Vísir - 22.01.1954, Side 1

Vísir - 22.01.1954, Side 1
44. árg. Föstudaginn 22. janúar 1954 16. tbL A kjörtímabilinu hafa veriö reistar rúmlega 1500 íbúöir. Fyrir nokkru kom það fyrir frú Walkman í Michigan City í Bandaríkjunum. að vinstra framhjólið brotnaði undan bifrcið hennar á ferð. Ekki fór það þó sína leið, heldur fesíist undir bifreiðinni, eins og myndin sýnir. Dæntdur í varðhald og sekt ófeyfi- Eegs áíðngissöb. BíiVeið.'irstjÍórai* dæindir á 3§ð0- 5000 kr. sckf fyrir svipaðai' sakii'. Helðu orðið fSeiri, ef Sjálfsfæðlssii©siBi befðu eíeiir ráðið innfiutningi og fjárfestingu. Þjóðyiljimi í gær kírtir á öfíustu ?íðu innrammaða. klansu f>ar sem ráoist er meÖ Iiinu venjulega orðbragöi þess blaos á borgarstjórann í Reykjavík fyrir grein,. sem hann ritaði I Mórgunblaðið 20. jb.m. og sagði m.a. frá |jví, að á vori komanda vrðu lóðir tilbúnar fyrir 1500 íbáðir. Þegar litið er á allar aðstæður, svo sem gjaldeyrisörðugleika, lánsfjárskort, fjárfestingartakmarkanir og hið öra aðstreymi fólks til bæjarins, getur engum blandast hugur um bað, að bæjarstjórnarmeirihlutimi hefur lyft Grettisíaki í húsnæðis- málunum á síðasta kjörtímabili, enda hafa andstöðuflokkarnir ósparí sungið sjálfum sér lof fyrir bessar frainkvæmdir, í ræðu og riti, þótt nú þyki betur henta að láta sem ekkert hafi vcrið gert. Þeir hafa t.d. allir stært sig ag frumkvæðinu um bygg- ingu smáíbúðanna, þótt vitað sé að Sjálfstæðisflokkurinn á einn allan heiðurinn af því stórmerka átaki. Kosningti í Kópa- vogi aflýst. Hreppsnefndarkosningunni í Kópavogshreppi, sem auglýst hafði verið að fram skyldi fara 31. janúar, hefur verið aflýst. Kosningaundirbúningur þar hefur verið lýstur ólöglegur og yfirkjörstjórn fyrirskipað að aflýsa kosningunni og auglýsa nýjar lcosningar með iöginæt- um fyrirvara. Samkvæmt úr- skurði sýslumanns bér að auð- kenna lista flokka með þeim bókstöfum, sem beir eiga réit til, lögum samltvæmt, og verður því listi Sjálfstæðismanna anð- kenndur D, en bað voru Sjálf- stæðismenn, sem höfðu kært yíir því, að Finnbogi Rútur oddviti hafði knúið það fram, að listi hans og félaga hans var auðkenHdur með stafnum D. Geta þeir því ekki notað bók- stafinn D til að krækja sér í at- fevæði. ..— 1 ... —— Maður fótbrotnar við árekstur. Urn hádegisleytið í gær fót- brotnaði amerískur maður í bif- reiðaárcksri sem varð á mótum Miklubrautar og Háaleitisveg- ar. Bifreiðarnar sem rákust á voru R-1650 og R-3604, önnur jeppi, hin sendiferðabifreið. Á- reksturinn var mjög harður og skemmdust báðir bílarnir mik- ið. Farþegi í R-1650 var ame- rískur maður, sem er starfs- maður fyrirtækis eins hér í bænum og fótbrotnaði hann. Hann var fluttur í Landsspítal- ann. •J,.a ...—<--— Erni óvíst uiti Bárð Danídsson. Yfirkjörstjórn fjallaði í gær uni bréf Bárðar Daníelssonar verkfræðings, har sem liann afturkallar framboð sitt, eins og áður hefur verið að vikið. Viðstaddir fundinn voru um- boðsmenn flokkanna, og mót- mælti Jón P. Emils lögfræðing- ur, fullrúi Alþýðuflokksins því, ' að Bárði yrði heimilað þetta. Yfirkjörstjórn frestaði að taka ákvörðun í rnálinu, og sam- kvæmt viðtali við Torfa Hjart- arson, formann kjörstjórnar, var ekki búið að taka ákvörðun um þetta í morgun. Er því enn óvíst, hvort Bárð- ur Daníelsson verður á lista þjóðvarnarmanna við kosning- arnar eða ekki. Kr. <1655 til ioSks- íbis á Sleiði. Eins og kunnugt er gengst skrifstofa Rauða kross íslands fyrir söfnun til fólksins á Ileiði. