt sé að ferðast og
að ýmsu leyti hollt og nytsam-
legt, er það þó svo, að það bezta
við öll ferðalög er heimkoman.
Reykjanesið var samt við sig,
hraun og sandur, urðir, holt og
börð. Það gljáði á rigningar-
pollana á flugbrautinni, og
þegar flugvélin rann yfir þá
við lendinguna, stóðu gusurnar
í allar áttir. En litirnir í fjöll-
unum voru hinir sömu, blám-
inn dularfyllri, tærari og feg-
urri en nokkurs staðar annars
staðar. Esjan hafði hvorki færzt
úr stað, né skipt um lit síðan
eg fór. Hún var þarna enn á
sínum stað, og mér fannst nú
sem fyrr, að hún vekti yfir bæ
Ingólfs og börnum hans. Það
var gaman að vera kominn
heim.
♦ En sleppum slíkum hug-
leiðingum, og víkjum
okkur snöggvast suður á
íþróttavöll. Af gömlum vana
álpaðist eg þangað til þess að
horfa á Reykjavíkurúrvalið
leika við Rínlendinga. Enn sem
fyrr leyndi það sér ekki, að hér
voru á ferðinni útlendingar,
sem voru að kenna íslendingum
knattspyrnu. Er ekki nema gott
eitt um það að segja, og
frammistaða okkar manna var
hvorki betri né verri en efni
stóðu til. En nokkur hluti á-
horfenda gat ekki á sér setið,
heldur þurfti að sanna, að skríl-
mennskan er síður en svo dauð
í hópi þeirra, sem sækja
íþróttávöllinn.
ið heim á sunnudagskvöld.
Þá efnir skrifstofan til Þórs-
merkurferðar. Verður lagt af
stað á laugardag kl. 13.30 og
ekið á mörkina. Sunnudegi og
fyrri hluta mánudags varið tilí
að skoða mörkina. Komið heim..
á mánudagskvöld, en fólki gef-
inn kostur á að dveljast milli
ferða í 8 daga._
Á sunnudag verður efnt til.
ferðar í Þjórsárdal, og verður
farið kl. 9 um morguninn og
ekið inn að Stöng, og Gjáin og
Hjálparfoss skoðuð. Komið
heim um kvöldið.
Einnig efnir Ferðaskrifstofan..
til handfæraveiða nú um helg-
ina eins og gert hefir verið und-
anfarið, og sömuleiðis hinnar
vinsælu hringferðar um Þing-
velli og Sog, Hveragerði og;
Krýsuvík.
Orlof
efnir til tveggja ferða urn
helgina. Er önnur 2ja daga ferð'
í Landmannalaugar og lagt af
kl. 14 á morgun frá skrifstof-
unni. Hin er 4ra daga för um-
hverfis Snæfellsjökul, þar sero.
komið verður á alla helztu.
staði, auk þess sem gengið-
verður á jökulinn.
BEZT AÐ AUGLYSAIVISI
♦ íslendingar hafa fengið’
orð fyrir að vera það, sem.
kallað er gott „publikum“, þ.
e. a. s„ þeir þykja frekar sann-
gjarnir i dómum sínum og mati.
á frammistöðu íþróttamanna,
hvort heldur landinn á í hlut
eða útlendir gestir. Er þetta..
mjög ánægjulegt. Þetta gildir
þó einkum um þá, sem sækja
frjálsíþróttamót. En því miður
eru enn til leifar af þessum fá-
ránlega anda, sem svo mjög bar
hér fyrr á árum, sem lýsir séir
helzt í einhverri óskýranlegri
löngun í að „drepa dómarann.16
♦ Eftir leikinn í fyrrakvöld
þusti múgur manns að
Hauki Óskarssyni, sem dæmdi
leikinn, hellti yfir hann rudda-
legum ókvæðisorðum og veitt-
ist að honum með hrindingum..
og fólskulegum pústrum. Þessu
fólki „líkaði ekki“ dómar hans.
Hér skal því skotið inu í, að
mér fannst Haukur dæma leik-
inn af prýði og sanngirni. —•-
Einstaka maður hafði við orð,
að drepa bæri dómarann, hvort
sem það ber að taka alvarlega
eða ekki. Rétt er að taka fram,
að þeir, sem slíka fólsku sýna,
eru tiltölulega fáir, en ekki þarf
marga gikki í hverri veiðistöð,
eins og alkunna er. Mér er
kunnugt um, að yfirstjóm.
knattspyrnumálanna er kunn-
ugt um þessa menn, og hefir
bollalagt, hvort ekki væri rétt.
að útiloka þá frá knattspyrnu-
kappleikjum á vellinum. Sýnist
slíkt sjálfsagt, því að svo getur*
farið, að engir sæmilegir menu.
fáist til þess að taka að sér
dómarastörf hér, vegna yfir-i
gangs og skrílmennsku.
Þetta er 1 jótur og hættulegur ökumáti — en því miður of
algengur. Minnist þess að það er bannað að aka.fram úr öðrum
farartækjum við gatnamót. S.V.F.Í.
KVÚLÐjtankar.