Vísir - 21.01.1954, Page 2
VÍSIR
Fimmtudaginn 21. janúar 1954
twwwvwvwsvwwwww
Hilnailsblað
aimennings.
Fimmtudagur,
21. janúar —• 21. dagur árs-
ins.
Flóð
verður næst í Reykjavík kl.
19.11.
K. F. U. M.
Biblulestrarefni: Jobs. 6.
22—29.
Næturlsefcnir
er í Slysavarðstofunni. Sími
5030.
Næturvörður
• er í Laugavegs Apóteki. Sími
1618.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
er.frá kl. 15.40—9.35.
Útvarpið í kvöld:
20.30 Lestur fornrita: Njáls
saga; X (Einar Ól. Sveinsson
prófessor). 21.00 Dagsk'rá frá
Akureyri: 1) Einsöngur: Eirík-
ur Stefánsson syngur. 2) Upp-
lestur: Guðmundur Frímann
skáld les frumort ljóð og þýdd.
3) Einsöngur: Kristinn Þor-
valdsson syngur. 21.30 Vett-
vangur kvenna. — Um foreldra
félög og skólahald: a) Stutt
forspjall (frú Ragnheiður Möll-
er formaður Foreldrafélags
Laugarnesskólans og Stefán Ól.
Jónsson formaður Kennarafé-
lags sama skóla ræðast við). b)
Þáttur frá foreldrafundi í Laug-
arnesskólanum (Jón Sigurðs-
son skólastjóri o. fl.). — 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.10
Sinfónískir tónleikar (plötur)
til kl. 23:00.
Sjálfstæðisfólk er vinsamleg-
ast beðið að gefa kosninga-
skrifstofunni í Vonarstræti 4
(II. hæð), sími 5896, upplýs-
ingar um þá kjósendur flokks-
ins, sem verða ekki í bænum á
kjördag.
Kosningaskrifstofa Sjálf-
stæðisflokksins er í Vonarstræti
4 (n. hæð), sími 5896.
HwMyáta Hr. 2U0
Lárétt: 2 Andvarpaði, 6
fangamark, 8 leit, 9 straum-
mót, 11 ójafna, 12 þrír eins, 13
fomt skip, 14 í K.F.U.M., 15
vörumerki, 16 sagnafróður, 17
er fífldjarfur.
Lóðrétt: 1 Baðtæki, 3 reið, 4
fornafn, 5 skótegund, 7 óhituð,
10 síðastur, 11 tímabils, 13
þröngin, 15 hress, 16 forfeður.
Lausn á krossgátu nr. 2109.
Lárétt: 2 Kefli, 6 rá, 8 la, 9
ábót, 11 t. d., 12 næm, 13 Nói,
14gr, 15 dselu, 16 búr, 17 ylj-
aði.
Lóðrétt: 1 Drangey, 3 elt, 4
fa, 5 Indíur, 7 Ábær, 10 óm, 11
lól, 13 nærð, 15 dúa, 16 BJ.
AW^WWWWtfWWWVW'WWVVVI.'WWVWWWWVVWW
Jwvwv
ruwww
ruwuw
BÆJAR-
AWVWVW'u*»v
vwwww.-.
ú?y^ivvvvvvvw
'Pettir
vwvwv
wwwv
UVWWf.
VV^-VM-JWAW-WJ'VWAr^UVVVW'^VWA-A’VV.V.VJV
Lyfjabúð við Melhaga.
Bæjarráð hefur samþykkt að
veita Birgi Einarssyni, lyfsala,
fyrirheit um lóð nr. 20—22 við
Melhaga til_að reisa þar lyfja-
búð og lækningastofur, með
byggingarfresti til 1. ágúst n. k.
Utankjörstaðakosning
fer fram í Arnarhváli (geng-
ið inn frá Lindargötu) daglega
frá kl. 10—12, 2—6 og 8—10,
nema sunnudaga aðeins frá kl.
2—6.
Byggingaréttindi.
Eftirtaldir menn hafa öðlazt
réttindi til þess að standa fyrir
byggingum i Reykjavík sem
húsasmiðir: Finnur Hermanns-
son, Laugateig 36, Jón Guðni
Árnason, Rauðarárstíg 3, Jón
Þorleifsson, Mávahlíð 37, og
Sigurður Vigfússon, Suðurgötu
18. — Þá hefur og Sigurjón
Guðmundsson öðlazt réttindi til
þess að standa fyrir byggingum
sem múrsmiður.
Listi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík er D-Iistinn.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Reykjavík kl. 12 á hádegi í.gær
til Keflavíkur, Vestmannaeyja,
Newcastle, Hull>, Grimsby, Lon-
don, Antwerpen og Rotterdam.
Dettifoss kom til Reykjavíkur
19. þ. m. frá Rotterdam. Goða-
foss kom til Antwerpen í gær,
fer þaðan til Rotterdam, Hull
og Reykjavíkur. Gullfoss kom
til Kaupmannahafnar í gær-
morgun frá Leith. Lagarfoss
kom til New York 19. þ. m., fer
þaðan ca. 25. þ. m. til Reykja-
víkur. Reykjafoss átti að fara
í gærkvöldi frá Liverpool til
Dublin, Rotterdam og Ham-
borgar. Selfoss fór frá Reykja-
vík 19. þ. m. vestur og norður
um land til útlanda. Tröllafoss
fer væntanlega frá Norfolk 22.
þ. m. til New York. Tungufoss
kom til Reykjavíkur í gær frá
Hull. Straumey átti að fara frá
Hull í gærkvöld til Reykjavik-
ur.
Skip S.Í.S.: Hvassafell kem-
ur til Rvk. í kvöld frá Álaborg.
