Vísir - 13.03.1954, Blaðsíða 5

Vísir - 13.03.1954, Blaðsíða 5
Laugardaginn 13. marz 1954. VÍSTB » SHELL í Míir Sótt um lóð og f járfestingu til byggingar farfuglaheimilis í Rvík. Fjöldi erlendra Farfugla hafa éhúga fyrir því að ferðast um Island. Farfugladeild Reykjavíkur Jhéfir sótt um lóð og fjárfest- ingu fyrir gistiheimili hér í Reykjavík og stofnað sérstak- an húsbyggingarsjóð í þessu skyni. Ef Farfuglum það mikið á- hugamál að koma hér upp gistiheimili, sem yrði jafnt til afnota fyrir erlenda Farfugla og eins fyrir þá, sem búa úti á landsbyggðinni. Árið 1952 gengu íslenzkir Farfuglar í Alþjóðasamband Farfugla og áttu þeir fulltrúa á alþjóðaþinginu, sem það ár var haldið í Rómaborg. Síðan hefir rignt niður fyrirspurnum frá Farfuglum víðsvegar um heim um skilyrði til dvalar og ferðalaga hér á landi. En mestu erfiðleikarnir við að taka á móti erlendum gestum eru fólgnir í húsnæðisleysi hér í Reykjavík. Farfuglaheimilin eru til mik- illa hagsbóta fyrir efnalitla ferðalanga, sem oft og einatt eiga þess ekki kðst að ferðast nema með því einu móti að njóta hinnar ódýru fyrirgreiðslu og gistingar, sem Farfuglaheim- ilin veita. Hafa íslenzkir Far- fuglar þegar hagnýtt sér þetta á ferðum sínum erlendis og t. d. 1952 var gistingafjöldi þeirrá í erlendum farfuglaheim ilum 306, mest á Norðurlönd- um og í Austurríki, en einnig nokkuð í Bretlandi og Þýzka- landi. Þá má einnig geta þess, að allir þátttakendur bænda- fararinnar til Norðurlanda í fyrra gengu í Farfuglahreyf- inguna áður en þeir lögðu upp í ferðina og nutu fyrir bragðið ódýrrar fyrirgreiðslu í sænsk- um farfuglaheimilum. Aðalfundur Farfugladeildar Rej'kjavíkur var haldinn í fyrrakvöld. Þar gaf formaður deildarinnar yfirlit yfir störf- in á liðna árinu og gat þess m. a., að 20 ferðir hefðu verið farn- ar á árinu með samtals 495 þátttakendum. Lengstu ferð- irnar voru um Austurland, annarsvegar hjólreiðarferð og hinsvegar gönguferð. Bæði farfuglaheimilin Vala- ból og Hlíðarból voru vel sótt á árinu og samtals voru 957 næturgistingar í þeim á árinu. Farfuglar hafa allmikið sinnt skógræktarmálum. Á Þórs- mörk hafa þeir fengið úthlutað ákveðið svæði hjá Skógrækt 22 dóu undir járn- brautarvagni. Lontlon (AP). — Óvenjulegt Járnbrautarslys varð í sl. viku nálægt Benares í Indlandi. Verkamenn voru að vinna við teina, og stóðu þar hjá nokkrir oltnir vagnar. Einn þeirra valt enn til, meðan á vinnunni stóð, og urðu 36 menn undir honum, og biðu 22 bana. ríkisins, þar sem þeir gróður- setja plöntur á hverju vori. Þar grisja þeir líka skóg og nota limið til þess að hefta með upp- blástur á landinu. Jafnframt þessu hafa þeir gróðursett trjá- plöntur umhverfis „hreiður“ sitt Valaból og hafa þær dafn- að ágætlega. Þar er nú kominn vísir að fallegum gróðurreit, sem áður var auðnin ein og upp- blástur. Félagar Farfugladeildarinn- ar eru nú um 300 talsins og fé- lagslíf fjörugt. Þar voru mán- aðarlegir