Vísir - 16.02.1954, Blaðsíða 8
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó jxað f jöl- breyttasta. — Hringið ( síma 1660 og gerist áskrifendur. w
xskhl
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis tit
mánaðamóta. — Sími 1660.
Þriðjudaginn 16. febrúar 1954
IjteáraiaiiÍBt:
Hvaða leikarar - í
hvaða hlufver
9
o
4. I.JYND
Myndin sýnir
sem
Þrenn verðlaun verða veitt, en svari fieiri en þrír rétt
að öllu leyti, verður hlutkesti að ráða.
VERÐLAUNIN ERU ÞESSI:
1. Ritsafn Jóns Trauta, 2. Linnschiff hringbökunarofn, j!
3. Ársáskrift á Vísi. "*
Geymið myndirnar, þar til getrauninni er lokið, er
birtur verður seðill fyrir svör við öllum myndunum.
Lndirskriffir íllolætovs
fengust með héfunum.
Okyrrð er í Austur-Þýzkalandi.
Fjöldi manna 1 Austur-
Þýzkalandi hefur skrifað
Dulles utanríkisráðherra og
tjáð honum, að það hafi ekki
við neitt að styðjast, að 9 mill-
jónir manna í A.-Þv hafi skrif -
að undir yfirlýsingu um að þeir
styðji tillögu Molotovs varð-
andi Þýzkaland.
Mikill hluti, ef til vill allt
að 95% undirskrifta fékkst
með hótunum. í einu bréfinu
stóð: í okkar verksmiðju urð-
um við að skrifa undir þrisvar,
svo varð ég að skrifa undir
heima hjá mér og tvívegis úti
á götu.
Stöðugt berast fleiri fregnir
um ókyrð á hernámssvseði
Rússa. Ýmsar varúðarráðstaf-
anir síðan í 17. júní-uppþotinu
eru enn í gildi og sýnir það
hve skelkaðir kommúnistar
eru.
Skortur er eldneytis og
jarðepla. Sextán verkamemi,
voru handteknir í verksmiðj-
um í Leipzig fyrstú viku
febrúar og 12 aðrir á götixn-
um að næturlagi fyriv að’
festa upp andkommúnistis! :a
áróðursmiða.
Þegar verið var að sýna
kvikmynd í Leuna efnaverk-
smiðjunum æptu menn og
blístruðu, og formæltu, er
Walter Ulbricht kommúnista-
leiðtogi sást á tjaldinu.
Frétíai'itarar segja, áð þess
sjáist mörg merki, að ókyrðin
sé mikil og að þjóðin vilji
sameinast Vestur-Þjóðverjum.
Ennfremur, að kommúnistar
hafi mjög aukinn viðbúnað til
þess að bæla niður allan mót-
þróa.
Frá fréttariíara Vísis.
Akranesi í morgun.
Bátar reru í gærkveldi, en
sumir voru komnir að kl. 10,
sneru heimleiðis vegna veðurs,
en aðrir dokuðu við, kannske
verið búnir að Ieggja. Tíðarfar
til sjósóknar er erfitt um þess-
ar mundir.
Nokkuð af fiski hefur verið
flutt héðan til Borgarness í
frystihúsið þar, en það átti að
taka við afla úr Gissuri hvíta,
Ákaft deilt í
Berlín í gær
Harðar deilur urðu á fundi
utanx-íkisráðherranna í gær,
varðandi friðarsamninga við
Austurríki, sem raunar snerust
síðan að mestu um öryggismál-
in.
í gærkveldi virtist því sem
öll von væri úti um friðar-
samninga við Austurríki að
sinni, og umi’æðum um þá lok-
ið á ráðstefnunni, en samt mun
að líkindum verða um þá rætt
á fundi í dag, að minnsta kosti
ef dr. Figl. utanríkisráðherra
Austurríkis verður þá búinn að
fá nýjar fyrirskipanir.
Eden sagði á fundinum í gær,
að með öryggismálatillögum
sínum vildi MolPtov bersýni-
lega koma A.-bandalaginu og
varnarsamtökunum fyrir katt-
arnef, en slíkt mundi hann ekki
ræða.
