Vísir - 22.07.1954, Side 8
VISIB er ódýrasía blaðið eg þé þaB fjöl-
knyttuta. — Hringið í ifma 1SI8 eg
gerist áskrifendnr.
VISl R
Þefe sem gerast kaupendur VtSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypls tfl
mánaðamóta. — Simi ÍIM.
Fimmtudaginn 22. júli 1954.
Miklar byggingafram-
kvæmdir í bænum.
FjöEmörg hús, bæði stor og smá, í smíðum
í öllum bæjarhverfum.
Byggingaframkvæmdir eru
óvenjulega miklar í bænum í
sumar.
Hvar sem farið er um bæiim
að kálla getur að líta ný hús í
smíðum, í miðbænum t. d. síma-
húsið nýja, í austurbænum má
nefna hinar miklu fram-
kvæmdir á Landspítalalóðinni,
þar sem hjúkrunarkvennaskól-
inn er. í smíðum og hafizt hefur
verið handa um stækkun Land-
sþítalans, svo að eitthvað sé
néfnt af stórhýsunum, en einn-
ig eru fjölbýlishús í smíðum,
stór og smá, hingað og þangað
um bæinn. Þá er unnið kapp-
samlega í smáíbúðahverfunum,
þar sem tugir húsa hafa eins
og sprottið úr jörð á skömm-
um tíma.
Bærinn er í örum vexti og
vart sá bæjarhluti, sem ekki er
að breyta um svip vegna ný-
bygginga. Jafnframt er allvíða
unnið að stækkun húsa. Enn-
fremur hefir verið hafinn und-
irbúningur að viðgerð og mál-
un margra húsa, en veðráttan
mun hafa tafið nokkuð fram-
kvæmdir af því tagi. Gagnger
viðgerð hefir t. d. farið fram á
þaki Safnahússins. Þá eru hús
í smíðum, sem munu setja sinn
sVip við hina gömlu, alkunnu
götu, Laugaveginn, m. a. hið
mikla hús, sem Kristján Sig-
geirsson er að reisa, en það
n*un verða komið undir þak í
sumar eða haust. Það verður
eins hátt og hús eru hæst leyfð
við Laugaveg, eða fjórar hæðir
og efsta hæðin inndregin.
Laugavegur 13.
Hús Kristjáns Siggeirssonar
verður stórhýsi, þegar þessum
framkvæmdum er lokið. Þær
hófust í fyrrahaust með flutn-
ingi timburhússins á horni
Smiðjustígs og Laugavegar, en
það reisti Siggeir heitinn Torfa-
son 1902, og var það flutt inn
í Kleppsholt. Hefur svo verið
unnið að nýja húsinu í allan
vetur og er nú verið að slá upp
mótum fyrir fjórðu hæðina, en
gamla steinhúsið Laugavegur
13, er samtímis hækkað, og
verður jafnhátt nýja húsinu.
Nýbyggingin, að meðtalinrii
hæðinni, sem bætt verður ofan
á gamla húsið verður 4470 rúm
metrar.
Á grunnhæð ailrar. bygging-
arinnar vérða áfgreiðslu- og
sýmrigarsalir Húsgagnaverzl-
ur.£: Kristjáns Siggeirssonar. á
annari hæð skrifstofur fyrir-
tækisins, en efri hæðir leigðar
út fyrir skrifstofur.
Samtímis er Tryggvi Sig-
geirsson að stækka hús sitt við
Smiðjustíg, og verður það áfast
nýja húsinu á Laugavegi 13.
Laugavegur 18 A.
