Vísir - 23.03.1953, Blaðsíða 1
43.- árg.
Mánudaginn 23. marz 1953.
68. tbl.
Parísarfundur um efnahagsmál.
Árangurs hans er beði5 með óbreyju.
Einkaskeyti frá AP. —
París í morgun.
Káðherranefnd Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar (OEEC)
kom saman til' fundar árdegis
í dag og Iýkur honum síðdegis á
morgun, eða annað kvöld. —
Eden er forseti fundarins.
Hann og Butler, fjármálaráð-
herra Bretlands, flytja skýrslur
á fundinum um 'seinustu sam-
valdisráðstefnu í London og á-
rangur af henni, og um viðræð-
urnar í Washington á dögun-
um.
í London og París telja meniT,
.að nokkur kvíði sé í fulltriium
meginlandsþjóðanna, því að
þær óttist að þær verði afskipt-
arfrekari en áður, þar sem í
Ijós kunni að koma, að megin-
áragnurinn af samveldisráð-
stefnunni og Washingtan-við-
ræðunum muni reynast lítill
sem enginn, að þvi er viðskipti
varða, en annars eru skoðanir
manna skiptar. Hefur mikið
verið um þetta skrifað í blöð
að undanförnu og kemur þar
fram, að beðið er fregna af Par-
ísárfundinum: með óvanalega
mikilli óþreyju.
litflutningur Svsa '52 Fiam
28 milíjörðum króna.
St.hólmi. ¦— Bretar voru bezíu
viðskiptamenn Svía á árinu
sem leið, en keypt var mest fi'á
V.-Þýzkalandi.
Innflutningurinn nam 8.9
milljörðum s. kr. (um 28 mill-
jarðar ísl. kr.), en útflutning-
urinn 8.1 milljarði. Bretar
key.ptu vörur fyrir 1,3 milljarð
s. kr., en frá 'V.Þýzkalandi
< keyptu • Svíar fyirr 1.6 milljarð
'kr. (SIP).
?
;asamband við Þykkvabæ vegna
en kemst sennita á í kvöld.
Framleiðsla Svía
minnkar aðeins.
St.hólmi. — Iðnaðarfram-
leiðsla Svía rýrnaði um 2 a£
hundraði á síðasta ári.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
hún minnkar síðan árið 1945.
Orsökin er m. a. sú, að gildi
gengu ný lög um orlof í iðnað-
inum, og fækkaði vinnudögum
um einn af hundraði. (SIP).
200 umsökmr
um listamaima-
styrki.
Úthlutun íil skálda og -rit-
höfunda og listamamia Iýkur
í dag.
Alls bárust um 200 umsöknir
og af þeim mun um það -bil
helmingurinn fá áheym um
styrk, en hinir strikaðír út.
Úthlutunarnefndin - hefir 630
þús. kr. til umráða, að undan-
skildum þó 21.600 kr., sem Al-
þingi hefir sjálft ákveðið að
veita sem hedðurslaun til
Gunnars Gunnarssonar rithöf-
undar,
Ekki eru neinar stórvægi-
legar breytingar í aðsígi að því
er nefndarmenn hafa tjáð Vísi,
en þó mun ákvörðun hafa vprið
tekin um það að veita ekki
styrk nokkrum rithöfundum og
listamönnum, sem áður hafa
notið styrks og sumir þeirra
jafnvel um langt skeið.
Myndarleg oróabókaútgáfa Isa-
foldarprentsmiðju undanfarð.
Þýzk-íslenzk kemnr út í vikunni.
frönsk-íslenzk væntanleg í hausí.
ísafoldarprentsmiðja hefur
haft með höndum myndarlega
útgáfustarfsemi orðabóka und-
anfarið.
Eins og áður hefur verið get-
ið, er nýlega út komin ensk-
íslenzk orðabók eftir Sigurð
Bogason, og bætti hún mjög úr
brýnni þörf, þar sem hin
minni orðabók Geirs Zoéga
hefur verið ófáanleg um langt
skeið.
í þessari viku er væntanleg
á markaðinn þýzk-íslenzk orða
bók Jóns heitins Ófeigssonar
yfirkennara, en Ingimar Brynj-
ólfsson hefur búið undir prent-
un. Orðabók Jóns hefur einnig
verið ófáanleg undanfarin þrjú
ár eða svo, og er því ný út-
gáfa mjög tímabær.
í haust kemur út frönsk-ís-
lenzk orðabók, sem síra Boots,
prestur í Landakoti hefur tekið
saman, ög verður hún nokkru
stærri en hinar orðabækurnar,
sem taldar hafa verið. Eftir
sama höfund er nýlega komin
út íslenzk-frönsk orðabók, sem
er minni að vöxtum.
