Vísir


Vísir - 25.10.1954, Qupperneq 12

Vísir - 25.10.1954, Qupperneq 12
VÍSIK er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- 1 && -‘nmp'- breyttasta. — Hringið i síma 1660 eg gerist áskrifendur. WM.MW.WÍ Þeir, sem gerast kaupendur VfSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. Mánudaginn 25. október 1954. r Flugfélagi Islands bætist 4ra hreyfla flugvél. Yar áður í eigu Norðmanna, en Örn 0. Johnson er ytra að undirrita samninga um kaupin. Örn O. Johnson, framlcvæmda- stjóri Flugfélags íslands, tók sér i'ar með „Gullfaxa" í morgun til Kaupmánnahafnar til þess að und jrrita þar samning um kaup á Skymaster-flugvél. Fyrir helgina fóru utan í sam- bandi við flugvélakaupin fjórir inenn aðrir á vegum Fliigfélags islands, þeir Jóhannes Snorrason yfirflugstjóri, Brandur Tómas- son yfirflugvélavirki, Jón Páls- son flugvélaeftirlitsmaður og Jó- liann Gíslason yfirloftskeytamað- ur. Flugvélin, sem F. í. er að festa Jtaup á, er Skymaster-vél, eins og i'yrr segir, af sömu gerð og „Gall- íaxi“, og tekur 60 manns í sæti. P. í. kanpir flugvélina af Fred ■Olsen i Osló, en það e reitt af stærstu flugfélögum í Noregi, en á jafnframt nokkurn flugvéla- flota. Vélin mun aðallega hafa verið notuð í leiguflugi, flutt skipshafnir, íþi'óttafJokka og aðra hópa Tnilli landa. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk í skrifstofu FÍ. í morg- «n, má gera ráð fyrir, að hinum Sæmdir prófessors- og doktorsnafnbót. Forseti íslands hefur sæmt Pét- nr Sigurðsson Háskólaritara pró- fessorsnafnbót. Pétur hefur gegnt starfi Há- skólaritara í aldarfjórðung við liinn bezta orðstír, mikill lær- dómsmaður, en einkum þykja at- huganir hans á Sturlungu at- hygliverðar. Hann er kvæntur Þóru Sigurð- ardóttur frá Búðum í Fáskrúðs- firði. Árni Friðriksson, mag. scient., liefur verið kjörinn doctor philo- sophiae h.c. Lýsti próf. Einar Ól. Sveinsson doktorskjörinu á Há- skólahátiðinni. Dr. Árni Frið- riksson cr nú framkvæmdastjóri alþjóðahafrannsóknarráðsins. Sr. Kristján Róbertsson hæstur á Akureyri. í fyrradag voru talin atkvæði, sem greidd voru í prestskosning- nnum á Akureyri, er fram fóru fyrra sunnudag. Atkvæðatalningin fór fram í skrifstofu biskups, svo sem venja er til, og kom i ljós, að síra*Kristj- án Róbertsson hafði fengið flest atkvæði, eða .1063. Næstur var sr. Birgir Snæbjörnsson, sem hlaut 1043 atkv., þá sr. Jóhann Hlíðar, Ö23 atkv., sr. Þórarinn Þór 264 ■og sr. Stefán Eggertsson 150 at- . kvæði. Á kjörskrá voru 4916, en 3361 greiddu atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru 18. nýja Skymaster verði flogið heim í byrjun næsta jnánaðar, en hann ér nú til eftirlits á Kas- trup-velli i Kaupmannahöfn. Gert er ráð fyrir, að hina nýju flugvél taki við af „Gullfaxa" er hann fer í méiriháttar skoðun og til eftirlits um áramótin á verk- stæði SAS i Ivaupmanahöfn, en sú skoðun mun taka a. m. k. 1 % mánuð. Að Öðru leyti er óráðið' um notkun liinnar nýju flugvélar, en sennilegt er, að F. í. stundi meira leiguflug en verið hefur, en fjölgi jafnframt