Vísir - 21.01.1954, Blaðsíða 8
Mi itn gerast kaupendur VtSIS eftír
19. kvers mánaðar fá blaðið okeypis til
nsán aðamóta. — Simi 1«M.
W18X&
breyttasta. — Hringið i síma
áskrifendur.
lofiO eg gertst
Fimrníudaginn 21. janúar 1954
Hrinprifln efnir til merkjasölu
á kosningadaginn.
Safnar fé fii kaupa á rúm-
um öðrum búnaði
b barnaspítalann.
Kvenfélagið Hringurinn hef-
ur ákveðið að efna til merkja-
sölu á kosningadaginn, 31. þessa
mánaðar, og verður ágóðanum
varið tii Iþess að kaupa rúm og
aðra innanstokksmuni í barna-
BBC mmnist 100. ára
afmæfis Sherloks
Holmes.
Brezka útvarpið hélt fyrir
skemmstu upp á 100 ára af-
mæli Sherlocks Holmes,
spæjarans alkunna. Var flutt
ur ieikþáttur, er tekinn var
á segulband nærri þorpinu
Reichenbach í Sviss, en þar
börðust þeir Holmes og erki-
f jandmaður hans, bófinn Mo-
riarty, endur fyrir löngu. Að-
dáendur Holmes halda því
fram, að hann hafi fæðzt ár-
iðið 1854, því að í sögu, er
höfundurinn ritaði árið 1914
kvað hann söguhetjuna 60
ára að aldri.
Illa við Gíbraltarheim-
sókn Elísabetar.
Spænska útvarpið birti í
morgun opinbera tilkynningu
um fyrirhugaða komu Elisa-
betar drottningar til Gibraltar.
Segir í henni, að sendiherra
Spánar í London hafi rætt við
Eden, og sagt honum að
spænska þjóðin sé óánægð yf-
ir þessari heimsókn, og vildi
hann leiða athygli að því vegna
góðrar sambúðar Breta og Spán
verja, sem spænska stjórn-
in teldi sér skylt að varðveita.
í tilkynningunni er endur-
tekið, að Spánverjar geri áfram
sem hingað til tilkall til Gi-
braltar.
Talsmaður brezka uanríkis-
ráðuneytisins hefur sagt, að
ekki verði tekin til greina er-
lend mótmæli út af komu
drottningar til hennar eigin
j spítalann, sem verður í við-
J byggingunni við Landsspítal-
ann. í vikunni áður á þetta
merka mannúðarfélag 50 ára
afmæli.
Eins og kunnugt er leggur
Hringurinn sjóði sína af mörk-
um til þess að býggð verði
barnadeild í Landsspítalanum,
og verður hún á einni hæð við-
byggingarinnar, sem verið er
að reisa. í þessari deild verða
56 rúm fyrir börn, en þar sem
félagið. þureys sjóði sína við
bygginguna, skortir algerlega
fé til þess að kaupa rúm og
annan útbúnað í barnaspítal-
ann, en konurnar í Hringnum
vilja ekki skiljast svo við þetta
verk, að ekki verði fullkomlega
séð fyrir þörfum barnanna er
spítalans eiga að njóta. Ætla
þær því að kaupa rúm, leik-
föng og aðra innanstokksmuni,
til spítalans, en áætlað er að
hvert rúm með öllum útbún-
aði kosti að minnsta kosti 5000
krónur.
í þessu skyni mun Hringui'-
inn léita til Reykvíkinga á
kosningadaginn, og verða
merkin seld á götunum og við
kjörstaðina. Er þess vænst að
j enginn gangi að kjörborðinu
fyrr en hann hefir keypt merki
Hringsins.
Verður fé það sem inn kemur
í söfnun þessari lagt í sér-
stakan sjóð, sem þegar hefur
verið stofnaður, með áheiti er
borgari einn hét á Hringinn, ef
ungur sonur hans, sem sjúkur
var, næði heilsu.
Áætlað er að barnaspítalinn
verði fullbyggður að tveim ár-
um liðnum, og þykir því tíma-
bært að byrja nú þegar fjár-
söf nun fyrir innanstokksmunum
í spítalann, því að alllangan
tíma mun taka að fá bæði rúm-
in og annað, sem til spítalans
þárf, en það fer að sjálfsögðu
eftir því hve mikið fé verður
fyrir hendi, hvað vel verður
hægt að vanda til þess, sem
keypt verður af -þessu tagi.
Bæjsrbékasafnið opnað á ny
glæsiloguin húsakynnuni.
■ Bæjarbókasafnið hefur nú
verið opiiað aftur í stórum og
veglegum húsakynnum — í
Esjubergi við Þingholtsstræti
•— en það hús keypti bærinn
fyrxr safnið og hafa nú vcrið
gerðar á því nauðsynlegar
hreytingar og endurbætur.
Við opnun safnsins í gærdag
xakti borgarstjóri nokkuð sögu
bæjarbókasafnsins og gat þess
m. a., að þegar það hafði verið
stofnað 1923 hefðí framlag bæj-
arins til þess verið 15 þúsund
krónur árlega, en er nú 750
þúsund krónur, og hefur þannig
fimmtugfaldast.
