Vísir - 30.09.1954, Side 8
YlSIR er ódýrasta blaðið eg þó það fjöl- i—t— nmm Mi Þeir sem gerast kaupendur VlSIS eftir
breyftasta. — Hringið í ifma 1880 eg 10. hvers mánaðar fá klaðið ókeypig til
gerist áskrifendur. s imm uflB ClllflB^ * mánaðamóta. — Sími 1680. |
Fimmtudaginn 30. september 1954
Bretar hafi herafla á megin*
landinu til næstu aldamóta.
Æ'f/eii lotar þúttöhu Mreta
í vörnuwn V.-Evrópu ef
sawnkownutag nwest nwk.
j-: Einkaskeyti frá AP.
London I morgun.
Anthony- Eden, utanríkisráð-
herra Breta, lofaði því á níu
velda ráðstefnunni f. h. Breta-
«tjórnar, að Bretar myndu hafa
álitlegan herafla á. meginlandi
Evrópu til næstu aldamóta, ef
eamkomulag næðist á ráðstefn-
tmni.
Eden flutti ræðu á ráðstefn-
tinni í gær, þar sem hann gerði
grein fyrir stefnu Breta í þess-
tim mólum. Skýrði hann frá hlut-
deild þeirri, er Bretar vildu eiga
að vörnum V.-Evrópu. Hann
sagði, að Bretar væru fúsir til
þess að Tiafa að staðaldri 4 her-
fylki fótgönguliða og 1 véla- og
skriðdrekaherfylki á meginlandi
Evrópu allt til næstu aldamóta.
Hann sagði, að þetta yrði Bret-
am erfitt, bæði fjórhagslega, og
eins vegna skuldbindinga þeirra,
er þeir hafa gagnvart öðrum ríkj-
am Bretaveldis. Hins vegar væri
það skilyrði fyrir þessum áform-
jim Breta, að hin aðildarríkin-
tækiu sameiginlegú þátt í her-
vörnum Evrópu, enda yrði gerð-
ur formlegur sáttmáli um það á
þessari ráðstefnu. Ef það yrði
ekki gert, kvað Eden Breta telja
sig lausa allra mála.
Ræðu Edens var tekið af mikl-
um fögnuði á fundinum, og þyk-
ir mörgum vænlegar horfa eftir
þessa yfirlýsingu hans.
Fyrsta óperettan
á Akureyri,
Akureyri í gær.
Leikfélag Akureyrar er nú að
undirbúa sýningu á fyrstu óper-
ettunni sem það hefur til þessa
tekið til meðferðar..........
Óperetta þessi er „Meyja-
skcmman" og fara 20 leikarar og
söngvarar bæjarins með hlutverk
in. Ágúst Kvaran er leikstjóri.
Jafnhliða þessu æfir Leikfélag
Akureyrar barnaleikritið „Hans
og Gréta“ og er Sigurður Kristj-
ánsson leikstjóri.
Formaður Leikfélags Akureyr-
ar er Vignir Guðmundsson.
John Foster Dulles, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna flutti
ræðu. Fagnaði hann einnig ræðu
Edens, en kvað sig ekki geta
gefið svipað loforð fyrir hönd
Bandaríkjastjórnar. Til þess
þyrfti að breyta lögum landsins,
þvi að ekki mætti hafa herafla
utan Bandaríkjánna nema með
sérstöku leyfi þingsins hverju
sinni. Hins vegar gætu Bandarik-
in heitið ýmislegri aðstoð ann-
arri, efnahagslegri og á annan
liátt.
Adenauer, kanzlari V.-Þýzka-
lands, flutti einnig ræðu, og tók
undir ræðu Edens.
Áður hafði Mendes-France
skýrt frá kröfum Frakka vegna
fyrirhugaðra varna V.-Evrópu,
og lesið upp lista yfir hergögn
þau, sem banna bæri Þióðverjum.
Þetta mun þó vekja misklíð, þvi
að Adenauer mun tæplega sætta
sig við að Þjóðverjar séu settir
skör lægra en aðrar aðildar-
þjóðir. _
Spell öívaós manns
í veitingaKusi.
í fyrrakvöld var kært yfir
ölvuðum manni í veitingahúsi
einu héri í bænum en þar hafði
{hann valdið spellvirkjum
nokkrum í ölæði sínu.
Lögreglan brá við og fór á
staðinn, en þá var hinn ölvaði
fugl floginn. Rétt á eftir kom
hann á staðinn aftur, en þá
handtók lögreglan hann og
krafði hann skaðabóta.
Olvun við akstur.
Einn bifreiðarstjóri var tek-
inn ölvaður við akstur í fyrra-
dag. Einnig barst lögreglunni
tilkynning frá manni nokkur-
um, sem taldi sig gruna bifreið-
arstjóra, er hann tiltók, að vera
undir áhrifum við stýrið. Lög-
reglan umkringdi þegar bif-
reiðina, en ökumaðurinn reynd-
ist með öllu saklaus, af því að
hafa bragðað vín og hélt hann
óáreittur leiðar sinnar.
