Vísir


Vísir - 10.09.1954, Qupperneq 8

Vísir - 10.09.1954, Qupperneq 8
VfSIR er ódýrasta blaðiS og þó það fjSI- breyttasta. — Hringið í síma 1660 eg gerist áskrifendur. VlSIR * Föstudaginn 10. september 1954. Þeir sem gerast baupendur VÍSIS eftis 10. hvers mánaðar fá tlaðið ókeypis ti! mánaðamóta. — Sími 1660. Þúsundir bilu bana eða meiddust í landskjáiftunum í N.-Afríku. í Orleansville, sem er í rústum, fór- ust yfir 1000 manns. 450 lik hafa fundizt. Einkaskeyti frá AP. — Algeirsborg í morgun. Það má nú telja nokkurn Veginn fullvíst, að yfir 1000 manns hafi beðið bana af völd- um landskjálftans, sem lagði Orleansville nærri í rústir í fyrrinótt. Þegar hafa fundist 450 lík, en þúsundir manna sem meiðst hafa eða hlotið brunasár bíða flutnings. Orleansville er nú borg logandi rústa. Þrjár franskar herdeildir hafa verið fluttar þangað til. hjálpar og björgunarstarfsi Herflokkar úr útlendingasveit- inni frönsku ganga um göturn- ar til þess að halda uppi reglu. Hvarvetna getur að líta hrunin eða hálfhrunin hús og logandi rústir. Loftleiðis eru flutt til borg- arinnar hvers konar hjúkrunar- gögn og lyf og búið er að flytja hingað til Algeirsborgar loft- ieiðis 150 meidda menn, en 300 eru á leið hingað í járnbrautar- lest. Engum vafa er undirorpið að menn hafa meiðst eða hlotið brunasár svo þúsundum skiptir. Yfir 1000 manns hafa beðið fcana í Orleansville einni. JFyrstu fregnir, sem bárust gáfu enga hugmynd um hvað gerzt hafði. Greinilegar fregnir bárust ekki frá Orleansville sjálfri þegar, því að allar helztu byggingar í borginni, m. a. símastöðin, lögðust í rústir á 6vipstundu, enn fremur gisti- hús, sjúkrahús o. s. frv. Sjónarvottar segja, að eins og rauðleitt ský eða skýstrókur hafi virzt fara yfir, er kippur- inn kom. Sprungur mynduðust víða á landskjálftasvæðinu og vega- og járnbrautarspjöll eru mikil. Ekki kom nema einn kippur, en feikn harður eins og augljóst er af því hve tjónið er gífurlegt, enda varð fólkið skelfingu lostið sem heims- endir væri kominn. Fram undir morgun varð vart jarðhræringa við og við. Kunnugt er, að manntjón hefir orðið miklu víðar á land- skj álftasvæðinu en í Orleans- ville, sem er nýtískubær, sem Frakkar hafa komið upp á seinustu áratugum. IVIargir dagar kunna að líða þar til unnt er að gera sér fulla grein fyrir manntjóni á landskjálfta- svæðinu. Tyrklandsforseti á heimleið. Einkaskeyti frá AP._ Belgrad í morgun. Bayar Tyrklandsforseti er lagður af stað heimleiðis á snekkju sinni að aflokinni 8 daga opinberri heimsókn í Jugoslaviu. Áður en hann lagði af stað birtu þeir hann og Tito. forseti sameiginlega tilkynningu, um sérstaklega ánægjulegar og vin- samlegar viðræður þeirra milli o. s. frv. VinsæMir Fordbíla sivaxandi. Tveir sérfræðingar staddir hér hjá Kr. Kristjánssyni h.f. til leiðbeiningar. Júlíus M. Magnús, framkvstj.' !Kr, Kristjánsson h.f., en það fyr- jírtæki hefur umboð fyrir Ford, býnnti í gær fyrir blaðamönn- jom tvo danska menn frá Ford- {verksmiðjnnum, sem komnir eru fhingað til að leiðbeiná bifvéía- fvirkjum í meðferð á hinum nýju ff'ordbifi aiðum. I Við það tækifæri sagði Júlíus a., að Ford hefði dregist nokk |uð aftur úr í samkeppninni um ' jbílamarkaðinn, en eftir síðustu 1 fceimsstyriöld hefði Ford yngri fiafizt hnnda um endurbætur,' (Svo að Ford kæmist aftur upp 5 fyrsta sæt.i, sem hann hafði svo 1 lengi skipað. Sagði Júlíus, að |>etta hefði nú tekizt, og hefði ( jFord verið