Áhugi almennings á íslandi
hefur jafnan verið mikill á
tungumálum, einkum þessum
þrem heimsmálum og mun þessi
útgáfustarfsemi fsafoldarprent-
smiðju því bæta úr mikilli og
vaxandi þörf.
íslendingar
rgreiddu fyrst
Þótt íslendingar sé minnsta
þjóðin í samtökum Samein-
uðu þjóðanna, standa þeir þó
hinum miklu framar að
mörgu leyti, og þarf ekki að
rekja það hér. Þeir hafa til
dæmis farugðið skjótt við,
þegar þeim hefur borið að
greiða tillög sín til alþjóða-
starfsemi, og það hafa þeir
enn gert nú fyrir nokkru, er
þeir, fyrstir þjóða, greiddu
SÞ tillag sitt. Nemur það
17,680 dollurum.
Kaíser-bílarnir teknír.
í fíöikiMi f víkun»l.
•>5 komu isaeS-
MeT'k|a'fnssr.
Með Reykiafossi, sem hingaS,
kom um helgina, voru 55 af 62
Kaíser-bílum, sem hingað koma
frá Is'rael'. o-g atvinnubílstjór-
um eru æííaðir.
Bílarnir koma hingað saman
setíir, og fullbúnir til aksturs,.
að dðru leyti en því, að raf-
geyma þarf að hlaða og setja
á þá króm-lista. Má því búast
við, að þessi nýju farartæki sjá-
ist hér á götunum i þessari
viku.
40 þessara bíla fara á stöðvar
b.ér í'bænum. Af þeim íær bif-
reiðastöðin Hreyfill 29, BSR 4,
Steiftdór 4, Borgarbilastöðin 2
og Bifröst 1.
Bilunum hefur þegar. verið
útlilutað, en : þeir verða nú
dregnir suður: í flugskýlið
mikla á Beykjavíkurflugvelli
(þar sem Cirkus Zoo var), en
þangað sækja eigendurnir þá.
Sjö bilar urðu eftir í Ant-
werpen, en þeir munu koma
með Goðafossi, sem lestar þar
þessa dagana.
VIII kaupa
12.000 hús,
Ottawa (AP>. — Kanadisk-
iir kaupsýslumaður Ieitar fyrir
sér um kaup á heilli borg í
B'retlandi.
Vill hann festa kaup á alls
12,000 húsum, og verða nieðal
þeirra verzlunarhús og jafn-
vel kirkja. Verða húsin flutt í
hlutum vestur um haf — smíð-
uð hjá mörgum brezkum verk-
smiðjum — og sett upp þar.
Kaupverð er um 24 millj.
punda.
Féíl út um
glugga.
S.I. sólarhring voru slökkvi-
Iiðsmenn tvívegis kvaddir til
þess að' flytja slasaða menn í
sjúkrahús.
Síðdegis í gær varð Richard
Wagner Runólfsson verkamað-
ur fyrir bifreið á móts við Frí-
kirkjuna. Hlaut hann nokkur
meiðsl, og var fluttur í Land-
spítalann.
í nótt var slökkviliðinu til-
kynnt, að' maður hefði fallið út
um glugga á húsi vestur undir
sjó. Ekki munu , meiðsl hans
hafa verið alvarleg, en hann
hlaut s.kurði á augabrún og
höku, og var fluttur í Land-
spítalann.
Um eldsvoða um helgina er
Vísi ekki kunnugt, og að öðru
leyti var rólegt hjá slökkvi-
liðinu.
Stór skörð mynif'iíðost í veginn
þangað á 3 stéðuim.
ÖIÍEiisá og íleirí ár Iiakkaí'ullai', en'
vaíií keltlur s|ati8and£ í morgiin.
Frá fréttaritara Vísis, Selfossi í morgun. —
Feikna vatnsmagn var í öllum ám austanfjalls um helgina,
en var heldur minnkandi í morgun. Á Skeiðum og í Þykkvabæ
var allt á floti. í Þykkvabæ urðu skemmdir á veginum, sem
verið er að lagfæra. Ölfusá var bakkafull í gærkvöldi, en farið
örlítið að minnka í henni í morgun.
Eins og kunnugt er beljaði
Markarfljót út með allri Fljóts-
hlíðinni, áður en fyrirhleðslan
var gerð inn undir Þórsmörk,
til þess að beina vatninu aust-
ur til Eyjafjallanna. í Þverá
safnast nú aðallega vatn úr ám
og lækjum í Fljótshlíðinni og
niður undir Þykkvabæ samein-
ast hún Rangánum og nefnist
Hólsá. Getur hún orðið geysi-
vatnsmikil í rigningum og fer
þá fyrir . ofan Þykkvabæ og
kemst allt á flot-þar og rennur
áin út hjá Hávi.