áætlunarferðum og taki upp nýjar. Bridge Tveim umferð- um lokið. Tvímenningskeppni í bridge hófst í meistaraflokki í vikunni sem leið og er nú búið að spila tvær umferðir. Var sú síðari spil- uð í gær. Þáttakendur eru 32 pör. Eftir umferðina í gær eru stig efri 16 tvímenninganna sem hér segir: Jóhann Jóhannsson — Vilhjálm ur Sigurðsson 25 stig, Ásm. Páls- son — Indriði Pálsson 242 stig, Gunnl. Kristjánsson — Stef. Stef- ánsson 235% st., Hermann Jóns- son — Jón Guðmundsson 229% st. Baldur Ásgeirsson — Björn Kristj ánsson 228% stig, Trygvi Pét- ursson — Þórh. Tryggvason 228 stig, Ásbjörn Jónsson — Magnús Jánasson 228 stig, Einar Þorfinns son — Hörður Þórðarson 226% stig, Sigurlijörtur Pétursson — Örn Guðmundsson 224 st., Árni M. Jónsson — Kristján Kristjáns- son 222% st„ Eggert Benónýs- son — Guðm. Ó. Guðm. 220 stig, Hilmar Ólafsson — Ólafur Karls- son 218 stig, Geir Þorsteinsson — Ingólfur Isebarn 214 stig, Klem- enz Björnsson — Sölvi Sigurðs- son 213 st., Brynjólfur Stefánsson — Guðl. Guðmundsson 212% st„ Ásmundur Ásgeirsson — Hafst. Ólafsson 212% st. Alls verða spilaðar 7 umferð- ir og verður sú næsta spiluð n.k. fiinmtudagskvöld. Nýstárkíj skemmtun í í kvöld verður efnt til rnjög óvenjulegrar skemmtunar í Þjóð- leikhúskjallaranum — hinnar fyrstu af sínu tagi hérlendis, þótt þær séu algengar erlendis. Á skemiiituninni fer fram upp- taka spilrningaþátar, sem fluttur verður i útvarpið á miðvikndags- kvöldið. Er til þess mælzt, aS þéir, sem sækja skemmtunina, verði þátttakéndur í henni, svari spurningum, sem fyrir þá verða lagðar, en spurningarnar verða hafða.r mjög einfaldar, svo að ekki þárf annað en að svara með já eða nei. Þeir, sem lilutskarp- astir verða, vinna til verðlauna, sem eru mörg hundruð króna virði, og verður þar um eiguleg- ustu muni að ræða. ustu muni að ræða. Þeir einiij taka þátt, sem fúsir eru til þess. Þá munu þeir, sem tóku þátt í getraunaþættinum „Gettu mi —“ á síðasta hausti koma þarna fram, og verða þeir látnir spreyta sig i viðurvist gestanna. Sér Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur, uiö þátt þenna fyrir útvarpið að þessu sinni eins og i fyrra. Þjóðleikhúskjallarinn verður opnaður i kvöld kl. 8.30 og kost- ar aðgangurinn aðeinsi 10 krón- ur. Háskolinn þyrfti ai byggja yfir iæknadeiltfina. Frá háskólahátíðinni á laugardag. var haldin þurramæði Rannsókn á lungum úr kind frá Vík í Staðarhreppi I Skaga- fjarðarsýslu leiddi í ljós, að kind- in hafði ekki þurramæði. Haukur Hafstað, bóndi í Vík veitti kindinni sérstaka athygli, þar sem hún var móð og rakst ekki. Kindin var veturgömul. — Gerði liann þegar aðvart fulltrúa Sauðfjárveikivarnanna á Sauðár- króki. Var kindinni slátrað og lungun send flugleiðis suður til rannsóknar i rannsóknarStöðinni að Keldum. Leiddi sú rannsókn i ljós, sem að ofan getur, að kind- in var ekki haldin þurramæði. Er það mikið ánægjuefni mönn- uni nyrðra sem öðrum, að grun- urinn reyndist ekki réttur, þvi að það hefði reynzt nýtt og alvar legt áfall, hefði hún reynzt sjúk. Sydney (AP). — Á mörkum fylkjanna Viktoria og Nýja Suð- ur-Wales eru pokadýr orðin svo mörg, að þau eru að verða að plágu. Eyðileggja þær gróður og upp- skeru, svo að fé hefur verið sett til höfuðs þeim líkt og kanínunni. Fjórum veiðimönnum tókst und- anfarna 4 mánuði að leggja nærri 4000 pokadýr að velli, og voru þeim greidd 606 stpd. í verðlaun. Síldarleit á Eyjafirði. