Vísir - 03.08.1954, Síða 4

Vísir - 03.08.1954, Síða 4
VfSIR 4 VISXR D AGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. 1 Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Ctgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSER HJP. AfgreiSsla: Ingólfsstræti 3. Simi 1660 (fimm línur). Lausasala 1 króna, Félagsprentsmiðjan h.f. Lýsing Suðurlandsbrautar. Undanfarið hefur verið unnið ötullega að því að reisa staura fyrir götuljósker meðfram Suðurlandsbrautinni. Þar urðu ekki alls fyrir löngu þrjú bilslys með stuttu millibili — auk allra, sem á undan höfðu orðið — svo að sýnt var að einhverjar ráðstafanir varð að gera til þess að auka á öryggi borgaranna, sem þar þurfa að leggja leið sína af einhverjum ástæðum. Var það ekki vonum fyrr, að bæjaryfirvöldin gerðu sér grein fyrir því, að óbreytt ástand væri óþolandi. Lýsingu Guðurlandsbrautar, fjölförnustu götu utan sjálfrar aðalbyggðar bæjarins, hefur verið mjög ábótavant, og er ekiU ósennilegt, að ýmis slys, sem þar hafa orðið, megi rekja til þess. Nú mun verða bætt úr þessu, og er þá vonandi, að heldur verði breyting í rétta átt. En fleira þarf þó að gera, til þess að vel sé, og hefur meðal annar verið stungið upp á því, ai gerð verði gangst&tt íeðfram götunni, og girðing að auki, til þess að tryggja menn enn betur en ella fyrir limlestingum eða jafnvel bana. Það er sjálfsagt að þakka, að brugðið skuli hafa verið v: J í þessu efni á þann hátt, sem menn geta séð, er þeir eiga ferð um Suðurlandsbrautina um þessar mundir, og væntanlega verður ekki látið staðar numið í þessum efnum. Umferðar- málanefnd bæjarins hefur hvað eftir annað bent á ýmsar götur og gatnamót í bænum, sem hún telur með réttu að auki mjög á slysahættuna og tefli lifi pg heilsu vegfarenda í hættu. Það mun þó mála sannast, að heldur hafi gengið treglega að koma þeim umbótum á, sem nefndin hefur talið nauðsynlegar, og er illt til þess að vita, að stundum skuli þurfa slys til þess að ýta við bæjaryfirvöldunum, eins og kom meðal annars í ljós, að því er Suðurlandsbrautina snertir. Það er vitanlegt, að bærinn hefur í mörgu að snúast og í mörg horn að líta, vegna þess hve byggðin þenst ört út, og því eru götur oft af vanefnum gerðar, svo að slysahætta verður þar meiri en ella. Tekur þá oft langan tíma að fá því kippt í lag, sem aflaga fer, og virðist sem það hefði verið bezt í aha staði, ef vandvirkni og aðgæzla hefði setið í fyrirrúmi í önd- verðu, svo að aukasnúningar væru óþarfir síðar, og öryggið eins og það getur orðið mest frá byrjun. En því miður verður oft misbrestur á að þessu leyti. Slysavarnafélagið vinnur mikið og gott starf, en þaö gæti áreiðanlega unnið meira, ef það tæki sér fyrir hendur ao aðvara ekki aðeins borgarana um að fara varlega, heldur^að vera samvizka bæjarvaldanna einnig. Það á að benda bæjar- yfirvöldunum á hætturnar, sem geta stafað af því, þegar þannig er búið að mönnum, eins og til dæmis á Suðurlands- brautinni. Slíkar ábendingar'ættu einnig að vera vel þegnar af bæjaryfirvöldunum, sem æúu að æskja aukinnar samvinnu við Slysavarnafélagið við að auka öryggi borgaranna og af- stýra slysum. Markisatburðar minnzL T gær var þess minnzt af áhugamönnum urn flugmál hér a landi, að 30 ár voru þá liðdn frá því að flogið var í fyrsta skipti til íslands. Var það amerísk flugvél, sem kom til Hornar- fjarðar annan' dag ágústmánaðar 1924, og degi síðar önnur, en þeirri þriðju hlekkist á á leiðdnni, svo að hún komst ekki alla leið. Voru þetta herflugvélar á leið umhverfis jörð- ina — í fyrsta hnattfluginu, sem efnt var til og höfðu fjórar