Vísir - 28.07.1954, Side 1

Vísir - 28.07.1954, Side 1
I ■I 1% V m 44. árg. Miðvikudaginn 28. júlí 1954. 168. tbl. Formaður skopteiknarafélags Bandaríkianna, Joe Kaliff, hélt upp á lok yfirheyrslanna yfir helztu mönnum hersins í Washington, með því að teikna höfuð aðalmannanna á bert bak tveggja blóma- rósa í veitingahúsi í New York. Annars vegar voru Joe McCarthy og Roy Cohn, en hinsvegar Wetch, ráðunautur hersins, og Stuart Symington þingmaður. Smmiö um Sueseiði í gmr Bandarískur starfsma&ur í Berhn fremur sjálfsmorð. Aiburduriim ekki talinn á nokkurn Iiátt tengdur Johnmálinu. Einkaskeyti frá AP. Berlín ímorgun. Einn af starfsmönnum Bandaríkjasjórnar í Berlín beið bana af skammbyssuskoti á föstudag við kringumstæður, sem benda til að um sjálfsmorð hafi verið að ræða. Talsmaður bandarísku her- stjórnarinnar kvaðst ekki get.a staðfest, að maður þessi hafi haft gagnnjósnir með höndum, en hann hafi verið í einni deild Bandaríkjahers í Evrópu. Óstaðfest fregn í blaði í Frankfurt hermir, að maðurinn hafi framið sjálfsmorð eftir að tveir bandarískir gagnnjósna- starfsmenn frá höfuðstöð Banda ríkjahers í Heidelberg heim- sóttu hann. Maðurinn hafi far- ið inn í hliðarherbergi og skot- ið sig. Ennfremur var sagt, að maðurinn yrði ekki nafn- greindur, fyrr en ættingjuni hans hefði verið gert viðvart. í annarri fregn segir, að mað- urinn hafi skotið sig, er þess var krafist að hann færi með sendimönnunum til Heidelberg. Þá er haft eftir talsmanni Bandaríkjahers, að þessi atburð ur sé á engan hátt tengdur John málinu og að ekki hafi verið efast um hollustu mannsins. — Því er neitað, að maðurinn hafi átt skyldmenni austan tjalds, — ef svo hefði verið hefði hann ekki verið ráðinn til þess starfs sem hann hafði með höndum. Churchill fráhverfur fundi nteð Malenkev. Einkaskeyti frá AP. London í morgun. Churchill sagði í gær, að ekki væri rétti tíminn nú til að ræða fund æðstu manna Bretlands, Bandaríkjanna og Ráðstjórnar ríkjanna. Viðhorfið hefði breytzt og nauðsynlegt að snúa sér að því nú,aðathuga seinustu orðsend- ingu ráðstjórnarinnar um ör- yggi Evrópu og tillögur um fund um þau mál. Ofsahitar á Spáni. Einkaskeyti frá AP. — Madrid í gær. Hitabylgja fer nú um Spá.i og komst hitinn í gær upp í 40 stig á Celsius í Badajoz (104 F). Víða komst hann upp i 38—39 stig á Celsius. í Madrid og fleiri borgum var 39 stiga hiti. Annars hefur verið mjög heitt í veðri eða um 90 st. F i meira en viku og þess sjást engin merki, að hitabylgjan muni líða hjá í bili, heldur jafnvel búist við eins miklum eða meiri hita í dag en í gær. Frakiffl verður Einkaskeyti frá AP. — París á laugardag. Það gengur fjöllunum hærra, að stjórnin sé' að hugsaú um að stýfa frankann á næstunni, og hefur þetta leitt til mikilla gullkaupa. Hefur gullverð hækkað um 3000 franka kílóið í 418,000 franka (rúml. 19. þús kr.) á einum degi. Þó mun þetta ekki verða gert fyrr en stjórn in hefur lagt fram frv. til fjárlaga í næsta mánuði — að því er sögur herma — og mun stýfingin nema 15%. Mesta uppgjöf Breta siðau fielr aiisstu Indland að álitl Daíly Express. Einkaskeyti