Vísir - 12.08.1954, Qupperneq 1
I *
■I
V
44. árg.
Fimmtudaginu 12. ágúst 1954.
i i-*' i
180. tbl.
Heyskap senn lokið
þar sem bezt gengur.
Almennt mun honum ekki ljúka fyrr
en í september.
Heyskap mun að mestu verða
lokið, þar sem bezt gengur, um
eða upp úr miðjum þessum
mánuði.
Almennt mun heyskap ekki
verða lokið fyrr en í næsta
mánuði, og yfirleitt má segja,
að menn sé mjög misjafnlega
langt komnir með heyskapinn.
Það er að sjálfsögðu aðallega
þar, sem heyskapur er nær ein-
göngu á véltæku landi og nú-
tíma tækni bezt nýtt (vélar,
súgþurkun, vothey), svo sem á
stórbúum, að heyskapur er
langt á veg kominn. Þannig
hefir blaðið frétt, að heyskap
muni veriða lokið um næstu
helgi á Hvanneyri. Er þar nú
verið að slá há og aka í vothey.
Stöku bændur, sem heyja ein-
göngu á túnum, eru og vel á
veg komnir.
Yfirleitt hefir viðrað allvel
til heyskapar suðvestanlands,
og vegna góðrar sprettu gátu
margir byrjað í júní, en þá
voru góðir þurkar. Júlí hefin
verið votviðrasamur, en þó ekki
rigningatíð. Hefir oft verið
kalt og stundum svo hvasst,
að illt hefir verið að fást við
hey. — Norðanlands, í Húna-
vatnssýslum, Skagafirði og
Eyjafirði, hefir sumarið verið
kalt og fremur óhagstæð hey-
skapartíð, en annars kvarta
menn mest undan sumarverðr-
áttunni á Norðausturlandi. Þar
hafir títt verið norðaustankalsi
og rosi.
Garðuppskera.
Horfur munu yfirleitt sæmi-
legar með garðuppskeru. Sum-
staðar nörðanlands hafa kom-
ið nætuiífrost, svo að sér á kart-
öflugrasi, en þó ekki til stór
skemmda.
Eísenhower
afstöðu
forsetí tekur ákveina
gegn stríðsstefnunni.
Malenkov í
boði Attlees.
Mörg mium
(lrukkin.
Alls engin síldveiði
nyrðra.
Frá fréttariturum Vísis
Siglufirði og Raufarhöfn
í morgun.
Engin síld hefur borizt á land
undangengin dægur, og engar
fregnir hafa borizt um, að skip-
in hafi komizt í síld.
Tíðindamaður Vísis á Rauf-
arhöfn tjáði blaðinu í morgurt,
að flotinn væri dreifður um
stórt svæði, allt frá Sléttu og
austur á Digranesflak. í morgun
vár farið að kula, og útlit um
veiðiskap ekki gott.
Úti af Siglufirði var austan
norðaustan bræla í morgun og
svartaþoka. í gær lygndi um
tíma, en í nótt og morgun versn
aði veður á ný.
Horfur á Síldveiðum þykja
fjarska daufar, enda þótt ekki
sé unnt að segja, að menn séu
orðnir vonlausir.
Einbaskeyti frá AP. —
Moskvu í morgun.
Clement Attlee hafði boð inni
fyrir Malenkov forsætisráðherra
og aðra helztu menn Rússa í
brezka sendiherrabústaðnum i
gærkvöldi.
Hófið stóð fram undir morgun
og var rætt um mörg vandamál
og er Alit manna að þessar ó-
formlegu viðræður rnuni reyn-
ast gagnlegar, einkanlega með
tilliti til þess, að brezku verk
lýðsleiðtogarnir hafi fengið auk-
ið tækifæri til að kynnast rúss
•neskum stjónnmálamönnum.
Mörg minni voi-u drukkin :
hófinu. Malenkov mælti fyrir
friðsamlegu samstarfi þjóða
milli. Einnig yor.u drukkin minni
Élisabetar drottningar og forseta
Ráðst j órnarrík j asam bandsins.
Hehnsstyrjöld ohugsanleg, ef frjálsu
þjóðirnar treysta varnir sínar.
Einkaskeyti frá AP. Washington í morgun.
Á fundi með fréttamönnum í gær tók Eisenhower forseti
eindregna afstöðu gegn þeirri stefnu, að hefja styrjöld til þess
að hindra útþensluáform kommúnista.
Með því að
l
Vélaprófun byrjuð
Fossárvirkjuninni.
Stööin framleiöir 800 kw. og verður tekin
í notkun eftir nokkrar vikur.
Fossárvirkjunin er nú svo vel
á veg komin, að prófanir á
vélum eru hafna.^, en enn munu
líða nokkrar vikur þar til stöð-
in verður tekin í notkun.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefir fengið hjá raforku-
málastjóra, eru nýkomnir vest-
ur menn frá verksmiðju þeirri
í Bretlandi, sem framleiddi
vatnsvélarnar, en þeir hafa
verið í Skeiðsfossvirkjuninni í
Fljótum, við samskonar hlut-
verk (prófun á vélum), en þar
var um viðbótarvirkjun að
ræða. Skeiðsfoss er sem kunn-
ugt er eign Siglufjarðarkaup-
staðar, sem fær rafmagn það-
an.
Gert er ráð fyhir, að Ólafs-
vík, Hellissandur og Rif fái
rafmagn frá Fossárstöðinni,
sem framleiðir 800 kw. Einnig
er gert ráð fyrir línu í Grafar-
nes í Grundarfirði og ef til vill
víðar, þ. e. sveitir á Snæfells-
nesi eftir því sem unnt er, en
það er vitanlega kostnaðarsamt
að leiða rafmagn um strjál-
byggðar sveitir og verða því
margir að bíða. Komið hefir
til tals, að leggja línu til
Stykkishólms (sem hefir að-
eins dieselstöð, en þyrfti að
fá rafmagn frá vatnsvirkjun),
en vegarlengd er mikil, og eng-
in ákvörðun tekin í því máli
enn.
