Vísir


Vísir - 03.09.1952, Qupperneq 8

Vísir - 03.09.1952, Qupperneq 8
LÆKNAB O G LYFJABÍTÐIR Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið i Læknavarðstofuna, sími 5030. Vörður er í Laugavegs Apóteki, sími 1618. LJÓSATlMI bifreiða er frá kl. 21,10—5,40. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 17,20. Miðvikudaginn 3. september 1952 Gagnkvætnar greiðsiur skyldubóta á Ncriisrimshm. fi&kh í egiieil pfBgisi I. Júnú s. i. Hinn 1. júní sl. gekk í gildi milliríkjasamningur íslands, Noregs, Finnlands og Svíþjóðar um gagnkvæmar greiðslur f jöl- skyldubóta. Samkvæmt þessu eiga ríkis- , borgarar þessara landa, sem dvelja ekki í heimalandi sínu en í einhvefju samningsiand- anna, rétt til fjölskyldubóta í dvalarlandinu eftir sömu regl- um og þarlendir menn. Ríkis- borgarar frá löndum, sem búsettir eru hér á landi a. m. k. 6 síðustu mánuði, eiga rétt til fjölskyldubóta vegna barna sinna, sem með þeim dveljast, eftir sömu regl- um og hérlendir menn. Sama gildir um íslenzka ríkisborgara í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi. Reglurnar um greiðslu barna- styrkjanna eru mismunandi í hinum samningslöndunum, og verður hér gerð stutt grein fyr- ir þeim: í Finnlandi eru barnastyrk- irnir greiddir með hverju barni fjölskyldunnar innan 16 ára aldurs, þ. e. einnig með fyrsta, öðru eða þriðja barni, og nemur 7200 mörkum á ári, eða‘510 ísl. krónum, og er greiddur án til- lits til efnahags eða tekna for- eldra. í Svíþjóð. Þar gilda sömu reglur um greiðslu, en styrkur- inn nemur 260 sænskum krón- um. árlega, eða 820 ísl. krónum. í Noregi greiðist styrkurinn með hverju bárni, sem er um- fram eitt, nema ef sérstakar á- stæður gefa tilefni tii, þá með. öííum, og nemur hann 240 norskum krónum eða .. tæplega 550 ísl. Á íslandi greiðast styrkirnir með fjórða barni, og nema með núgildandi vísitölu 1800 krón- áðurnefndumíum árleSa á fyrsta verðlagsW svæði, en 1350 á öðru verðiags- svæði. Sé faðirinn óvinnufær, eða aði^ar orsakir komi til greina, þá greiðist styrkur með ölium börnunum. a Verð hefur verið lækkað á ýmsu grænmeti, bar sem haust- uppskeran er að koma á mark- aðinn. Gulrætur kosta nú 5 kr. búnt- ið, en þó er lækkunin þó meiri á hvítkáli, sem kostaði áður kr. 8,50 pr. kg. en nú kr. 4,25 pr. kg. Ekki er um verðlækkun á tómötum að ræða, en verð á tómötum hafði verið lækkað til mikilla muna fyrr i sumar. Forsetahjónin búa í tveim herbergjum af 304. Prasad Bsidlandsforsetl skflar rikissjéði tvelm flmmtu af tekjum sísium. við Grænland nú. Við Grænland hefur verið reytingsafli nú um hríð — eng- in uppgrip, eins og þegar bezt heíur verið. Á tog'ara, sem véiða fyrir Þýzkalandsmarkað hér. við land, hefur verið rýr afli bæði fyrir austan land og vestan, Um togara Bæjarútgerðar Reykjavíkur er þetta að segja eins og sak-ir standa: Þrír eru við Grænland, Skúii Magnússon veiðir í ís ,en Þor- steinn Ing'ólfsson og Jón Bald- vinsson í salt. Þorkell máni er væntanlegur frá Grænlandi á morgun af saltfiskveiðum. — Hann siglir héðan- til Esbjerg með aflann. Ingólfur Arnarson er þar og landar saltfiski af Grænlandsmiðum. Pétur Hall- dórsson fór á hádegi í dag á saltfiskveiðar við Grænland. Hallveig Fróðadóttir landar í Þýzkalandi á laugardag. Jón Þorláksson er á ísfiskveiðum fyrir Þýzkalandsmarkað. Fétbrefiiaðl Ariiariiéi. Forseti Indlands, dr. Ra- jendra Prasda, liefir tekið for- ystu í sparnaðarviðleitni stjórnarinnar, með því að skila aftur í ríkissjóð 40 af hundraði rnánaðarlauna