Vísir - 10.02.1954, Side 7
Miðvikudgainn 10. febrúar 1954.
VÍSIR
T
í heildsölu og
Hafnarstrœti 19. — Sími 3184.
Múrarar — gölfborð
Eg þarf að láta fínpússa gólf„ og vil greiða það með
sama og nýjum, ágætis gólfborðum, sem tekin eru af
gólfunum.
Þeir, sem vildu athuga þetta leggi nafn sitt inn á afgr.
Vísis merkt: „Góð skipti — 452“.
HafsnagnseifrsaB1
Margar stærðir og gerðir.
Verð frá kr. 147.00.
Véla— @@ Raftæk|aveKhinin
Bankastræti 10. — Sími 2852.
6 og 12 volta, hlaðnir og
óhlaðnir eru nú komnir.
VÉLA- OG
RAFTÆKJAVERZLUNIN
Tryggvagötu 23.
Sími 81279.
geta ekki haft neitt fyrir stafni. Engir gestir komu allan dag-
inn. Henni varð ósjálfrátt hugsað til Juans Parnells. Hann lét
ekki á sér bæra. Ilann hlaut þó að gera sér ljósa grein fyrir j
hættu þeirri, sem yfir henni vofði, og það kom ekki til mála,
að hann mundi láta hana vera þarna eina og varnarlausa, úr
því að hann hafði tjáð henni ást sína, enda þótt hann hefði
eiginlega ekki ætlað áð gera það. Kannske hann gerði í raun-
inni lítið úr hættunni, sem hún var stödd í, eins og hann hafði
farið háðulegum orðum um þá skoðun hennar, að demanta-
námurnar væru ekki til. Ilvar var þá riddarmennskan og hug-
rekkið, sem hann hefði átt að erfa frá hinum spænsku forféðr-:
mn sínum? Vonbrigði hennar, að því er hann snerti, og reiði
hennar gagnvart honum, fóru jafnt og þétt í vöxt, er á daginn
leið, og jafnframt varð hún æ daprari, er það rann upp fyrir
henni, að hann hafði brugðizt henni og hún var ein og. yfir-
gefin. Hún hafði enga lyst á teinu, sem henni var borið um
daginn, og hún frestaði því, að kvöldverður væri borinn á
borð, því að hún fann með sjálfri sér, að hún mundi ekki háfa
neina matarlyst.
Nú fór að dimma úti, og Hepsiba kveikti á lömpunum í hús-
inu. Skömmu siðar sagði Hepsiba við húsmóður sína, að hún
yrði. að borða eitthvað, og'Anneke játaði því. Hálfri stundu
síðar kom Hepsiba með bakka, og var á honum allskonar mat-
ur, sem hún gerði ráð fyrir að mundi vekja matarlyst Anneke.
Hún hafði tafið nokkra stund hjá henni, til að tala við hana, og
var þá enginn niðri til að véra á verði þar. Og af því að húp
hafði þurft að nota báðar hendur við að bera bakkann upp á
loftið, hafði hún skilið skammbyssuna eftir í eldhúsinu.
„Jæja,“ mælti hún eftir nokkra hríð. „Þá er þessi dagurinn
víst liðinn.“
„Eg vona, að þeir verði ekki margir honum líkir,“ svaraði
Anneke.
Svo rak hún upp hálfkæft skelfingaróp, og stöklc um leið á
fætur, óttaslegin og með galopin augu. Því að þegar hún hafði
litið yfir Öxl Hepsibu til dyranna, hafði hún komið auga á John
Slack, sem stóð í dyragættinni. Hann hafði komizt inn í húsið
og gengið upp stigann eins hægt og hljóðlega og köttur. Hepsiba
snerist eldsnöggt á hælnum, og gekk samtsundis í veg fyrir
hann, til þess að reyna að koma í veg fyrir, að hann gæti náð
til húsmóður hennar.
Slack gekk hægt inn í herbergið, álútur og illúðlegur á
svip. I’að var greinilegt, að hann.var þama kominn í ákveðnum
tHgangi, að hann var staðráðinn í að hrinda því í framkvæmd,
sem hann hafði ætlað sér. Hatur brann úr augum hans.
„Eg sagði Phil, að við mundum hnjóta um þig,“ rumdi í hon-
um. „Eg átti kollgátuna."
„Þú átt Hka kollgátuna," svaraði Hepsiba, „ef þig grunar,
að þú mxmir verða hengdur."