Mólotov hliðraði sér hjá að
svara afdráttarlaust fyrirspurn
Bidaults um það hvort hann
teldi Atlantshafssáttmálann ó-
samrímanlegan öryggistillögum
hans. ítrekaði þá Bidault fyrir-
spurnina, en Molotov lagði til,
að fundi yrði slitið. Dulles var
í forsæti.
Á morgun verður lokaður
fundur og verður þá enn rætt
um tillögur Molotovs um finnn-
veldabandalag. Á fimmtudag er
gert ráð fyrir, að ráðstefnunni
ljúki.
Karl og kona
verða bráðkvödd.
f gærmorgun varð sænskur
rnaður bráðkvaddur í skipi á
Akureyrarhöfn.
Skeði þetta um borð í Blá-
fellinu, sem þá var statt á Ak-
ureyri, en Svíinn var skipverji
á því.
Hér í“ Reykjavík varð kona
bráðkvödd á almannafæri um
miðjan dag í gær. Kona þessi,
sem mun hafa verið um sextugt,
var utan af landi, en gestkom-
andi í bænum og dvaldi á heim-
ili sonar síns.
í gæi’dag var hún á ferð í
Þóroddsstaðahverfi og féll þá
skyndilega niður á götunni sem
líkast því að hún hafi fengið
aðsvif. Fólk, er nærstatt var og
sá þegar konan datt, tók liana
og bar hana inn í nærliggjandi
skála, en þá var hún örend.
Slys í Giljareitum í gær.
Vömbíll með 2 mönnum hrapaði 60—65 m.
í gærmorgun vildi það slys
til í Giljareitum á Öxnadals-
heiði að vörubifreið með tveim-
ur mönnum valt út af veginum
og niður í gljúfrið.
Bifreið þessi, sem er í eigu
heildverzlunar Valgarðs Stef-
ánssonar á Akureyri var á leið
suður til Reykjavíkur. Stjórn-
andi hennar hét Þór Árnason
en með honum í þifreiðinni
var Stefán Jónsson, báðir ungl-
ingspiltar frá Akureyri.
S¥eilariiiiar s gær.
Symfóníuhljómsveit Banda-
ííkjaflughers hélt fyrstu hljóm
leika sína í Þjóðleikhúsinu í
gærkveldi fyrir troðfullu húsi
og við hinar ágætustu undir-
tektir áheyrenda.
Þetta er ekki sama hljóm-
sveitin og hingað kom í fyrra,
því að þessi hefur hljóðfæra-
skipan Symfóníuhljómsveitar,
en í hina vantaði strengjahljóð-
færin.
Howard ofursti stjórnaði
hljómsveitinni af myndugleik,
og hljómleikaskráin var all-
fjölbreytt, en að lokum var
leikin symfónía eftir Cesar
Franck. —• Tveir einsöngvarar
komu fi’am á hljómleikunum,
liðþjálfarnir William DuPree,
sem söng aríu úr Tosca, og
William Jones.sem söng „Nú
legg ég augun aftur“. Var báð-
um vel fagnað.
Næstu hljómleikar hljóm-
sveitarinnar verða í kvöld.
Slökkvlliðiið á ferö.
Slökkviliðið var tvívegis
kvatt út í gærkveldi og nótt.
Á 10. tímanum í gærkveldi
kviknaði eldur í olíu út fr$ ol-
íukyntri miðstöð í Barmahlíð
23. Slökkviliðið var kvatt á
vettvang en áður en það kom
á staðinn var búið að kæfa
eldinn.
Um miðnæturleytið var
slökkviliðið aftur kvatt út .og
þá að barnaheimilinu Vestur-
borg. Um raunverulegan eld
eða íkviknun var þar ekki að
ræða, en hins vegar hafði
sviðnað nýmálað loft í herbergi
út frá ljósaperu og þótti örugg-
ara að leita aðstoðar slökkviliðs
ins af þeim sökum.
sem sökk eftir áreksturinn við
Rifsnes. Skortir frystihúsið
vei’kefni sem stendur.
Batnandi afli
togara.
Afli á togara er heldur að
glæðast, þrátt fyrir mjög erf-
itt tíðarfar seinustu dægur.
