Vísir - 03.08.1954, Page 7

Vísir - 03.08.1954, Page 7
Þriðjudaginn 3. ágúst 1954 VlSIR /i^wwwjwwwvvwvwv^^v^/AVjjvwwyvwyywtfwt Robert 0. Case: GuÍlgildran 21 ^.Mjvwvwwvwdvwuvvwwíwvwywywvwuvww^ veggurinn léki á reiSisjálfi, og svo komu eldglæringar og sprengingar á gasi, ekki með eins miklum hávaða og hann hafði búis.t við, heldur sem neðanjarðarlest æddi áfram með ægilegum skruðningi og hraða, og um leið var sem grjót og spýtnabrot hentust fram með sama krafti og hver, sem stíflaður hefir ver- ið, þeytir grjóti og öðru hátt í loft. Svo hurfu glæringarnar og annar kippurinn kom um leið og loftið sogaðist niður í göngin aftur og nú var hávaðinn sem hvirfilvindur færi um, en þetta leið einnig hjá og svo lagði reyk og gufu hægt upp úr göngun- um. Og þá skildist Ravenhill, að drunurnar mundu hafa verið miklu meiri úti fyrir, þar sem þergmálaði í hamrabeltum og fjöllum. Hann gat enn heyrt enduróminn af bergmálinu óma frá fjarlægum fjöllum, en niðri í göngunum var énn sem kraumaði í potti. „Hvernig líður þér, Vee?“ „Það er allt í lagi, eri það var ógurlegt — guði sé lof, að það er um garð gengið.“ Þau áttu erfitt með andardrátt, því að eitrað loft leitaði upp, og hann lét hana leggjast niður, þar sem kalt, hreint loft lagði inn. Brátt fór loftið hið efra að verða hreinna og hann skimaði dálítið fram, til þess að gefa gætur að þeim Crim og Whitey. Þeir gerigu hægt í áttina að göngunum. Crim hélt á járnkalli cg skóflu, og þeir voru að rífast um eitthvað. Crim sveiflaði handleggj unum og virtist ógnandi. „Þarna koma þeir,“ sagði Ravenhill við Vee. „Fljót, gerðu nú eins og eg sagði þér, varpaðu þér á grúfu nálægt opinu og liggðu alveg hreyfingarlaus. Haltu niðri í þér andanum.“ Hún gerði sem hann bauð og staulaðist fram og gat ekki kæft hósta, en þeir hinir gátu ekki heyrt til hennar vegna þess að þeir virtust deila harðlega og enn bergmálaði í fjöllunum. Whitey og Crim námu staðar úti fyrir og mundaði Whitey vasaljós sitt. „Við skulum bíða andartak/ sagði hann. „Okkur liggur ekk- ert á.“ Crim hallaði sér að kletti skammt frá opinu. Svo var sem hann gæti ekki stillt sig, hann steytti hnefana framan í Whitey og lét skammirnar dynja á honum, og krossbölvaði til áherzlu. Ravenhill hélt fyrst, að hann væri að þessu af leikaraskap, en hann sannfærðist brátt um, að honum var rammasta alvara, og að hann var dauðskelkaður. Það var líka auðheyrt, að þeir þóttust báðir vissir um, að enginn heyrði til þeirra, að hundruð mílna væri til nálægasta staðar, þar sem lifandi mannverur væru. „Eg segi þér bara, að eg ætla ekki þarna inn,“ sagði Crim. „Þú ert potturinn og pannan í þessu öllu. Þú reiknaðir allt út, þú, sem hafðir menntunina. Nú geturðu sjálfur farið inn, og tínt þetta saman, handlegg hér og löpp þar, helvítið þitt. Tíndu þá saman sjálfur." „Vertu rólegur, Crim: Engin ástæða til að æðrast. Þetta eru ekki nema tveir skrokkar. Þú hefðir átt að vera í styrjöld.