Vísir - 16.09.1952, Side 8
LÆKNAB OG LYFJABÚÐIR
Vanti yður Iækni kl. 18—8, þá hringið i
Læknavarðstofima, sími 5030.
Vörður er í Rvíkur Apóteki, sími 1760.
Þriðiudaginn 16. september 1952
Cacfngerðar endurbætur á hús-
mæðraskóluæ áti uni land«
'Wwir starfa pá
Húsmæðraskólarnir á Blöndu
ósi og Hallormsstað verða ekki
starfræktir í veíui^ vegna
gagngerðra endurbóta, sem
fram eiga að fara á skólahús-
unum.
Þessir skólar eru með ' elztu
húsmæðraskólum landsins og
mfkil þörf margskonar endur-
bóta, því að húsin eru rnjög
farin að láta á sjá, lagnir þurfa
endurnýjunar við o. s. frv. Auk
þess eru nú gerðar miklu
meiri kröfur en áður var um
allan útbúnað og þægindi, - sem
nýju skólarnir hafa upp á að
bjóða ,og því ekki um annað
að ræða, til þess að gömlu
skólarnir geti haldið velli, að
gera þá sambærilega við nýju
skólana, svo að aðsókn að
þeim haldist. Jafnframt er svo
þess að gæta, að nýju skólarn-
ir geta ekki tekið við öllum
þeim fjölda húsmæðraefna, er
í þá vilja fara. Viðgerðirnar
munu taka eitt ár, en ráðgert
er að þeim verði lokið, svo að
skólarnir geti tekið aftur til
starfa haustið 1953.
Á Blönduósi verður byggð
ný álma. Á grunnhæð verður
borðsalur, en á efri hæð íbúð
forstöðukonu.
Opinberir húsmæðraskólar
eru alls 10 á landinu, 3 í kaup-
ekíki í vciur.
stöðum, Reykjavík, Akureyri
og ísafirði, og 7 í sveitum, og
svo eru 2 einkaskólar, á Löngu
mýri í Skagafirði og í Hvera-
gerði í Ölfusi.
Barnaskóli Mýrasýslu
að komast imdir þak.
Vinna við barnaskóla Mýra-
sýslu við Stafholtsveggjalaug
hefur gengio vel í sumar og
var steypuvinnu langt komið
fyrir skömmu og fullvíst, að
byggingin verður komin undir
þak í haust. Þá er talið, að
búið verði að leiða hita .-inn í
húsið fyrir veturinn.
-----»
Peir niega ai vísu
hlusts, en...
Berlín. (A.P.). — Austur-
þýzkir kommúnistar mega
hlusta á vestrænar útvarps-
stöðvar — það er ekki refsi-
vert.
En hitt er refsivert, ef þeir
breiða út „þær lygar, sem þar
eru bornar á borð“. Sama gild-
ir um lestur vestrænna blaða
og dreifingu á fréttum úr þeim,
að því er blaðið „Magdeburger
Volksstimme“ hermir.
Þjóðverjar í Indo-Kína
"a »iilliða fyrir Frakka.
meginstyrkur útlendingaliersins.
Eftir JEAN BARRE.
Saigon (AP). — Hávaxinn,
Ijóshærður unglingur sat við
Iilið fréttaritarans í vörubifreið,
sem var a leið frá Saigon til
Ðalat. !
Hann var í amerískum ein-
Iiennisbúningi og sex hand-
sprengjum var stungið í belti
b.ans. Hann hélt á handvél-
byssu. Þetta var Hans Feder-r
spiel, Þjóðverji frá A.-Prúss-
landi, 25 ára gamall, fyrrum
fallhlífahermaður í þýzka hern-
um, núverandi liðsmaður Út-
I - ndingahers Frakka, er barðist
í Indo-Kína.
Bílalestin ók með 40 km.
hraða um gil eitt. Voru í henni
41 bifreiðir og 150 m. milli
j- eirra, eins og reglur mæla fyr-
i’-. Allt í einu heyrast spreng-
itigar framundan, bifreiðin á
v idan nemur staðar, og um leið
fellur við vélbyssuskothríð.
,.Fyrirsát,“ tautar Hans,
stekkur ofan úr bílnum og
hleypur í áttina til sprenging-
r ~na. Liðþjálfinn, sem er fyrir
b lnum, bannar honum að fara
r hótar honum átta daga varð-
haldi, ef hann hlýði ekki, Hans
hikar andartak, því að hann
hefur aldrei óhlýðnast skipun
yfirboðara, en svo hleypur hann
áfram. Eftir fjórar eða fimm
mínútur heyrast nokkrar
sprengingar mnan um vélbyssu-
hvellina. Eg taldi sex, og þá
linnti skothríðinni.