Allt á floti.
Á laugardag náði flóðið há-
marki í Þykkvabæ og var allt
á floti. Stór skörð mynduðust
i veginn á 3 stöðum og var fyllt
í tvö þeirra í gær, en lokið mun
verða við að fylla upp í það
þriðja í kvöld, ef vel gengur.
Þangað til verður ófært' í
Þykkvabæinn, en bændur sel-
flytja mjólkina þangað sem
bílar komast. Munu flutningar
geta hafizt eins og venjulega
á morgun.
Á Tungufljótsbrúnni fyrir of-
an Vatnsleysu tók af handrið,
sem sett var til öryggis, fyrir
nokkrum árum.
Vegir fara illa.
Miklum átyggjum veldur,
hve vegir eru að verða slæmir
eftir látlausar þíður og rign-
ingar. Ófært er að verða upp á
Land, en komist verður enn að
Pululaut við illan leik. Mun
víða verða að dytta að vegum
og bera mikið ofan í, því að
allt er að vaðast upp á löng-
um köflum.
Allt að grænka.
Austan fjalls sem annars
staðar er einmunatíð og allt
farið að grænka, og blóm byrj
uð' að springa út í görðum, .en
að vonum óttast menn, að þessi
gróður verði skammlífur, ef
vorhret koma, sem alltaf verð-
ur að búast við.
Fyrir ofan Ferjukot í Borg-
Bretar auka stál-
framleiðsluna,
London — Bretar áforma að
auka járn- og stálframleiðslu
sína á næstu árum, svo að húra
verði komin upp í 20% milljón
lesta 1957.
Er þannig gert ráð fyrir, að
aukningin nema að meðaltali 1
milljón lesta frá því, sem hún
nú er, 16% millj. lesta.
arhreppi var vegurinn ófær £
bili við Síkið. Rann þar yfir
veginn, sem var mjög blautur
fyrir, en vatnið sjatnaði brátt
og fór viðgerð fram fljótlega.
Vegir Þungfærir.
Vegir í Borgarfirði eru þung-
færir, en ekki kunnugt um nein.
veruleg spjöll á þeim, þrátt fyr-
ir miklar úrkomur, enda mun.
hvergi hafa komið klaki í veg„
nema þá helzt upp til dala,
en þegar holklaki er að f ara úr,
er vegum hættast. Umferð ura
vegina í héraðinu er ekki svo
mikil, að þeir spillist stórlega
af henni einni.
Blaðið spurðist fyrir um þaðí
hjá Vegamálaskrifstofunni,
hvernig horfði um vegina, og
fékk þau svör, að vegir hefðu
ekki spillzt svo að umferð teppt
ist neins staðar nema þá rétt
í bili. Engar verulegar skemmd
ir hafa orðið á brúm í vatna-
vöxtunum. Þó hefur grafið frá
stöplum á 2—3 brúm, en ekki
svo, að neitt verulegt tjón hlyt-
ist af.
Vatnsmagn með *
mesta móíi.
Samkvæmt viðtali, sem blað-
ið átti við Ólaf hreppstjóra á
Seljalandi í morgun, var mjög
mikið í Markarfljóti í fyrradag,
og með mesta móti, en fljótiS
hefði ekki valdið neinum spjöll
um, að því er kunnugt væri.
Jörð þar eystra er sem óðast
að grænka og í hlíðum og sunn-
an í móti er að verða algrænt.
Daglega rignir og veldur það
eitt, að jarðvinnsla er ekki haf-
in, að jörð er of blaut. Skurð-
grafa er að verki í Mýrdalnum^
2500 handteknir
í Kenya.
Einkaskeyti frá A.P. —t
Nairobi í morgun.
Hermenn og lögreglumenn í
Kenya hafa handtekið 250tt
Mökkumenn til yfirheyrslu og:
eru þetta mestu skyndihandtök
ur bar á hryðjuverkatímanum.
í flokki þeirra, sem hand-
teknir voru, eru 1500 menn„
sem lögregluna „fýsti að hafa;
tal af". Heilt hverfi í Nairobi
var umkringt herliði, meðan
handtökurnar voru framkvæmd.
ar. Þarna höfðu safnazt saman
menn, sem flúið höfðu úr Neri-
héraði og viðar að, þar sem
I mest hefur verið um hryðju-*
i verk. j