sinna, en þau nema 2100 dölum, og því á hann aðeins eftir 735 dali, er liann hefur greitt skatta. Dr. Prasad er fæddur í litlu þorpi, Zeeradei, í Bihar-ríki, og i eynir af fremsta megni að •sníða lifnaðarháttum sínum stakk eftir. vexti, þ.e.a.s. hann reyriir að lifa jafn óbreyttu lífi f 3 þeir landar hans, sem búa í i loldarkofum. Sú saga er sögð, að forsætis- i áðherra Indlands, Nehru, hafi : iálfur orðið að neyða hann til j ess að setjast að í forsetahöll- -i. rni, vegna þess að annað væri ekki virðingu hans samboðið. ; jálfur hafði Prasad óskað eft- því að mega búa í einu af . náhúsunum sem eru á lóðinni i . ingum forsetabústaðinn og - -iuð láglaunuðum embættis- tnc :um. I Dr. Prasad og kona hans búa aðeins í tveim herbergjum hall- arinriar, en í henni eru samtals 304 herbergi, en 11 önnur hafa verið notuð handa ýmsum ætt- ingjum hans, sem eru 16, en þar við bætist að 23 herbergi eru notuð fyrir gesti ríkisins. Fimm stórir salir úr marm- ara með gullskreytingum hafa verið ljáðir fyrir þjóðminja- safn, þar sem geymdir eru ind- verskir listafjársjóðir, mörg þúsund .ára gamlir. Fjörutíu og sex herbergi er höfð fyrir skrifstofur stjórnarinnar, en hin herbergin eru eingöngu fyrir skrifstofur starfsliðs for- setans og birgðageymslur. Því landsvæði umhverfis bú- staðinn, sem ekki hefur fram að þessu verið nýtt, hefur nú verið breytt í akra, en tekjurnar af þeirri rækt renna í ríkissjóð. Sumarsetur forsetans við Simla er nú notað fyrir skrifstofur, og þau fáu skipti sem forsetinn fer þangað, þá býr hann þai' í mjög óbrotnum húsakynnum. m í gærdag, um sexleyfið varð það slys við Arnarhólstún að steinn datt ofan á mann og var talið að maðurinn muni hafa fótbrotnað. Var maður þessi ásamt nokk- urum félögum sínum að leika sér að því að lyfta steini, en varð fyrir því óhappi að missa tak á honum og misti hann of- an á sig. Var lögregla kvödd á staðinn. og maðurinn fluttur á Landspítalann. í gær datt telpa á Laugaveg- inum og meiddist nokkuð. Gat hún ekki staðið af sjálfdáðum á fætur og' varð að bera hana burtu. Meiðslin eru þó ekki talin alvarleg. I gær var ölvaður maður tek- inn við akstur bifreiðar hér í bænum. Flaug hraðar en hljóðið Einkaskeyti frá A.P. — London í morgun. Á flugsýningunni í Farnbor- ough í gær var það mesti við- burðurinn, er flugvél var flogið yfir borgina hraðara en hljóðið. Flugvélin var af gerðinni De Havilland 110, orrustuflugvél, sem nota má bæði sem nætur- eða dag. orrustuflugvél. Einnig voru sýndar þarna á flugi sprengjuflugvélar, tveggja og fjögurra hreyfla, sem fyrr hef- ur verið getið. — Mikill fjöldi aðkomufólks er á sýningunni, Hertoginn af Edinborg flaug frá Balmoral í Skotlandi í gær á sýninguna en Alexander. land- varnaráðherra flýgur þangað í dag í helikopter. Fjögur frjálsíþróttamót á næstu tveim vikum. ÍIíBt/ffg efiemdff Iþf&áéfSfýfBB’peg seS ffemtfs hisafpað Éii ifsmals í htgaasá. Fjögur frjálsíþróttamót standa nú fyrir dyrum hér í Reykja- vík og Hafnarfirði á næstunni. Það fyrsta þeirra hefst á morgun í Hafnarfirði kl. 7.30 síðdegis, en það er íslandsmeist aramót drengja. Verða kepp- endur frá 10 íþróttafélögum víðsvegar af landinu og ver.