Vísir - 03.06.1954, Síða 5
I'immtudaginn 3. júní 1954
VlSIB
Athugasexndir við greinargerð
viðskiptamálaráðuneytisins.
! í Vísi þ. 26. maí birtist grein-' vel komnar til landsins) áður
Brgerð frá viðskiptamálaráðu- j en breytingin var gerð, þá eiga
neytinu sem athugasemd við þær að endursendast, sam-
'grein mma í blaðinu 22. maí,
Með því að ýmislegt í greinar-
'gerðinni bendir til þess, að í
grein minni hafi staðið annað
jog meira en þar raunverulega
stóð, vildi eg gera m. a. nokkr-
ar athugasemdir við greinar-
gerðina.
; Tvær fyrstu málsgreinarnar
eru inngangur lesandanum til
skýringar. Svo kemur: „f Vísi
22. maí birtist annað bréf o. s.
frv. — Viðurkennir bréfritar-
inn, að innflutningur á nylon-
sokkum hafi ekki verið bann-
aður o. s. frv.“ Þetta mætti í
fljótu bragði skiljast svo að eg
hefði haldið fram algeru banni
'(eins og stóð í grein kaupsýslu-
znanns), en svo var ekki.
Þessu næst kemur aðal-
athugasemdin, það er um „hor-
tittinn“ í 2. tölulið í fyrr-um-
ræddri auglýsingu Fjárhags-
ráðs, og segir greinarhöf.: „En
þessa reglu, sem tíðkazt hefur í
3 ár, telur bréfritarinn vera“ —
„einhver mesti hortittur, sem
komið hefur fyrir í reglugerð-
um eða ákvæðum um innflutn-
ing á erlendum vörum“. Svo
bætir hann við: „Um þetta eru
áreiðanlega skiptar skoðanir
meðal kaupsýslumanna, og
kann það að ráða nokkru, hvort
þeir eiga eða eiga ekki B-skír-
teini, þegar breytingar eru
gerðar.“ Hvort þetta hefur
tíðkazt í 3 ár, eða hvort kaup-
sýslumenn líta á það eftir því,
hvort þeir eiga B-skírteini eða
ekki, breytir engu um eðli
greinarinnar, hún er og verður
sami hortitturinn eftir sem áð-
ur. Og.eg vil bæta því við, að
hún gerir um all-langan tíma
að engu þær ráðstafanir, sem
hér er verið að gera. Því eng-
inn þarf að láta sér detta í hug,
að hægt sé að kaupa umræddar
vörur frá jafnvirðiskaupalönd-
unum á meðan markaðurinn er
fullur af „þekktum merkjum“
frá Ameríku og Bretlandi.
Þessu næst kemur þunga-
miðja þessa máls: „Sjónarmið
ráðuneytisins hefur ætíð verið,
að breytingar þær á innflutn-
ingsreglum, sem talið er nauð-
synlegt að gej-a á hverjum tíma,
trufli sem minnst eðlileg við-
skipti og verði ekki til að. skapa
innflytjendum óþægindi í sam-
bandi við viðskiptaskuldbind-
ingar, sem þeir voru búnir að
gera í góðri trú og samkvæmt
þeim reglum, sem giltu áður en
breytingarnar voru gerðar".
Þetta er ágæt ýfirlýs'’^, og vil
eg ekki véfengja rð þetta _s_é
sjónarmið ráðúriéytisins; en þá
ei'um við líka nákvæmíega
sammála, því þetta er hið eina
rétta sjónarmið í þessum efn-
um. En eg vil bæta því við, að
sjónarmið þetta er alls ekki
hliðstætt greininni, sem eg kalla
„mesti hortittur etc.“. Greinin
veitir rétt til innflutningsins,
aðeins gegn þegar keyptum
leyfum, án tímatakmarks, jafnt
hvort ráðstafanir hafa verið
gerðar til innkaupa eða eklti.
