Vísir - 26.03.1954, Blaðsíða 8
VÍSIK er ódýrasta blaSið og bó bað fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 eg
gerist áskrifendur.
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS tftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypii til
mánaðamóta. — SJmi 1660.
Föstudaginn 26. merz 1954.
Húsin sukku í saltnámu.
' A
Oveiijulegur atlmrðnr restan haís.
itamáSið.
kei*™
19
r>/
Sá furðulegi atburður gerðist
í Windsor, Ontario, Kanada,
fyrir sltömmu, að tvær vöru-
skemmur, sem verið var að
reisa, fóru allt í einu að síga
: i jörð, fyrir augum verkamann-
anna, sem liorfðu á 'þetía undur
.sem steini lostnir.
Önnur hús sporðreistust.
Gígurinn, sem myndazt hafði
skyndilega var stækkandi, og
forstöðumenn Canadian In-
• dustries Ltd., sem þarna er að
reisa mikil mannvirki, efna-
verksmiðju fyrir 6 millj. doll-
ara auk vöruskemmanna, b:ðu
. mjög ltvíðafullir, þar til í ljós
,'kæmi hvort eínaverksmiðjan
myndi fara sömu leiðina. Or-
sakir eru taldar hrun og rask
af völdum þess í neðanjarðar-
saltnámu, sem þarna er. Við
hrunið var sem landskjálfta-
' kippur hefði komið og lék allt
á reiðiskjálfi.
Windsor er einskonar systur-
bær bílaborgarinhar Detroit
í Bandaríkjunum, en þær eru
beggja vegna Detroit árinnar,
».sem þarna myndar landamæii
Bandaríkjanna og Kanada. f
. grennd við Windsor og Detroit
er mikið af yfirgefnum, göml- -
um neðanjarðarsaltnámum. í
báðum borgum hafa verið áform
| um, að gera neðanjarðarnám-
| urnar að loftvarnabyrgjum, en
j aldrei hefir orðið af fram-
kvæmdum, þar sem ekki var
j talið að unnt væri að búa svo
; tryggilega um, að þar mætti
örugglega húsa tugþúsundir
manna.
§erl dr. Mel
Bylímgin lifi:
Kröfugöngnr
í Kairo,
Kröfugöngur voru farnar um
götur Kairó í gær, til þess að
mótmæla því, að byltingar-
stjórnin láti af völdum eftir
þingkosningarnar í sumar.
Menn æptu hver í kapp við
annan: Ekkert þing, lifi bylt-
ingin. Ekki kom til neinna á-
rekstra. — Líklegt er, að fylgis-
menn Nassers og þeirra, sem
eru andvígir stefnu Naguibs,
að efna til þingltosninga og að
mynduð verði stjórn, er starfi
á lýðræðisgrundvelli, hafi stað
Svenska Dagbladeí birti hinn
14. þ. m. leiðréttingu og grein-
argerð um handritamálið frá dr.
Helga P. Briem, sendiherra í
Stokkhólmi.
Þannig var mál með vexti,
að Kaupmannahafnarfréttarit-
,ari þessa blaðs hafði látið þess
getið í fréttum, að lagalegur
réttur Dana til handritanna
væri ótvíræður, og margir á-
litu siðferðilegan rétt þeirra
engu minni.
Helgi P. Briem sendiherra
birti í tilefni af þessu skelegga
greinargerð í fyrrnefndu blaði,
og lýkur henni með þessum orð
um: „Það er því ekki rétt að
tala um, að handrit þessi hafi
nokkurn tíma verið eign Daii-
merkur, og að konungur hafi
varðveitt þau í sínu Konung'-
lega bókasafni í Kaupmanna-
höfn.“ Mótmælir sendiherrann
því, að blaðið hafi skýrt rangt
írá staðreyndum og telur það
ósamrímanlegt vináttuhugsjón
Norðurlanda,
Eldur í Skip- holti 25. Laust fyrir klukkan 8 í morgun var slökkviliðið kvatt að Skipholti 25, en þar hafði kviknað í út frá olíukynntum ofni. Búið var að slökkva eld- inn þegar slökkviliðið kom og urðu engar skemmdir. ið að kröfugöngunni. Naguib knúði fram sína stefnu um kosn ingar og forsetakjör, en marg- ir telja horfurnar í landinu næsta ótryggar, þar sem nokk- ur hluti þeirra, sem höfðu for- ystu í byltingunni telja hlut- verki byltingarstjórnarinnar hvergi nærri lokið. Fjölda mörgum pólitískum föngum hefur verið sleppt úr haldi, þeirra meðal leiðtogum Mohameðsbandalagsins.
i Ti <ygf /igraJ),jj?
