Vísir - 28.07.1954, Side 8

Vísir - 28.07.1954, Side 8
VtSIR «r ódýrasia blaSiS og bó b«ð Ijði- brayttasta. — Hrfcagið I i’ian lffð «g gerist áskrifendur. WlSSIt Þeir sem gerast kaupendur VtSIS cfttt 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypli tíl Stmi ZS<«. mánaðaméta. •4; ■ Miðvikudaginn 28. júlí 1954. 'Séra Darby Betts, sem er skólastjóri í amerískri borg, hefur „fundið upp“ sérstaka hýðingarfjöl íyrir „þurfandi" nemendur. Foreldrar nemendanna mótmæltu notkun uppfinningarinnar, en það kom á daginn, að nemendumir vildu heldur fá nokkra skelii á rassinn en að þurfa að sitja aftir stundum saman. Málið er enn til umræðu vestra. Kirkja í smíðum í Borgarnesi. Tumintit verður yíir 20 m. hár. Frá fréttaritara Vísis. — Borgarnesi í gær. Um þessar mundir er unnið a kappi að smiði nýrrar kirkju i Borgarnesi, sem reist er á háklettunum suðvestur af Skallagrímsgarði, og sést hin háreista kirkja langt af hafi og langt að ofan úr sveitum. Kirkjan stendur mjög hátt og ■turninn er yfir 20 metra hár. Búið er að slá upp mótum fyr- :ir skipi og hvelf'.ngu. Sperrur í þaki verða steyptar. Áformað er að koma allri lrirkjunni und- ir þak í haust. Kivkjan er byggð eftir teikningu Halldórs Jóns- sonar arkitekts, Björnssonai frá Bæ, og gaf hann teikninguna. Það hefur lengi verið áhuga- mál Borgnesinga, að koma upp kirkju í nesinu, en þar hefur aldrei verið kirkja — þeir hafa sótt kirkju að Borg. Sundlaug. Úti-sundlaug hefur verið gerð hér nokkra tugi metra frá flæðarmáli í nánd við Skalla- grímsskemmtigarðinn. Heíur verið unnið að því að girða hana og bygéja klefa. Síðar er í ráði að byggja yfir hana. — Vatnið verður yljað að nætur- lagi með raforku. Sláttur hafinn. Fyrir helgi var sleginn blect^ ar á Skeljabrekku í Andakíl og frétzt hefur, að sláttur sé byrj- aður á Bæ í Hvítársíðu. Yfir- leitt er ekki komin full slægja á tún. Stöku tún eru fullsprott- in og víða komnir blettir í tún. Menn hafa annars nóg að gera enn við að smala, marka og rýja, en upp úr miðjum mán- uði má búast við, að sláttur fari almennt að byrja. Laxveiði að kalla engin. Laxveiðin gengur illa enn sem komið er. Þeir fáu laxar, sem komnir eru í bergvatnsárn- ar hafa verið tíndir upp. Neta- veiði er sama sem engin. Nelson flugkappi kemur á sunnudag. Erik H. Nelson flugkappi, sem sagt var frá í fréttum í Vísi í gær, kemur hingað á sunnudag. Kemur hánn hingað með flugvél Loftleiða h.f., og munu Var vodkað „kommiínista Bíiasmiðjan hefur smíði á 7. frambyggða vapmum. íslenzkir fagmenn á þessu sviði fullkomlega samkeppnisfærlr við erlenda. u Einkaskeyti frá AP. — Stokkhólmi í gær. Átta sænskir sjóliðar, sem dæmdir voru í skipsfangelsí, fyrir að drekka sig fulla, er sænska flotadeildin var í heimsókn í Leningrad, hafa á- frýjað dóminum. Varnir þeirra voru í stuttu máli: Við drukkum okkur fulla af einskærri kurteisi — þorðum ekki annað. Rússar fylltu glös- in af vodka hvað eftir annað — og þau voru stór — og allir urðu að drekka í botn, til heiðurs Lenin, Stalin og