á fyrra helmingi |>essa árs mest seldi bíll Banda- Iríkjanna. Á þessu tímabili hefðu iverið skrásettir 48% fleiri Ford- fcílar en á sama tíma árið 1953. fSnnfremiii sagði hann, að þar (sem Ford hefði verið fyrstu 6 pnánuði ársins 1953 annar í röðinni með 475.500. skrásetta bíla gegn 670.082 bílum þeirrar tegundar, sem var í fyrsta sæti, væri útkoman aftur á móti á sama tíma í ár sú, að Ford hef- ur 706.577 skrásettar bifreiðar gegn 697.852. þessar nýju tölur sýndu, að yfir 25% af öllum söl- um fólksbíla í Bandaríkjunum ganga nú til mérkisins Ford. í sölum vörubifreiða var Ford bíllinn sá eini af öllum vörubíla- tegundum í Bandaríkjunum sem sala jókst á — sala á öllum öðr- urn tegundum hefur minnkað. Af öllum skrásettum vörubílum í Bandaríkjunum yfir 6 fyrstu mánuði þessa árs voru 33,4% þar sem þeir voru á sama tíma á árinu 1953 aðeins 24,3%. Að lokum sagði Júlíus, að til- gangurinn með komu þessara tveggja erlendu sérfræðinga hingað væri sá, að kenna með- ferð bíla og viðgerðir, svo að fyrirtækið gæti veitt viðskipta- vinum sínum þá þjónustu, sem þeim bæri. Drengur handleggsbrotn- ar í umferðarslysi. í gær varð slys á Hverfisgöt- unni, á móts við Vatnsstíginn, er 12 ára drengur á bifhjóli varð fyrir bíl og féll drengurinn á götuna. Drengur þessi, Bjarni Þ. Jónsson, Traðarkotssundi 3, var fluttur á Landspítalann og kom þar í ljós að hann hafði brotnað á hægri handlegg. Biluðu hemlarnir. í gær var leigubifreið ekið á vinnupall við Reykjavíkur apótek í Austurstræti. Þar brotnuðu tré í pöllunum, rúða í bifreiðinni brotnaði og bíllinn stórskemmdist, en bílstjórinn slapp ómeiddur. En um leið og bifreiðin rakst á pallinn skall hún einnig á aðra bifreið, en hún mun ekki hafa laskazt neitt að ráði. Orsökin til þessa mikla áreksturs var sú, að hemlar bif- reiðarinnar biluðu skyndilega. Ók út af. Um miðjan dag í gær var jeppabifreið ekið út af veginum á Hafnarfjarðarveginum, móts við Fossvogskapellu, og fór bíll- inn á hliðina út í skurð. Slys á mönnum mun ekki hafa orðið. í nótt kom maður nokkur á lögreglustöðina, eitthvað undir áhrifum áfengis, og leiddi við hlið sér reiðhjól. Þessu reiðhjóli kvaðst hann hafa stolið skömmu áður frá tilteknu húsi hér í bænum og nú væri hann kom- inn til þess að skila því aftur. 717.11 er ókyrrt í Marokko, og skemmdarverk tíð. Hér sést nokkur hluti járnbrautarlestar, sem spellvirkjar settu af teinunum hjá Beneshid. Enginn beið bana, enda aðeins tveir far'þegar með Iestinni, því að Márar 'þora ekki að ferðast með þeim, eins og ástatt er í landinu. Hætt vid ai söltun hætti vegna skorts á rekstrarfé. Síldarsaltenda á Suðvesturlandi. Ákveðið að stofna félag Hervæiíng V-Þ. sant- samþykkt á þingi brezkra verkalýðs- félaga. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Á þingi brezku verkalýðsfélag- anna hefur verið samþykkt með naumum meiri hluta atkvæða ályktun, þar sem þingið lýsir sig samþykkt endurvigbúnaði V.- þýzkalands til stuðnings varn- arsamtökum vestrænu þjóðanna. Meðmælendur tillögunnar héldu því fram, að Rússar hefðu þegar leyft Austur-þýzkalandi vígbúnað, — þar hefði verið stofnaður her með aðstöð Rússa, að því er varðar þjálfun og búnað. —• Andmælendur töldu hættulegt að vopna V.