Vísir - 11.09.1952, Síða 6
VlSIR
að til urslita eða stórtíðinda
di-agi, j?n 'í upphafi þeirrar
þriðju þýtur Prachán upp i
loft og ætlar bersýnilega að
slá með fætinum, en samtímis
bylur hnefi Peerapols á haus
hans með þeim afleiðingum, að
Prachán endasendist út fyrir
girðinguna, en kemur þó fyrir
sig löppum, og stekkur upp á
pall.
Norsku hjónin horfðu á mig.
Æ, hver skrattinn. Hafði eg nú
öskrað svona hátt? Jú, það var
ekki um að villast. Eg hafði
æpt og ugglaust hossað mér í
sætinu. Sennilega hafa hjónin
ekki æpt eins hátt, úr því að
þau litu bæði til mín. En svo
hlæjum við öll. Hvers vegna
skyldum við ekki mega öskra
eins og hitt pakkið?
Þeir berjast allar loturnar
fimm, og að því búnu er úr-
skurðað að Peerapol hafi unnið
á stigum. Þeir fcillast í faðma,
eins og góðum iþróttamönnuin
sæmir, og klappað er fyrir
báðum.
Stáldemantsöryggi.
Nú kemur það, sem heima
myndi heita: „Glæsilegasti í-
þróttaviðburður ársins“, en hér
er það auglýst: „Aðalviðburð-
ur dagsins“. Tveir stórfrægir
snillingar eiga að berjast,,
kappinn Suradedch og hetjan
Prapat, hinn ungi laukur S.S.-
klúbbsips, og er sagt að hann
sé gæddur niikilli grimmd og
stáldemantsöryggi. Surdedch
er talinn hafa allt það til
brunns að bera, sem prýða má
'hinn ágætasta íþróttamann,
„snillingur hnefanna, alkunn-
uf vegna stórkostlegra fót-
högga, og olnbogar hans finna
ætíð þá bletti, sem andstæðing-
unum eru aumastir“, en það fer
þó fljótlega svo, að þótt hann
sé hvorki talinn sérlega grimm-
ur, né stáldemantsöruggur, að
hann verður „minn maður“.
Þessir náungar munu hafa
geysitekjur, því að mér hefur
verið sagt, að þeir, sem hæst
hafa, fái allt að 16 þúsundum
tecala fyrir einn leik, en eng-
inn munur er hér gerður áhuga
manna og hinna, sem þiggja
fé að launum frægðar sinnar
en mishátt goldið eftir verð-
leikum.
Þeir berjast allar loturnar
fimm, án þess að til úrslita
dragi. Jafnvel mér dylst ekki,
að hér eru íþróttamenn ágætir,
enda .þótt ég-sé sammála Þór-
ólfi vini mínum Smið um að
hér sé leiðindaleikur. Ánnars
er þetta þjóðaríþrótt í Síam,
sem á miklum og vaxandi
vinsældum að fagna, og er
kennd í öllum framhaldsskól-
um landsins.
Það fór þó svo að minn mað-
ur fékk færri stig en stáldem-
antsmaðurinn og lauk svo
þeirra viðureign.
Æ, nefnið það ekki.
Eftir þenna leik fækkaði
mjög á bekkjum, því að þeir
fjórir, sem enn áttu eftir að
berjast, virtust lítt kunnir, og
var ekkert um þá að sjá í leik-
skránni nema nöfn og lit bún-
inga.
Hinir tveir, sem næstir komu
á eftir snillingunum, börðust
þó hressilega, og vöktu óskipta
athygli og mikinn fögnuð.
Síðastir komu tveir ungir
Snenn, Petch, rauður og Pair-
átcli blár. Miklar vonir voru
hú við þá tengdar, þar sem
þeir skeiðuðu fram til orrust-
unnar, því að hér voru allra
síðustu forvöð að sjá eitthvað,
sem -bragð væri að. Það var
því klappað strax, æpt til eggj-
urnar og bumba barin af mikl-
um móð. Nú hoppuðu þeir og
hnituðu hnefa. Jú, þetta leit
ágætlega út. Hér voru ungir
og óreyndir hanar, sem ugg-
laust var auðvelt að æsa:
Bravó! Áfram með ykkur!
Byrjið nú, drengir!
Allt í einu slær Pairatch
eldingarsnöggt með hægri fæti.
Það bylur í sviðunum á Petch.
Hann hefur fengið það á smett-
ið, beint á nefið. Hvað er nú
þetta? Hann reikar. Er mann-
fjandinn vitlaus? Ætlar hann
að láta berja sig niður með
einu lappai-höggi í upphafi 1
fyrstu lotu? Jú, það ber ekki á
öðru. Hann riðar, og nú dettur
hann. Það er byrjað að telja,
en hann hreyfist ekki. Einn
tveir. Nei. Hann liggur rotaður,
eins og hrúga á pallinum. Þrír.
Það er búið.
Pairatch skálmar fram á
leiksviðið og veifar hnefum, en
það klappar enginn, því að
þetta var eiginlega hálfgert
snuð. Allir standa nú upp og
ryðjast út.
