Vísir - 12.10.1954, Blaðsíða 7

Vísir - 12.10.1954, Blaðsíða 7
i Þriðjudagi'nn 12. október 1954 VlSIR — Lítil í yðar augum, en mikil í mínum. Eg mun gera fyrir yðui' allt, sem þér óskið og í mínu valdi stendur og þér munuð komast að raun um, að eg er ekki maður vannþakklátur. Sir Thomas hneigði sig og þakkaði og hvarf síðan aftur út í mannþröngina. — Þetta er ævintýramaður, hvíslaði John að Roger — en mér geðjast að honum. — Gættu að þér, John! Otterbridge lávarður hefir varað okkur við ská,ldinu. Og þetta er einmitt skáldið, sem hann átti við. — Aðvöruninni var beint til þín, en ekki mín. — Eg hefi ekki hirt um hana, en það væri ef til vill vissara fyrir þig að gera það. Eg ráðlegg þér að binda ekki eins náinn kunningsskap við hann og eg. En nú verðum við að halda áfram starfinu og velja tvo herbergisþjóna og einkaritara. E-n þetta verða að vera mjög traustur menn og öruggir, gáðu að því. — Hvers vegna? ; ! — Þesir verða bæði að vera lífverðir þínir og geia þ.agað yfir leyndarmálum þínum. — Þarf eg nú líka að eiga leyndarmál? — Þú munt eignast þau með tímanum, hvort sem þú vilt eða vilt ekki. Eg er búinn að velja annan. — Þú verður hinn, ef þú vilt. — Nei þakka! Eg elska frjálsræðið of mikið til þess að mér leiki hugur á slíku. Hann benti á hávaxinn, ungan -,og riddara- legan mann. — Anthony Lane. sonur Sir Tichnor Lane, sem stjórnaði sveit hermanna undir stjórn föðui’ olikar við Flood- den Field. — Eg þekki hann! Við lékum okkur saman, þegar við vorum strákar. Hann barði mig í höfuðið, þegar við vorum að deila út af hreiðri hvor. okkar hefði fundið þ.að.fyrr og fengum hi-essilega hýðingu á eftir. Hvernig líður þér, Anthony? — Ágætlega. lávarður minn, og það gleður mig að sjá þig. — Okkar ágæti Anthony, John bróðir, er efnalítill sem stendur og langar til að reyna höfðingsskap þinn mc-ð þvi að votta þér hollustu sína. Verið þið ekki að gretta ykkur, eg er aðeins að gera að gamni mínu. Anthony hefir .sýnf ,-og að hann er djarfur, hugprúður og öruggur. Hann ber s.verð, og það sverð er ekki einungis sýningargripur. — Eg sé það, enda er það ekki sérlega stutt. Og auk þess ber han.n rýting! Þú virðist vera hinn mesti vígamaður, John. — Eg nota rýtinginn sem skjöld; lávarður minn. Eg nota skilmingaraðferðina, sem eg lærði á Ítalíu. Með- rýting í vinstri hendi getur maður varizt vopni andstæðingsins. meðan ristir fangamark hans á brjóst hans með sverðsoddinum. — Anthonuy mun kenna þér þessa nýju skylmingaraðferð. en þangað til vil eg ráðleggja þér að hafa sverðið kyrt í slíðrun- Um. Eg treysti þér ekki í meðferð þess. Enginn má vega varði, nema annar lávarður — það er siður í Englandi — en þó eru til svo illa innrættir menn, að þeir bregða út af venju. Ef þú skyldir lenda í illdeilum eða uppþoti; væri betra fyrir þig að geta látið sverfa til stáls án þess að1 tefja þig á því að spyrja andstæðing þinn um forfeður hans. Jæja. sem því líður, viltu fá Anthony fyrir fylgdarmann?