“ „Eg hefi. verið í styrjöld, bölvaður fanturinn þinn. í fyrri heiínsstyrjöldinni, við Vimy Ridge. Eg sá þá sækja fram og vera brytjaða niður. Sá fleiri lík í kös en þú nokkum tíma sást í þínu stríði. En það var stríð en þetta er fólskulegt morð. Og ef riddaralögreglan nokkurn tíma nær í þig hengir hún þig í hæsta gálga.“ „Og þig líka,“ sagði Whitey og tók upp vindling og kveikti í og sást nú, að hann var nábleikur í framan. „Þú hefir kannske haldið, að þú værir hér bara sem áhorfandi?“ „En eg gerði ekki neitt. Víst tók eg peninga stelpunnar og eg opnaði námuna, til þess að allt liti eðlilega út, en ef eitthvað væri að hafa ætlaði eg að skipta jafnt með henni. Mér hefði verið illa við það, en eg hefði gert það, heldui’ en láta þetta ger- ast. Og það veiztu.“ „En heldurðu að kviðdómur mundi taka gildan framburð þinn um þetta?“ sagði Whitey, blés frá sér reyk og fór aftur að bera sér. „En auðvitað verður enginn kviðdómur. Við flýjum ekki undan riddaralögreglunni. Við fljúgum til hennar og gef- um skýrslu. Riddaralögreglan finnur líkin þarna í flugvélarúst- unum. Og í námugöngunum verður ekkert sem gefur til kynna hvað gerst hefir. Og þegar allt er um garð gengið og kyrrð komin á opnum við námuna og förum að raka saman fé.“ „En af hverju þurfti að koma þeim fyrir kattarnef? Segðu mér það?“ „Vertu ekki að hugsa um það,“ sagði Wlritey. „Það er gert — og það þýðir ekki að sakast um orðinn hlut. Mundu bara að þú ert flæktur í málið og hér- er það eg sem stjórna.“ „Og hver skyldi svo sem hafa falið þér að hafa stjórn á hendi hér — enginn nema þú sjálfur. Hver fann þessa námu? Eg vann skítverkið — og þér var greitt fyrir þinn part og viðurkenndir, að þú værir ánægður. En svo kemur þú aftui og segir: Gerðu þetta, gerðu hitt —- og líttu nú á hvernig komið er fyrir okkur.“ „Komið fyrir okkur — eg held að við þurfum ekkert að kvarta,“ sagði Whitey. „Með tvö morð á samvizkunni — og hvað næst?“ „Við erum búnir að safna saman 80 únzum af skíru gulli — þetta er eins auðvelt og að tína rúsínur úr jólakókusneið.“ „Og hver fékk rúsínurnar? Travis. Enn einn náungi, sem bolaði sér inn. Gullsandurinn okkar er í peningaskápnum hans. Ertu viss um, að hann sleppi honum?“ „Eg skal sjá um hann,“ sagði Whitey. „Við verðum einhvern veginn að koma út gullinu, heimskinginn þinn. Ef við hefðurn farið löglega leiða mundum við hafa orðið að gera gull- framleiðslufulltrúa stjórnarinnar grein fyrir —“ „Já, þú ætlar að sjá um Travis. Ætli það fari ekki eins og þegar þú sagðir: Eg skal sjá um Ravenhill. Leikur fyrir okkur, sagðir þú. Við áttum bara að segja stelpunni, að hann hafði ginnt út úr henni peningana, og þá mundi hún hreiðra um sig í horni DeVore? Ó, nei, maður minn. Hún skildi þig eftir þaina og þú getur látið skína á hvítan tanngarðinn og punktum og basta. Já, þú ert karl í krapinu, — Napoleon DeVore. Þú hefir beðið þinn Waterloo-ósigur, af því að þá hittir fyrir Raven- hill —“ „Og hvar er Ravenhill nú?“ greip hann fram í fyir honum. „Hvar er —?“ Hann þagnaði skyndilega, varpaði frá sér vindlingnum, ógnandi á svip. „Nú er nóg komið, Crim. Hættu öllu bulli.“ Hann beindi geislanum inn í göngin. „Táktu upp verkfærin þín. Við skulum fara inn.