Vísir - 30.04.1954, Blaðsíða 7

Vísir - 30.04.1954, Blaðsíða 7
Tarzan gramdist að hafa misst hnífinn góða og boga sinn, sem hafði brotnað. Hann greikkaði þvi sporið, þar til hann kom að á, því að þar var helzt manna að vænta. Hann þurfti að hitta fyrir ein- hverja menn, sem höfðu vopn, sem hann gæti fengið. Fyrst tók hann sér fyrir hendur að gera sér reipi úr viðartágum og var það fljótgert. Þjáningarsvipur kom á andlit Trinu. „Þú getur verið viss um, að eg ligg kyrr, svo framarlega sem hann lætur mig í friði. Eg vii, að þetta bam, sem eg veit að er drengur, hljóti nafnið Gustavus, eftir afa mínum, hinum mikla hershöfðingja. Einhvern tíma mun hann minna þetta svín, hann Frydendahl á, að sá hlær bezt, sem síðast hlær.“ Pétur fór nú að horfa í kringum sig og veitti því athygli, að í herberginu var ekki neitt nema rúmið, borð og stóll. Glugg- iim var með rimlum fyrir og svo lítill, að lítið loft komst inn. Þetta var í rauninni fangelsi, — hann var pestarherbergið í kast- alanum, en þangað voru þeir fluttir, sem tekið höfðu pestina, til þess að deyja. Pestina, eða holdsveiki eða annað verra. — Blökkukonan svaf á fleti á gólfinu, að því er virtist. Ekkert virtist vera gert til að hlynna að Trinu eða hjúkra, — og drykkjarvatnið, sem henni var ætlað, var fúlt rigningarvatn. Þegar Pétur hafði gefið konunni, sem hann elskaði, svefnlyf, sat hann langa stund á rúmstokknum og strauk hendur hennar, og meðan hún var að sofna sagði hann henni, að hann ætlaði sér að fara burt með hana frá Armaberg eftir tvo daga. Mundi Mamma Bellóna vita um nokkurn helli, þar sem þau gætu falizt um tíma? Mamma Bellóna var lengi hugsi og kinkað loks kolli. „Mamma Bellóna þekkir vel St. Jan og allar nálægar evjar,“ sagði Trina syfjulega. „Ætlarðu í raun og veru að bjarga mér héðan, Pétur minn?“ „Eg vona til guðs, að mér auðnist það. Það sem mikilvægast er, er að þú reynir að hvíla þig og safnir kröftum.“ Og svo bætti hann við eftir nokkra þögn: „Hann getur ekki staðið á fætur fyrr en eftir 2—3 daga. Eg held, að eg hafi skotið honum skelk í bringu, svo að hann þori ekki að óhlýðnast fyrifskipunum mínum.“ Og meðan Pétur sat þarnn í dimmunni talaði hann eins og flóttinn væri í rauninni þegar ákveðinn. „Heldurðu, að þú hafir þrek íil þess að gahga til strandar — það er hálf míla.“ En nú luktust aftur augu Trinu og er hann horiði á haná nú engilfagra í svefninum, fannst honum, þrátt fyrir umhverfið, að það væri draumsýn, er hann liti augum. Og þá fyi'st, ei hún var sofnuð værum svefni, reis hann á fætur. Allan þann tíma hafði Mamma Bellóna setið á þrífætta stólnum og róið fram í gráðið. Varir hennar hreyfðust, en ekkert hijóð barst frá vörum hennar. „Þú kemur, ef húsmóðir þín þarf á mér að halda. Án tafar. Láttu engan stöðva þig. Skilurðu það?“ „Já, herra, eg koma. Enginn þjónn stöðva Mömmu Bellónu Hún er Obeaha — kvenprestur — þeir hræddir.“ „Gott og vel. Eg kem bráðum.