Annað stórhýsi mun rísa
ofar við Laugaveginn. Það er
verzlunarhús, sem Verzl. Li-
verpool reisir á Laugavegi 18A,
Myndin hér að ofan er af
Maríu Lagarde söngkonu, sem
en timburhúsið, er var þar, var m’ a’ syn^ur a miðnætur-
skemmtun í Austurbæjarbíó í
flutt þaðan í heilu lagi, sem
kunnugt er. Lóðin þarna mun
vera um 440 ferm. að meðtöldu
bakhúsi upp í lóðinni, sem nota
á fyrir vöruskemmu, en grunn-
flötur hinnar nýju byggingar
mun verða um 330 ferm. Þetta
verður mikil bygging, fjögurra
hæða, er hún kemst upp, en
ekki hefir fengizt fjárfesting-
arleyfi fyrir nema einni hæð,
undir verzlunina, en síðar
verður hún á tveimur hæðum.
Unnið hefir verið að því að
undanförnu að grafa fyrir
grunnhæðinni og hefir orðið
að sprengja mikið, því að þarna
er klöpp undir.
kvöld. Húrn hefir undanfarið
sungið á Jaðri við vaxandi vin-
sældir. Hún syngur á mörgum
tungumálum, m. a. á íslenzku,
og þykir hafa náð undra-góðum
framburði.
Kapp lagt á að Fremri-Kot
haldist í byggð.
á tunlnu víða 2ja nt. djúp.
Hlniíii á Valagilsá barst marga
km. niður efíir ánni.
Kínverjar gerast
bílaframleiðendur.
Samkvæmt heimildum frá
brezkum kaupsýsiumönnum i
Siugapore eru kinverskir kom-
múnístar byrjaðir bifreiðafram-
leiðslu i Mukden, Mansjúriu.
Bifreiðarnar verða smíðaðar
samkvæmt rússneskum fyrir-
myndum og er gert ráð fyrir, aö
hinar fyrstu komi á markaðinn
á næsta ári.
G. Brunborg sýnir
fróðlep kvikmynd.
Guðrún Brunborg er komin
til landsins, og hefur hún kvik-
myndasýningar hér í bæ annað
kvöld.
Hefir hún m. a. meðferðis
kvikmyndina „Frumskógur og
íshaf“, sem fjallar um frum-
skóga Mið-Ameríku, en er auk
þess tekin norður við íshaf. Sjá
menn þar glæsilegar myndir af
þessum tveim andstæðum, og
er þetta góð skemmtvm.
Myndin verður sýnd í Nýja
bíó, og verður fyrsta sýningin
á morgun klrkkah fimm.
Brezkur togari
siglir trilhi í kaf.
Það hörmulega slys varð
Norðfirði í fyrradag, að tvítug-
ur maður drukknaði, er brezkur
togari sigldi bát hans í kaf.
Maður þessi hét Hörður Krist
insson og var hann, ásamt föð-
ur sinum, Kristni Ingvarssyni,
að handfæraveiðum innan við
Norðfjarðarhorn og voru þeir á
trillubáti.
Slysið vildi til um hádegis-
bilið, en þá var þoka á miðunum
og sá skammt. Allt í einu sáu
þeir feðgar áð togari kom út úr
þokunní, var hann á fullri ferð
og stefndi óðfluga á bátinn. —
Feðgarnir sáu, að þeir voru í
brýnni hættu og reyndu að
koma vél bátsins í gang, en áð-
ur en þeim tækist það, hafði
togarinn rennt á bátinn og brot-
ið hann. Við áreksturinn kast-
aðist Hörður fyrir borð, en bát-
urinn sökk rétt á eftir. Náði
Kristinn í belg, sem hélt hon-
um uppi unz hjálp barst frá
skipverjum, en Hörður drukkn-
aði.
Togarinn, sem var eins og
fyrr segir brezkur, fór með
Kristin til Neskaupstaðar og
hófust réttarhöld í málinu strax
og þangað kom.
Ferlegt rót í
Grímsvatnagíg
Engar Hkur eru taldar til að
úr Grímsvatnagosi verði úr
þessu, en stórkostleg umbrot
hafa samt orðið þar í gígnum.
í gær flaug Björn Pálsson
með þá Jón Eyþórsson, próf.
