Vísir - 14.06.1954, Qupperneq 8
VfSXR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í s»'ma 1650 ®g
gerist áskrifendur.
nmpð /jpaa OHpcnMb
VISXIi
Mánudaginn 14. júní 1954
Þei? sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. bvers mánaðar fá blaðið ókeypis tll
mánaðamóta. — Sími 1660.
Uggvænlegri horfiir
eftir fall Laniels.
Eden ráðiagt að hverfa heim.
Mendes-France £alin síjórnar-
mviealiiai, í Frakklandi.
Einkaskeyti frá AP. — London í morgun.
Eftir fall frönsku stjórnarinnar eru horfurnar um sam-
komulag varðandi Indódína taldar óvænlegri og telja merk
brezk blöð, að ef fyrirhugaðar viðræður Edens og Molotovs í,
dag beri ekki árangur, sé ráðstefnan raunverulega farin út um
þúfur, og eitt blaðanna ráðleggur Eden að hverfa heim.
Róttæka leiðtöganum Mend-
es-France hefur verið falið að
gera tilraun til stjórnarmynd-
unar í Frakklandi.
Fáll Laniels.
Þegar gengið var til atkvæða
á laugardag um tillögu Laniels,
að hafnað yrði tillögum, sem
fólu í sér vantraust á stjórn-
ina, urðu úrslit þau, að 306
greiddu atkvæði móti Laniel,
en 293 með, bauðst hann þá t'il
þess að biðjast lausnar, en ekki
var kunnugt fyrr en seint í
gærkvöldi, hvaða afstöðu Coty
ríkisforseti mundi taka. Hann
hóf þegar viðræður við leiðtoga
flokkanna, en ýmsir ætluðu, að
hann hugleiddi einnig að hafna
lausnarbeiðninni. — Sú varð
reyndin, að hánn féllst á hana
formlega og fól róttæka leið-
toganum Mendes-France að
gera tilraun til stjórnarmynd-
unar, eftir að þeir höfðu setið
á tveggja klukkustunda við-
ræðufundi. — Svar Mendes-
France er væntanlegt í dag.
Þessi stjórnmálamaður hefur
eitt sinn áður gert tilraun til
stjórnarmyndunar. Það var í
stjórnarkreppunni í fyrra, en
hann skorti 13 atkvæði er til
atkvæða kom uih traúst til hans
í fulltrúadeildinni.
Öngþveitið í Frakklandi
og horfurnar.
Brezkum blöðum verður tíð-
rætt um horfurnar í morgun.
Times télur helzta bjargráðið
nú, ef sömu flokkar og áður
gerðu með sér samkomulag við
nýja forystu um skjóta stjórn-
ármyndttn-. Mjög ér rætt um
suhdrungina í landinu og óein-
ingu um mikilvæg mál í flokk-
unum innbyrðis, flestir flokk-
arnir séu til dæmis klofnir og
margklofnir um endurvígbún-
að Þýzkalands- og Evrópuvarn
arsáttmálann.
Times segir, að aðeins ný
stefna réttlæti nýja stjórn, en
úr því sem komið sé, muní bezt
að hraða stjórnarmyndun sem
unnt er. Annars sé ástandið á
þingi spegilmynd af ástandinu
milli flokkanna, og rætur sundr
ungarinnar liggi allt til valda-
tíma Hitlers og síðari heims-
styrjaldar, og franska þjóðín
verði að gera sér ljóst, að allt
sé breytt í heiminum frá 1939
— hún verði að horfast í augu
við staðreyndirnar. Hin tíðu
stjórna(rskipti séu í rauninni
ekki annað en flóttatilraunir
til þess að losna við ábyrgð.
Daily Telegraph segir, að svo
megi heita, að svo horfi sem
öll bönd muni bresta í Frakk-
landi. Manchester Guardian
segir, að það þyrfti að skipta
bæði um menn og stefnur.
Eden ráðlagt að
fara heim.