“ Pétur lagði nú leið sína inn í borðsalinn og náði þar í fugla- steik og ávexti og flösku með Madeira og fór með þetta inn í pestarklefann. Þegar þangað kom virti hann Mömmu Bellónu vel fyrir sér og datt nú allt í einu í hug, að hún mundi oft hafa hjálpað konu í bamsnauð, enda var það svo. „Ef fæðingarhríðir byrja verðið þér að kalla á mig' þegai',“ sagði hann. „Já, herra, en —• ef þrællinn kemur?“ „Það er öllu óhætt í bili — og ef til kæmi, að hann birtist skal eg annast hann,“ Þegar hann stundu síðar lá í rúmi sínu og virti fyrir sér stjörnur himinsins fæddust mörg áform í huga hans, en hann komst jaSnharðan að þeirri niðurstöðu, að þau voru ófram- kvæmanleg. Hann hugsaði eitthváð á þá leið, að ef hánn hefði nægan tíma væri heppilegast að fara kringum eyna og komast til Cor- alvíkur og leita hælis í einhverju hlutlausú skipi i Coralhaven, en galdurinn yrði vitanlega sá, að finna skip á norðurleið, sem væri í þann veginn að láta úr höfn. Til þess að fá upplýsingar um þetta yrði hann að spyrjast fyrir og Stephén Frydendahl var voldugri en svo á eynni, að þetta væri öruggt. En því lengur sem hann hugsaði málið því betur sannfærð- ist hann um, að öruggast væri að flýja innan tveggja sólar- hringa, eða meðan hann gat verið nokkurn veginn öruggur um, að Frydendahl lægi rúmfastur. Gustavus Varsa. Síðdegis á þriðja degi eftir uppskurðinn hafði Pétur komizt að niðurstöðu um margt viðkomandi hinum fyrirhugaða flótta, en hann gerði sér Ijóst, að hann yrði að haga seglum eftir vindi. Hann vissi um fiskibát, sem hentaði vel til flóttans, en hann lá títt fyrir festum og ávallt á sama stað. Þetta virtist traustur bátur, með seglum, sem voru auðveld í meðförum. Margan sumardag hafði hann siglt svipuðum bátum við strendur Nýja Englands. Pétur var á gangi í skugga trjáa, þegar hann var að hugsa um þetta. Sólin var að hníga til viðar. Það var svo heitt og mollulegt, að hann var að hugsa um að varpa af sér klæðum, er hann heyrði að hlaupið var léttum skrefum 1 áttina til hans. Þegar hlauparinn, lítill blökkudrengur, sá til hans nam hann staðar, reyndi að kasta mæðinni og sagði svo: „Baas, Baas, Mamma Bellóna segja koma strax.“ Pétur beið ekki boðanna. Hann lagði þegar af stað og hljóp heim að Annabergi sem fætur toguðu. Þegar inn var komið sá hann þegar að stúlka, óttaslegin á svip, var að hella heitu vatni í koparpott, og er hann leit inn í herbergi Trinu sá hann þegar, að hann hafði komið of seint. Blóðblettir voru á öllu, jafnvel gólfi og veggjum, og á óhreinum koddaræfli lá eitthvað ir.nvafið í tuskur. Pétur ýtti gömlu konunni til hliðar og vatt sér að Trinu, þar sem hún lá stynjandi. Hann varð því sárfeginn er hann fann, að æðaslátturinn var sterkari c-g jafnari en hann hafði þorað að gera sér vonir um. Og hann gat ekki orðið annars var en að Trina væri í engri hættu, en að vísu hafði hann enga reynslu við að hjálpa sængurkonum, að heitið gæti. Augu hennar opnuðust hægt, ,.Ó, Pétur, Pétur!