Vísir - 11.08.1952, Blaðsíða 2

Vísir - 11.08.1952, Blaðsíða 2
'2 ▼ 1 8 1 B Mánudaginn, 11. ágúst 1952. BÆJAR ^réttif Hitt og þetta Vinir tveir höfðu ferðazt víða saman, og einu sinni voru þeir .samtímis í gistihúsi einu í X.undúnum. Annar þurfti að sinna viðskiptaerindum, og flaug hinum þá í hug, að rétt væri að gera honum grikk, keypti tvær lifandi endur og lét þær í baðker vinarins, en fyllti það áður með vatni. Þegar vinurinn kom aftur, varð hann ærið undrandi yfir að sjá endurnar í baðkerinu, og kallaði á kunningjann, til þess að sýna honum, hvernig komið væri. „Þær hljóta að hafa flogið inn um gluggann," sagði maðurinn, sem fann upp á þessu bragði. „Já, það get eg skilið, en það er annað, sem eg get alls ekki skilið.“ „Hvað er það?“ „Eg skil ekki, hvernig þær hafa farið að því að hleypa vatni í baðkerið.“ Tónskáldið Franz Léhar sagði einu sinni eftirfarandi sögu: „Það er venja Sígauna, að þeg- ar unglingur verður 15 ára, fær hann að velja milli pen- ings og fiðlu. Velji hann fiðluna, verður hann tónlistarmaður, en ef hann velur peninginn, þá verður hann þjófur. Vilji hann hinsvegar hvor tveggja, verður hann tónskáld.“ jr Astamáf Musso- linis einkamál. Einkaskeyti frá AP. — Róm í gær. Ættingjar Clöru Petaceis, frillu Mussolinis, og ítalska ríkið deila um eignarrétt á 300 bréfum, sem hún skrifaði einræðisherranum. Krefjast ættingjar hennar, sem eru landflótta á Spáni, að þeir eigi að fá bréfin, en hið op- inbera gerir sömu kröfu. Segja lögfræðingar Petacci- fjölskyldunnar, að það sé íráleitt að halda því fram, að einræðisherrar taki sér hjá- konur í þágu ríkisins, og eigi það því engan rétt á bréfunum. Cihu Jihh/ VaK:. Úr Vísi 11. ágúst 1922: Einar Jónsson. Þess var nýlega getið í Vísi, að grein um Einar Jónsson hefði birzt í „Educational Times“ í fyrra mánuði, og von væri á annarri í þessum mán- uði. Sú grein er nú komin hingað og tekur yfir heila síðu í blaðinu. Byrjar höfundurinn (prófessor Cowl) á því að segja frá heimsókn sinni til Einars í fyrrasumar og að lýsa. húsi hans og útsýni frá því, segir síðan helztu drættina úr ævi- sögu Einars og lýsir honum sjálfum í útliti, síðan skýrir hann frá einkennum listar hans og getur um nokkur stærstu verkin. Að lokum birtir hann skoðanir Einars á list, hvað hún sé og hvað hún eiga að vera. Mánudagur, 11. ágúst. 224. dagur ársins. Tímarit Verkfræðingfélags íslands 1. hefti þ. árg., hefur borizt blað- inu. Af efni má nefna „6. nor- ræna raffræðingmótið á íslandi í júlí 1952.“ Ávarp eftir Stein- grím Jónsson. Guðmundur íKjartansson, Sigurður Thor- oddsen og Gunnar Böðvarsson ritar um „Islands geologi og udnyttelse af vandkraft og jordvarme". Guðmundur Kjart- ansson: „Goelogisk oversigt.“ Sigurður S. Thofoddsen: „Vandkraften og dens udnytt- else.“ Ritið er prýtt mörgum myndum. Herra John D. Greenway afhenti forseta íslands nýtt trúnaðarbréf sem sendiherra Breta á íslandi, sl. föstudag, útgefið af H. H. Elízabetu II. drottningu, en hið fyrra trún- aðarbréf hans hafði verið gefið út af H. H. Georgi konungi VI. íslenzkar getraunir eru nú hafnar að nýju eftir nokkurt hlé, og liggja get- raunaseðlar frammi hjá um- boðsmönnum. Afhendingafrest- ur í vetur verður til mið- vikudagskvölds utan Reykja- víkur, en til fimmtudagskvölds hér í bænum. Þórunn S. Tryggvason efnir til píanótónleika í Aust- urbæjarbíó annaðkvöld kl. 7,15 síðdegis. Aðgöngumiðar verða seldir í dag hjá Eymundson, Lárusi Blöndal, Ritfangaverzl- un