Noe-Nygaard og dr. Sigurður
Þórarinsson yfir Grimsvötn. —
Skilyrði til athugana voru slæm
en með því að fljúga undir
þoku og niður við gígbotninn,
sá gerla, að mikil og ferleg um-
brot hofðu átt sér stað. Sáu
leiðangursfarar að miklar
sprungur höfðu mynda?t og
hyldjúp ker, þar sem samfelld
snjó- eða ísbreiða hafði verið
fyrir nokkrum dögum.
Ekki töldu leiðangursfarar á-
stæðu til að gera út sérstakan
leiðangur til Grímsvatna í
rannsóknaskyni, en hins vegar
að áherzla yrði lögð á að taka
loftmyndir af svæðinu strax og
birti yfir jöklinum og m. a.
munu þeir hafa haft hug á að
fá Ágúst Böðvarsson landmæl-
ingamann til þess að taka loft-
myndir af svæðinu með hinni
nákvæmu loftljósmyndavél
landmælinganna.
MikiS er nu um það rætt,
einkum norðanlands, aS reyna
að halda byggð við að Fremri-
Kotum i Norðnrárdál, en sá bær
varð verst áti i skriðuföllnnum
miklu í Skagalirði í sumar.
Túnið að Fremri-Kotum er nú
að heita má allt undir skriðu,
sumstaðar allt að tveggja metra
djúpri. Rætt hefur verið um að
reyna ryðja henni af túninu með
stórvirkum vélum og jarðýtum,
en ef horfið yrði að því ráði er
hinsvegar óttast að jarðvegurinn
rnyndi einnig mokast burt að
meira eða minna leyti.
pað eina sem stóð upp úr af
ræktuðu landi á Fremri- Kot-
um var nýræktarspilda, sem
skemmdist litið sem ekkert. —
Aftur á móti fylltust fram-
ræsluskurðir að meira eða
minna ieyti og þá þarf aö moka
allt kapp verið lagt á að byggð
haldist í Fremri-Kotum áfram
og nú hafa skagfirkir bændu^
hafið heysöfnun handa bóndan-
um þar.
Barst langa leið.
í sambandi við hamfarirnar í
Valagilsá, þegar brúna tók af í
flóðunum, má geta þess að bru-
arplatan, sem var steinsteypt og
mörg tonn á þyngd hefur nú
fundizt við Norðurá, um þrjá
km. frá ármótum Valagilsár og
Norðurár, en áður hefur brúin
borizt alllangan spöl niðut sjáiía
Valagilsána. Sést á þessu hvílíkt
heljarafl hefur verið að verki i
flóðinu.
Skagfirzkir bændur geta enn
enga hugmynd gert sér um fjár-
skaða, sem þeir hafa orðið fyrir
af völdum flóðá og sknðufaJla.
upp svo fremi sem byggð á að | x0kkuð liefur fundizt af flædd-
haldast á staðnum. þá var og
von á Pálma Einarssyni land-
námsstjóra norður til þess að
athuga aðstæður til frekari
ræktunar á bænurn og hvað
unnt væri að gera til þess að
gera ábúð á jörðinni mögulega
þrátt fyrir hið mikla tjóri sem
orðið hefur á henni.
Slysið s.I. vetrxr.
Yfirleitt verður allt kapp lagt
á að Fremri-Kot leggist ekki í
eyði og er það fyrst og fremst
gert með tilliti til vetrarsam-
gangna yfir Öxnadalsheiði. Bær-
inn Jiggur ofar annarri byggð í
áttinni til Öxnadalsheiðar og
það er fyrsti bærinn sem komið
er að sunnan hennar. tí; þess
skemmst að minnast er slys
varð á heiðinni á s.l. vetri og
slasaður maður komst við illan
leik niður að Fremri-Kotum og
bað þar um hjálp fyrir félaga
sinn, sem var enn meira siasað
ur. Vafalítið hefði það kostað
mannslíf — eitt. eða tvö ef
Fremri-Kot hefðu þá verið í eyði.