flugvélar lagt upp, en aðeins tvær komust hingað. íslendingar höfðu liaft nokkuf kynni af flugvélum áður, því að þetta voru ekki fyrstu flugvélarnar, sem til landsins komu, og nokkru eftir fyrri heimsstyrjöldina höfðu menn meira að segja ráðizt í að stofna flugfélag hér á landi. En koma amerísku flugvélanna var stór viðburður, því að þetta boðaði það, sem síðar hefur orðið, að ísland er í þjóðbraut flugsins milli nýja og gamla heimsins. Og breytingin er ekki aðeins fólgin í því, að flugvélarnar fara um ísland allan ársins hring, heldur er hún einna mest að því leyti, að íslendingar eru ekki þiggjendum einvörðungu á þessu sviði. Þeir hafa tekið að sér mikilvæga þjónustu í þágu flugsamgangnanna á stóru svæði, og þeir leysa það hlutverk af hendi með prýði, Þriðjudaginn 3. ágúst 1954 Minnismerki — Framh. af 1. síðu. Flugmálastjóri þakkaði Nel- son flugkappa hið einstæða af- rek hans og bað hann að lok- um að afhjúpa minnismerkið. Þá tók til máls sjálfur heið- ursgesturinn, Eric Nelson. Hann þakkaði þann sóma, er sýndur var og var mjög hrærður yfir móttökunum öllum. Nú endurtók sig 30 ára göm- ul saga: Anna Þórhallsdóttir, sem verið hafði samferða frá Rvík, gekk fram fyrir flugkapp ann og rétti honum, að þessu sinni fagran rósavönd. Kysti Nelson hana um leið og hann tók við blómunum. Jón Eyþórsson skýrði nú frá því, að sveitarstjóri Hafnar- kaupstaðar byði til kaffi- drykkju í barnaskólahúsinu. Var svo mannfjöldinn ferjaður eftir Hornafjarðarós og haldið í bifreiðum heim ti skólans. Þar beið ríkulega búið kaffi- boi'ð og bauð símstöðvarstjór- inn, Óskar Helgason, gestina að setjast að því. Fyrstur tók til máls undir borðum flugmálaráðherra Ing- ólfur Jónsson. Hann ræddi al- mennt þróun íslenzkra flug- mála undanfarin ár. Næstur talaði Einar frá Hval nesi í Lóni. — Þá tók til máls. dr. Alexander Jóhannesson. Hann rifjaði upp sögu Flugfé- lags íslands, minnti á fyrsta íslenzka flugið til Austur'.ands, en í Hornafirði lenti dr. Alex- ander 4 árum eftir að Nelson kom þangað. Hann vék svo máli sinu til Nelsons, mælti bá á enska tungu, þakkaði hann af- rek hans, bað samkomugesti að hrópa ferfalt húrra fyrir hon- um og var það gert. Þá talaði Nelson hershöfðingi. Rakti hann sögu ferðarinnar til Islands, minnti á að hún hefði verið skipulögð af banda- ríska flughernum, minntist fé- laga sinna og þakkaði móttök- urnar á íslandi fyrr og síðar. Anna Þórhallsdóttir þakkaði Nelson komuna. — Að því búnu tók til máls Sigurjón Jónsson, oddviti Hafnarhrepps, og flutti afburðasnjalla ræðu um fiug- mál. Jón, Eyþórsson þakkaði mót- tökur og sæmdi 3 Hornfirðinga, Sigurjón Jónsson, oddvita, Sig- urð Ólafsson og Óskar Plelga- son, merki Flugmálafélags ís- lands. ' % [' Sungin voru ættjarðarljóð undir borðum óg lauk þessu hófi kl. 6. * Nú var haldið aftur til flug- vallarins og var svo farið til Reykjavíkur. Á austurleiðinni hafði verið heldur þungbúið, en flogið fremur lágt meðfram suður- strönd landsins. Á heimleiðinni var flogið í 9 þúsund feta hæð yfir hálend- inu og lent á Rvíkurflugvelli eftir 1 klst. og 20 mín. flug' frá Hornafirði. Þar var Flugfélagi ísl. þakk- að. Og lauk svo þessum eftir- minnilega degi. Handknattleikur: KR íslandsmeistari. ísafirði í gær. KR er nú íslandsmeistari i handknattleik kvenna. Úrslitakeppnin um meistara- titilinn fór hér fram við ísfirzka flokkinn, sem hafði titilinn, og sigruðu stúlkurnar úr KR með 6 mörkum gegn 4. F iskimálaráðstef na sett hér. Fjórða norræna fiskimálaráð slefman hófst hér í bænum í gær, að viðstöddu nærri hundr- að fulltrúum, erlendum og inn- lendum. Var