Vísir - 23.09.1954, Blaðsíða 8
YÍSIB er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og
gerist áskrifendur.
Þeir sem gerast kaupeudur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá tlaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
Fimmtudaginn 23. september 1954.
Fundur Alþjóðagjald-
eyrissjóðssns.
Washington í morgun.
Aðalfundur Alþjóða gjaldeyr-
issjóðsins kemur saman til fund-
ar hér á morgun.
Butler fjármálaráðherra Bret-
lands er hingað kominn frá Ott-
-awa, þar sem hann hefur dval-
ist að undanförnu, til þátttöku í
fundinum.
Fangauppþot
Missouri.
Einkaskeyti frá AP. —
New York í morgun.
í nótt gerðu fangar í Miss
<ouri-ríkisfangelsinu uppþot og
Tbrutust út úr klefum sínum.
Barist er með skotvopnum og
hverjju sem hönd á festir og
fengelsið eins og umsetinn
kastali.
Fyrstu fregnir hermdu, að
um 80 fangar, sem voru ein-
angraðir, hafi brotist út úr
klefum sínum. Hófust þeir þeg-
ar handa um að opna dyr á klef-
um annarra fanga og að reyna
að komast yfir skotvopn. Tókst
þeim það og náðu um leið
tveimur fangavörðum á sitt
vald, sem þeir halda sem gisl-
um.
Fylkisstjórinn kallaði þegar
saman deildir úr þjóðvarnar-
liðinu og er nú fangelsið um-
'kringt. Ekki var búið að bæla
niður óeirðirnar, er síðast
fréttist, og höfðu þá tveir menn
fallið og 14 særst í átökunum,
ef til vill miklu fleiri, því að
fregnir af átökunum eru enn
óljósar. ,
Seinustu fregnir:
Fangarnir kveiktu í sumum
byggingunum og hefur ekki
tekist að slökkva eldinn.
'Slökkvilið hefur verið sent frá
Jefferson City og St. Louis. —
Seinustu fergnir herma, að
kunnugt sé um, að 3 fangar
þafi verið drepnir, en margir
særst.
Ítalíuþlng ræbk
Montesi-hneykslii
Rómaborg í morgun.
■ • Efrideild ítalska þingsins ræð-
ir nn breytinguna, sem varð á
stjórninni, vegna lausnarbeiðni
Piccioni, fyrrv. utanríkisráð-
herra.
Umræðurnar snúast að sjálf-
sögðu um Montesi-lineykslið og
afskipti stjórnarinnar af málinu.
Kröfðust ræðumenn kommún-
ista og róttækra jafnaðarmanna,
að Scelba forsætisráðherra segði
af sér.
Sögðu þeir, að hann bæri á-
byrgð á því, að stjórnin hefði
reynt að þagga niður hneykslið.
— Scelba forsætisráðherra mun
flytja ræðu við framhaldsumræð-
Ona i dag og svara fyrir sig og
stjórnina.
Attlee gagnrýndur fyrír ummæll
um Chiang Kai-shek.
IJminæliit auiiað höfuðmál brezkra
blaða í morgiii*.
Einkaskeytji frá P. [ séu hlynntir Chiang og leiðtog-
London í morgun. j ar Bandaríkjanna meti hann
Clement Attlee er kominn heim mikils, og þá fari ekki hjá því, að
úr Kínaförinni og sagði hann orð Attlee’s muni láta vel i eyrum
við heimkomuna, að því fyrr sm forsprakkanna austur í Peking.
hægt væri að losna við Chiang Blaðið segir, að hvað sem einka-
Kai-shek og her hans frá For- skoðunum Attle’s liði, hafi hann
mósu, því betra. | alls ekki mátt hafa orð á þessu.