ísafoldar og í Austurbæjar- bíó. Yfirlitssýning á verkum Jóns Stefánssonar, á vegum Menntamálaráðs íslands í Listasafni ríkisins, stendur yfir frá 9. ágúst til 7 septem- ber, og er opin alla daga frá kl. 1—10 e.h. Aðgangseyrir er krónur 5, en aðgöngumiðar, Lárétt: 1 opnu svæðin, 6 fuglar, 8 leit, 9 skima, 10 fljót, 12 sjór, 13 tveir fyrstu, 14 dýra- mál, 15 fraus, 16 auður blettur. Lóðrétt: 1 grastóin, 2 voða, 3 guggin, 4 ,é;iding, 5. bíta, 7 reikaði, 11 • sl 4, 12 stórhýsi, 14 órækt, 15 tveir samhljóðar. Lr,usíi á krossgátu nr. 1687: Lárétt: 1 Torgin, 6 orrar, 8 sá, 9 gá, 10 ij'á, 12 haf, 13 aá, 14 mö, 16 kól, 16 skalli. Lóðrétt: 1 torían, 2 rosa, 3 grá, 4 ir, 5 naga, 7 ráfaði, 11 rá, 12 höli. 14moa,. 15 ,kk. sem gilda allan tíman kosta krónur 10. Háskólafyrirlestur. Seán McBride, fyrrverandi ut- anríkismálaráðherra íra, flytur fyrirlestur í Háskólanum í dag kl. 6,15, um stjórnmálaþróun á írlandi. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Seán McBride, fyrrverandi utanríkismálaráð- herra íra, flytur almennan fyrirlestur í Háskólanum í kvöld um stjórnmálaþróunina á írlandi. Fyrirlesturinn hefst kl. 6.15, og verður fluttur á ensku. Thor Thors, sendiherra íslands í Washing- ton, er staddur hér á landi þessa dagana, og verður til við- tals í utanríkismálaráðuneytinu í dag kl. 5—7. Þegar kaupandinn gengur fram hjá samkeppnisfærri inn- lendri framleiðslu, er verið að greiða út úr landinu vinnulaun fyrir framleiðslustörfin á sama tíma og innlent verkafólk,-kon- ur og karlar, gengur atvinnu- laust. Útvarpið- í kvöld: 20.20 Tónleikar (plötur). — 20.45 Um daginn og veginn (Hjörtur Halldórsson mennta- skólakennari). 21.05 Einsöngur og tvísöngur: Jóhann Konráðs- son og Sverrir Pálsson frá Ak- ureyri syngja; Áskell Jónsson leikur undir). 21.25 Veðrið í júlí (Páll Bergþórsson veður- fræðingur). 21.40 Búnaðar- þáttur: Frá aðalfundi Bænda- sambands Norðurlanda (Bjarni Ásgeirsson sendiherra, fráfar- andi formaður sambandsins). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Dans- og dægurlög (plöt- ur). Frá Menningar- og minningarsjóði kvenna. Nýlega hefir eftirtöldum námsstyrkjum verið úthlutað úr Menningar- og minningar- sjóði kvenna: Anna Viggósdóttir, Rvík, tannsmíði, Danm. kr. 2000. Ás- dís Ríkarðsdóttir, Rvík, söng- nám, Svíþjóð, kr. 1200. Guð- munda Andrésdóttir, Rvík, myndlist, Frakkl. kr. 1500. Guðný Jensdóttir, Hafnarf. söngnám, Danm. kr. 1000. Guð- rún Friðgeirsd., Akureyri, upp- eldisfr., Noregi, kr. 1000. Guð- rún Ólafsd., Rvík, mannkyns- saga, noregi, kr. 1200. Hrönn Aðalsteinsd., Sigurjónsson. sálarfræði, Austurr. kr. 1200, Hulda Sigfúsd., Rvík, bóka- varzla, Noregi, kr. 1200. Krist- ín Finnbogad., Rvík, leiklist, Engl., kr. 1200. Ragnhildur Ingibergsd., Rvík, sáigrennsla, Sviss, kr. 3000. Sigríður Krist- jánsd., Akureyri, húsmæðrafr., Danm., kr. 800. Sigr. Jóhanna Jóhannsd., Rvík, tungumál, Noregi, kr. 1200. Soffía E. Guðmundsd., Rvík, píanóleikur, Danm., kr. 1000, Sólveig Arn- órsd. S.-Þing., vefnaðarkenn- aranám, Svíþj., kr. 2000. Val- gerður Ámad. Hafstað, Skagaf., myndlist, Frakkl.,' kr. 1500. Vilhelmina Þorvaldsd., Akur- eyri, enska, Engl., kr. 500. Þór- ey E. Kolbeins, Rvík, franska, Noregi, kr. 1200. Æsa Karlsd. Árdal, Sigluf., uppeldis- og sálarfr., Svíþj. kr. 1200. Hjúskapur. 