ður á morgun keppt í 80 m. hlaupi, hástökki, kringlukasti og stang arstökki. Er mjög góð þátttaka í flestum þessara greina. A morgun fer einnig fram B-juniormót á íþróttavellinum í Reykjavík. Hefst það kl. 8 síðdegis og fá aðeins þeir að keppa sem verða 16 ára á ár- inu og yngri. Mótinu lýkur annað kvöld og verður keppt í 60 m. hlaupi, 600 m. hlaupi, hástökki, langstökkl, kringlu- kasti, kúluvarpi og 5X80 m. boðhlaupi. Wislndaféiag hddur 114 ársfund sínn. Belfast (AP). — Hið kunna brezka vísindafélag, The Brit- islx Association for the Ad- vancement of Science, heldur 114. ársfund sinn í Belfast. Hill prófesor — Nobelsverð- launaþeginn heimskunni — setur fundinn í dag og flytur þar vísindalegt erindi. Um 4000 gestir og fulltrúar frá ýmsum löndum koma á fundinn. um Norðfjörð. Tveir umsækjendur eru um Norðfjarðarprestakall í Suður- Miilaprófastsdæmi. v Frestur til umsóknar var út- rnnninn í gær, og höfðu þessir menn sótt um brauðið: Síra Ingi Jónsson, aðstoðarprestur á Hvanneyri og síra Marínó Kristinsson, sóknarprestur að Valþjófsstað. i Um Bolungavíkurprestakall í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi er einn umsaékjandi, síra Þor- bergur Kristjánssón, settur prestur að Skútustöðum. Vefkamenn skjó&a saman í minnismerki. B. Aires (AP). — Argen- tínskir verkamenn eiga að greiða 150 millj. pesos til að reisa Evu Peron minnismerki. Hefir stjórn verkalýðssam- bandsins óskað þess — í nafni 600,000 meðlima sinna — að þeir fengju að leggja þetta af mörkum til að minnast hennar. (150 millj. pesos er ca. 160 millj. ísl. kr.). Aðal frjálsíþróttamót lands- ins, hið svokallaða September- mót, átti að fara fram hér í bænum á morgun og föstudag- inn, en því hefur verið frestað. þar til síðar, en fer væntanlega fram í næstu viku. Verður senni lega. sú breyting gerð á því að það fari allt fram á einum degi og verði keppnigreinum þá fækkað í samræmi við það. Loks er svo B-mót, sem háð mun á íþróttavellinum dagana 15.—16. þ. m. Keppendur í mót- inu mega ekki vera búnir að ná 600 stiga árangri (samkvæmt gömlu stigatöflunni) í þeim greinum sem þeir ætla að keppa í. Fyrri dag mótsins verður keppt í 100 m. og 1000 m. hlaupi langstökki, hástökki, kúluvarpi og spjótkasti, en seinni daginn í 400 m. og 3000 m. hlaupi, stangarstökki, þrístökki og kringlukasti. Áætlað var að þrjú stærstu íþróttafélögin hér í bænum, er hafa frjálsíþróttir á dagskrá, en þau eru Ármann, Í.R. og K. R., efndu til sérstaks stigamóts sín í milli. Kæmi það þá í stað gömlu allsherjarmótanna sem Í.S.Í. efndi jafnan til áður fyrr. Myndu tveir menn frá hvoru félagi keppa í sérhverri íþrótta grein og geta þeirra reiknuð í stigum félaga þeirra til tekna. En því miður eru allar horfur á að af þessu móti verði ekki í haust, hins vegar má vænta þess að það verði háð að ári. Engir erlendir íþróttagarp- ar eru væntanlegii: til keppni hér- á þesu ári. Stóð til boða að fá hingað fræga þýzka íþrótta- menn, en horfið frá því ráði. aftur bæði vegna kostnaðarhlið arinnar og svo líka vegna þess að engrar verulegrar sam- keppni var að vænta frá okkar hálfu við þesa menn. fundurinn hafinn. Fundur utanríkismálaráð- herra Norðurlanda hófst í Há- skólanum kl. 11 í morgun. Eins og Vísir ’ hefur áður greint frá, sitja þeir fundinn Ole Björn Kraft (Danmörk), Bjarni Benediktsson, Halvard Lange (Noregur) og Östen Undén (Svíþjóð) auk sendi- herra og fylgdarliðs hinna er- lendu ráðherra, syo og starfs- manna utanríkisráðuneytisins hér, en þeir eru: Magnús V. Magnússon, Hans Andersen, Kristján Albertsson og Sigurð- ur Hafstað. Líklegt er, að fundinum ljúki, annað kvöld, en í kvöld mun - Bjarni Benediktsson utanríkis- ráðhera og frú hans hafa boð inni fyrir þá, er fundinn sitja og nokkra gesti aðra.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.