Malen- kov. — Við vorum í rauninni í skylduleiðangri — og var það ekki blátt áfram skýlda að skála við félagana i Lenin- grad? — Þeir hefðu móðgast ella. Liðsforingjar segja, að flugáhugamenn fagna honum | meiri hlutinn af áhöfn sænska Haile Selassie hdmsæklr Títo. Einkaskeyti frá AP. — Belgrad í gær. Haile Selassie og Tito forseta kom saman um það, áður en hinni opinberu heimsókn lauk, að sendiherrar Abessiniu og Jugoslaviu skyldu framveg- is hafa ambassadortitil. Haile Selassie er nú á leið til Grikklands á júgóslavneska skipinu Gailei, en við Korfu : stígur hann um borð í grískt skip, sem flytur hann til Aþenu. við komuna hingað, eins og nærri má geta. Mun Vísir væntanlega skýra nánar frá dvöl Nelsons hér og viðbúnaði í sambandi við komu hans hingað, en honum mun verða sýndur ýmis sómi hér. beitiskipsins Tre farið flatt á því kapp við Rússa. að vodkaflóðið í Bílasmiðjunni h.f. er nú haf- in smíði á nýjum, frambyggð- um langferðabíl fyrir Steindór, og er þetta sjöundi vagninn, sem þetta fyrirtæki smíðar af þessari gerð. Vísir hitti að máli Lúðvík Á. Jóhannesson, forstjóra Bíla- smiðjunnar og innti hann frétta af vaxandi starfsemi fyrirtæk- is hans. Þetta er sem sagt sjöundi frambyggði almenningsvagn- inn, sem fyrirtækið smíðar, en áður var lokið við tvo vagna fyrir Steindór (fyrir Keflavík- urferðir), tvo fyrir Strætis- vagna Reykjavíkur, 1 fyrir Norðurleið h.f. (þann, sem fór suður um Evrópu) og 1 fyrir áætlunarferðir um Mosfells- sveit. Auk þess hefur Bílasmiðj an smíðað allmarga stóra og ný- tízku vagna, sem ekki eru fram byggðir m. a. 3 fyrir áætlunar- bíla Keflavíkur og síðast mjög vandaðan vagn fyrir Dalaferðir Guðbrands Jörundssonar, af Mercedes Benz-gerð. Hinn nýi langferðavagn Stein dórs, sem nú er í smiðum, er diesel-vagn af Volvo-gerð, eins og hinir fyrri, en hann mun verða heldur mjórri og taka nokkru færri farþega, eða 45 ►—50, en hinir fyrri taka 58 í sæti. í Bílasmiðjunni vinna nú um 50 manns, og eru mörg verkefni fram undan, sem e. t. v. verður unnt að greina frá síðar. Fyrirtækið hefur nú á að skipa ágætum fagmönnum, sern standa erlendum stéttarbræðr- um sínum fyllilega á sporði. Hafa erlendir sérfræðingar, sem heimsótt hafa Bílasmiðjuna, farið lofsamlegum orðum um vinnubrögð þeirra og kunnáttu. Langferðavagnar af þeirri gerð, sem Bílasmiðjan er nú að smíða fyrir Steindór, munu kosta um 290.000 krónur (yfir- byggingin sjálf). Móðir rænir börnum sínum. Paris (AP). — Brezka lög- reglan hefur beðið alþjóðalög- regluna í París — Interpol — að hjálpa sér við leit að amer- ískri konu. Hefur eiginmaður konu þessarar, einn þekktasti lækmr Breta, fengið skilnað frá henni og var honum dæmd gæzia barnanna, en móðirin hefur horfið með þau. Hefur hún verið sökuð um að hafa „rænt“ þeim. Ætlar að setja meí á Ermarsundi. Tímabil sundgarpanna, sem ætla að spreyta sig á að synda yfir Ermarsund, er gengið i garð. Hingað er m.a. kominn mexíkanski sundgarpurinn Bei- tran, sem synti yfir sundið x' fyrra á 15:27 klst. Hann ætlar að bæta met sitt í sumar. Síðar mun hann taka þátt í kapp- sundinu þann 22. ágúst. Vilja sameinasi Indlandi. London (AP). — Ein af dvergnýlendum Portúgala á Indlandi hefur óskað að sam-. einast Indlandi. Er þetta nýlendan Dadra, sem er á vesturströndinni. — Höfðu indverskir menn tekið nýlenduna, og nú hafa íbúarnir óskað eftir því við Nehru, að hann sameini nýlenduna Ind- landi. kronor hafi að drekka í Sumir halda hafi verið Vilja sjálfstætt x V.