Vísir - 09.12.1953, Síða 7
Miðvikudaginn 9. desember 1953
VÍSIR
gullna. Það var eins og hún væri skyndilega búin að öðlast
einhverja skyggnigáfu, eins og um getur í ævintýrum — og
það var ekki fjarri sanni, því að hún hafði öðlazt áreiðanlegar
upplýsingar.
„Að þessu sinni,“ mælti hún, „verðum við að vera gætnari
en áður. Það má ekki með neinu móti spyrjast, að það sé eg,
sem standi á bak við þetta.“
„Þú leggur þig í talsverða hættu með þessu,“ mælti Hep-
siba og dró ekki dul á, að hún væri þessu mótvíg. „Það getur
vel verið, að þú hættir ekki á að tapa fé, en þú getur glatað
vinum þínum á þessu tiltæki. Þú hefir beitt hverskyns brögð-
um, til þess að komast inn undir hjá fínu fólki. Hvar mundir
þú standa, ef þú vaknaðir upp við það einn góðan veðurdag,
að þú hefðir glatað þeim öllum?“
„Vitanlega,“ svaraði Anneke, „verð eg að koma í veg fyrir
slíkt, hvað sem það kostar.“ Hún brosti dálítið vesaldarlega
þó. „Vinir eru peningar,“ bætt.i hún við.
„Hvað ætlastu þá fyrir?"
„Við höfum seytján hundruð dollara, sem við getum notað í
þetta. Þótt við töpum þeim, stöndum við ekki verr að vígi, en
þegar við byrjuðum á þessu — þegar við komum til San Franc-
isco. Hlutabréfin í California-Comstock eru seld, eins og eg hefi
sagt þér, á átta dollara og tuttugu og fimm sent. Það er hægt að
kaupa þessi hlutabréf með því að leggja aðeins fram tíunda
hluta kaupverðsins — það er að segja, að maður leggur aðeins
fram einn dollar af hverjum tíu, sem þau hlutabréf kosta, sem
við kaupum. Þar af leiðir, að við getum geypt tífalt meira hluta-
bréfamagn, en ef við yrðum að greiða þau öll út í hönd.“
„Eg skil þetta nú eiginlega ekki,“ svaraði Hepsiba, „en eg geri
ráð fyrir, að þú vitir, hvað þú ert að fara.“
„Já, það geri eg. í fyrramálið ferðu til Jason Means. Þú segir
honum, að haim eigi að kaupa hlutabréf á Califomia-Comstock,
en ekki allt á einum stað, sem við ætlum að afla, heldur hjá svo
sem tylft verðbréfamiðlara. Hann á að kaupa fimmtán þúsund
hluti frá þessu félagi í þínu nafni. Og síðan bíðum við átekta.*
„Hver veit nema þessi Ralston hafi aðeins verið að leiða þig
í gildru,“ sagði Hepsiba.
„Hvers vegna ætti hann að vera að reyna það? Það getur vel
verið, að hami hafi verið að prófa mig, verið að reyna að komast
að niðurstöðu um það, hvort eg væri að komast að upplýsingum.
Nei, eg held, að hann hafi gefið mér heilræði þarna. Eg hefi
sannfært hann um, að eg hafi ekki áhuga fyrir að græoa pen-
inga — að eg sé ánægð, eins og högum mínum er háttað. Eg
býst ekki við, að hann verði alltof þögull í návist minni fram-
vegis.“
„En hver veit nema hann komist að því, sem þú hefur fyrir
stafni."
„Hann ér einkennilegur maður,“ svaraði Anneke. „Hann er
tillitslaus, albúinn til ævintýra í fjármálum og sennilega ekki
of vandur að meðulum. Það er einhver sjóræningjataug í honum.
Ef hann hefði hendur í hári rnínu, Hepsie? Mig grunar bara, að
hann mundi dást að mér. Þó mundi hann sennilega verða reiður.
Eg held, að hann mundi gruna mig. En enginn má geta sett kaup-
in á hlutabréfunum í sambandi við mig. Þú verður að vera enn
gætnari en áður.“
Hepsiba leit á húsmóður sína, og var svipur hennar harður.
„Hvað muntu láta þér nægja mikið fé?“ spurði hún.
Anneke varð hugsi. Hvenær mundi hún telja, að hún hefði
aflað nægs fjár? Hvað hafði hún sett markið hátt að því leyti?
Hún hugsaði sig um í heila mínútu, áður en hún svaraði.
„Eg held ekki, Hepsie,“ mælti hún, „að nein ákveðin upphæð
mundi gera mig ánægða, meðan einhver von væri til þess, að
hægt væri að græða svo sem einum dollar meira.“
Hepsie sveiaði og yppti öxlum. „Sá er heimskingi, er hættir
ekki hættulegum leik, þegar hann hefur aflað sér nægs fjár
fyrir alla ævina. Það gtur reynzt hættulegt, að ætla að þrauka
of lengi — því að þá getur allt tapazt á svipstundu."
