Vísir - 21.01.1954, Qupperneq 1
I
44. árg.
Fimmtudaginn 21. janúar 1954
15. tbU
Arabar fá að
sjá sveil!
Bretar ætla að koma upp
miklu iðnsýningarsvæði í
grennd við Bagdad, sem
verður stærra en bæði sýn-
ingarsvæðin í London og
Birmingham til samans.
Þetta verður fyrsta iðn-
sýning Breta í Arabalöndum
og liin langmesta, sem þar
hefur nokkurn tíma verið
haldin. Þarna fá Arabar að
sjá í fyrsta skipti mörg tæki
og vélar,, svo og fyrsta
skautasvellið, því að þarna á
að' vera tiibúið skautasvell,
og má nærri geta, hver nýj-
ung það verður Aröbum að
geta séð menn renna sér á
skautum eða prófað það
sjálfir.
Ándstaða gegn tillögnsn
Ekki er líklegt, að breyting-
artillögur Eisenhowers við
Taft-Hartley lögin, nái bar-
áttulaust fram að ganga.
Hann hefur sem kunnugt er
mælt með breytingum, sumra
að ráði atvinnurekenda, annara
að ráði verklýðsfélaga. Sagt er,
að 14 menn, sem sæti eiga í
Mennta- og verkalýðsmála-
nefnd fulltrúadeildarinnar, eða
meirihluti nefndarinnar, séu
andvígir því að breyta lögunum
í frjálslegri átt.
Þúsundir Kínverja fluttir til
Formósu frá Kóreu.
Tiu skip eru notiað við
flutningana.
Þarna stóðu tii skamms tíma fjögur hús, en svo skall snjóflóö
yfir þau, og eftir er aðeins brak og rústir. Myndin ef frá Vorárl
berg í Austurríki, þar sem snjóflóð voru mikil í síðustu vikv.
Leitarflokkar sjást einnig á myndinni.
Kínversku stríðsfangarnir,!
sem indverska gæzluliðið af-
henti herstjórn Sameinuðu
þjóðanna í gær, eru nú á leið
til Formósu (Taivvan), en norð
urkórcsku fangárnír hafa ve.rið
afhentir stjórnarvöldum Suð-
ur-Kóreu.
Tíu bandarísk skip eru notuð
Skyh að hafa „kattar-
auguy# á reiðhjólum.
Umferðarmálanefnd Reykja-
víkurbæjar hefur á fundi sín-
um fyrir skemmstu rætt um
Ijósaútbúnað reiðhjóla.
Nefndin samþykkti að mæla
með því að reiðhjólanotendum
yrði gert að skyldu að hafa á
reiðhjólum sínum svonefnd
„kattaraugu“ eða annan útbún-
að, sem endurvarpar ljósi.
Hér mun vafalaust vera átt
við það, að „kattaraugun“ séu
fest aftan á hjólið, því reiðhjól-
um er, sem kunnugt er, skylt
að hafa ljósaútbúnað að fram-
an svo sem öðrum öku- eða
farartækjum.
Þá má enn fremur geta þess
að umferðarmálanefndin ræddi
um möguleika á því að hafa
stefnuljós á bifreiðum.
Ráðgert að koma upp sleða-
brautum fyrir börn.
Til hréóahirgóa verói vissar götur notaóar í
þessu skyni og þeim íokaó meö sérstökum
útbúna&i.
A bæjarráðsfundi s.l. föstu-
dag var Icikvallancfnd og lög-
reglustjóra falið að gera tillög-
ur um sleðabrautir fyrir börn.
Nokkru fyrir jól hafði mál
þetta komið til umræðu í um-
ferðarmálanefnd og sat þá fund
með henni Jónas B. Jónsson
fræðslufulltrúi, sem er formað-
ur leikvallanefndar bæjarins.
Taldi umferðarmálanefndin
nauðsyn bera til að börnum hér
í bænum yrði séð fyrir svæðum
til sleðaferða.
