Vísir - 27.01.1954, Blaðsíða 8
S*elr iea x«rast keup-endur VlSIS eftír
19. fevcr* mánaðar fá blaðið ákeypl* UI
$ ~ AiatJrÍ ^mFw WV ■fiT é? # * & ' * '■ -
mánaSamóta. — Sími 186«.
WISI3R
Miðivikudaginn 27. janúar 1954.
VtSIE er éáýrasta biaðið og j»é það fjðl-
breyttasta. — Hringið í síma 1680 «g gerM
iskrifendnr.
Utanríkisráðherrariiir ræða Mvemœr urðu framsókm
tillöpr Molotovs í dag.
Bandaríkjamenn vilja ekki sitja fund
með kínverskum kommúnistum.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Utanríkisráðherrar stórveld-
anna koma saman á þriðja fund
sinn í dag og verður á dagskrá
íillaga Molotovs um heims-
vandamál og fimmveldaráð-
atefnu. Molotov boðaði í gær,
að hann myndi ieggja til að
3lík ráðstefna yrði haldin í maí
eða júní.
Vesturveldin gerðu það til
þess að girði fyrir að umræður
um dagskrártilhögun drægjust
óþarflega á langinn, að fallast
á að tillögur um heimvandamál
og fimmveldaráðstefnu yrði
fyrsta mál ráðstefnunnar, frið-
.arsamningar við Þýzkaland
annað og friðarsamningar við
Austurríki hið þriðja. Tekið
var fram, að ekki bæri að líta
á þetta sem fráhvarf frá yfir-
lýstri stefnu í þessum málum
á nokkurn hátt, og Dulles sagði
í ræðu, sem hann flutti í gær,
að hann vildi taka það skýrt
fram, sem Molotov vel vissi, að
Bandaríkin ætluðu sér ekki að
setjast á rökstóla um heims-
friðinn almennt með hinum
kommúnistisku ofbeldismönn-
úm.
Molotov gerði að umtalsefnii
í gær í ræðu, sem var í vin-
samlegri tón en sú, sem hann
flutti á mánudag, að það væri
misskilningur, að nokkur hætta
stafaði af hinni nýju stjórn
Kína, og breytingin, sem þar
hefði orðið, væri viðburður á
heim mælikvarða.
Kommúnistai' í Kóreu
taka við föngum.
Frá Panmunjom hafa bor-
izt fregnir, að kommúnistar
hafi nú tekið við föngunum,
sem ekki vildu hverfa heim til
Bandaríkjanna, Bretlands og S-
Kóreu, alls 350, þar af 21 Banda
ríkjamanni og 1 Breta, eftir að
hafa áður þverneitað að taka
við þeim. Þá báru þeir því við,
að það væri vegna afstöðu ind-
verska liðsins, að skila af sér
öllum föngunum, en nú tilkynna
þeir allt í einu, að Rauði Kross
hins kommúnistiska Kína og N-
Kóreu taki við þeim —f a
mannúðarástæðum.
Hafnarfjör&ur
ðngi við Sóivang.
Ifirlæknisstaðan við sjúkra-
b.úsið Sólvang í Hafnarfirði var
á fundi bæjarstjórnar í gær-
kveldi veitt Ólafi Ólafssyni
íækni í Hafnarfirði.
Var Ólafi veitt staðan sam-
kvæmt tillögu meirihluta bæj-
arráðs, Emils Jónssonar og Ósk
ars Jónssonar, en fimm Álþýðu-
flokksmenn greiddu síðan at-
■ kvæði með veitingu starfsins.
Sjálfstæðismenn greiddu. at-
kvæði gegn ráðningunni. Aðr-
ir umsækjendur um starfið voru
þeir Hinrik Linnet, héraðslækn
ir í Bolungavík og Jónas Bjarna
son læknir í Hafnarfirði. Bæj-
arráðsmaður Sjálfstæðismanna,
Helgi S. Guðmundsson hafði
lagt til, að Jónasi Bjarnasyni
yrði veitt staðan, þar sem hann
taldi nauðsynlegt, að þar starf-
aði sérfræðingur í fæðingar-
hjálp, en fæðingardeildin er
annar mikilvægasti þátturinn í
starfsemi Sólvangs, og Jónas
er sérfræðingur í fæðingarhjálp!
Tillaga Helga kom ekki til at-
kvæða, og var staðan veitt Ói-
afi, eins og fyrr segir.
Trunan íes fyrit
endurminningsr.
Harry S. Truman, f. Banda-
ríkjaforseti er að semja endur-
minningar sínar, sem koma eiga
út fyrir næsta haust.