En ef einhver hefur aftur á
móti pantað vörur, án þess að
hafa keypt leyfi (og þær jafn-
kvæmt öðrum ákvæðum, á-
k v æ ð u m, sem enginn hefur
tekið „notis“ af. En þettar að
afturkalla gerðar pantanir eða
endursenda vörur, hlýtur að
„trufla eðlileg viðskipti og
skapa óþægindi í sambandi við
viðskiptaskuldbindingar“.
Aðdróttanir þær, sem grein-
arhöf. talar um og mótmælir j
voru aðeins til „vara“, því í
grein minni stendur: „Eg geri
ráð fyrir því, að ætlast hafi
verið til, að vörur þær, sem j
upp eru taldar í auglýsingu.
þessari, yrðu e k k i fluttar inn,
eftir birtingu auglýsingarinnar,
nema samkvæmt þegar gerðum
pöntunum eða öðrum e ð 1 i-
legum ráðstöfunum til pant-
ana. En sé þessi tilgáta mín
ekki rétt o. s. frv.“ Þá kemur
hin tilgátan (þ. e. aðdróttanir)
til vara. — Enn segir: „Það má
að sjálfsögðu segja, að rétt hefði
verið, að gömul B-skírteini
hefði aðeins mátt nota til inn-
flutnings á nylon-sokkum, sem
búið var að panta fyrir breyt-
inguna.“ Hér virðist vera smá-
misskilningur á grein minni,
því þar stendur: „Þá hefðu á-
kvæði um undanþágu að sjálf-
sögðu eingöngu . átt að miðast
við þegar gerðar pantanir,“ NB.
án tillits til leyfa, þ. e. að taka
aðeins það raunhæfa til greina.
Ef greinin, 2. tölul., hefði verið
samkvæmt þessu og þá um leið
samkv. yfirlýstu sjónarmiði
viðskiptamálaráðuneytisins, þá
hefðu þessi skrif sparazt fyrir
báða aðila. Eg vil bæta hér við,
að panta frílistavörur eða alm.
leyfisvörur án greiðsluheim-
ildar er allt annað en að panta
bátagjaldeyrisvörur, þar sem
61% af andvirði vörunnar er
greitt fyrir leyfið eitt.
Skýrslan sýnir því miður
ekki innflutning á síðustu 9
mán. ársins 1953, en hún vottar
samt, að nú fyrst eftir meira
en ár er reglugerðin að ná til
gangi sínum, og er það eingöngu
fy.rir gatið í 2. tölulið. — Eg
minnist ekkert á, að reglur hafi
verið brotnar, heldur að leyfi
hafi verið keypt fyrir 10. febr.
1953, leyfi útgefin fyrir breyt-
inguna, sem upphaflega hafi
verið keypt með annan inn-
flutning fyrir augum. Ekki
heldur að leyfi hefðu verid
ranglega dagsett. Stundum
hefir þetta með ranga dagsetn-
ingu verið sagt við mig, en eg
hefi svarað því neitandi á sama
hátt og ráðuneytið gerir.
Leiðrétting: Eg gat þess til í
grein minni, að einn aðalinn-
flytjandinn mundi ekki hafa
flutt nylonsokka inn áður, en nú
veit eg með vissu.að tilgátaþessi
var ekki rétt. Ekki mun hann
heldur á umræddu tímabili
hafa flutt inn nálægt því eins
mikið og margir vilja vera láta.
Var þetta að vísu ekki ásökun
til þessa innflytjanda (S. E.),
heldur tekið sem dæmi, sem
sýndi hvernig hægt var að fara
í kringum greinina (2. tölul.)
og með „vissan innflutning fyr-
ir augum“. Þykir mér leitt, að l
þetta skyldi hafa komið fyrir
og vil eg nota tækifærið til leið
réttingar.
29. maí 1954.
Jón St. Amórsson.
Nýjar íslenzkar
hijdmplötur.
Nýlega komu á markaðinn
plötur sungnar af Karlakór
Reykjavíkur, sem voru teknar
upp í Mílanó í söngför kórsins ó
síðasta ári.
Guðmundur Jónsson syngur
einsöng í m. a. „Agnus Dei“.