Lagði nefndin til, að hafin
yrði athugun í samráði við leik
vallanefnd og lögreglustjóra á
því, hvar mögulegt væri að
koma fyrir sleðabrautum á
leikvöllum bæjarins og á öðr-
um stöðum utan gatna, en að
því loknu verði strax hafizt
handa um byggingu sleða-
Reykjavíkurbæjar og lögreglu-
stjóra verið falið að gera tillög-
ur um sleðabrautir handa börn -
Parísartízkan
sækir austar.
í Austur-Berlin stendur
til, að opnuð verði tízku-
verzlun að Parísar-fyrir-
mynd, og verða þar til sölu
kjólar, liiattar o. fl., allt eftir
nýjustu, vestrænni tízku, svo
að konur forsprakkanna
hætti þeim óvana, að skreppa
til Vestur-Berlinar að kaupa
slíka hluti.
j brauta.
Taldi meiri hluti nefndarinn-
ar að ekki yrði hjá því komizt
að leysa úr brýnni þörf með
: því að velja til bráðabirgða
hentuga götukafla, sem fært
þætti að loka vegna umferðar.
Þessir götukaflar yrðu síðan
notáðir sem sleðabrautir meðan
ekki væri til annarra betri staða
að' hverfa.
Jafnframt gerði meiri hluti
umferðarmálanefndarinnar ráð
fyrir því að götum þeim eða
götuköflum, sem valdir yrðu til
sleðabrauta, yrði lokað með
handhægum en öruggum út-
búnaði, en þó aðeins þá daga
sem sleðafæri er.
Einn nefndarmanna, Einar B.
Pálsson yfirverkfræðingur
greiddi atkvæði gegn því að
börnum yrði vísað á götur bæj-
arins sem leiksvæði.
En nú hefur, svo sem áður
er tekið fram, leikvallanefnd
Truman kæröur fyrír
kjarnorkuárásir.
N. York (AP). — Hingað
hafa borizt þær fregnir frá Jap-
an, að all-óvenjulcg málaferli
sé í undirbúningi þar í landi.
Ætla ellefu japanskir lög-
fræðingar að lögsækja Truman
fv. forseta og stjórn Bandaríkj-
anna vegna aðstandenda þeirra,
er fórust í kjarnorkuárásunum
á Hiroshima og Nagasaki, svo
og vegna þeirra, er hlutu ein-
hver. lemstur í árásunum.
Nýr, mlkiff skíþ£-
skurður gerður?
Einkaskeyti frá AP.
N. York í morgun.
Öldungadeild Bandaríkja-
þings hefur samþykkt með 51
atkvæði gegn 33 frumvarp til
laga um St. Lawrence-skipa-
skurðinn.
Frumvarp þeta fjallar um
samvinnu Bandaríkjanna og
Kanada, til þess að grafa og
starfrækja skurð i og meðfram
St. Lawrence-ánni, til þess að
hafskip geti siglt um Lawrence-
fljót og skurðinn til stórborg-
anna við vötnin miklu í Norð-
ur-Ameríku, milli Bandaríkj -
anna og Kanada.
Þetta mál hefur átt erfit upp-
dráttar í Bandaríkjunum, því
að hver forseti Bandaríkjanna
af öðrum undangengna þrjá
áratugi hefur mælt með fram-
gangi málsins árangurslaust,
þar til nú.
Málið á efir að fá afgreiðslu
í fulltrúadeild þjóðþingsins.
• Brezkur hennaður var
skotinn til bana á Suez-
eiði í fyrrakvöld, er hann
var að aka herflutninga-
bifreið. — Árásir á Breta
eru tíðari seinustu daga.
• Israelsstjórn hefur kært
yfir, að Jordaniumenn Iiafa
rænt 4 landamæravörðum.
til flutninganna. Skip með 9000
fanga innanborðs voru 1 morg- ,
un snemma. á leið til Formósn
frá höfnum í Suður-Kóreu, en.
upp undir 4000 í þann vegino.
að leggja af stað, flestir þeirra
þegar komnir á skipsfjöl. — TJm
7000 fangar hafa verið afhentir
Suður-Kóreustjórn.