„Satt er það,“ svaraði Anneke, „en hvert ævintýri af þessu
tagi æsir löngunina í meira af því tagi.“ Hún hleypti brúnum og
bætti svo við: „Annars er gleðin ekki fyrst og fremst fólgin í að
eiga peninga — heldur í að afla þeirra.“
„Það kemur fyrir,“ mælti Hepsiba, „þegar eg óttast, að þú
sért einhverskonar umskipting'ur. Mér finnst, að þú sért alls ekki
mannleg. Og þess á milli er eg á alveg gagnstæðri skoðun — að
þú sért mannlegri en þú gerir þér grein fyrir. Eg þori að veðja
'HtasUg $. MUk.papptrspokm
H.F. EIMSKIPAFÉLAG
ÍSLANDS.
fer héðan laugardaginn 12.
þ.m. til
Vestmannaeyja
ísafjarðar
SiglufjarSar
Húsávíkur.
ÓDÝR
OG
GÓÐ
RAK-
BLÖÐ
Lu'p! pil og silfor
Símanúmer okkar á
Melhaga 2 er
82936
Kjöt og Grænmet
GOSTAF A. SVEINSSON
EGGERT CLAESSEN
hcestaréttarlögmenn
Templarasundl 6,
(Þórshamar)
Allskonar lögfræUistörf.
Fasteijpiasala.
JIAGNÚS THORLACJUS
hæstaréttariögrmaðar
Málflutnmgsskrifstofa
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
3/ffun£& JLiíÉm I?ímá&lmmf/imm
Kemisk-hreinsum fötin fljótt og pressum meðan þér bíðið.
JLitla efmaiamfgia
Mjóstræti 10, sími 82599.
U
Sólvallag. 74 —- Barmahlíð 6
Sími 3237.
Hreinsum og pressum
fatnað á 2 dögum.
Trichorhreinsun.
Alm. Fasteignasala*
Lánastarísemi
Verðbréfakaup
Austurstræti 12. Sími 7324.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar gefur út
jólakort.
Ljúft er mér að vekja at-
hyg'li á jólakortum, sem Kven-
félag Háteigssóknar hefur gefiS
út og seld eru til fjáröflunar
fyrirhugaðri kirkju safnaðarins.
Kortin eru vönduð og smekk-
leg með mynd, sem Halldór
Pétursson listmálari hefur gert.
Þeim, sem styrkja vilja gott
málefni vildi eg benda á þessi
jólakort. Einkum mælist eg til
þess við safnaðarmenn, að þeir
kaupi þessi kort og styrki þann-
ig sameiginlegt áhugamál.
Kvenfélag Háteigssóknar á
sér ekki langa sögu. Það var
stofnað í febrúar þ. á. og er
því enn ekki ársgamalt. En á
þessum stutta tíma hefur það
verið mjög athafnasamt. Hafa
kvenfélagskonur starfað af á-
huga, dugnaði og fórnfýsi og
staðið einhuga að þeim verk-
efnum; sem unnið hefur verið
að. Jafnframt því, sem þess er
getið vil eg einnig þakka þeim,
sem af rausn og myndarskap
hafa stutt þær í starfi.
Nýlega ákvað Kvenfélagið að
verja nokkru fé, til að prýða'
hátíðasal Sjómannaskólans, þar
sem ákveðið er, að hið kirkju-
lega starf safnaðarins fari fram.
á næstunni.
Um leið og eg þakka kvenfc-
laginu áhuga og prýðilegt starf
að undanförnu, endurtek eg til-
mæli mín um kaup á jólakort-
um félagsins.
Kortin eru til sölu í ýmsurn
bóka- og ritfangaverzlunum
bæjarins og í verzlunum í
prestakallinu. • Þau fást enn-
fremur hjá frú Halldóru Sig-
fúsdóttur, Flókagötu 27 og frú'
Laufeyju Eiríksdóttur, Barma-
hlíð 9.
Jón Þorvarðsson.
im
]
Oi. óticppni töx nu að hugsa ráð
sit.t, er hann sá. h\;e sterkur Tarzan
var. Hvernig váeri nú auðveidast að
, ná ^pamann-num. a vald sitt? Hami
reyndi að' ginna Tarzan með alls
konar skrauti, banönum og fleira
, j góðgæti, en allt var ,án árengurs.; Alh
í einu þreif Óli óheppni skammbyss-
una á loft og hrópað'i: „Fjandmn
hirðir .þig. Upp á vagninn með þig
eða eg skýt þig. Tarzan lét sér hvergi
bregða og át banana. Skyndiíega
fékk Óli óheppni.nýja hugmynd. ,