frá AP. — London í morguir. Samkomulaginu, sem undirritað var í Kairo í gæikvöldi, um herstöðvar Breta á Suezeiði, er mjög misjafnlega tekið í brezkum blöðum. Daily Express segir, að hér sé um að ræða mestu uppgjöf Breta, síðan þeir misstu Indland. Skambyssumaiur á Su&urgötu. Um kl. 10 í gærkveldi gerð- ist sá fátíði atburður, að ís- lenzkir lögreglumenn afvopn- uðu samlanda sinn, er var með „alvæpni“. Var lögreglunni tilkynnt í síma, að maður nokkur væri að labba vestur Suðurgötu með skammbyssu. Fóru tveir rnenn á vettvang þegar í stað, og reyndist þetta rétt. Maðurinn var með skammbyssu og tvö skammbyssuhylki. Hins vegar reyndist skammbyssan óhlaðin Var byssan síðan tekin af manninum. Seint í gærkveldi, eða um kl. 11.15, var lögreglunni tilkynnt, að maður væri að gera tilraun til þess að koma bifreið í gang. Ekki tókst þetta, og tók sonur mannsins bílinn og manninn í sína vörzlu. Klukkan rúmlega 4 í nótt var lögreglunni tilkynnt, að stúlka hefði fallið í Tjörnina. Þegar til átti að taka, var stúlk- an komin í land, og höfðu tVeir karlmenn bjargað henni. Loks var einn maður hand- tekinn í nótt, grunaður um ölv- un við akstur, og er mál hans í rannsókn. Lá við slysi við Skeiðará. Minnstu munaði, að stórslys yrði á Skaftafelli í gærmorgun. Ragnar bóndi í Skaftafelli var að flytja afurðir sínar yfir einn ál Skeiðarár, m. a. nauta- kjöt. Var hann með vagn og dráttarvél. Var Ragnar við annan mann. Skipti engum togum, að straumþungi beljaði um drátt arvélina og færði hana í kaf, og komust þeir f élagar til lands við illan leik. Sveitungar Ragnars komu síðan til liðs við hann og tókst þeim að bjarga dráttarvélinni, en farmurinn glataðist. Efra-Sog Önnur taka samkomulaginu betur, flest þeirra.en sum láta í ljós ugg og kvíða yfir, að her- virkjunum verði ekki nægilega vel við haldið. Times telur, að fjárhagsbyrðarnar af að hafa | þarna mikið lið hafi verið orðn- | ar allt of þungar miðað við not- j in. Hafi því verið rétt að semja, og það geti bætt sambúð Breta l og Arabaþjóðanna. Galla telur Times það, að samningaákvæðin ná ekki til Persíu, eins og Bretar vildu, og að samningur- inn verður aðeins til 7 ára, en þá má að vísu taka fyrir, hvort endurnýja skuli. Sum biöð telja að samkomulagið muni draga úr áliti Breta í hinum nálægari Austurlöndum. Bretar eiga að flytja burt herlið sitt á 20 mánuðum. Þeir hafa þar 85.000 manna lið og hafa haft þarna herstöð í nærri þrjá aldarfjórðunga. Hervirki og önnur mannvirki þeirra nema hundruðum milljóna. — Egyptar að viðhalda þeim með tæknilegri aðstoð. Bretar mega flytja lið aftur til eiðisins, ef árás er gerð á Egyptaland eða nágrannaríkin arabisku eða Tyrkland, sem er aðili að sam- tökum Nato. Nasser hefur fagnað sam- komulaginu ákaflega, en hann og Head undirrituðu það. Telur Nasser lokið langri baráttu E- gypta með fullum sigri þeirra og grundvöllur hafi verið lagð- ur að nýrri og traustari sam- vinnu Egypta við vestrænu þjóðirnar. í Israel hefur sam- komulagið vakið ugg. Bretar flytja meginhluta liðs- ins ( % ) heim, en hitt til Kýpur, Aden og eyjarinnar Malta. Samkomulagið