-Þýzkaland. Einkaskeyti fráAP. Washington í morgun. Utanríkisnefnd öldungadeild arinnar hefur samþykkt álykt- un um að deildin muni sam- þykkja gerðir Eisenhov/ei s, ef hann milli þinga viðurkennir sjálfstæði Vestur-Þýzkalands og endurvígbúnað. Mun hún staðfesta gerðir hans í því efni. Ekki er þó búizt. við, að Eisenhower aðhafist neitt í málinu, fyrr en Frakkar hafa tekið lokaákvörðun um Ev- rópusáttmálann. Viðskiptahalli Japana nam 17 millj. króan á s.l. ári. Var innflutningurinn 80% meiri en útflutningurinn. , „kommúnista-gildra“. Sænska flotalögreglan hafði svo mikið að gera meðan heim- sóknin stóð, að hún gat aðeins hirt þá, sem drukknastir voru. — Rússneska flotalögreglan hafði ekkert að gera er Rússar komu í flotaheimsóknina tíl Stokkhólms. Flugþernur ríkja á blómahátíð. Nýlega var ein af flugþern- um KLM-félagsins kjörin „blómadrottning“ 1 höfuðborg Hollands, Haag. Mun hún sitja að völdum frá 9.—14 ágúst, og hafa sér til aðstoðar tvær blómaprins- essur, sem einnig eru flug- þernur hjá KLM. Þess má geta til gamans, að blómadrottningin, sem kosin var hér um árið, Heba Jóns- dóttir, er nú flugþerna hjá Loftleiðum. Eitthvað fyrir konumar: Vetrartízkan komin í dags- ljósið í London. Einn aðatkeppinautur Diors sfldcar pilsin, heflr kjólana háa í hálsinn. Einkaskeyti frá AP. — London í gær. Samkeppnin er hörð á svió- um tízkunnar sem öðrum, og það eru einkum fjórar stórar borgir, sem bar eigast við — París, London, New York og Róm. Nú hefur einn af tízkukóng- um Lundúnaborgar, Hardy Amies, riðið á vaðið með vetr- artízku sína fyrir næsla vetur, og leggur hann óhikað til at- lögu við franska tízkukónginn Christian Dior, sem einna mestu hefur ráðið á þessu sviði undanfarin ár. Það var Dior, sem síkkaði pilsins á sínumt tíma, en stytti bau svo á nýjan leik, en Amies síkkar þau nú aftar með vetrartízku sinnL Amies er fyrstur 12 tízku- frömuða hér, sem boðar tízku næsta vetrar. Hann síkkar pils- in um fullan þumlung (rúm- lega 2,5 sentimetra), og þuu eiga að vera 35 sm. frá gólfi, en annars er mest áherzla lögð á, að konan verði sem grennst í útliti um mittið. Er hún sett í „spennutreyju“, en síðan eru axlirnar hafðar sem breiðastar. Þó eru „sköpunarverk“ Amies aðallega frábrugðin tízku und- anfarinnar 20 ára að því leyti, að kjólarnir ná alveg upp að hálsi, brjóstin eru skréytt með fellingum, vösum og slaufum, en að aftan eru þeir mjög flegnir. Amies notar einkum tweed- efni, bæði í kjóla, dragtir og kápur, en þynnra og fíngerð- ara en áður.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.