Flest blöðin gágnrýna Attlee Daily Telegraph telur, að þessi
harðlega fyrir þessi ummæli, og ummæli Attlee geti haft háska-
telja hQnum það litt til málsbóta, legar afleiðingar vegna afstö'ðu
þótt hann hafi tekið fram, að Bandaríkjanna, — hann hefði
þetla v.æri sín einkaskoðun. Er varla getað tekið dýpra i árinni,
Ijóst af ummælum blaðanna, að nema ef hann beinlinis hefði
þau furða sig á, að jafnreyndur hvatt kommúnista til þess, að gera
og gætinn stjórnmálamaður og innrás á Formósu. í svipaðan
Attlee, skuli viðhafa þessi um- streng er tekið i fleiri blöðuin
mæli, og vekja athygli á, að orð-
um höl'tiðleiðtoga stjórnarand-
stöðunnar í Bretlandi, sé jafnan
veitt athygli ekki aðeins heima
fyrir, heldur og út um heim.
Daily Mail segir, að Attlee hefði
ekki getað sagt neitt, sem betur
væri fallið til þess að reita
Bandaríkjamenn til reiði, en þeir
og látin í ljós furða yfir ummæl-
unum og því ábyrgðarleysi, sem
þau beri vitni.
Hin 19 ára gamla stúlka, Lee Ann Meriwether, varð misjafn-
lega við heppni sinni. Hún var nýlega kjörin Miss Ameríka
fyrir árið 1953. Þegar hún fékk fréttina, brast hún í grát, eins
og sést á minni myndinni en daginn eftir var farið að hýrna
yfir henni. Það sýnir stærri myndin.
Endurvígbúnaður ÞJóðverJa :
Klofnar brezki verkamanna-
fiokkurinn vegna hans?
Ný tíllaga lögð íyrir flokksþingið.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Brezk blöð ræða mikið í
morgun ágreininginn innan
brezka Verkalýðsflokksins út
af endurvígbúnaði Vestur-
Þýzkalands.
Miðstjórn flokksins hefur nú
samið nýja ályktunartillögu í
málinu sem lögð verður fyrir
flokksþingið í næstu viku.
Nýja tillögu varð að semja,
vegna þess að hin fyrri var
samin áður en Frakkland hafn-
aði Evrópusáttmálanum. í
hinni nýju tillögu segir, að
flokksþingið fallist á endur-
vígbúnað Vestur-Þýzkalands
og þátttöku í varnarsamtökum
Hafnarmannvirki vigð í
Þórshöfn, Færeyjum.
Nýlega voru vígð ný hafnar-
mannvirki í Þórshöfn í Fær-
eyjum, og hafði danskt fyrir-
tæki séð um gerð þeirra.
Hefir bryggjulengd þar í bæ
þá aukizt um 400 metra, en
athafnasvæði við höfnina auk-
izt um 28.000 fermetra. Um
200.000 smál. af grjóti fóru í
uppfyllingu bryggjunnar og
12.000 teningsm. af steinsteypu.
Tók verkið fjögur ár.
Vestur-Evrópu, enda sé þannig
um hnútana búið, að hernaðar-
stefnan gamla verði ekki tekin
upp aftur. Ennfremur sé þess
krafist, að V.Þ.-stjórnin verði
til viðtals um sameiningu
Þýzkalands, þegar framgengt
hefur fengizt kröfunni um
frjálsar kosningar í öllu Þýzka-
landi. — Bevan bar fram aðra
tillögu, sem varfelld (atkvæða-
hlutföll 2:1).
Það er talið víst, að Bevan
berjist af miklum móði fyrir
sinni stefnu í málinu á flokks-
þinginu, og flestra ætlan er, að
tillaga miðstjórnarinnar fái
ekki nema nauman meirihluta,
og svo gæti jafnvel farið, að
Bevan hefði betur, en afleiðing
þess yrði hin háskalegasta fyrir
flokkinn.
Tillaga miðstjórnarinnar er
orðuð þannig, að sýnilega er
reynt að forðast það, sem orðið
gæti að ásteitingarsteini. -
Daily Herald, aðalmálgagn
verkamanna bendir á, að efna-
hagsaðstaða V.-Þ. sé orðin slík,
að landið geti staðið undir víg-
búnaði, og Bandaríkjamenn séu
fúsir til að styðja það til endur-
vígbúnaðar án nokkurra trygg
inga, ef samkomulag næst ekki.