ráðstefnan sett í hátíða- sal Háskólans af Ólafi Thors forsætisráðherra, sem lagði á- herzlu á nauðsyn samvinnu á sviði því, sem ráðstefnan ætti að fjalla um. Formenn sendi- nefndanna fluttu einnig ávörp og stakk sj ávarútvegsmálaráð- herra Dana upp á því, að Ólafur Thors væri kjörinn forseti ráð- stefnunnar, en hann lagði íil, að formenn sendinefndanna stjórnuðu fundum til skiptis. Davíð Ólafsson fiskimálastjóri flutti í gær fyrirlestur um fisk- veiðar íslendinga, og próf. A. Vedel Táning flutti erindi um samvinnu íslendinga og Dana um hafrannsóknir frá aldamót- um. í dag eru hinir erlendu gestir í ferð austur um sveitir, en á morgun verður störfum fund- arins haldið áfram. Eins og endranær fór mikill fjöldi manna út úr bænum ur>. sl. helgi, og er jafnvel talið, að aldrei hafi jafn mikill fjöldi stórra og smárra hópa verið á skemmtiferðalögum um verzlunar mannahelgina og nú í ár. Maður, sem var á ferð um Borgarfjörð á sunnudag, skýrði mér fá þvi, að þúsundir manna hefðu legið í tjöldum á þeirri leið, er hann fór. Og alls staðar hefði verið yfirfullt á öllum veitingastöðuin, svo jafnvel hefði orðið að neita mönnum um mat, sem ekki heí'ðu pantað hann fyrirfram símíeiðis. Bifröst matarlaus. Hinn margumtalaði greiða- sölustaður Bifröst, sem auglýst hefur mikið að þar ættu mcnn að nema staðar og snæða, væru menn á ferð um Borgarfjörð, gat ekki selt mat eftir hádegi á sunnu dag. Og það sem verra var, að gestum var ekki leyft að koma inn i veitingahúsið til þess að hlýja sér, en frekar var kalt í veðri þann dag. Kom þetta flatt upp á ýmsa ferðamenn, er þar voru á ferð um lielgina, því yfir- leitt verðtir að gera ráð fyrir því, að jafngóður greiðasölustað- ur og Bifröst er talinn vera, geti ávallt útvegað fólki mat og leyft mönnum að koma þar inn fyrir dyr, jafnvel þótt eitthvað meira sé af fólki á ferð en venjulegt er. Slæm þjónusta. Þótti okkur, sem þarna vor- um á ferð nokkur saman, slæmt að vera úthýst á þessum marg um talaða veitingastað, og það sem verra var, að í ferð með okkur voru nokkrir útlendingar. Höfðum við gyllt Bifröst mjög fyrir þeim og talið liana bezta af öllum veitingastöðuin, sem um var að velja á leiðinni. Kom það þvi heldur flatt upp á okkur, þegar ekki var hægt að fá þar mat, og fólki meira að segja mein að að koma þar inn fyrir dyr. Salirnir voru hálftómir, en samt var fólkið látið hýrast fyrir ut- an og lítil þjónusta sýnd, en það stakk mjög i stúf við þann átpð- ur, sem hafður hefur verið fyrir greiðasölustað þessum. Yonandi er þetta eklci algengt. Erik Nelson ásamt Þórhalli Danielssyni og Önnu dóttur ham Fengið inni. Pégár okkur tókst ekki að f; mat í Bifröst héldum' við ti Varmalands, en þar er sumargist liús, aðallega fyrir dvalargesti Þar var okkur vel tekið, og stóc ekki á þvi að matur var skjótt i borð borinn, og hann mjög góð nr. Bar okkur öllum saman um að þar væri gott að koma oc þökkuðum forstöðukonunni í okt ar lijarta fyrir hve vel hún brás við svöngu ferðafóllci. Hinu er- lenda fólki fannst líka mikið ti um staðinn, því húsakynni eri þar áfbragðsgóð óg allur aðbún- aður, eftir þvi er séð var i stuttr: heiinsókn. Mikil bílaumferð. í Borgarfirði, einkum í grennd við Hreðavatn, var svo mikil bíla imiferð á sunnudáginn, að það var ekki ósvipað að aka þar um og aka niður Laugaveginn i sjálf- uiii liöfuðstaðnuin. Mátti á því sjá, hv'e margir fóru út úr bæn- um um helgina til þess að lyfta sér upp frá daglegum störfum. Læt ég svo staðar numið að sinni. K. K.“ — Begmál þakkar pistil- inn. kr. k

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.