News Chronicle telur, að fall
frönsku stjórharinnar sé mikið
áfall fyrir Vesturveldin með
tilliti til málanna í Genf og þau
eigi ekki annars úrkosta en að
bíða eftir að ný stjórn verði
mynduð í . Frakklandi. Daily
Express telur ráðstefnuna raun
verulega hafa farið út um þúf-
ur og það sé ekki samboðið
virðingu Edens að taka lengur
þátt í hinu gagnslausa þófi í
Genf, og koma heim.
í Mos-
feiissókn.
Prestskosning fór fram í
Mosfellssókn ■' gær. Kjörsókn
var yfirleitt mjög góð. Kosið
var á tveim stöðum, að Hlé-
garði fyrir Lágafellssókn og
Brauíarholtskirkju fyrir Braut-
arholtssókn.
í Lágafellssókn lauk kjör-
fundi kl. 11,10 e.h. og höfðu
þá kosið 77V2% en 588 manns
eru á kjörskrá.
Til Brautarholtssóknar telj —
ast 57 manns og af þeim kusu
84%. Kjörfundi lauk þar kl.
8 síðdegis.
Umsækjendur voru sex: Arni
Pálsson cand. theol. Bjarni Sig-
urðsson cand. theol. Sr. Bragi
Frlðriksson, Sr. Kristinn Hós-
easson, Sr. Sigurður Einarsson
og Sigurður Haukur Guðjóns-
son cand. theol.
Talning atkvæða fer að öll-
um líkindum fram n.k. föstu-
dag í skrifstofu biskups.
Nýtt íslandsmet í 4x200
m skriðsundi í gær.
l*öftur árangur í snndmeistaramoti
íslands u 111 helgina.
Á sundmeistaramóti íslands,
sem fram fór í Ólafsfirði í gær
og fyrradag, var sett landsveit-
armet í 4x200 m skriðsundi
karla.
Það var sveit Sundráðs Rvík-
ur, sem setti metið, á 9:49.8
mín, en gamla metið átti sveit
Ægis á 10:04.4 mín.
Sundmótið hófst á laugardag
inn og þá urðu úrslit sem nér
segir:
100 m skriðsund drengja. ís-
landsmeistari Helgi Hannesson
Í.A. 1:06.0 mín.
200 m bringusund kvenna.
íslandsmeistari Inga Árnadóttir
Kf. K. 3:24.4 mín.
100 m bringusund drengja.
íslandsméistari Magnús Guð-
mundsson Kf. K. 1:22.7 mín.
100 m skriðsund karla. ís-
landsmeistari Pétur Kristjáns-
son SRR 1:01.0 mín.
400 m bringusund karla, ís-
landsmeistari Magnús Guðm.ss.
Kf. K. 6:19.0 mín.
50 m bringusund telpna. ís-
landsmeistari Inga Árnadóttir
Kf K 43.4 sek.
4x100 m fjórsund. íslands-
meistari sveit Sundráðs Rvíkur
1:14.2 mín.
í gær urðu úrslit þessi:
400 m skriðsund karla. ís-
landsmeistari Helgi Sigurðsson
SRR 1:10.5 mín.
100 m baksund karla. íslands
meistari Jón Helgas. ÍA 1:16.6
. 100 m skriðsund kvenna, ís-
landsmeistari Inga Árnadóttir
Kf. K. 1:16.5. 200 m. bringu-
SUnd karla, íslá'hdsm'éistári
Magnús Guðmundsson Kf. K,
2:58.1 mín.
100 m flugsund karla. íslands-
meistari Pétur Kristjánss. SRR
1:19.9 mín.
100 m baksund drengja. ís-
landsmeistari Sigurður Friðriks
son Kf K 1:21.5 mín.
3x50 m skriðsund kvenna. ís-
landsmeistari sveit SRR 2:04.6
mín.
í sambandi við þessa keppni
gáfu Ólafsfirðingar forkunnar
fagran bikan fyrir bezta afrek
mótsins, samkvæmt sænsku
stigatoflunni. Bikar þenna
hlaut Pétur Kristjánsson fyrir
100 metra skriðsundið, sera
gefur 1000 stig.
Mjög var rómuð gestrisni Ó1
afsfirðinga og móttökur þeirra
allar.
f kvöld fara Reykvíkingar
til Akureyrar og efna þar sund
keppni í kvöld.