verður rætt í neðri málstofunni í vikunni og án efa samþykkt, en allt að 40 íhaldsþingmenn kunna að greiða atkvæði gegn því. — Samningar munu verða undir- ritaðir eftir 1—2 mánuði. Síldarlaust, Si i van. Frá fréttariturum Vísis. Siglufirði og Raufarhöfn. Síldarlaust er með öllu fyrir norðurlandi, og liggja flest skip í vari. Fréttaritari Vísis á Raufar- höfn tjáði blaðinu í morgun, að engar síldarfregnir hefðu bör izt, og væri heldur dauflegt um að litast á staðnum. Mátti segja, að flestöll skipin lægju inni fyr- ir, en hins végar hefðu borizt lausafregnir um þrjú eða fjög- ur skip.sem hefðu fengið ein- ið einhvern afla á Héraðsflóa. Gerðist þetta í fyrrinótt, og voru vélbátarnir „Auður“ frá Akur- eyri og „Pálmar“ þar með tald- ir. í morgun var norðankaldi og bræla á miðunum úti fyrir aust- ursvæðinu, og gátu skipin ekki athafnað sig, að því er*frétta- maður Vísis á Raufarhöfn tjáði blaðinu í morgun. Þá átti Vísir tal við Sigluf jörð í morgun, og var þar sömu sög- una að segja. Vont veður var úti fyrir, og ekki útlit fyrir veiði eins og á stóð. — Ekkert var saltað á Raufarhöfn eða á Siglufirði í gær. Útboðslýsingar eftir 2-3 mánuði. Áformum um virkjun Efra- Sogs, sem er næsti liður á dag- skrá í rafvirkjunarmálum okk- ar, miðar vel áfram. Vísir hefir átt stutt viðtal við Jacok Guðjohnsen, verk- fræðing hjá Rafveitu Reykja- víkur, og lét hann svo ummæít að A. B. Berdal, verkfræðing- ur frá Osló, vinni nú að útboðs- lýsingum vegna þessa mikla mannvirkis, en hann hefur verið ráðunautur Rafveitunnar hér vegna vatnsvirkjana. Er gert ráð fyrir, að útboðslýs- ingar liggi fyrir eftir 2—3 mánuði, en þetta er seinunnið og vandasamt verk. Víkingur í Oanmerkurför. Knattspyrnuflokkur Víkings er í Danmerkurferð um þessar mundir, og hefur háð tvo leikl við danska félaga sína. í fyrri leiknum töpuðu Vík- ingar með 5 mörkum gegn 2, en í gær léku þeir í Varilöse, skammt frá Kaupmannahöfn, og 'töpuðu þá með 4 mörkurn/ gegn 1. Pekingstjórn send mótmæli. Hæítir Attlec við Kínaferðina? Einkaskeyti fráAP. Washington í morgun. Tveimur orðsendingum frá Bandaríkjastjórn hefur verið komið á framfæri við Peking- stjórnina. f annarri er mótmælt árásun- um á brezkar og bandarískar flugvélar og krafist skaðabóta fyrir aðstandendur þriggja Bandaríkjaþegna sem létu lífið, er Skymasterflugvélin var skót in niður. í hinni er hafnað hinum Að útboðslýsingum lol.num má búast við því að hafizt verði handa um þetta mikla mann- virki. ... ; furðulegu mótmælum kín- verskra kommúnista út af loft- bardaganum, er 2 flugvélar voru skotnar niður fyrir þeim. f fyrsta lagi, segir í orðsending- unni, réðust þessar flugvélar á bandarískar flugvélar, sem voru til verndar björgunarstarfi, í öðru lagi fór björgunarstarfið fram utan kínverskrar land- helgi, á alþj óðasiglingaleiðum. f blöðum er haldið áfram að ræða flugvélaárásirnar og brezfc blöð telja þær hafa spillt horf-. unum á bættri brezk-kínve rskrí samvinnu. — Raddir hafa' heyrzt um, að Attlee ætli að> fresta fyrirhugaðri för til hinS kommúnistiska Kína.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.