Sandgerðisbátar verða fyrir onæði af brezkiim toguriim.
Afli vélbáta á Suðnesjum og í
Vestmannaeyjum var sæmileg-
ur í gær, öllu betri hjá Eyja-
- bátum.
í morgun var logn og blíða í
Eyjum, og allir bátar á sjó. í
gær öfluðu bátar yfirleitt særai
lega. Meðal hæstu bátanna, sem
fréttamaður Vísis vissi um í
morgun, voru þessir: „Maggí“,
sem var með 3200 fiska, „Gull-
borg“ 2500, „Hilmir 2400 og ís-
leifur II. 2400. Margir bátar
voru með um eða yfir 1000
fiska. — „Góðafoss“ var í Eyj-
um í gær að lesta freðfisk og
roð fyljir Bandaríkjamarkað.
Úr roðinu er unnið lím.
li
Keflavíkurbátar fengu mis-
jafnan afla í gær, en yfirleitt
dágóðan. Aflinn var frá 4—14
lestum á bát, allmargir með 7
—8 lestir. Sjóveður var skap-
legt, hægur vindur, en heldur
illt í sjóinn. í dag eru allir
bátar á sjó,
Afli Sandgerðisbáta var hálí
tregur í gær, að því er frétta-
maður Vísis tjáði blaðinu í
morgun. Bátarnir voru yfirleitt
með 5—9 lestir, en margir með
7—8 lestir. Bátarnir róa djúpt,
er verða fyrir miklu ónæði af
togurum, einkum brezkum. í
dag eru Sandgerðisbátar á sjó,
og veður er sæmilegt.
Hafnarfjörður.
Afli var mjög tregur hjá
Hafnarfjarðarbátum í gær, og
var hæsti línubáturinn aðeins
með 5 lestir.
Togarinn Ágúst kom til Hafn
arfjarðar í morgun og landar
þar. Afli hans mun vera um 10
lestir.
Akranes.
Frá Akranesi voru 16 bátar
á sjó í gær og öfluðu mjög mis-
jafnlega. Þrír bátar fengu alls
ekki neitt, en einn, Keilir, fékk
13 Vi lest, og var hann lang
hæstur.
Bátar þeir, sem fengu ein-
hvern afla að ráði réru djúpt,
eða á þær slóðir, er loðnunnar
gætir ekki, en þar sem loðnan
er, fiskast mjög treglega. Menn
gera sér þó vonir um að loðn-
an sé á förum aftur og að þá
muni fiskiríið örfast.
Fr« -
Framh. af 1. siðu.
Meiri áflog.
Seinna í gærkveldi skakkaði
lögreglan leik tveggja ölvaðra
manna, sem lent höfðu í handa-
lögmáli inn á Hlemmutogi og
voru búnir að rífa föt hvor
annars. Lögreglan tók þá í
vörzlu sína.
Fékk krampa.
í gær fékk drengur krampa
niður í Aðalstræti og var lög-
reglan kvödd til þess að veita
honum nauðsynlega aðstoð. En
áður en til þess kæmi höfðu fé-
lagar drengsins náð í bíl og
flutt hann heim til sín.
Stal úri.
Kært var yfir því til lög-
reglunnar í gærkveldi frá
braggahverfi einu hér í bænum,
að ölvaður maður, sem þar
hafði verið á ferð hafi stolið
úri, en horfið síðan á brott.
Lögreglan leitaði mannsins
um stund en fann hann ekki.
Mál þetta er í frekari rannsókn.
Sýning Magnúsar Á. Árnasonar listmálara hefur nú staðið yfir
í viku og hafa séð hana um 700 gestir, en 10 myndir eru seldar.
Sýningin er opin daglega frá kl. 11 f.h. til kl. 11 að kvöldL
Myndin hér að ofan er frá Papey og er stærsta málverkið á
sýningunni.
4 íslandsmet sett á
sundmóti KR í gær.
AHs voru 7 met sett á métlsiu.
jr
I stuttu málí.
a í Westminster, Macsacbu-
setts, Bandaríkjunum, eiga
heima tvær systur, sem
margir ætla einu systurnar
í heiminum, sem nú eru á
lífi, og lifað hafa samtals
tvær aldir. Nelie Loyd heitir
önnur og er 101 árs, en hina
Latiu Shumway, skortir
nokkra mánuði á að verða
100 ára. Þær hafa báðar
ferlivist og dágóða sjón.
• Sú stefna Bandaríkjastjórn-
ar, að losa sig við umfram-
birgðir landbúnaðarafurða,
með bví að selja þær á
lækkuðu verði, út um heim,
liefur sætt gagnrýni á Vest-
urálfuráðstefnunni í Cara-
cas, og víðav.