9. ágúst voru gefin saman í hjónaband ungfrú Lovísa Jóns- dóttir, Gilhaga, Bíldudal, og Runólfur Guðmundsson, sjó- maður, sama stað. M.s. Katla er í Reykjavík. Eimskip: Brúarfoss fór frá Reykjavík um hádegi í dag til Keflavíkur, Antwerpen og Grimsby. Detti- foss fór frá Norðfirði 9. þ. m. til Hull, Grimsby, Hamborgar, Rotterdam, Antwerpen og Hull Goðafoss fór frá Eskifirði 9. þ. m. til Hamborgar, Álaborgar og Finnlands. Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn 9. þ. m. til Leith og Reykjavíkur. Lagar- foss fór frá Hamborg 8. þ. m. til Faxaflóahafna og Reykja- víkur. Reykjafoss fór frá Ála- borg 9. þ. m. til Borgá, Hamina og Kotka. Selfoss fór frá Leith 7. þ. m. til Bremen, Álaborgar og Gautaborgar. Tröllafoss er í New York. Veðrið. Víðáttumikil lægð um Bret- landseyjar. Hæð yfir Græn- landi. Veðurhorfur fyrir Suðvestur- land til Vestfjarða: N. og NA- gola, léttskýjað. Norðurmið: NA-gola eða kaldi, úrkomu- laust og sums staðar léttskýjað. Veðrið kl. 9 í morgun: Reykjavík logn, 10 stiga hiti, Sandur A 2, 10, Stykkishólm- ur logn, 10, Hvallátur logn, Hornbjargsviti A 3, 7, Kjör- vogur logn, þokumóða, 10. Blönduós NN9 1, 8. Hraun á Skaga NA 1, þokubakkar, 9. Siglunes ASA 5, 9. Akureyri A 1, 10. Grímsey ASA 3, 8. Skoruvík NA 2, 7. Fagridalur A 2, skúld, 7. Dalatangi A 3, 7. Vestmannaeyjar A 2, 10. Oft kemur það fyrir í bridge, að sagnhafi þarf að velja á milli tveggja lita og það dugar hon- Sagnir fóru þannig að A og V sögðu alltaf pass. S hóf sögn á 1 ogN sagði þá 3 ¥. Þá seg- ir S 3 A og N 4. ¥ S 4 Gr. N 5 ¥ en þá fór S í 6 ¥. V kom út með & 10, sem S tók með Á í borði og tók síðars hjörtun tvö, sem reyndust skipt. Síðan spilaði S ♦ 3svar og fleýgði úr borðinu 1 og 1 A S var hræddur við að „svína“ ♦ , því væri ♦ K hjá V var spilið tapað. Nú tapaði S samt Reýkjanésviti NA 1, 10, Þing- vellir logn, 10, Keflavíkur- völlur NA 2, 10. Knattspyrnuflokkur fi'á skips höfninni á Chusan ætlar að keppa í kvöld kl. 7 á Vals- vellinum við knattspyrnuflokk frá Val. Tregir á einræðis- vald til handa Mossadegh. Einkaskeyti frá A.P. Efri deild persneska þings- ins frestaði fundi sínum í gær um einræðisvald Mossadegh tii handa. Áður hafði 9 manna nefnd deildarinnar farið á fund Mossadeghs og óskað breyt- ingar. -----»..—. Hugstæð mynd í Austurbæjarbíó. Austm'bæjarbíó sýnir þessa dagana ljómandi fallega og hrífandi mynd, sem nefnd hef- ir verið á íslenzku „Litli söngvarinn11. Efni myndarinnar er hug- stætt, en alveg sérstaka athygli mun söngur og hljómlist henn- ar vekja, en þar syngur m. a. Bobby Breen ýmis ljúf lög, en lög Stephens Fosters veita hverjum manni unað, en sum þeirra þekkt hér á landi, svo sem „Old folks at home“ o. fl. Þá eru og sunglin lög eftir Schubert (Ame Maria) og Flot- ow. Hall Johnson kórinn syng- ur í myndinni og mun það ekki spilla ánægju tónlistarvina. SÍAUPHÖLLUM er mlðstöð verðbréfavlðskipt- anna. — Síml 1710. MMMMMMMMMMMM BEZT AÐ AUGLYSAI VISl um, ef hann er heppin í öðrum litnum. Þá er undir því komið að hann hitti á rétta litinn. spilinu því V hafði gaffal í Þetta var þó sagnhafa sjálfum að kenna, því að hann hefði auðvitað átt að fleygja tveim 4= úr borði, en lialda tíglinum. V mátti þá gjarnan haf ♦ K, ef A hafði aðeins 4= Ás, því þá getur sagnhafi fleygt einum ♦ í 4» K. Og hafi V 4» Ás, einsog reyndist, er næsta lauf stungið með hjarta, og þá er hægt að reyna við tígulinn. * BRIDGEÞATTlIIt * % VISIS ♦ 10-9-8-7 ¥ 6 ♦ G-4-3-2 4» Á-D-6-3 ♦ A-2 ¥ Á-10-9-8-3-2 ♦ 10-9 ♦ 10-9-8 Á 5-4-3 ¥ 5 ♦ K-8-7-6-5 4» G«ö-4-2 4. K-D-G-6 ¥ K-D-G-7-4 ♦ Á-D 4» K-7

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.