Hann hefur þann sið að láta
aðstoðarmenn skrifa upp eftir
sér, en sjálfur situr hann eða
gengur um gólf og les þeim
fyrir. Veldur það ýmsum leið-
.togum demokrata, sem um
starfsaðferðirnar er kunnugt,
allmiklum áhyggjum, að Tru-
man skuli ekki styðjast við rit-
aðar heimildir, því að það hef-
ur komið sér illa stundum í
seinni tíð, að minnið hefur
reynst miður traust. En bókin
verður vafalaust „innlegg" í
kosningabaráttuna á n. k. hausti
og því heppilegra, að þar verði
ekki staðhæft neitt, sem and-
stæðingunum reynist auðvelt að
hrekja.
armemm
Lenti á stein-
garði.
í nótt rann bifreið á stein-
garð við Hafnarfjarðarveginn
við Þóroddsstaði með þeim af-
leiðingum að. garðurinn brotn-
aði og bifreiðin skemmdist
verulega.
Atburður þessi skeði um
þrjúleytið í nótt og misti bií-
reiðarstjórinn stjórn á bifreið-
inni, er hann var þarna á ferð.
Rann hún út af veginum og á
garðinn. Varð að fá kranabif-
reið til þess að draga bílinn
upp á veginn aftur.
Ekið utan í bíl.
í nótt var kært ’yfir því til
lögreglunnar að ekið hafi verið
utan í mannlausan bíl, þar sem
hann stóð á götu hér í bænum.
Varð bíllinn fyrir nokkurum
skemmdum.
Rúðubrjótar teknir.
í gær var brotin stór rúða á
Frakkastíg 16. Lögreglan fékk
handsamað sökudólgana og
fékk þá til að lofa fullum bót-
um fvrir skemmdarverkið.
Sjálfvirka stöðin
gafst upp.
Síðdegis í gær kom fyrir sá
fátíði eða einstæði atburður, að
sjálfvirka símastöðin hér „gafst
upp“ við að afgreiða tiltekið
símanúmer, svo mikið var á-
lagið.
Símanúmer þetta var 82345,
sem er í miðasölu Þjóðleikhúss-
ins. Svo mikil er eftirspurnin
að miðum á Pilt og stúlku og
Ferðin til tunglsins, að ekki
liniiti símhringingum í gær, og
náðu þær hámarki með því, að
númerið „fór út“, eins og það
er nefnt í um 20 mínútur.
Stöðin gat ekki annað þessu
álagi, og mun þetta vera eins-
dæmi eða því sem næst.
vimir MSvíkimffa?
E.t.v. ieysa þeir iisjsnæðis-
vandræðin með hoilenzkum
Eitt af bví sem menn undrast mest í kosningabar-
áttunni síðustu dagana, er ao ekki skuii vera tii í Fram-
sóknarflokknum einhver maður, nógu vaidamikili og
vitiborinn, til þess að stöðva hin fáránlegu skrif Tímans
um veigerSir Framsóknarflokksins við Reykjavík.
Þessum samsetningi er efiaust fyrst og fremst æiiað
að hafa áhrif á kjósendur, sem nýiega eru fluttir i
bæinn, bví hinir bekkja svo vei til bæjarmálanna, að
engin von getur verið um að hægt sé að blekkja bá.
En er nokkur von urn hina heidur, ef betur er að gáð ?
Kjósendur, sem eru nýlega fluttir til Reykjavíkur utan af
landsbyggðinni, einkanlega úr sveitunmn, hljóta að liafa koiniö
þar oft á stjórnmálafundi og hlustað á frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins flytja mál sitt. Þeir hafa líka flestir lesið
Tímann og séð, hvað þar hefur verið sagt um „Reykjavíkur-
valdið“ og forréttindin, sem Reykvíkingar njóta fram yf»r
sveitafólkið.
átiirinn nteð alumfnhim
kemur í
Af?nör af tt/eisns«i' wæEitaísiegiií' tii Haffnar-
fjjarllay frá Swsþ|óð) í dag.
Hafnfirðingum bætast í dag
og á næstunni tveir glæsilegir
farkostir, nýir vélbátar, sem
smíðaðir hafa verið í Svíþjóð
fyrir milligöngu Gísla J. John-
sens stórkaupmanns.
Bátar þessir eru með alum-
iníumstýrishúsum, hinir fyrstu,
sem hingað koma þannig gerð-
ir, en þetta er talin mikil end-
urbót, því að bæði eru húsin
mjög sterk og sérlega létt, svo
að ,,yfirvigt“ á bátunum verð-
ur eðlilega miklu minni fyrir
bragðið.
REYKJAVIK
þarf slerkan ffokk,
er stjórwar vel.