skemmtifundir og í vetur hafa Farfuglar æft þjóð- dansa af miklu kappi. Alþjóðaþing Farfugla verður háð í Saar í Þýzkalandi í sum- ar og er búizt við að 1—2 full- trúar geti mætt héðan. Stjórn Farfugladeildar Rvk. skipa nú Guðm. Erlendsson, form; Ari Jóhannesson, Ólafur Bjön Guðmundsson, Þorsteinn Magnússon; Helga Þórarins- dóttir, Helga Kristinsdóttir og Ragnar Guðmundsson. Boli éwAk sig fullan. N. Delili (AP). — Naut geta gengið berserksgang eins og menn, þegar vín er haft um hönd. Það kom nýlega fyrir í smá- bæ nærri Kalkútta, að naut komst í heimabrugg og drakk 3—4 lítra, að dómi eigenda, — Varð tuddi óðúraf þessu og réðst. á allt, sem fyrir varð, HMMÉIÍt Komið í veg fyrir GLÓIIARKVEIKJIJ og SKAMMHLAEP í KERTEM og aukið þaniiig orku- og iien/íiiiiVúií hreyfilsins. MOTIÐ ÞVÍ „SHELL“-BEMZÍM MEÐ I.C.A. Tilraunir á rannsóknarstof- um, svo og reynsla sú, sem fengin er af notkun „Shell“- benzíns með I.C.A. hefur þeg- ar staðfest, að I.C.A. hefur engin skaðleg áhrif á hreyfil- inn, heldur eykur til muna orku- og benzínnýti hans. awiÍSNi Árangurinn kemur í ljós eftir tvær áfyllingar. í fyrsta skipti, sem þér takið „Shell“-benzín með I.C.A. eru ennþá eftirstöðvar af hinu gamla benzíni í geyminum. Það er því ekki fyrr en eftir tvær áfyllingar að þér í rauninni verðið varir við, hverju hið endur- bætta „Shell“-benzín með I.C.A. fær áorkað. Eftir það munið þér finna, að hreyfillinn skilar meiii orku og gengur þýðar en hann hefur nokkru sinni gert síðan hann var nýr, þar eð eðlileg kveikja og réttur bruni eru skilyrði fyrir fullri orkunýtni, munið þér fljótlega komast að raun um, að notkun „Shell“-benzíns með I.C.A. er leiðin til hagkvæmari aksturs. I.C.A. HINDRAR SKAMM- HLAUP í KERTUM. Þér verið fljótlega varir við, ef eitt kerti bilar, en þér verðið ekki varir við, ef eitt eða fleiri kerti kveikja óreglulega. Þetta á sér bó í rauninni oft stað í hreyflinum, er eitt eða fleiri kerti „leiða út“ vegna útfellinga er safnast á einangrun þeirra. I.C.A. dregur úr leiðsluhæfni útfellinganna og hindrar þvl skammhlaup af þeim sökum. Árangurinn verður betri orku- og benzínnýtni í bifreið yðar. Glóðarkveikja Eðlileg kveikja Ótímabær kveikja I.C.A. kemur í veg fyrir hin skaðlegu áhrif glóðarkveikju. Glóðarkveikja orsakast af því, að rauð- glóandi kolefnisagnir í brunaholinu kveikja í eldsneytisleiðslunni, áður en neisti kveikikertisins gerir það. Þessi of fljóta íkveikja vinnur á móti þjappslagi bullunnar og afleiðingin verður orkutap, óþarfa benzíneyðsla og skemmdir á ýmsum hlutum hreyfilsins. I.C.A. breytir efnasamsetningu útfellinganna og kemur þannig í veg fyrir glóðarmyndun í þeim. Öll hætta á glóðakveikju er því útilokuð. IGNITJON CONTROl Einkalevfi í umsókn. ADDITlvt 4UKIN ORKA ~ JAFNARI GANGUR - LENGRI ENDING — S»rú4i ftjtg’ir auikin fjftv ði er verðið ábreytt — EiuiyönyU -‘-benain inni heltlur I.O.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.