En slíkir eða samskonar at-
búrðir geta alltaf endurtekið
sig. Að athuguðu máli hefur þvi
um sauðkindum og lirossuin við
Norðurá, en enginn veit hvað
farizt hefur í skriðuföllunum og
það verður ekki fyrr en í göng-
um í haust að menn rey .a að
leiða að því einhverjar getur.
Gói þátttaka í svif-
ffugsnamskeiðum.
Fyrsta svifflugúámskeiðimi
á Sandskeiði í sumar lauk um
síðustu helgi.
Flestallir þátttakendur luku
þá svonefndum A og B-próf-
um, en þau veita rétt til þess
að fljúga einn undir eftirliti
kennara. Næsta stig er C-próf,
en þá má flugmaðurinn fljúga
burtu frá vellinum, hvert sem
hann kýs án afskipta kennara.
Næsta námskeið er þegar
hafið og lýkur því 31. þ. m.,
og er það einnig fullskipað.
Þá hefst þriðja og síðasta nám
skeiðið, sem auglýst hefur ver-
ið í sumar. — Starfsemi Svif-
flugfélagsins stendur með
miklum blóma, og ríkir mikiJl
áhugi um málefni þess.
Yrðlingar skotnir í
Innstadal.
S.l. mánudag voru tveir
yrðlingar skotnir í Innstadal 1
HengU, en áður hafði frétzt um
nokkra refi, sem þar virtust á
„skemmtigöngu.“
Þrír unglingspiltar héðan úr
bænum, sem eiga skála eða
kofa í Innstadal, komu á mánu-
dag á lögreglustöðiria hér og
skýrðu frá því, að þeir hefðu
skotið tvo yrðlinga, sem voru
að snuðra í kringum skála
þeirra. Á öðrum yrðlingnum
unnu þeir mjög fljótlega, en
hinum veittu þeir eftirför
nokkra stund. Er yrðlingurinn
sá, að í óefni var komið, sneri
hann sér gegn þeim og hvæsti.
Var hann þá skotinn.
Áðuí- hafði Guðbjartur Péls-
son bílstjóri hér í bæ séð
nokkra refi, eina 5—6, á labbi
i Tnnstadal.
Loftfimleikafólk sýnir í
35 m. hæð í Tívolí.
,4 Plessons' nýkomin hingað frá Amsterdam.
í kvöld hef ja heimskunnir I ing“, sýnir þá furðulegu list að
skemmtikraftar sýningar í
skemmtigarðinum Tivoli.
Það eru hollenzkir loftfim-
leikamenn, . eða öllu heldur
loftfimleika-karlar og konur,
er nefnast Plessons.
Hingað hafa komið loftfim-
leikamenn áður, en ekki slíkir
sem þessir, því að þeir sýna
listir sínar í 35 og 18 metra
hæð, en fram að þessu hafa
loftfimleikar ekki verið sýnd-
ir í meiri hæð hér en 10 merum.
M. a. hafa þeir meðferðis
mastur eða stöng mikla, 35
metra háa, og er hún sveipja'n-
leg, og gerir hún listir þeirra
glannalegri fyrir bragðið Einn
þessara „fljúgandi Hollend-
renna sér á tönnunum eftir 100
metra löngum streng úr 18 m.
hæð.
Auk þess sýna þeir ýmsar
listir, er þeir nefna „kátsjúk-
númer5‘, en það eru furðulegar
listir er sýna sveigjanleik lík-
amans, sem er líkastur því, sem
úr gúmmí væri.
Plessons hafa sýnt í flestum
skemmtigörðum Evrópu við
mikla hrifningu, en hingað
koma þau frá Amsterdam. Hér
verður dvölin ekki löng, en
fyrsta sýningin er í kvöld, eius
og fyrr segir, ef veður leyfir.
Mega Tivoli-gestir vænta
góðrar skemmtunar . af hinum
hollenzku loftfimleikasnill-
ingum.