_ — Eg gæti ekki óskað mér betra. — Farðu þá. á þinn stað Anthony. Hristu nú af þér slenið og hafðu auga með þessum mannfjölda, eins og eg geri. Gleði John’s gufaði upp. Hann hélt, að hann hefði losnað við hættuna, hinn gamla förunaut sinn, þegar hann fór frá kastal- anum, en hún var hér líka. Eða hvers vegna var Roger annars svona varkár, þótt hann virtist leika á als oddi. Eg get lesið hugsanir þínar, en aðrir mega það ekki, hvíslaði rödd í eyra honum. — Brostu og haltu áfram að brosa. Það er betra. Hér er engin yfirvofandi hætta á ferðum, að því er eg bezt veit, en þú ert nákopiinn krúnunni og til eru þeir, ermundu vilja fjarlægja þig þaðan með einni rýtingsstungu. Við lifur á ó- róleikatímum og drottningin er meira að segja ókrýnad ennþá. Þess vegna hefi eg ekki v.alið hinn manninn enn. Við verðum að þekkja hann vel og hann verður að vera jafnoki Anthony’s að hollustu og öruggleik. En einkaritara hefi eg valið þér og vona að þgr hafi mér ekki skotizt. — Komdu með hann og lofaóu mér að sjá hann. — Ekki fyrri en eg er búinn að láta þig vita deili á honum. Hann hefir hás.kólapróf frá Cambi’idge, Blackett að nafni. Haim er gáfaður og hraustur maður, lögfræðingur að menntun. Vin- ur minn Will Cecil mælti með honum við mig. — Will Cecil? Ekki Sir William Cesil? Eg hitti hann þegar hann var í Kastalanum eftir fall Somerset. Eg frétti seinna, að hann hefði samið frið við Northumberland. Þeir kalla hann tukthúsliminn. — Þú dæmir hann rangt. Hann er enginn y.firborðsmaður og innst inni er hann heiðarlegur. Þú borðar með honum og Shrewsbury í dag. Á kvoktvokumii. Gesturinn á kaffihúsinu hlustar með athygli á slag- hörpuleikinn og segir við þjón- inn: Er þetta ekki Beethoven? Þjónninn: Nei, nei. Þetta er hann Jónas. Hann hefir leikið hér á slaghörpu í 4 ár. • Nei, hvað er að sjá þetta? Hérna í dagblaðinu stendur, að maður hafi skotið bæði konu. sína og sjálfan sig. Það er óskaplegt: Hvort- þeirra skaut hann fyrr? Það stendur ekkert um þaðí sportmodel til sölu. Bifreiðin er sérstaklega falleg, væg utborgun. JBílatn iðiunin Hverfisgötu 32. Sími 81271. Opið frá kl. 10—8. Munið hin tryggu og öruggu viðskipti. Semperit hjólbarðarnir «r»! eru komnir aftur í stærðunum: 450x17 550x16 600x16 650x16 Pantanir óskast sóttar sem fyrst annars. seldar öðrum. G. Helðason & Méfsted H.f. RauSarárstíg 1. Sími 1647. wneö Inöhanti Búfasala Úlpuefni Gabardine Prjónsilki Perlon Fóðurbútar, VER2L Húsaf isnbur — Sinsdatimbur Laugaveg 1. Sími 6584. í Jón L()f_qn h±> Hring_ braut 121, sími 80600. C Bunoughi: 1665 Tarzan kenndi í brjósti um flótta- manninn og beið í ofvæni eftir sögu han. „Ég heiti Holt....“ .....Eins og þú veizt er Luanda portúgöisk nýlenda. Fyrir ári síðan keypti ég kaffiekru og vonaðist að hagnast á verzlunarviðskiptum við Portúgal." „Margar? Hann á þær allar, þaú er að segja, allar nema rnínar" sagðl Holt og gnísti tönnum. „Kaffirækt er gróðavænlegt fyr- irtæki og mér gekk vel“. „Ég hef tekið eftir því að Lazar á einnig mikið af kaffiekrum“ greip Tarzan fram í.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.