Svíar ekki búnir al ná sér
eftir kappleikinn vi& ísiendntga.
Einkaskeyti til Vísis. —
Stokkhólmi í gær.
Sænska þjóðin ól í brjósti
vonir um það að fá nýtt og öfl-
ugt landslið í knattspyráiu, en
þær vonir hafa að engu orðið
eftir kapþleikinni við Norð-
menn, sem lauk með jafntefli
(1--1).
Blöðin ræða mikið um það,
sem þau kalla „hálfan ósigur“
og segja, að knattspymumenn-
jmir hafi ekki lagt sig alla
fram. Þeir séu að spara kraft-
ana til deildarkeppninnar
heima fyrir.
En hvernig svo sem því er
nú varið, þá hefur þetta knatt-
spyrnuár brugðizt Svíum hrap-
allega, þegar undan er skilinn
sigurinn í landskeppninni við
Finna (10—1).
En mesti „ósigur” Svía, var
hinn naumi sigur yfir fslend-
ingum. Það er biti, sem Svíar
eiga erfitt með að kyngjá.
Kona formdkir
Verkamaima-
flokksins.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Edith Summerskill var í gær
kjörin formaður Verkamanna-
flokksins brezka.
Við það tækifæri flutti liún
ræðu, þar sem hún lýsti yfir því,
að hún myndi freista þess að
bæta sambúð hinna vestrænu
lýðræSisríkja og þjóðanna aust-
an járntjalds.
Þing Verkmannaflokksins i
Scarborough samþykkti í gær á-
lyktua um nýlendúmál, þar sem
því var lýst yfir, aS stefna bæri
áS því að efla nýlendur Breta-
veldis til þroska til þess að þær
gætú sem allra fyrst tekið mál
•sín í eigin hendur og stjórnað
sér sjólfar.
Aneurin Bevan, leiðtogi vinstri
arms Verkamannaflokksins hélt
í gær fund með stuSningsmönnum
sínum og lýsti þá yfir þvi, aS nú
hefði Vei kamannaflokkurinn
enga utanríkisstefnu, og að sam-
þykktir og ályktanir flokksins
væru ekki gerðar af raunveruleg-
um meirihluta.
i Patreksfjsrðartogara aflur
imnimf í landi.
Iitflivfifiingsver5mæti 3,4 millj. kr. á
6 vikum.
Frá fréttaritara Vísis. —
Patreksfirði í gær.
Síðan karfaveiðar hófust
fyrrihluta ágústmánaðar hafa
Patreksfjarðartogararnir Olaf-
það hafi haft undan við að vinna
úr aflanum sem borizt hefir.
Af by g g ing a f r amk væm d u r.x
er það að segja, að verið er að'
reisa stórt símahús og er búið
ur Jóhannesson og Gylfi lagt að steypa það upp. Nýtt kaup-
rúmi. 2000 smál. af karfa á land félagshús hefir og verið reisfe
Bátar að hætta
austur í hafí.
Frá fréttaritara Vísis.
Eskifirði i gær.
Flestir Austfjarðabátar eru
hættir reknetaveiðum, bæði vegna
ógæfta undanfarna daga, svo og
vegna manneklu.
Einn Reyðarfjarðarbátur held
ur samt enn áfram veiðum og
sömuleiðis einn bátur frá Seyð-
isfirði.
Á meðan gæftir voru, veiddist
sæmilega en nú hefur verið ófíð
í hartnær viku.
í gær var hér hriðarveður, en
í dag er það betra og snjó hefur
tekið upp á láglendi. Oddsskarð
hefur teppzt. I gær var ýta send
til þess að ryðja það, en fann-
fergið var þá svo mikið á fjall-
inu að ýtan varð frá að hverfa.
Vafalaust verður reynt aS ryðja
skarðið strax og fært þykir.
Slátrun er hafin hér á fjörð-
unum og er féð yfirleitt taliS
vænt.
Mikið er af kartöflum enn i
görðum en menn gera sér vonir
um að þær hafi ekki frosið enn
sem komið er.
Jhér, ■
AfLinn hefir aðallega' verið
unninn 1 Hraðfrystihúsinu
Kaldbakur „ á Vatneyri, en
eitthvað lítilsháttar í Hrað-
frystihúsi Patreksfjarðár h.f. á
Geirseyri og Hraðfrystihúsi
Tálknafjarðar.
Beinaverksmiðjan Grótti h.f.
vinnur svo karfamjöl úr bein-
unum.
Útflutningsverðmætið í fisk-
flökum, karfamjöli og lýsi
nemur á þessu tímabili eða frá
16. ágúst til 27. sept. um 3,4
millj. króna.