í íyrradag fóru héðan tveir kórar loftleiðis til Norðurlanda
sama daginn, og er það í sjálfu sér í frásögur færandi. Kl. 9
um morguninn lagði Barnakór Akureyrar af stað til Noregs
með Gullfaxa (efri myndin), og kl. 5 síðdegis frá Samkór
Reykjavíkur af stað með Eddu (neðri myndin) til Finnlands.
Ljósm.: P. Thomscn.
Varpaði sér ilt um
glugga og fótbrotnaði.
Ekið inn í kjallara á húsi.
Mestu loftvarna-
æfingamar.
Einkaskeyti frá AP. —
New York í morgun.
I dag fer fram mesta loft-
varnaæfing til þessa í borgum
Norður-Ameríku gegn kjarn-
orkuárásum.
Við æfingarnar er gert ráð
fyrir, að 400 sprengjuflugvélar
fljúgi inn yfir stærs-tu borgir
Kanada og Bandaríkjanna. —
Gefin verða merki um yfirvof-
andi árás. Verður þá fyrirskip-
að, að vinna skuli stöðvuð, og
fólki leiðbeint til loftvarna-
byrgja o. s. frv.
® Túniskir útlagar dráþu
s.1. láugardag franskan iand
nema og hieyptu upp kosn-
ingafundi í smábæ nokkrum.
Kom 40 manha hópur ríð-
andí og þeysti burt eftir að
hafa hleypt öllu í uppþot.
Mikið bar á ölvun og ölvun-
arlátum hér í bænum um helg-
ina og að minnsta kosti tvö
slys orsökuðúst af hénnar völd-
um.
Aúnað slysið varð aðfaranótt
laugardagsins, er ölvaður mað-
ur datt á húsatröppum og
skarst við það á vör og braut
í sér tennur. Hann var fluttur
til læknis þar sem gert var að
sárum hans, en að því búnu
var hann fluttur heim til sín.
Hitt slysið varð síðdegis a
laugardag er ölvaður maður
fleygði sér út um glugga á 2.
hæð húss nokkurs hér í bæn-
um og iótbráut sig. Hann var
fluttur á sjúkrahús.
Einn maður var tekinn fyrir
ölvun við akstur.
Fléygði flöskum
ut rnn' gíugga.
Á láugardagskvöldið var
flöskum ' astað út um glugga
og fíiðu - á gángstétt við fjöl-
farna götu í Miðbænum. Var
flöskunum kastað út af efri
hæð hússins og hreinasta mildi
að ek'ki hlauzt slys af. Lög-
reglan handsamaði tvo pilta,
sem grunáðir voru um að liafa
gert þetta.
Tilraun tíl innbrots.
Á laugardagskvöldið var tíl-
raun gerð til þess að brjótast
inn í Golfskálann með því að
brjóta rúðvi í útidyrahurð. En
það sást til mannsins og éi
hann varð þess var, lagði hann
á flótta og komst undan, en
hann' mun hafa þekkst.
Önnur tilraun til innbrots
var í'ramin i veitingáhús hér í
bænum í nótt, en hún mis-
tókst.
Slys.
Á laugardagskvöld datt
drengur af reiðhjóli á Lang-
holtsvegi og mun hafa fengið
heilahristing og eitthvað
skrámast. Hann var fluttur í
sjúkrabifreið á Landspítalann.
Ók inn í hús.
í gærmorgun var lögreglunm
tilkynnt að bifreið hafi verið
stolið af bifreiðastæði Þrottar
við Rauðarárstíg. Þessum bíl
hafði síðán verið ekið inn í
kjallarann á Sjóklæðagerð-
inni sem er þar á næstu grös-
um. Hafði fyrst verið ekið á
kjallarahurðina og hún brot-
in, en síðan haldið áfram og
ekki staðnæmst fyrr en við
vegginn hinumegin. Þar stóð
biíreiðin þegar að var komið,
en furðu lítið skemmd.
© Júgóslavar hafa lagt hald
á 3 ítölsk smáskip vegna
stórfelldrav smygltilraunar í
grennd við Pola.---f öllum
skipimum fundust miklar
birgðir af brezkum og banda
rískum sígarettum.