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk í gærkveldi, nemur hún nú kr. 9655, auk nokkurs fatnaðar. Söfnuninni verður haldið áfram. Nýlega var í Sakadómi Reykjavíkur kveðinn upp dóm- ur yfir Elíasi Finnssyni Hólm, Þverholti 18 F fyrir ólej’filega sölu áfengis. Þann 27. nóvember sl. gerði lögreglan húsleit hjá Elíasi Hólm, þar eð grunur lék á að hann seldi áfengi. Við leitina fundust 30 flöskur af vínanda og af þeim var helmingurinn með merki Áfengisverzlunar ríkisins, en hinn helmingurinn var annars staðar aðkominn og m. a. var þarna nokkuð af þýzk um víntegundum. Þann 14. janúar sl. var svo í Sakadómi Reykjavíkur kveð- inn upp dómur í máli Elíasav Hólm og bygg'ist dómurinn meðal annars á því að ákærði hafi gert sér áfengissölu að at- vinnu að undanförnu. Var ákærði dæmdur í 60 daga varðhald og 8 þúsund kvóna sekt til Menningarsjóðs, en til vara 80 daga varðhalds verði sektin ekki greidd innan 4 vikna frá birtingu dómsins. — Enn fremur var hann dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar. Skipastóll Svía 2,6 miilj. lesta. St.hólmi. — SkipastóII Svía jókst um nærri 180,000 lestir á sl. ári og var 2.651.000 Iestir í árslok. Skipunum fækkaði þó um 23, og eru samtals 1859. Ný skip voru 64, en í stað þeirra voru 87 seld eða rifin eða þau fórust. Mótorskipum fjölgar jafnt og þétt og eiga Svíar mótorskip, sem eru tæpl. 2 millj. lesta. Olíuskipaflotinn er 29% af öll- J um skipastólnum. (SIP). Áfengið var gej't upptækt. Um svipað leyti og lögregl- an gerði húsleit hjá Elíasi Hólm leitaði hún einnig í ýmsum bif- reiðum leigubílstjóra og fann áfengi í nokkrum þeirra Jafn- framt kærði lögreglan nokkra bílstjóra fyrir ólöglega sölu á- fengis. , Mál þessara bílstjóra hafa undanfarið verið í rannsókn og er henni lokið í sumum þeirra, en önnur bíða frekari rann- sóknar eða úrskurðar. í þeim málum, sem þegar er lokið og dómar verið kveðnir upp i, hafa bílstjórarnir verið dæmd- ir í 3000—5000 króna sekt hver, eftir því hvort um ítrekað brot er áð ræða eða ekki og sömu- leiðis voru þeir bílstjórar svift- ir ökuréttindum um stundar- sakir, sem gerzt hafa brotlegir í þessum efnum áður. Stutt og laggott. © Elisabeth drottning og mað- tir hennar hafa lokið 4 daga hcimsókn í Christchurch, Nýja Sjálandi. Þau eru á leið ti! suðurstrandarinnar. © Brownell dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna ræddi í gær tillögu Eisenhowers um að svifta menn borgara- rétti fyrir þjóðhættulega starfsemi. Þeir yrðu ekki gerðir landrækir en yrðu í rauninni föðurlandslausir. © John Watkins, sendiherra Kanada fyrir Noreg og ís- land, hefur verið skipaður sendiherra í Moskvu. Kan- ada hefur ekld haft þar sendiherra síðan njósnamál- in voru á döfinni 1948 (er Gouzenko ljóstaði upp um njósnahring kommúnista). Þjóðviljinn kvartar um það, að allar tillögur kommúnista mn auknar íbúðabyggingar hafi verið