„Eg var ekki hengdur fyrir að afgreiða enska kjánann,“
sagði Slack. „Farðu frá, Hepsie, eða eg kom þér fyrir kattarnef
á undan.“
„Það gerir víst engan mun, hvort eg verð á undan eða eftir,“
mælti Hepsiba, og rótaði sér ekki.
Slack fór með hægri hendi inn fyrir jakkann sinn, og þegar
hún birtist aftur, hélt hann á skammbyssu. Ahneke gat ekki
lokað augunum, þótt henni þætti þetta ægUeg. Hún var sannfærð
um, að nú væru dagar hennar taldir, og hún afréð að mæta
dauða sínum með opin augu. Hún harkaði af sér, og engan ótta
sá á andliti hennar. Slack gekk skrefi nær þeim og lyfti skamm-
byssunni hægt. Anneke rak upp óp, gat ekki bælt það niður. Það
var ekki fyrst og fremst ákall um hjálp, heldur varð henni ó-
sjálfrátt á að nefna nafn, sem hún gérði ekki ráð fyrir að hafa
tækifæri tH að nefna oftar.
„Juan!“ hrópaði hún. „Juan!“
Hún gerði sér ekki grein fyrir því, hvaða játningu hún gerði
á þessari stund hættunnar — að hún skyldi nefna nafn hans
með síðasta andardrættinum, sem hún gerði ráð fyrir að draga.
GJÁLDÐAGÍ FASTEIGNAGJALDA til bæjai-
sjóðs Reykjavíkur árið 1954 var 1. FEBRÚAR.
Húsagjöld, lóðagjöld og leiga eítir íbúðarhúsa-
lóðir er innheimt með 200% álagi, samkv. lögum
nr. 29, 4. febr. 1952, sbr. samþykkt bæjarstjórnar
17. september 1953.
Vatnsskattur óbreyttur.
Gjaldseðlar hafa verið sendir til eigenda og
forráðamanna gjaldskyldra eigna, en reynslan er
jafnan sú, að allmargir seðlar koma ekki í hendur
réttum aðilum, einkum reikningar um gjöld af
óbyggðum lóðum, og er eigendum bent á að gera
skrifstofu bæjargjaldkera aðvart, hafi þeim ekki
borist gjaldseðlar.
Gjaldendur í Vogum, Langholti, Laugarási og
þar í grennd, er bent á að greiða fasteignagjöldin
til tmBOS LANDSBANKANS, Langholtsvegi 43.
Opið virka daga kl. 10—12 og 4—Laugar-
daga kl. 10—12 og 1—3 e.h.
Reykjavík, 9. febrúar 1954.
Borgarritarinn
; jt
A kvöMvÖkmuH.
Atvinnurekendur
Mig vantar vinnu. Hef
stundað akstur. Margt kem-
ur til greina. Tilboð legg-
ist inn á afgr. Vísis fyrir
föstudagskvöld merkt:
„Örugg vinna — 451“.
Nýlega var ungur franskur-
málari að mála úti á götu Par-
ísai'borgar. Allt í einu gall við
hás rödd bak við hann:
„Málið þér himininn örlítið
blárri ungi maður!“
„Haltu kjafti og farðu til
andskotans,“ hvæsti listmálar-
inn, sem ekki kunni við að láta
trufla sig að ófyrirsynju. Um
leið leit hann við og var nærri
fallinn í öngvit af skelfingu. Á
bak við hann stóð enginn ann-
ar en Maurice Utrillo, hinn ó-
krýndi konungur Parísarmál-
aranna.
Cíhu Mmi Var....
Þetta var m. a. í bæjarfrétt-
um Vísis hinn 10. febrúar árið
1919:
Þilskipin.
„Valtýr“ (H. P. Duus) lagði
út á fiskveiðar fyrir helgina,
fyrstur þilskipanna héðan, en
úr þessu munu þau fara að
leggja út hvert á fætur öðru.
Bifreiðin
sem fór út af Kóþavogs-
brúnni í fyrradag, var náð upp
aftur þá samdægurs. Hafði hún
hvolfzt alveg við í faHinu, og
komið niður á bakið, og
skemmdist því ekkert, að öðru
leyti én því, að brotnaði ofart.
af henni.
Sjóvátryggingafélag fslands
er nú tekið til starfa og hef—
ir skrífstofur í Austurstræti 16..
C. B. ICeiaand
Ödýrar
kvenkápur
úr vönduðum alullarefnum
eru seldar með miklum af-
slætti.
KÁPUVERZLUIMIIM
Laugaveg 12. (Efri hæSin).