Arnarfell er í Rio de Janeiro.
Jökulfell er í Vismar. Dísarfell
fór væntanlega frá Reyðarfirði
í gærkvöldi til Amsterdam.
Bláfell fór frá Hangö í gær til
Gdynia.
Hjalti Lýðsson,
forstjóri Stjörnubíós, hefir
beðið Vísi, að gefnu tilefni, að
taka það fram, að fáum dögum
fyrir brunann í Stjömubíó hafi
löggiltur rafmagnsfræðingur
framkvæmt mælingu á rafkerfi
hússins og ekkex*t fundið at-
hugavert við það. Einnig má
taka það fram, að loftræsling-.
arkerfi. hússins getur ekki haft
þau áhrif, að fólk yrði ekki vart
við eld, sem upp kæmi í raf-
kerfi þess — heldur hið gagn-
stæða. Ennfremur skal það tek-
ið fi-am að sætafjöldinn í hús-
inu er 493.
Spegillinn.
I auglýsingu um verð á
tímaritinu Spegillinn, sem birt-
ist í Vísi í gær, misritaðist
Lausasöluverðið. Lausasölu-
vei-ðið átti að vera 87 kr. yfir
árið og áskrift 60 kr., en í aug-
lýsingunni stóð að lausasölu-
verðið væri 78 kr.
Listi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík er D-iistian.
Handíða- og myndlistaskólinn
efnir nú til námskeiða í aug-
lýsingaskrift og mun kennsla
hefjast annað kvöld. Kennari á
námskeiðinu er Halldór Péturs-
son teiknari. Námskeið þetta er
fyrst og fremst sniðið eftir
þörfum verzlunarfólks. Innrit-
un fer fram í skrifstofu skól-
ans, Grundarstíg 2A kl. 11—
12 árdegis. — Á undangengnum
árum hefir Handíðaskólinn
fimm sinnum efnt til námskeiða
í auglýsingaskrift og teiknun.
Námskeið þessi hafa jafnan
verið mjög vel sótt, einkum af
verzlunarmönnum.
Utankjörstaðakosning
fer fram £ Arnarhváli (geng-
ið inn frá Lindargötu) daglega
frá kl. 10—12, 2—6 og 8—10,
nema sunnudaga aðeins frá kl.
2—6.
Togarar.
Úranus var væntanlegur af
ísfiskveiðum um hádegi í dag.
— Akureyin fer í slipp til
hreinsunar. — Bjarni Olafsson
var hér í morgun til ístöku.
Kosningaskrifstofa Sjálf-
stæðisflokksins er í Vonarstræti
4 (II. hæð), sími 5896.
Veðrið.
Hiti í morgun á öllum veður-
athuganastöðvum, nema á
Gríssstöðum, þar var 1 st. frost.:
Veður kl. 8 í morgun: Reykja-
vík ASA 4, 4. Stykkishólmur
ASA 4, 4. Galtarviti ASA 4, 4.
Blönduós SA 5, 6. Akureyri
A 3, 3. Grímsstaðir SA 5, -4-1.
Raufarhöfn SA 6, 3. Dalatangi
(vantar). Horn í Hornafirði
SA 5, 4. Stórhöfði í Vestm.eyj-
um SA 8, 6. Þingvellir A 2, 3.
Keflavíkurílugvöllur SA 4, 4.
Veðurhorfur. Faxaflói: Austan
og suðaustan kaldi. Dálítil rign-
ing.
( ÐAGLEGA NÝTT!
vÝnarpylsui’
íiledisterpylsur
Kjöífars
Fiskí'ars
Kjöíbúðin Borg
Laugaveg 78, slmi 1636.
Kjötfars, pylsur,
bjúgu.
Verzlosn
Axels Sigurgeirssesar
Barmahlíð 8, sími 7709.
[ Háteigsvegi 20, símí 6817.
Dívanteppi,
dívandiíkur,
áklæðí
margir litir.
VERZL.
Þúsundlr vtta að gœlan fylgtr,
hringvnum ivá
SIGURÞÖR, Hafaarstræti 4,
Margar gerðir fyrírHggjandi.
k. f. m. m.
A. D. — Fundur í kvöld
kl. 8.30. Síra Friðrik Frið-
riksson tekur inn nýja með-
limi. — Allir karlmenn vel-
komnir.
Við tökum
veizlur
og allskonar skemmtisam-
komur, ennfremur sjáum við
uní veizlur í heimahúsum.
Upplýsingar í síma 82240 fiá
kl. 11—2 og á kvöldin.
VEITULL, Aðalstræti 12.
amP€P
Raflagnir — Viðgerðir
Rafteikningar
Þingholtsstræti 21.
Sími 81 556.
Tómir
Trékassar
til sölu.
VerzSunin Pfaff
Skólavörðustíg 3.
Sokkabanda-
beiti
nylon.
silddaaask
gardínuefni, kr. 28,50.
Vers&lunin Fmm
Klapparstíg 37. Sími 2937.
MUNIÐ SÍMA 81148
Skjólabúar.
Það er drjúgur spölur inn
í Miðbæ, en til að
koma smóauglýsingu
í Vísi, þarf ekki að
fara lengra en í
JVeshúð*
IVesvegi 39.
Spartð fé með jjrí að
setja sœáattgfýsingn í
Vísi.
verður opnað J dag, fimmtudaginn 21. þ.m. kl. 2 e.h.
BÓKÁVÖRÐUR
Austin 10 til sölu
Vel með farin bifreið með nýrri vél (stærri gerðin),
útvarpi og öll í bezta lagi er til sölu.
Upplýsingar:
Béiassn iðjfttn h.í.
Skúlatúni 4, sími 6614.