Togarar hafa að undanförnu
oft komið inn með rúmlega 100
smál., stundum þó nokkru
meira, en líka stundum með
undir 100 smál. — Seinustu
skip hafa komið inn betur fisk
uð. Karlsefni kom í morgun
með um 210 smálestir, þar af
um 100 smálestir karfa. Bjarni
riddari kom til Hafnarfjarðar í
fyradag og var lokið við að
losa hann í gær. Hann hafði
hátt upp í 200 smál. Mikill hluti
aflans var-ufsi. — Til Akraness
hafa komið Akurey með 180
smál., Jón forseti með 247, en
hann kom til Reykjavíkur í
morgun. Bjarni Ólafsson kom
til Akraness í morgun, sæmi-
lega fiskaður.
Bíllinn valt fyrir vestan svo-
kallað Reiðgil í Giljareitum.
Þar var svell á veginum og er
talið að hvassviðri hafi orsak-
að það að bíllinn rann til og
niður í ána. Bíllinn mun hafa
endastungist 65 metra niður
gljúfrio unz hún staðnæmdist,
en brak úr bílnum og vörixr
þeyttust í ýmsar áttir og all-
miklu lengra heldur en bíllinn
fói’.
Þótt undarlegt megi virðast
komust báðir mennirnir lífs af
og eru ekki taldir lífshættulega
slasaðir. Komust þeir báðir upp
úr gljúfrinu og upp á veginn,
en þá treysti Stefán sér ekki
lengra og varð eftir á meðan
Þór fór niður að Fremri Kotum
í Skagafirði til þess að sækja
hjálp. Bóndinn þar brá þegar
við og fór í bifreið upp á heiði
til þess að sækja Stefán, sem
orðinn var alldasaður.
Voru þeir Stefán og Þór síð-
an fluttir til Akureyrar og lagð
ir inn á sjúkrahúsið þar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Akureyri í morgun er hvorug-
ur þeirra félaga talinn lífs-
hættulega meiddur og hvorug-
ur mun brotinn á útlimum. En
báðir eru þeir skaddaðir á
höfði og hafa kvartað undan
þrautum í baki.
Tóbakið
„Aurasálin“ tókst
vel í gærkveldi.
Menntaskólanemendur sýndu
í gærkveldi gamanleikinn
„Aurasálina“ eftir Moliére.
Iðnó var þéttskipað áhorf-
endum, sem óspart hylltu leik-
endur og leikstjórann, Einar
Pálsson. Vísir mun á* morgun
birta umsögn um þennan
skemmtilega leik.
Framh. á 8. síðu.
minna en 32 lestir sl. ár —■
32.000 kg. — fóru í nefin á nef-
tóbaksmönnunum í fyrra. Það
er ekkert smáræði, en þetta er
svipað magn og verið hefur.
Neftóbakið er flutt inn (hrá-
tóbak) frá Bandaríkjunum, en
fullunnið hér heima. Geta má
þess, að á árinu var gerð til-
raun með að flytja inn smá
slatta af hrátóbaki frá Nyassa-
landi í Afríku. Þetta tóbak þóttl
ekki eins sterkt, en það þykir
neftóbaksmönnum galli. Tóbak-
ið frá Brödrene Braun í Dan-
mörku má heita horfið úr sog-
unni, því ekki voru flutt inn
nema 714 kg. á árinu. Nú vinna
6 manns við neftóbaksgerð Tó-
bakseinkasölunnar, sem hefur
ágætum vélakost á að skipa.
Vindlar.
í fyrra reyktum við íslend-
ingar samtals 1 milljón af stór-
um vindlum, en 2.2 millj. af
smávindlum. Það hefir komið
í ljós, að á árinu stójókst smá-
I vindlanotkun landsmanna, og
gefur það nokkuð til kynna
I bættan efnahag og meiri aura-
ráð almennings í landinu. Þetta
svarar til þess, að við höfum
reykt 10 lestir af vindlum í
fyrra.
Píputóbak.
Áður var langmest flutt inn
af þessari vöru frá Englandi, en
nú má sá innflutningur heita
úr sögunni, því að hann var ekki
nema um 1200 kg. í fyrra. Hins
vegar fluttum við inn frá Hol-
landi 16.5 lestir af reyktóbaki,
en frá Bandaríkjunum 4 lestir.
Að lokum má geta þess, að
samanlörrð tóbaksnotkun okk-
jar íslendinga í fyrra nam 210
I lesturn.