Það verði að horfast í augu við
staðreyndimar og leyfa endur-
vopmm innan skynsamlegra
takmarkana.
Mæiiveiki ekki
vart í Borgarfir&i
Fyrstu göngum á afréttar-
löndum Borgarfirðinga er nú
lokið og hafa þær að öllu leyti
gengið að óskum þrátt fyrir
kalsaveður og nokkurt snjóföl
á efstu heiðarlöndunum.
Töldu gangnamenn að yfir-
leitt myndi hafa smalast vel og
féð er í sæmilegum holdum.
Allar aðalréttir eru nú afstaðn-
ar og m. a. var Þverárrétt —
fjárflesta rétt héraðsins í gær.
Töldu fróðir menn að þangað
myndi hafa komið 15—20 þús.
fjár, en það er mun fleira en
nokkuru sinni eftir að fjár-
pestirnar fóru að herja fyrir
alvöru á sauðfjárstofn héraðs-
búa.
Nokkur uggur var í bændum
vegna mæðiveikitilfellis þess,
sem talið var að hefði komið
upp á Lundum í Borgarfirði í
sumar og var Guðmundur
Gíslason læknir kvaddur að
Þverárrétt í gær, ef ske kynni
að sjúkleika yrði vart í fé. En
samkvæmt því, sem tíðinda-
maður Vísis frétti hjá Guð-
mundi í gær hafði ekki orðið
vart neins grunsamlegs tilfellis
þar í réttinni.
Haustslátrun er nú að hefj-
ast þar efra og var fyrsta fjár-
hópnum slátrað í gær í slátur-
húsunum við Kláffossbrú.
Þeir brosa framan
í Jngosiava,
en neita að ræða um
100 týnd liftsforingja-
efni.
Rússar eru vinsamlegri við
Júguslava en. þeir nokkum
tíma hafa verið síðan kastaðist
í kekki milli Stalins og Tito
forðum.
Hafa ýms ágreiningsmál ver-
ig rædd, og virðast Rússar lík-
legir til vinsamlegra fram-
haldsumræðna um þau. En eitt
mál vilja þeir alls ekki ræða.
Árið 1948 fóru 100 ung liðsfor-
ingjaefni frá Júgóslavíu til
Ráðstjórnarríkjanna til þjálf-
unar. Fæst ekki neitt upp úr
Rússum um þessa pilta. — Orð-
rómur hefur komizt á kreik um,
að þessir liðsforingjar hafi
verið þjálfaðir til þess að verða.
„kjarni“ „júgóslavnesks frels-
ishers“, ef til styrjaldar komi
og Júgóslavar fylki með vest-
rænu þjóðunum.
ThaHand staMestír
SA-Asíu-sáttmábnn.
Einkaskeyti frá AP.
Bangkok í morgun.
Þing Thailands (Siam) hefur
einróma samþykkt SA-Asíuvarn-
arsáttmálann, sem gerður var á
Manillaráðstefnunni.
Thailand er fyrsta landið, sem
staðfestir hann.
Rússar vinsamlegir
á Eystrasalti.
Frá fréttaritara Vísis.
Stokkhólmi.
Rússar hafa hafið „vinsam-
leg samskipti“ við Svía á
Eystrasalti. Sænskir fiskimenn,
sem fyrir mánuði síðan þorðu
ekki inn fyrir 12 mílna land-
helgislínu Rússa, sigla nú ó-
hindrað upp að pólsku og balt-
isku ströndinni.
Veiðimenn við austurströnd-
ina segja, að fyrir um mánuði
síðan hafi áhafnirnar á rúss-
nesku og pólsku varðskipunum.
allt í einu farið að ávarpa þá
og segja þeim frá fiskimiðum.
og fleiru. Menn vona nú, að
grundvöllur undir vinsamleg
samskipti á Eystrasalti hafi
skapast, en það mundi hafa
mjög mikla þýðingu fyrir
sænska laxveiðimenn, sem frá
því fyrir stríð hafa verið úti-
tokaðir frá þessum ágætu mið-
um. i uJJ