Bátarnir eru báðir 35—40
lestir að stærð, smíðaðir í Raa,
skammt frá Hálsingborg og
Halmstad. Þeir eru að sjálf-
sögðu búnir flestum nýtízku
tækjum, dýptarmæli, vökva-
spilum o. þ. h. Ganghraði þeifra
er 9.6 sjómílúr á klst.
Annar bátanna, sem hlotið
hefur nafnið „Gissur hvíti“, er
væntanlegur til Hafnarfjaröar
í dag. Gísli J. Johnsen befur
átt tal við skipstjórann í ií’ma.
Skipstjórinn, sem heitir Guðni
Jóhannsson, kvaðst þá vera um
40 sjóm. suðaustur af landi,
veður hefði verið heldur slæmt,
en báturinn reynzt prýðilega.
Afivélar bátanna er af June
Munktell-gerð.
Eigendur þeirra eru Óskar
Yaidiniarsson o,- fi., og Sigurð-
ur Lárusson o. fl, -í Hafnarfirði.
Dettur þessu fólki í hug,
að þeir sem þannig hafa
talað og skrifað, séu nú allt
í einu orðnir vinir Reykja-
víkur, sem æskilegt væri að
fela úrslitaaðstöðu í mál-
efnum hennar?
Þótt allt bendi til að for-
ráðamönnum Tímaliðsins hafi
þótt skrif blaðsins undanfarið
harla góð, telja þeir auðsjáan-
lega ekki nóg aðgert, því nú er,
til enn frekari áréttingar, ver-
að að bera út um bæinn áróð-
urslappa frá Framsóknar-
flokknum, sem mun vera al-
gerlega einstætt fyrirbrigði í
sinni röð, þótt mörg hafi furðu-
^leg verið. Eru þetta þrír mis-
munandi stórir bleðlar, sá
stærsti með myndum af öllum
frambjóðendunum, ásamt
kosningaloforðum, hóli um
Þórð Björnsson, bæjarfulltrúa,
ósannindum um Sjálfstæðis-
flokkinn og nokkrum myndum
af mannvirkjum, sem Fram-
sóknarmenn þykjast hafa reist
t. d. háskólanum!!
Margur mundi nú segja
að betta hefði mátt nægja,
en við nánari athiigun kem-
ur í Ijós að næsti Iappi er
enn nauðsynlegri og áhrifa-
ríkari, bví að á honum ersi
stækkaðar myndir af Þórði
Björnssyni og Þórarni Tíma-
ritsíjóra, sem, að sögn hins
hugmyndaríka höfuntlar
lappans, skipar baráttusæí-
íð á lisíamim!
Undir mynd Þórarins stend-
ur að „Drengileg’ barátta hans
í fremstu víglínu stjórnmála
landsins hafi skapað iionuni
virðingu og traust landsmanna“
og að allir muni vera sammája
um „að það væri mikill feng-
ur fyrir Reykvíkinga að fá harni
í bæjarstjórnina.“
Það gæti ef til vill verið
nokkur mælikvarði á umhyggj u
Framsóknarmanna fyrir Reykja
vík og hugmyndum þeirra um
drengilega baráttu, að þeir
bjóða Reýkvíkingum upp á
þennan mann sem bæjarfull-
trúa. Hann mun eiga fáa sína
líka í ósvífni og rætni í skrif-
Framhald á 7. síðu.
Yiil komsst aft-
ur í f járhagsrái.
Bergur Sigurbjörnsson hef-
ur unnið sem undirtylla í
fjárhagsráði í nokkur ár við
lítinn orðstír. Notaði hann
aðstöðu sína til að gefa
„Frjálsri þjóð“ ýmsar upplýs
ingar, sem allir áttu ekki að-
gang að. Nú hefur hann olt-
úr cmbættinu við andlát
fjárhagsráðs.
En hann er ekki af baki
dottinn. — Þjóðvarnarliðið
heimtar nú að nýtt fjárhags-
ráð, skipað „sérfræðingum“,
sé sett á laggirnar, „Sérfræð-
ingurinn“ Bergur teiur sig
sýnilega sjálfkjörian i slskt
ráð.
VWWAAWftWA*AWASW,W«VWW.WJV.ViW.VAW
Ifc...
A
Aðstoðarfélk á k|ör&gi l
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURÍNN bsiuir þeim tilmælum
vinsamlegá t:I þeirra Reykvíkinga, sem vílja veita aðstoð a
kjördegi, að þeir tilkýnnl nöfn sín skrifstofú flokksins i
Sjálfstæðishúsinu., sími- 7100.
Þeir. sem verða við þessum tilmælúm, verða stðar boð-
aöÍE til viðtals méð tílkynningu hér í blaðinu.
SJÁLFSTÆÖISFLOKKURINN.
■AVVNVVVVVAW.'JWWVVWJWWVV'JW.W.VAnJV.W