Rétt á eftir birtist Hans aft-
ur. Sprengjurnar eru horfnar
úr belti hans og liðþjálfinn
segir: „Þú færð átta daga varð-
hald.“
Glaðlegur liðsforingi kemur
einnig hlaupandi og gefur skip-
un um, að haldið skuli áfram.
Um leið snýr hann sér að Hans,
segir honum að hitta sig í Dal-
at og heitir honum því, að hans
skuli getið í tilkynningu um
viðureignina......
Hans Federspiel er einn
12,000 Þjóðverja, sem berjast
gegn rauðliðum í Indó-Kína.
Þeir áttu flestir heima í lönd-
um, sem kommúnistar ráða nú
í Evrópu. Liðþjálfinn þekkir þá
vel, og hann hrósar þeim á
hvert reipi. — „Þeir bregðast
aldrei,“ segir hann. Þeir eru
meginstyrkur Útlendingahers-
ins og gefa hinum fordæmi.
Sjór aðeifls í
lest Hvals III.
Hedið veílasrs
til björguisar.
Bandarísk tónlistarkona
heldur píanótónleika hér.
Uiigfrú Jane Carlson leikur í Austurbæjarbíó
á föstudag.
Hvalur III virðist ekki mik-
ið brotinn, þar sem hann Iiggur
á strandstaðnum undan Dægru,
og verður reynt að ná sltipinu
út jafnskjótt og veður leyfir.
Vísir átti í morgun tal við
Loft Bjarnason, framkvæmda-
stjóra Hvals h.f., og tjáði hann
blaðinu, að ráðstafanir hafi
verið gerðar til þess að dæla
sjó úr skipinu, en síðan verð-
ur reynt að ná því út með
eigin vélarafli.
Enginn sjór hefur komizt í
vélarúm skipsins, heldur að-
eins í lest, og léttir það að
sjálfsögðu björgunarstarfið, að
aflvélin skuli vera í lagi. Er
hafður vélbátur til taks við
strandstaðinn, til þess að flytja
akkeri Hvals III, þegar reynt
verður að losa skipið af grunni.
Ógerlegt er að reyna björg-
unartilraunir fyrr en veður
lægir, en í morgun var norð-
vestan hvassviðri og ókleifí að
athafna sig á strandstaðnum.
Vegna skerja komast stór skip
ekki nær strandstaðnum en
sem svarar 1 sjómílu,með því
að skerjótt er þarna og „ó-
hreint“.
Loftur Bjarnason, sem var
nýkominn frá Hvalfirði, tjáði
Vísi í morgun, að í bili væri
ekkert hægt að aðhafast í sam-
bandi við björgun, annað en
að blða þess, að veðrinu slot-
aði.
-----♦
Gamfa lólkið skemmti
sér ve! í Þingvaliaförmni
Félag íslenzkra bifreiðaeig-
enda bauð s.l. sunnudag gamla
fólkinu á Elliheimilinu Grund
og öðrU gömlu fólki í ferð til
Þingvalla og í Bolabás.
í Valhöll þáði fólkið veiting-
ar í boði félagsins og þar
skemmtu undir borðum þeir
Brynjólfur Jóhannesson leikari,
Guðmundur Jónsson söngvari
og Fritz Weisshappel píanó-
leikari. Var skemmtiatriðunum
forkunnar vel tekið.
í sambandi við þetta má geta
þess, að í Valhöll bættist Jens-
ína Jónsdóttir í hópinn, en það
var hún sem viltist í berja-
mónum hjá Miðdal sl. föstudag.
Tók hún þátt í gleðskap gamla
fólksins um daginn og skemmti
sér ágætlega.
Ýmsar sælgætisgerðir í bæn-
um gáfu þátttakendum farar-
innar ýmiskonar sælgæti, en
yfir 30 einstaklingar lánuðu
bifreiðar, þ. á m. ráðherrar,
borgarstjórinn í Reykjavík og
fleiri. Hefur stjórn Félags ís-
lenzkra bifreiðaeigenda beðið
Vísi að færa bifreiðaeigendum,
svo og öllum öðrum, sem á einn
eða annan hátt stuðluðu að
þessari skemmtiferð gamla
fólksins, beztu þakkir.
Næstkomandi föstudag eiga |
tónlistarvinir von á góðri
skemmtun, því að þá ætlar ung,
bandarísk listakona, Jane Carl-
son píanóleikari, að láta til sín
heyra í Austurbæjarbíó.