“ Hún nefndi nafn hans svo veikum rómi, að hann heyrði það vart. En er hann kyssti hana kom veikt bros fram á varir heimi. „Allt fer vel, allt fer vel, sannaðu til. Og nú skaltu hugsa um það eitt að hvíla þig,“ sagði hann. Hún taútaði eitthvað á dönsku. „Hún vill sjá barnið,“ sagði Mamma Bellóna. „Barnið drengur,“ bætti hún svo við eftír litla þögn. Það virtist næstum furðulegt, að nokkur líftóra skyldi vera i barnunganum. Pétur lyfti honum upp og bar hann til Trinu, sem leit á hann sem snöggvast og sagði: „Gustavus — Gustavus Varsaa — eg er ánægð.“ Og svo sofnaði hún værum svefni, sem Pétur gerði enga til- raun til þess að vekja hana af. Pétur hristi höfuðið og rétti Mömmu Bellónu barnið. í þessu loftslagi var ekki líklegt, að barnauminginn mundi lifa lengi. Fjögur af hverjum fimm börnum hvítra manna gátu átt von á að lifa. Og fyrir barn, sem fæddist fyrir tímann og var veik- burða sem þetta, gat ekki verið um neina von að ræða. Samt HMBVB1 hmrtf£MS444fM 6az& .. Fermingárbörn í Bústaðaprestakalli fermd í Fossvogskirkju sunnudaginn 2. maí kl. 2 af síra Gunnari Árna- syni. Ðrengir: Erlingur Þór Þor- steinsson, Borgarholtsbraut 56 B, Kópavogi. Guðfinnur Ingi Hannesson, Háveg 7, Kópavogi, Sturla Snorrason, Kársnes- braut 20 B^ Kópavogi, Gautur Gunnarsson, Þingholtsbraut 59, Kópavogi. Jóhann Gunnar Ásgeirsson, Kársnesbraut 33, Kópavogi, Arthur Ólafsson, Hliðarvegi 23, Kópavogi, Geir Hauksson, Skjólbraut 15, Kópa- vogi. Ólafur E. Eggerts, Kárs- nesbraut 441, Kópavogi. Frið- björn H. Guðmundsson, Digra- nesveg 30, Kópavogi, Sigurður E. Þorkelsson, Borgarholtsbraut 9, Kópavogi. Sigurður Kristinn Haraldsson, Skjólbraut 9, Kópa vogi. Sigurður E. Þorkelsson, Borgarholtsbraut 20, Kópavogi. Wolfgang Assmann, Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi. Theodor E. Magnússon, Bústaðahverfi 5. Stúlkur: Ásthildur J. Sig- urðardóttir, Kársnesbraut 5, Kópavogi. Guðrún Finnboga- dóttir, Marbakka, Kópavogi. Gróa Jónatansdóttir, Fífu- hvammsvegi 45, Kópavogi. Jó- hanna Gísladóttir, Melgerði 7, Kópavogi. Ragna Freyja Karls- dóttir, Hófgerði 14, Kópavogi. Hrönn Árnadóttir, Hólmgaxði 17. Edda Óskarsdóttir, Hvamms gerði 2. Guðbjörg G. Bjarna- dóttir,, Hólmgarði 52. Helga S. Þorsteinsdóttir, Gilhaga, Blesa- gróf. Steingerður Halldórsdótt- ir, Melbæ við Sogaveg. Anna Bjarnason, Fossvogsbletti 5. Brynhildur Sigurðardóttir, Fagradal, Sogamýri. Sigrid Dyrset, Hólmgarði 28. Ingibjörg Gilsdóttir, Hólmgarði 29. Sig- rún S. Jónsdóttir, Hólmgarði 31. Edda Á. Baldursdóttir, Hæðargarði 44. Vigdís G. Guð- mundsdóttir, Bústaðaveg 8. Guðrún Lárusdóttir, Lækjar- túni við Breiðholtsveg. Helga Sveinsdóttir, Seljalandsveg 15. Kristniboðsfélag kvenna hefur kaffisölu 1. maí kl. 3 í kristniboðshúsinu Betanía við Laufásvég til ágóða fyrir kristniboðið. Geta bæjarbúar þannig styrkt gott málefni um leið og þeir njóta ágætra veit- inga í. miðdegis-kaffitímanum. Hátíðisdagur Henriettu heitir ný kvikmynd, sem Nýja-bíó er að hefja sýningar á. Myndin gerist í París, og eru aðalhlutverkin leikin af Dany Robin. Michel Roux, Michel Auclair. Hildegerde Neff og Paulette Dubost. mz Föstudaginn 30. apríl 1954 VISIB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.