í júní 1952 varð safnið að
flytja úr húsnæði sínu við Ing-
gólfsstræti, og keypti bærinn
þá Esjuberg. Er innrétting öll
mjög smekkleg og fyrirkoroulag
Dýr mundi
Hafliði allur.
Khöfn. — Nýlega lentu tveir
danskir verkamenn í handalög-
rnáli og beit annar þeirrá ann-
að eyrað af andstæðingi sínum.
Þegar málið kom fyrr rétt,
sagði sá, er bitinn hafði verið,
að hann hefði fundið stykkið úr
eyranu á götunni og hirt það,
ef hægt mundi vera að græða
það við. ,,En einhver hafði stig-
ið ofan á það,“ sagði hann, „svo
að það var ónothæft.“
Manninum voru dæmdar 500
d. kr. í skaðabætur.
ÓIcjjE undfr niðri
Marokkó.
hið hentugasta. A fyrstu hæð
er útlánadeild safnsins, en á
annarri hæð rúmgóð og björt
lesstofa, með borðum og stólum
fyrir 21 manns. Þar er og skrif-
stofa forstöðumanns safnsins,
en á neðri hæðinni vinnuher-
bergi bókavarða. Bókalyfta er
í húsinu, þannig að hægt er að
senda bækur upp á lesstofu úr
bókageymslunni, .sem er í kjall-
aranum. Þá er innanhússsími
og kallkerfi í húsinu, og er það
starfsfólkinu til mikils hægðar-
auka.
Alls er starfsfólk safnsins 9
manns, og er Snorri Hjartarson
skáld forstöðumaður þess.
j Safnið verður opið frá kl. 10—
110 að undanteknum tímanum
milli kl. 12 og 1, og útlán eru
| eftir kl. 2 á daginn.
I
París (AP). — Talsverð upp-
reistarhætta er í Marokkó og er
bent á, að soldáninn, sem Frakk
ar settu af og sendu í útlegð tii
Korsíku, er enn viðurkenndur
soldán í hinum spænska hluta
Marokkó.
Höfðingjar þar koma sam-
an til fundar á morgun í Tetnan
og er talið vafalaust að soldáns-
málið verði rætt.
Bidault utanríkisráðherra
Frakka hefur tvívegis kvatt
sendiherra Spánar á sinn func1
til þess að ræða þessi mál.
Ólga er stöðugt mikii i
franska Marokkó og óttast
Frakkar óeirðir, er fregnir
fara að berast af hinum fyrir-
hugaða fundi. Sendu þeir her-
skip til Marokko í gær í
skyndi, til stuðnings setuhði
Frakka, ef þörf krefur.
íslenzk kristniboðsstöð erlendis
að taka til starfa.
Biún verður
i
Ólafur Ólafsson kristniboði
sendi nýlega blaðamönnum lit-
kvikmyndir frá Eþiopiu (Abess
iniu), einkanlega Konso, þar
sem íslendingar eru í þann veg-
inn að koma upp trúboðsstöð.
Fara suður þangað um mán-
aðamótin íslenzku trúboðshjón-
in, Felix Ólafsson og kona hans,
er Vísir hefur oftar en einu
sinni sagt frá, en þau hafa
dvalist í Addis Abeba að und-
anförnu. Þarna suður í Konso
verðUr fyrsta íslenzka trúboðs-
stöðin og er búið að ganga frá
lóðarsamningi, en með honum
eru tryggðir 4 hektarar lands
undir stöðina. Ekki fara þangað
aðrir Islendingar fyrst í stað
en þau hjón, en þau munu
njóta stuðnings og hjálpar
starfsfólksins í norskum og
sænskum trúboðsstöðvum. Síð-
ar fá þau væntanlega aðstoðar-
mann héðan. Og vonir standa
til, að í þessari trúboðsstöð
verði einnig, er fram líða;stund-
ir, læknir og spítali.
Trúboðstarfið er ekki í því
einu falið, að boða kenningar
Krists með orðum, heldur einn-
ig með kennslu og líknarstarfi,
og það er ekki sízt þessir þættir
starfsins í trúboðsstöðvunum,
sem vekja athygli, er menn
horfa á kvikmyndina. Samband
kristniboðsfélaganna hefur
fengið hana hingað lánaða frá
Noregi skamman tíma. Hún
gefur einnig ágæta hugmynd
um landið, m. a. hásléttuna, þar
_ „ . . . , , . sem íslenzka trúboðsstöðin
• Samkvæmt brezkum heim- . , . ,,
... , „ , , „, verður, og ymsa hma oliku
ar byggt litla kjarnorku- Þjoðfl°kka' Sem landlð bygg]a’
stöð í tilraunaskyni, til
framleiðslu á raforku.
6 Dulles utanríkisráðherra
Bandaríkjanna er lagð'ur af
stað á Berlínarfundinn. —
Hann er væntanlegur til
London í dag.