felldar. En um þær gegn- ir auðvitað sama máli og allar tillögur þeirra, bæði á þingi og í bæjarstjórn, að þær eru ekki framkvæmanlegar, epda ekki bomar fram í þeim tilgangi að bæta kjör fólksins, heldur til þess að skapa óánægju og glundroða í þjóðfélaginu. Þeir vilja hvorki bætt húsnæðis- skilyrði né aðrar framfarir í félagsmálum, því að þeir vita sem er, að öll breyting á hög- um fólks, sem veitir því aukna aðstöðu til að lifa heilbrigðu menningarlífi, fjarlægir það flokki þeirra og gerir því auð- veldara að átta sig á blekking- um hinna rússnesku erindreka, sem eiga þá hugsjón eina, að reyra íslenzka alþýðu í fjötra hinnar austrænu einræðisklíku. Þeirra barátta beinist því öll í þá átt, að halda lífskjörum al- mennings niðri, spilla fyrir framkvæmdum, sem að auk- inni menningu miða, en þykjast berjast fyrir bættum lífskjör- um alþýðunnar, flytja tillögur og frumvörp, sem á yfirborðinu eru þannig úr garði gerð, að fólkið láti blekkjast, en í eðli sínu svo, að óhugsanlegt er að framkvæma þau. Haldlítil baráttuaðferð. Það er því eðlilegt að þeim bregði illa við, þegar þeir sjá það, að sjálfstæðismenn hafa undirbúið, að 1500 fjölskyldur geti átt þess kost á næsta vori að fá lóðir, þar sem þær geti byggt yfir sig mannsæmandi íbúðir. Það er mjög líklegt, að margt af því fólki gefi ekki kommúnistum atkvæði sitt framvegis, þótt svo kynni að hafa verið um eitthvað af því hingab til. Það ætti að vera haldlítil baráttuaðferð fyrir kommún- ista, að hamra á því, að sjálf- stæðismenn vilji ekki gera allt sem í þeirra vaidi stendur íii þess að bæta ur húsnæðismál- um bæjarbúa. Sjálfstæðisflokk- urinn veit að allar umbætur á högum fólksins auka fylgi. hans. Því meiri möguleikar sem fólki eru veittir til þess að lifa líkamlegu og andlegu menn- ingarlífi því tneira og traust- ara verður fylgi þess flokks, sem hefur á stefnuskrá sinni, og framkvæmir allsstaðar þar sem hann ræður, hugsjónina um frelsi einstaklingsins og full- komin mannréttindi. Það er staðreynd, liversit illa sem kommúnistum kann að falla það, að á kjörtíma- bili því sem nú er að enda. voru reistar rúmlega 1500- íbúðir í Rcykjavík og hefðu orðið fleiri, ef sjálfstæðis- menn hefðu einir ráðið inn- flutningi og fjárfestingu — og miklu fleiri, ef gjaldeyris- örðugleikar hefðu ekki dreg- ið úr framkvæmdum á 'þessu: sviði eins og mörgum öðr- um. Það er líka staðreynd, að’ margt af því fólki, sem fyrir forgöngu Sjálfstælisflokks- ins hefur fcngið möguleika: og stuðning til þess að koma sér upp mannsæmandi þaki yfir höfuðið, er fólk, scm ‘■■Jhcfur hrökklast burt úr heimkynnum sínum víðs- vegar um landsbyggðina, Framhald á 7, síðu. Cometvél reynd í langflugi. London (AP). — Comet- flugvél lagði af stað í morgun frá flugvelli á Englandi, til þess að reyna að setja inet í flugi til Kharoum í Sudan. Jafnframt er ferðin farin til þess að prófa vélina og tæki hennar í hálofum og við ólik lofslagsskilyrði, áður en hún verður tekin í notkun sem á- ætlunarflugvél. Flugleiðin er rúml. 4900 km. — Flugmetið á : þessari leið var sett í Lincoln- sprengjuflugvél, sem flaug hana á 14 klst. 26 mín.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.