Afmælis-sundmót KR lauk í
Sundhöllinni í gærkvöldi og
hafa því alls 7 met verið sett ál
þessu glæsilega sundmóti. I
Úrslit í einstökum greinum
voru sem hér segir:
100 m. skriðsund kvenna: 1.
Helga Haraldsdóttir, KR, 1:13,7
mín. (Nýtt met — gamla metið
var 1:14,0 mín). 2. Inga Árna-'
dóttir, KFK, 1:16,0 mín. 3. Edda
Gunnarsdóttir, MFT, 1:31,8'
mín.
100 m. skriðsund karla: 1.'
Pétur Kristinsson, Á„ 59.5 sek.
(sama og íslandsmet). 2. Gylíi
Gunnarsson, ÍR, 1:05,1 mín., ogj
1286 manns í
íþróttabandalagi
Akureyrar.
Ársþingi Iþróttabandalags Ak
ureyrar er nýlega lokið. /vds
eru 1286 manns í fþróttafélög-
um bæjarins, sem eru fimm að
tölu.
Félögin, sem mynda íþrótta-
bandalag Akureyrar, eru:
Knattspyrnufélag Akureyrar,
íþróttafélagið Þór, íþróttafélag
M. A., Skautafélag Akureyrar,
og Golfklúbbur Akureyrar. Af
þessum 1286 meðlimum félag-
anna eru 531 undir 16 ára aldri.
í skýrslu bandalagsstjórnar-
innar var frá því skýrt að þrjú
landsmót hefðu verið haldin á
Akureyri síðastliðið ár, en auk
þess sendi bandalagið menn til
keppni á mót annars staðar.
Landsmótin, sem háð voru á
Akureyri, voru: Skautamót Is-
lands, Skíðamót íslands og
Meistaramót fslands í frjálsum
íþróttum. Akureyringar settu
5 íslandsmet á Skautamótinu
og hlutu nokkra íslandsmeist-
ara, bæði á Skíðamótinu og
Meitsaramótinu í frjálsum
íþróttum. Unnið hefir verið að
íþróttamannvirkjum á Akur-
eyri, bæði við Sundhöllina og
leikvanginn á Oddeyri.
Formaður íþróttabandalags
Akureyrar er Ármann Dal-
mannsson.
3. Steinþór Júlíusson, KFK,
1:06,1 mín.
100 m. bringusund drengja:
f undanrás í gær setti Sigurð-
ur Sigurðsson, íþróttabandalagi
Akraness, nýtt drengjamet á
1:23,0 mín. Fyrra metið var
1:24,0 mín. Úrslit í gærkvöldi
urðu þessi: 1. Sigurður Sigurðs
son, ÍB, 1:23,2 mín. 2. Hrafn-
kell Kárason, Á, 1:26,5 og 3.
Ágúst Þorsteinsson, Á, 1:27,8.
100 m. baksund karla: 1. Jón
Helgason, ÍA, 1:14,3 mín. (Nýtt
met. (Gamla metið var 1:14,8).
2. Sigurður Friðriksson, UMFR,
1:20,8 mín. 3. Rúnar Hjartarson
Á, 1:20,9 mín.
50 m. bringusund karla: 1.
Þorsteinn Löve, KR, 34,5 sek.
(Nýtt met. Gamla metið var
34,7 sek.). 2.-3. Ólafur Guð-
mundsson, Á, 36,1 sek. og Elías
Guðmundsson, Æ, 36, 1.
200 m. bringusund kvenna:
1. Inga Árnadóttir, KFK,
3:19,5 mín. 2. Vilborg Guðleifs-
dóttir, KFK, 3:20,4 mín.
4x50 m. skriðsund karla: 1.
A-sveit Ármanns, 1:53,1 mín.
2. sveit Ægis, 1: 56,9 mín. og 3.
B-sveit. Ármanns 1:59,7 mín.
Auk keppninnar var sund-
sýning og enn fremur var sýnd
ur sundballett undir stjórn
Dolly Hermannsson.
Handknattleikui-
Sjö spennandi
lefldr í kvöM.
í kvöld fara sjö spennandi
leikir fram í handknattleiks-
meistaramótinu að Hálogalandi.
í þriðja fl. karla B keppir
f.R. við Fram, í meistaraflokki
kvenna keppir Valur við K.R.,
Þróttur við Fram og Ármann
við F.H.
í 2. flokki karla A-riðli
líeppir Ármann við Þrótt og
Valur við K.R. og í B-riðli sama
fíokks keppir Fram við Hauka.
Búist er við mjög tvísýnni
keppni í flestum þessum leik-
um. . !