Þar sem aflinn er þannig al-
gerlega unninn í landi, er af-
koma fólksins afar góð og má
segja, að unnið hafi verið dag og
nótt. Miklar endurbætur hafa
farið fram á hraðfrystihúsinu
Kaldbakur, og má segja, að
og er verið að ganga frá því.
Að minnsta kosti eitt íbúðarhús
er í smíðum.
Almenn ánægja ríkir hér yfir
bættum vegasamgöngum, ert
vegasamband við Reykjavxlc
komst á í sumar. Bílakostur
hefir aukizt um helming síðast-
liðið ár. s
Knowland æfur
garð Attlees.
Fiskverð hækkar.
Leyfð hefur verið nokkur
hækkun á fiskverði í smásölu.
Nýr þorskur, slægður og haus-
aður kostar kr. 2.60 kg., var 2,35
áður. Ýsa, slægð og hausuð, kost-
ar nú kr. 3.00 kg., og hækkaði um
15 aura.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Knowland, formælandi repu-
blikana í öldungadeild Banda-
ríkjaþings, hefur farið hörðum
orðum um þá yfirlýsingu Attlees,
að afhenda bæri Pekingstjórninni
Formósu.
Knowland sagði meðal annars,
að þetta væri að svíkja í tryggð-
um vinveitta þjóð, og Attlee hefði
náumast getað aðstoðað Peking-
stjórnina betur, nema e. t. v. með
því að lofa henni skipum til inn-
rásar á Formósu. Kvaðst Know-
land vona, að bre'zka stjórnin
myndi mótmæla yfirlýsingu Attl-
ees, þar eð áform þau, er hún fel-
ur í sér, gætu leitt til styrjaldar
milli Bandaríkjanna og Kína.
Sigursælir Vafs-
memt koma í dag.
Gullfoss er væntanlegur hingað
síðdegis í dag, og meðal farþega
með skipinu eru hinir sigursælut
Valsmenn úr öðrum aldursflokkiF
sem gert hafa garðinn frægan {
Þýzkalandi.
Eins og kunnugt er, léku pilt-
arnir fjóra leiki í Þýzkalandi og
báru sigur af hólmi í öllum, nema
einum, sem þeir töpuðu naum-
lega. í Kiel sigruðu þeir með 2
mörkum gegn 1. í Celle töpuðu
þeir (1:2), i Hamborg sigruðu
þeir glæsilega með 4 gegn 1, og
loks kepptu þeir við félagið Vikt-
oria, sem talið er allgott og „burst
uðu“ það með 5 mörkum gegns
engu.
Fararstjóri liðsins var Gísli Sig
urbjörnsson, en af hálfu Vals eru
þeir Frímann Helgason, Þórður
Þorkelsson og Páll Guðnason.
Móttökur í Þýzkalandi voru
með ágætum, fyrirgreiðsla öll hin.
bezta, en Þjóðverjar eru sagðir
hyggja á hefndir, þvi að næsta
surriar koma hingað þýzkir pilt-
ar á vegum Vals, valinn maður
í hverju rúmi, og hafa heir fullan
hug á að „þakka fyrir síðast“F
eins og sagt var í einu síðasta
samsætinu, sem Valsmönnum var
haldið í Þýzkalandi.
Nefnd geri áætlun um
vatnsveituframkvæmdir.
Fulltrúar Sjálfstæðismanna
hófu umræður í vor um að end-
urbætur þyrftu að fara fram á
vatnsveitu bæjarins. Borgarstjóri
fól í aprílmánuði þrem mönnum
að athuga og gera tillögur um
bættar bruna- og eldvarnir.
Þeir komu með þær tillögur að
éndurskoða þyrfti vtansveitu-
kerfið með tilliti til brunavarna.
Við þessar athuganir þótti sýnt,
að mikil verkefni væru fyrir
hendi i vatnsveitumálunum.
Þar sem störf hitaveitu- og
vatnsstjóra voru þegar orðin svo
fjölþætt vegna samþykktar bæj-
arstjórnar 19. ágúst s.l. um marg-
víslegar framkvæmdir hjá hita-
veitunni, óskaði hitavéitustjóri
Helgi Sigurðsson eindregið eftir
því að losna við að sinna vatns-
veitustjórastörfunum um sinn
vegna annríkis.
Borgarstjóri flutti tillögu um
málið á fundi bæjarráðs á þriðju-
daginn þar sem hann veitti hita-
veitustjóra lausn frá vatnsveitu-
stjórastörfum til 1. maí n.k. Jóni
Sigurðssyni slökkviliðsstjóra var
jafnframt falið að gegna starfi
vatnsveitustjóra þennan tima.
Þriggja manna nefnd var jafn-
framt kosin til þess að sjá um áð
gerð sé heildaráætlun um vatns-
veituframkvæmdir bæjarins,
miðað við náestu framtíð.
Yatnsveitunefnd þessi mun
strax taka til starfa. Verður
Guðm. Helgi Guðmundsson form.
hennar.