Fregn samkvæmt tilkynningu:
frá indverska gæzluliðinu
hermir, að 100 föngum hafL
snúist hugur á seinustu stundu,.
og kosið að hverfa til heim-,
kynna sinna í N.-Kóreu og;
Kína.
Ekki hefur enn frétzt um neira
ný viðbrögð af hálfu kommún-
ista, en þeir höfðu tilkynnt fyrr
í vikunni, að þeir teldu það al-
varlegt brot á vopnahléssátt-
málanum, ef föngunum yrði
sleppt. Enn frernur mótmæltu
þeir ákvörðun Thiamaya um, að
afhenda herstjórn S. Þ. fang-
ana. Þessi rriótmæli dugðu ekki
og var það fyrirfram vitað. —
Ljóst er af ýmsum fregnum, að
herstjórn Sameinuðu þjóðanna
hefur brugðið enn skjótar við
um að losa sig við fangana en
búizt hafði verið við, og þeir
eiga, samkvæmt seinustu fregn-/
um, að fá fullt frelsi eftir mið-
nætti næsa dags.
350 fangar, flestir suður-kór-
eskir og um 20 bandarískir, eru
enn í haldi hjá indverska gæzlu
liðinu.
Herstjórn S.Þ.
hefur boðað fund.
í hinni sameiginlegu, hern-
aðarlegu vopnahlésnefnd, til.
þess að ræða um stríðsfanga og
önnur vandamál.
Thimayya hershöfðingi
hefur tilkynnt, að varðmenn.
indverska gæzluliðsins verði.
látnir hætta störfum á mið-
nætti næsta.
Ráöizt á bílsfjóra.
í nótt kærði atvinnubílstjóri
yfir því til lögreglunnar að ölv-
aður maður hei'ði ráðizt á sig.
Veitti sá ölóði bifreiðarstjór-
anum nokkurn áverka i átök-
unum, en þó ekki alvarlegan.
Lögreglan handtók manninn og
setti hann í íangageymslu.
GeysKjöhnenfu
Forsætisráöherrann
í morgun rakst hraðlest á
flutningalest á járnbrautinni
milli Lahore og Karachi.
Mohammed Ali forsætisráð-
herra var meðal farþega, en var
ekki meðal 30 manna er hlutu
meiðsl af völdum árekstursins.
Báðar eimreiðar lestanna og-
fremstu vagnar þeirra löskuð.
ust mikið.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
beittu sér fyrir kjósendafundi
í gærkveldi, og var hvert sæti
Sjálfstæðishússins skipað, en
fjöldi manns varð fra að hverfa.
Veður var óhagstætt til
fundahalda, en engu að síður
var fundurinn geysifjölmennur
eins og fyrr segir, og bar þess
gleggstan vott, að Sjálfstæðis-
menn ganga vígreifir til kosn-
| inganna og ætla að hrinda á
eftirminnilegan hátt tilraunum
andstöðuflokkanna til þess að
fella núverandi meirihluta bæj
arstjórnar. Máli ræðumamia
var t el tekið, en þeir voru:
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri, frú Auður Auðuns, Sig-.
J Sigurðsson vfirlæknir, Jóhami
Hafstein alþm., Geir Hallgríms
nii i gær.
son lögfr., Einar Thoroddsen
skipstjóri, Bjarni Benediktsson.
ráðherra og Steinn K. Stein-
dórsson skrifstofum.
Ræðumenn leiddu rök aö>
því, hver yrði útkoman fyrir
liöfuðstaðinn ef hin sundur-
leita hjörð, sem nú sækir afr
Sjálfstæðisflokknum, myndi
sigra. Sigur Sjálfstæðisflokks
ins er því sigur Reyk.javíkur..
Þennan fund má skoða sem
góðan fyrirboða þess sem koma
skal í bæjarstjórnarkosningun-
um þann 31. janúar. Sjáifstæð-
isflokkuriim mun koma sterkari
út úr þeim en nokkr i sinnii
fyrr, og Reykvíkingar raun-i
sjálfir tryggja flokknum meiri-
hlutavaldið í höfuðstaðnum, til
hagsældar fyrir alla íbúa hans*