Chung Lung var þungbrýnn,
þar sem hann stóð við bifreið
sína.
„Jæja, herra Lung,“ sagði ég
léttilega. „Þá er ég búinn að
sjá þjóðaríþrótt ykkar, horfa
á hnefaleika í Bangkok.“
„Nefnið það ekki, ísland,
minnist ekki á það. Þetta var
ekkert. Æ, nefnið það ekki.“
„Mér fannst þetta déskoti
hressilegt,11 sagði ég, „einkum
hve fínir þeir voru til fótanna.“
„Góði ísland. Þetta megið þér
ekki segja. Eitt eða tvö glóðar-
augu og ekkert blóð! Nei,
minnist ekki á það. Þér hefðuð
átt að sjá, þegar við kepptum
í mínu ungdæmi. Þá börðust
menn, óðir, blóði drifnir og
trylltir eins og djöflar. Nei,
kæri ísland. Ungdómurinn okk
ar má svei mér taka sig á, ef
hann ætlar að komast með
tærnar þar sem við höfðum
hælana.“
Mossadegh setur
embættismenn á
eftirlaun.
Einkaskeyti frá AP. —
Teheran í morgun.
Mossadegh hefur að undan-
förnu sett á eftirlaunalista
margra hátt setta og liálaun-
aða embættismenn og herfor-
ingja, einkanlega hina síðar-
nefndu, seinast 12 í gær.
Er að þessu mikill sparnað-
ur, því að eftirlaun eru miklu
lægri en laun þessara manna
voru, og auk þess eru fjölda
margir aðrir látnir „fjúka“
um leið, því að sumir þessara
embættismenn höfðu margt
manna sér til aðstoðar.
Mossadegh hefur nú beðið
dr. Hjalmar Schacht, sem var
bankastjóri Ríkisbankans þýzka
í valdatíð nazista, til þess að
koma til Teheran, og vera ráð-
gefandi í efnahags og fjármál-
um.
Bindindismálafund-
ur í Kefiavík á
sunnudag.
Að tilhlutan stúkunnar
Fróns verður haldinn bindind-
ismálafundur í Keflavík n. k.
sunnudag, 14. september.
Hefst fundurinn kl. 13.00 við
Ungmennafélagshúsið með
móttökuathöfn, en síðan vei'ð-
ur gengið til kirkju, þar sem
flutt verður hátíðarguðsþjón-
usta. Sr. Kristinn Stefánsson,
fyrrv. stórtemplar, prédikar,
en sr. Björn Jónsson þjónac
fyrir altari.
Kl. 16 verður svo bindindis-
málafundurinn sjálfur í Ung-
mennafélagshúsinu, og verður
Sveinn Sæmundsson, yfirlög-
regluþjónn, fundarstjóri, Lud-
vig C. Magnússon skrifstofu-
stjóri flytur ávarp, en þá taka
við erindi. Kristján Þorvarðai-
son læknir ræðir um eðli á-
fengisins og verkanir þess, en
Árni Óla ritstjóri um samtök
reglumanna.
Kl. 20.30 verður kvöld-
skemmtun í Ungmennafélags-
húsinu. Ari Gísason kennari
setur skemmtunina, þá les Val-
ur Gíslason leikari upp, síðan
syngur Guðrún Á. Símonar við
undirleik Fritz Weishappels,
en að lokum verður stiginn
dans. Samkomunni verður slit-
ið kl. 24, en þá flytur Karl
Karlsson sjómaður, ávarp.
Gœfan fylgir hringunum frá
SIGURÞÓR, Hafnarstræti 4.
Margar gerðir fyrirliggjandi.
Vesturhöfnin
Sparið yður tíma ag
ómak — biðjið
Sjóbúðina
við Grandagarð
fyrir smáauglýsingar
yðar í Vísi.
Þær borga sig alltaf
MARGTÁSAMA STAÐ
MERKTUR lindarpenni
tapaðist um sl. helgi. Ólafur
Jensson. Sími 80284. (292
KVENGULLÚR tapaðist i
gær á leiðinni Skólavörðu-
stíg — Bankastræti að torg-
inu. Finnandi skili því á
Hringbraut 97, 3. hæð. -
Fundarlaun. (303
M?B Æ K (I R
ANTIQUARI/Vr
BÓKAMENN. Bækurn
Fiskarnir, Fuglarnir, Spe
dýrin til sölu. Verð 500 1
Sími 6043. (2
Fimmtudagínri 11. september 1952
STÚLKA óskar eftir her- bergi og helzt eldunarplássi . 1. október í mið- eða austur- bænum. Húshjálp kernur til . greina. Tilboð leggist inn á afgr. blaðsins fyrir föstu- dagskvöld, merkt: „Ábyggi- leg — 408.“ (287 íranðíöCHoa mynétosuólínn Grundarstíg 2 A. Sími 5307. Innritun kl. 6—7 e. h. —
STÆRÐFRÆÐIKENNSLA. Uppl. í sima 80617 kl. 1—5.