Ungfrú Carlson, sem er af
sænsku bergi brotin, er vænt-
anleg hingað frá Stokkhólmi,
þar sem hún hefur dvalið í
sumarleyfi sínu á feðraslóðum.
Hún. er fædd í Hartford í
Connecticut, en lauk burtfar-
arprófi við tónlistarskólann í
Dayton í Virginiu. Síðan var
henni veittur námsstyrkur við
Julliard-skóla í New York, en
kennari hennar var Carl Fried-
berg, kunnur píanósnillingur.
Árið 1947 voru henni veitt
Walter W. Naumborg-verðlaun,
er þykja mjög eftirsóknarverð,
Lífið usn
ufsa og þorsk.
Mjög hefur verið tregt um
þorsk og ufsa á togara fyrir
vestan land og austan að und-
anförnu.
Á Halanum hefur þó komið
nótt og nótt, sem nokkuð hefur
veiðst af þessum fisktegundum,
en líflegra með karfann a dag-
inn.
Orsök þess, hve lélegar sölur
voru í Þýzkalandi seinast, var
hve mikið var af karfa, en Þjóð-
verjar vilja helzt fá blandaðan
fisk, þorsk, ufsa og karfa. Jaín-
framt barst mikið að um þær
mundir, er þessar sölur áttu sér
stað.
--- ♦ »■
Mossadegh hefur
í hótunum.
Krefst skaðabóta
a£ Bretnm.
Mossadegh hefur lýst yfir, að
Brezk-íranska olíufélagið verði
að greiða Persíu 49 milljónir
sterlingspunda í dollurum, áður
en Persía fallist á, að skaða-
bótakröfurnar verði lagðar fyr-
ir Haagstólinn til úrskurðar.
Ennfremur, að félagið fallist
á að fá skaðabætur aðeins fyrir
vélar og aðrar eignir í Abadan.
Nokkur önnur skilyrði setur
Mossadegh. Gerði hann grein
fyrir þessari afstöðu stjórnar
isnnar á þingfundi, og fór fram
á, að þingið samþykkti traust
á sér.
Mossadegh lét í veðri vaka,
að ef ekki yrði fallist á skil-
yrðin myndi Persía slíta
stjórnmálasambandi við
Bretland — og ef það skref
yrði stigið bæri brezka
stjórnin alla ábyrgð á því.
en það haust hélt hún fyrstu
hljómleika sína og hlaut mikið
lof fyrir. Síðan hefur hún verið
eftirsóttur píanóleikari í mörg-
um borgum Bandaríkjanna,
haldið marga hljómleika sem
einleikari, en einnig leikið með
hljómsveitum, meðal annars
með Chicago-symfóníusveit-
inni, Connecticut-symfóníu-
sveitinni, í Camegie Hall í New
York og víðar.
Blaðadómar um leik ungfrú
Carlsons hafa verið hinir lof-
samlegustu, m. a. segir blaðið
New York Herald Tribune, að
ungfrúnni falli sérstaklega vel
að flytja verk Hindemiths.
Ungfrú Jane Carlson hefur
verið kennari Magnúsar Blön-
dals Jóhannessonar,sem er ung-
ur og efnilegur Reykvíkingur
á listamannsþrautinni, og hef-
ur hana fýst að sækja ísland
heim.
Á hljómleikunum á föstudag
mun hún m. a. flytja verk eftir
Bach, Beethoven, Hindemith,
Rachmaninoff o. fl. Hljómleik-
arnir verða kl. 7 á föstudag í
Austurbæj arbíó.
íbúBarhús reist fyrir
forstöBimianninn aö
Arnarhoiti.
Ákveðið hefur verið að reisa
íbúðarhús fyrir forstöðumaim
Arnarholtshælisins.
Á síðasta bæjarráðsfundi
voru lögð fram tilboð um smíði
íbúðarhúss í Arnarholti, og var
bæjarráði þá heimilað að taka
tilboði byggingafélagsins Þórs,
sem reyndist lægst. Er hér um
vinnutilboð að ræða, en bærinn
mun leggja til efnið. Verður
þetta steinsteypt hús, 115 fer-
metrar að stærð.
Til þessa hefur forstöðumað-
ur hælisins og fjölskylda hans
orðið að búa í hælinu sjálfu,
og hefur slíkt fyrirkomulag að
sjálfsögðu ekki gefizt vel né
talið heppilegt, og þess vegna
verður nú reist sérstakt íbúðar-
hús fyrir hann og fjölskyldulið
hans.