“ „Eg ætla ekki að hreyfa mig héðan, ekki hænufet, fyrr en allt er ljóst orðið, skilurðu. Crim gamli er nefnilega ekkert gáfnaljós og ekki getur hann státað af menntuninni, karlinn, en hann hreyfir ekki við þessum líkum, því að meðan hann gerir það ekki verður herra DeVore að segja riddaralög- reglunni allt af létta. Svo sagði mér á því máli, sem eg, alþýðu- maðurinn, skil —“ Hann þagnaði skyndilega og starði á Whitey og var ein- kennilegur glampi í góðlegum augum. Whitey hafði tekið vasaljósið sér í vinstri hönd og var að renna hægri höndinni í rassvasann. „Farðu þér hægt, Whitey“, sagði Crim, en það var skelf- ingarsvipur í augum hans. „Hleyptu ekki úr þessari byssu á mig, drengur. Eg held að þú sért kolbrjálaður. Skjótirðu mig hefirðu þrjú morð á samvizkunni og hvernig ætlaraðu að út- Á kvöldvökunni. Anthony Eden var mjög dáð- ur er hann fór til Ameríku fyrir nokkru og var mjög eftir- sóttur í samkvæmum. f sam- kvæmi einu var það sérstak- lega ein kona, sem vék varla. frá honum. Hún var töluvert ástleitin og spurði einu sinni: „Hvað haldið þér að eg sé görnul?" Utanríkisráðherrann sýndi þá hvað hann er laginm að tala við fólk: „Kæra frú,“ sagði hann. „Eg. veit ekki hvort eg á heldur acT- ráð það af fegurð yðar, að þér séuð mjög ungar, eða af vits- munum yðar að þér séuð nokk- uð þroskaðar.“ Hann eignaðist tvíbura og: þurfti þá vitanlega að nota tækfærið til þess að halda há- tíð. Loks komst hann þó í skrif- stofu sína og hugsaði sér nú að tilkynna fæðingu tvíbur- anna. „Herrar mínir!“ hóf hann máls. „Óþarfi er að hafa það fleir- tölu,“ sagði maðurinn sem sat við skrifborðið. „Eg er hér bara. einn“. „Ojæja,“ sagði hinn ham- ingjusami faðir. „Getur verið að það væri vissara að fara heim og sjá hvort þar eru tví- burar í raun og veru.“ „Rússland er frjósamast af öllum löndum,“ sagði trúaður kommúnisti, hrifinn. „Þar fáum við fjórar hveitiuppskerur á ári.“ „Nei, nú held eg þú krítir liðugt,“ sagði kunningi hans vantrúaður. „Nei, alls ekki. Það er ein hveitiuppskera í Póllandi, ein í Ungveralandi, ein í Tékkó- slóvakíu og ein í Rússlandi. Eru það ekki 4 uppskerur?“ Ungur fréttamaður átti að' segja frá dansleik, sem stofnað var til í góðgerðaskyni og ein setning var á þessa leið: „í hópi hinna fegurstu yngismeyja var Carlo Hansen, stórkaúp- maður.“ Ritstórinn kallar hann fyrir sig: „Hvaða þvættingur er þetta, sem þér skrifið þarna!“ „Það er enginn þvættingur," svaraði fréttamaðurinn. „Hann hélt sig alltaf í .þeirra höpi.“ C & RutrouqkA: - TARZAM m Tárzan v'ar langi mýramannarina Vár hann slepjugur allur og minnti En Tarzan tók undir sig stökk um, er hann leit skepnu og er hann hafði verið kallaður úr á froska og illa ára, mundaði spjot mikið til árásar á fjanda þennan, líki, sem reynt hafði myrkrastofunni sá hann í fyrsta og grenjsði: „Komdu og hafðu engin því að viUidýrseðlið vaknaði i hon- honum. skipti forsprakka þeirraí brogð í f: ammi“. þá í mannsx að drekkja

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.