HÚSNÆÐI. Kærustupar
(vinna bæði úti) óska eftir 1 herbergi og eldhúsi seríi w&rm/töM
næst miðbænum. — Uppl. milli kl. 3—6 í dag í síma 80278. (286 VÍKINGUR. 4. fl. Æfing í kvöld kl. 7, — 3. fl. kl. 8,
STOFA óskast til leigu í austurbænum. Uppl. í síma 81990 eftir kl, 4. (283
BARNARÚM (rimla), með dýnu til sölu. Ægissíðu 109,
KJALLARASTOFA í Norðurmýri til leigu fyrir rólegan eldi’i mann. Sími 5835. (296
REGLUSAMUR piltur ut- an af landi óskar eftir her- bergi sem næst verzlunar- skólanum. Uppl. í síma 7012 kl. 7—9 í kvöld. (295 kjallara. (302
MÓTOR-varahlutir í Ford ’31, til sölu. Hverfisgötu 41, uppi. (300
EINKALEYFI til sölu. — Straujárnshaldari. Haldar- ann má stækka og minnka, þannig að hann hæfir öllum tegundum straujárna, Allar nánari uppl. veitir Arne J. Lerum, Flaskebekk po. pr, Oslo, Norge. (288
TVÆR stúlkur óska eftir góðu herbergi með aðgangi að síma, æskilegt í vestur- bænum. Tilboð sendist á afgr. Vísis fyrir föstudagskvöld, merkt: „H. M. H. — 417“. (294
2ja—3ja HERBERGJA íbúð óskast til leigu. Get lán- að 10—15 þúsund og fyrir- framgreiðsla, ef óskað er. — Uppl. í síma 81615. (299 GÓÐ braggaíbúð til sölu, 3 herbergi, W. C. og geynasla. Tilboðum sé skilað á afgr. blaðsins, merkt: „Bragga- íbuð — 418“. (297
MÆÐGUR óska eftir 2 herbergjum og eldhúsi sem fyrst. Húshjálp getur komið til greina. Uppl. í síma 2502. (301 TIL SÖLU á Dyngjuvegi 10 svefnherbergishúsgögn, fermingarkjóll og telpu- | kápa á 11—12 ára. Tæki- ' færisverð. Til sýnis kl. 8—9 síðdegis þessa viku. (284
IB KVENHJÓL, sem nýtt, til sölu á Óðinsgötu 22, kjall- ara. (285
SIÐFRÚÐ unglingsstúlka óskast nokkra tíma á dag eftir hádegi. Uppl. í síma 2294. (289
DÍVANAR, allar stærðir, fyrirliggjandi Húsgagna- verksmiðjan, Bergþórugötu 11. Sími 81830. (394
RÁÐSKONA. Stúlka ósk- ast til þess að sjá um lítið heimili í sveit. Má hafa barn. Uppl. í síma 2205 kl. 6—9 í kvöld og annað kvöld. (291 HÚSMÆÐUR: Þegar þér kaupið lyftiduft frá oss, þá eruð þér ekki einungis að efla íslenzkan iðnað, heldur einnig að tryggja yður ör- uggan árangur að fyrirhöfn yðar. Notið því ávallt „Chemiu lyftiduft", það ó- dýrasta og bezta. Fæst í hverri búð. Chemia h.f. —
SKÓVINN USTOFAN, Laugavegi 17, bakhúsið. — Vönduð vinna. — Fljót-af- greiðsla. (298
TEK að mér að sníða drengjaföt og,sel snið eftir máli. Þórhallur Friðfinnsson klæðskeri, Veltusundi 1. (80
TÆKIFÆRISG J AFIR: Málverk, ljósmyndir, myndarammar. Innrömmum myndir, málverk og saumað- ar myndir. — Setjum upp veggteppi. Ásbrú, Grettis- götu 54.
ÚR — og klukkur. — Við- gerðir á úrum og klukkum. Jón Sigmundsson, skart- gripaverzlun. (48
KAUPUM — SELJUM notuð húsgögn, herrafatnað, gólfteppi, útvarpstæki, saumavélar o. m. fl.. — Hús- gagnaskálinn, Njálsgötu 112. Sími 81570. (100
SNÍÐUM dömu- og herra- fatnað. Saumastofa Ingólfs Kárasonar, Nönnugötu 8. — Sími 6937. (157
RAFLAGNIR OG VIÐGERÐIR á raflögnum. KAUPUM flöskur; sækj- um heim. Sími 5395. (838
KAUPUM vel með farin karlmannaföt, saumavélar o. fL. Verzlunin, Grettisgötu 31. Simi 3562. (465
Gerum við straujárn og önnur heimilistæki. Raftækjaverzlunin Ljós og Hiti h.f. Laugavegi 79. — Sími 5184. PLÖTUR á grafreiti. Út- vegum áletraðar plötur á grafrfeiti með stuttum fyrir- vara. Uppl. á Rauðarárstíg 26 (kjallara). — Sími 6126.