-þýzka- land, því að endurvígbúnður þess kynni að, ieiða til þess, að þjóðverjar reyndu að ná aftur með vopnum þeim iandsvæðum, scm þeir misstu. í héimSstyrjöld- inni síðari. i* Felld var með miklurn at- kvæðamun tillaga um aðild að Aiþjóða verklýðssambandinu kommúnistíska. t Samþykkt var einijóma' að banna vetnissprengjur og önnur kjarnoi'kuvopn. Á fundi síldarsaltenda við Faxa flóa, sem haldinn var í gsar, var rætt um erfiðleika þeirra srvegna skort á nægilegu rekstrarfé. Telja þeir, að svo fremi sem ekki verði gerðar viðunandi ráð- stafanir, til þess að útvega þeim rekstrarfé í þessu skyni, sé við- búið að annað tveggja dragist síld veiðarnar að verulegu leyti sam- an eða stöðvist jafnvel alveg. Hafa bátar, sem stundað lifaa reknetaveiðar i Faxaflóa undan- farin ár átt örðugt uppdráttar, m. a. vegna dýrra veiðarfæra. — Samkvæmt rannsókn, sem gerð hefur verið á rekstrarafkomu bát anna, hefur komið i ljós, að með- altap hvers þeirra á úthaldi, þ. e. á tímabilinu ágúst—október hafi numið 51 þús. krónum. Síldar- verðið hefur öll þessi ár haldizt óbreytt, eða 1 króna pr. kg. vegið upp úr bát. Á sama tíma hefur verðið hins vegar hækkað úr 85 aurum og upp i kr. 1.22 pr. kg. Landssamband ísl. útvegs- manna hefur enn i haust farið þess á leit við útvegsmenn, að þeir fiskuðu síld fyrir sama verð og áður. Um 80 bátar hafa nú ver ið sendir á þessar veiðar, en það er sem næst helmingi færri bátar en stunduðu þessar veiðar þ fyrra. Ástæðan fýrir því híns vegar, að útgerðarmennirnir gera út á þessar veiðar með taprekstri er fyrst og fremst sú, að um aðrar veiðar er ekki að ræða seint að sumri eða fyrri hluta hausts og það myndi á ýmsan hátt verða óliagstæðara að leggja bátunum Fyrsti kfðmorkukaf- báturinn í notkun senn. Einkaskeyti frá 'AP. — New York í mor^un. Flotamálaráðuneyti Bandaríkj- anna tilkynnir, að Nautilifs, kjarn orkuknúni kafbáturinn, verði mannaður og tekinn í úiotkun á næstu viku. t Þetta ér fyrsti kjarn^rkuknúni kafbátur heims og vs^r honum hleypt af stokkunum i janúar s.l. upp og láta þá vera aðgerðar- þessu sinni gefið Bæði í fyrra og nú hafa samn- ingar verið gerðir bæði við Sov- étrikin, Pólland og fleiri lönd um sölu Suðurlandssíldar. — En þrátt fyrir uppbót — eða með- gjöf, sem ríkissjóður greiddi síld arsaltendum fyrir hverja upp- saltaða tunnu í fyrra, urðu þeir samt fyrir tilfinnanlegu tapi. Síldarútvegsnefnd hefur að þessu sinni gefið vilyrði fyrir 325 kr. fyrir 100 kg. tunnu af hausskorinni sild og 280 kr. fyrir tunnu af rúnnsaltaðri síld. En ríkissjóður hefur lofað að greiða- 20 kr. með hverri tunnu. Þetta verð telja síldarsaltendur ekki svara til framleiðslukostnaðar og. að ekki sé hægt að ganga að því. Á fundinum í gær var ákveðið að stofna félag sildarsaltenda á Suð-vesturlandi, eða allt frá Breiðafirði til Vestmannaeyja. — Var sérstök undirbúningsnefnd kjörin í því skyni. Önnur nefnd var einnig kjörin á fundinum og var lienni falið það lilutverk að ræða við rikisstjórnina og síld- arútvegsnefnd um starfsmögu- leika fyrir síldarsaltendur. Umferb í Svíþjód stjornað úr lofti. Frá fréttaritara Vísis. Stokkhólmi. Lögreglan gerir allt sem hún getur til að koma í veg fyrir hin tíðu umferðarslys í Sví- þjóð. Nú hefir flugvél verið gerð út til að hafa eftirlit með hraða ökutækjanna, og áhöfn flugvél- arinnar stendur í stöðugu sam- bandi við umferðarlögregluna á þriggja sænskra mílna svæði. Um leið og einhver ekur fram úr þeim hraða sem leyfilegt er, er vegalögreglunni gert aðvart og tekur hún sökudólginn. Lög- reglan var mjög ánægð með árangurinn af þessari ný- breytni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.