Eymd Alþýðuflokksins. i
Fiokksmenn missa trúna á forustuna.
Að líkindum verða bæjarstjórnarkosmngarnar síðustu
r kosningar, sem Alþýðuflokkurinn tekur þátt í undir stjórn
i* núverandi flokksforustu. Fái flokkurinn ekki nýja Ieiðsögu,
!í er allt útlit fyrir, að hann líði undir lok, áður en Iangt um
í líður. Hannibal hefur ekki orðíð flokknum nein heillaþúfa.
Flokknum var lífsnauðsyn að fá sterka og viturlega forustu,
þegar Hannibal og Gylfi lögðu hann undir sig. Hanxi fékk
hvorugt. Síðan þeir náðu í töglin og hagldirnar hefur flokkur-
inn verið eins og vindhani í bæjarbursí. Hann hefur engin
stefnumál og þorir ekki að taka afstöðu í nokkru máli nema
hann viti fyrirfram að kommúnistar taki sömu afstöðu.
Manndómsleysið og dómgreindarskortminn er í svo ríkum
mæli, að hann þorir ekki annað en vera á svipaðri línu og
kommúnistar af hræðslu við að vcrkamenn kunni að aðhyliast
stefnu kommúnista í einu eða öðru máli. Vindbelgingur
Hannibals hefur ekki getað breitt yfir 'þenna dæmalausaíj
aumingjaskap, og þess vegna eru flokksmennirnir nú alveg
að missa trúna á forustuna.
Uppdráttarsýkin, sem þjáð hefur flokkinn undanfarin
ár, virðist nú vera að Ieggja hann að velli. Allt er að renna
út i sandinn fyrir honum, enda er leiðsaga Hannibals ekki á
marga fiska. Reykjavík þarf ekki á hans forustu að halda
né þeirra manna sem honum íúta. Þar sem Alþýðuflokkurinn
ræður, þar ríkir upplausn og ráðleysi. SHkum mönnum fela
menn ekki farsæld sína.
5
rt%WA%WAW.W.VAV.V.VW.VWWVftAWAWVW.-
g líonsóliéraði
— Þess er vert að geta, að trú-
boðsstöðin verður eingöngu
reist fyrir íslenzkt fé, sem gef-
ið er af frjálsum vilja.
Ólafur Ólafsson skýrði mynd-
ina mjög skemmtilega, en hún
er annars með norskum texla,
en Ólafur bætti þar mörgu við.
Hann gerði og skemmtilegan
samanburð á skilyrðunum í
Kína, þar sem hann starfaði, og
í Abessiniu, en hann kvaðst
næstum öfirnda félaga sína þar
vegna hins mikla rýmis, sem
þar er — í Kína var allsstaðar
þröngt vegna þéttbýlis og mann
mergðar, — og þar varð að læra
málið með miklu meiri fyrir-
höfn en suður í Konso, þar sem
trúboðarnir læra málið af vör-
um fólksins sjálfs.
Fyrsta sýningin á kvikmynd-
inni verður í sal KFUM í kvöld
hér í bænum, og verður að-
gangur ókeypis, en síðan verð-
ur hún sýnd víðar, m. a. í skól-
um úti á landi. Hún hefur þeg-
ar verið sýnd í Vestmannaeyj-
um við mikla aðsókn.
Reif fotin og hirti
peninga félaga
síns.
Urn hádegisleytiS í fyrradag
var beðið um aðstoð lögreglu til
þess að skakka Ieik tveggja ölv-
aðra manna, sem lent höfðu í
handalögmáli.
En þegar lögreglan kom á
staðinn var annar mannanna.
horfinn eftir að hafa rifið föt
andstæðings síns og tekið með
sér þá peninga sem haxm hafði
meðferðis. Mál þetta hefur ver-
ið kært til sakadómara.
Innbrotstilraun.
í fyrrinótt vaknaði maður í
húsi einu á Bergstaðastræti við
rúðubrot. Tók hann þá að
skyggnast eftir hverju þetta
ssetti og sá í sömu svipan bif-
reið aka burt frá verzluninní.
Blöndu. Við nánari athugun
kom í ljós að rúða hafði verið
brotin í hurð vörugeymslu
verzlunarinnar, en ekki var þó
ljóst hvort nokkru hafi verið
stolið.
Ölvun við akstur.
í fyrradag eða fyrrinótt voru
tveir ölvaðir bílstjórar hand-
teknir, sem voru að akstri.
8 bilar af 403
hafa gefizt upp.
289 bifreiðar, sein taka
þátt í Monte Carlo kapp -
akstrinxun, fóru um Amster-
dam í gærkvöldi á leið tíl
Brússel. Þær lögðu upp frá
Glasgow, Stokkhólxni, Oslo
og fleiri borgum. Aðrar eru
á leiðinni frá suðlægu • i
borgum eins og Aþenu og
Madrid. Átta af 403 hafa
heltz úr lestinni vegna ó-
happa eða slysa. Banaslyí
hafa ekki orðið.