Einnig hafa komið nýjar plötur
sungnar af Hauk Morthens með
„His Master’s Voice“ merkinu
og söng hann inn á þær plöt-
ur fyrir Fálkann h.f.
Þetta eru sex lög með íslenzk
um texta, þar af eru þrjú ís-
lenzk, eitt er hið vinsæla gamla
lag „Hvar ertu vina“. í Kaup-
mannahöfn söng hann inn á sex
plötur með aðstoð tríós J. Grav
engaard.
Landsmót í brldge.
Landsmót í bridge verður
haldið um hvítasunnuna á Siglu
firði.
Sex sveitir taka þátt í mót-
inu, 2 frá Siglufirði, 1 frá Ak-
ureyri, 1 frá Húsavík og tvær
frá Reykjavík. Önnur sveitin
sem fer frá Reykjavík er sveit
Harðar Þórðarsonar, sem er nú-
verandi íslandsmeistari.
Þetta er í annað sinn, sem
landsmót í bridge er haldið úti
á landi, það var haldið á Akur-
eyri 1951, en annars hefur það
ætíð verið haldið í Reykjavík.
Ný sending
Verð frá kr. 95,00.
Aðalstræti.
Ný gerð rjómaíss
a dotinni.
Ný sælgætisgerð hér í bæn-
um, sem ngfnir sig Sælgætis-
gerðina Rauðhettu, hefur sótt
um leyfi tii heilbrigðisnefndar
Reykjavíkurbæjar til þess að
framleiða nýja tegund af sæl-
gæti.
Þarna er um að ræða svo
kallaða ,,íspinna“, sem er al-
gengt sælgæti erleridis en hef-
ur ekki verið frameitt hér á
landi til þessa. Þetta er hrað-
frystur stangarís í aluminium-
pappír, og þarf sérstakar vélar
eða áhöld til framleiðslu hans.
Heilbrigðisnefndin tók þetta
mál til meðferðar á fundi þ.ann
1. maí s.l. og sariibykkti nefnd-
in að veita bráðabirgðaleyfi til
framleiðslunnar með skilyrðum,
sem borgarlæknir setur. (
Tjöld
Sólskýli
Vindsængur
Bakpokar
Svefnpokar
Ferðaprímusar
Spritttöflur
Allt til ferðalaga.
„ (jeyóir
V eiðarf æradeildin
JBuick — bíitaeki
til sölu. Upplýsingar í
síma 4037 kl. 3—7 í
dag.
ALM. FASTEIGNASALAN
Lánastarfsemi. Verðbréfa-
kaup. Austurstræti 12,
sími 7324.,
h
Það bezta verður ódýrast,
notið því
BOSCH
í mótorinn.
Hjólbarðar og
slöngur
Fyrir fólksbíla:
670X15
700X15
760X15
500X16
525X16
600X16
600X16 (jeep)
650X16
700X16
750X16
Fyrir vörubíla:
900X16
700X20
750X20
825X20
900X20
Fýrir traktora:
500X16
800X24
900X24
Birgðir mjög takmarkaðar.
Pantanir óskast sóttar strax.
Storesefni
140—160—170 og 195 cm.
hátt.
Regnkápuefni, grænt, mjög
fallegt.
H. Toft
Skólavörðustíg 8. Sími 1035.
Kristján Guðlaugsson,
hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutími 10—12 og
1—5. Austurstræti 1,
Sími 3400.
Enskar
(Ju mat'liafy tir
fyrir hvítasunnuna.
Sími 5982.
hressir
kcéfír 1
SœtycÉtisgíerdinf^
Sími 82550.
Til
Hvátasunmmar
Manchettskyrtur
Sportskyrtur
Sporthattar
Nærföt
Sokkar
Nylon gaberdineskyrtur
Sporthúfur allsk.
Sportblússur
Náttföt
Hálsbindi
Ferðatöskur allsk.
Gaherdinerykfrakkar
Vandað og smekklegt
úrval
»
Fatádeildin