Ætlaði einn á báti frá
Álftafirðl hingað.
í gærkvöldi auglýsti siysa-
vamaíélagið í útvarpinu eftir
manni einum sem lagt hafði af
stað eiun á smábáti frá Álfta-
firði síðasliðmn föstudag og ætl-
aði beint til Reykjavíkur.
Hafði ekkert frá manninum
heyrzt frá því á föstudag, en seint
í gærkvöldi fékk slysavarnafélag-
ið fréttir um, að maðurinn hefði
síðdegis í gær komið gangandi
að vitanum á Malarrifi, og hafði
hann brotið bát sinn við land-
töku í Beruvík og þar hafði bát-
inn sokkið.
Maðurinn sem hér um ræðir
heitir Högni Magnússon, til heim-
ilis að Sogabletti 174, Reykjavík.
Sanuið, en
ekki samstaða?
í fyrradag vora tekin til
meðferðar í Norðurlandaxáð-
inu tilmæli íslenúinga um
samstöðu Norðurlandaþjóð-
anna vegna landhelgisdeil-
unnar við Breta.
Sigurður Bjaruason alþing-
ismaður flutti framsöguræðu
um málið, eu Ólaiur Thors
iorsætisráðherra lýsti aístöðu
íslenzku stjóraarinnar í mál-
inu.
.. Forsætisráðherra mun hafa
látið svo um mælt, að ef til-
mælum þessum yrði vísað frá,
hlytu íslendingar að telja
Norðurlandaráðið lítils virðL
Ekki hafa borizt áreiðan-
legar fregnir um undirtektir
fulltrúa í máli þessu, en sagt
er að ekki séu menn á eitt
sáttir um, hvað gera skulL
Hinsvegar hafi menn fyllztu
samúð með íslendingum í
málinu.
Eggert Krfstjánsson
skipa&ur a&alræðis-
maður.
Fyrir skemmstu hefir verið
skipaður nýr aðalræðismaður
fyrir Finnland hér á landL
Segir svo í Lögbirtingablað
inu frá 7. þessa mánaðar, að i
lok júlí hafi Eggert Kristjáns
syni stórkaupmanni verið veitt
viðrikenning sem aðalræðis-
mannni Finnlands hér á landi
með aðsetri í Reykjavík.
taka þessa á-
kveðnu hefur forsetinn raun-
vei ulega lýst yfir, að sú stefna,
sem á sér allmarga formælend-
ur í flokki herleiðtoga og einn-
ig á þingi, að láta til skarar
skríða gegn kommúnistum með
an Bandaríkin hafi forystuna
á sviði kjarnorkuvopnafram-
leiðslunnar, og þar af leiðandi
á næstu árum, fái ekki stuðn-
ing hans.
Eisenhower forseti kvað svo
að orði, á þessum tímum tækn-
innar væri heimsstyrjöld óhugs
anleg, ef frjálsu þjóðirnar gættu
þess að treysta varnir sínar
nægilega.
Hann kvað frjálsu þjóðirnar
verða að taka að sér það hlut-
verk, að koma á traustu efna-
hagslífi í Suðaustur-Asíuríkj-
um, til bættra lífskjará þar, en
með því væri grundvöllurinn
lagður að heilbrigðu, öruggu
samstarfi þjóðanna þar og
frjálsu þjóðanna.
Eisenhower hafnaði jafn-
framt algerlega stefnu, sem
fram héfur komið í þingnefnd
í Washington, um að slíta stjórn
málalegu samstarfi við Ráð-
stjórnarríkin, og tillögum
Clarks hershöfðingja um end-
urskipulagningu frá rótum gegn
kommúnistarík j unum.
Því er fagnað í brezkum blöð
um í morgun, að Éisenhower
forseti hefur tekið eindregna
afstöðu gegn stríðsstefnunnL
sem á sér allmarga formælend-
ur vestra, og telja tvö áhrifa-
mestu blöð landsins utan Lund-
úna, Yorkshire Post og Birm-
ingham Post, að Eisenhower
muni vaxa mjög að áliti sem
þjóðarleiðtogi, vegna ofan-
greindr afstöðu, og taka þa»
fram, að þau túlki þær skoðaniL
og hugsjónir sem skyldar sén
þeim, sem frá upphafi hafi ver-
ið Vestmönnum hugstæðar.
Myndin hér að ofan er af dálítið einkennilegu bókasýnishorni. Er hér um bækur að ræða, sem
fundust í bókaskápum Jakobs Arbenz, forseta Gaatemala, er honum var stökkt frá völdum.
Eru bækur þessar allar eftir helztu foringja kommúnista, svo sem Marx, Lenin, Stalin, Mao
og Malenkov, En vitanlega sagðist Arbenz ekki vera kommúnisti.
Hótað að myrða
Menzies.
Canberra (AP). — Undanfarið
heíur þrívegis verið hótað að
ráða Menzies forsætisráðherra a£
dögum,
Var í öil skipti hringt til blaða
í Melboume og Perth, og sagt, að
forsætisráðherrann mundi verða
ráðinn af döguin, þar sem stjórrn
hans væri ekki í anda þjóðarinn-
ar. Yfirvöldin halda, að hér sój
um „gamansemi" að ræða.
Á næsta ári verður byrjað a?
leggja sæsíma yíix Atlantshaf
fyrir talsamhand. ]