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri, í gær. Nýlega reyndu nokkrir bát- ar síldarleit á Eyjafirði og urðu lítilsháttar varir við síld. Fyrst reyndu vélbátarnir Vonin frá Grindavík og síðan Garðar og Gylfi frá Rauðuvík, svo og Akureyrarbátarnir Snæfell og Drangur. Skipin urðu síldar vör á svæðinu milli Hríseyjar og Svalbarðseyrar, en fremur varð aflinn lítill. Ráðgert er að hefja frekari síldarleit þegar veður leyfii'. Háskólahátíðin fór fram í fyrradag og hófst kl. 2. Boðs- gestir voru forseti íslands, er- lendir sendiherrar og ýmsir i fleiri. Hófst hátíðin með því, að j Dómkirkjukórinn söng hátíðar- I ljóð Háskóla íslands við lag I eftir Pál ísólfsson, en Guð- mundur Jónsson óperusöngvari söng einsöng. Þá flutti hinn nýi háskóla- rektor ræðu. í byrjun ræðu sinnar minntist hann dr. Bjarna Aðalbjarnasonar, sem lézt 1. des. s.l. Þá þakkaði hann frá- farandi háskólarektor, Alex- ander Jóhannessyni afburðavel unnin störf í þágu háskólans, ágæta forystu í byggingamálum hans og baráttu fyrir bættum kjörum prófessora og stúdenta. Ýmsar breytingar hafa orðið á kennaraliði háskólans. í stað Ásmundar Guðmundssonar, sem hefir verið skipaður biskup, hefir Þórir Kr. Þórðarson cand. theol. veiið skipaður docent. Theodór Líndal hdl. var skip- aður prófessor í lögfræði 1. júní 1954. Tveir háskólakennarar dvelja erlendis í vetur, þeir próf. Ármann Snævarr og próf. Leifur Ásgeirsson. Fyrir Leif hefir verið ráðinn próf. Bjarni Jónsson frá Brown University í Bandaríkjunum, en fyrir Ár- mann Snævarr kemur dr. Þórð- ur Eyjólfsson forseti Hæsta- réttar og cand. jur. Vilhjálmur Jónsson. í veikindaforföllum próf. Jóhanns Sæmundssonar hefur dr. med. Sigurður Sám- úelsson verið settur til kennslu í læknadeild. Þá drap Háskólarektor á út- gáfustarfsemi Háskólans, eink- um á orðabókina, en við hana hafa undanfarin ár unnið þrír menn að staðaldri. Alls hafa verið veittar til þessa verks 75.000 kr., en rektor hvað sýni- legt, að fjárveitingin til verks- J ins væri of lítil og brýna nauð- syn bæri til að úr því yrði bætt. Þá kvað Háskólarektor húsa- kost Háskólans of lítinn. Yrði því að hef jast handa um stækk- un Háskólans og þyrfti að hyggja nýtt hús fyrir lækna- deildina, sem yrði sennilega valinn staður í nánd við Lands- spítalann. Ennfremur yrði að byggja náttúrugripasafn á há- skólalóðinni. . . Að lokúm fékk Háskóla- rektor nýstú'dentúm háskóla- borgarabréf sírí. Háfa í haust 170 nýir stúdentar innritazt í Háskólann, én alls stunda 750 stúdentar nám við Háskólann í vetur. Valur sigurvegaii í Haustmótinu, Haustmóti meistaraflokks í knattspyrnu lauk í gær og varð Valur sigurvegari. í gær fóru tveir síðustu leikir mótsins fraría á íþróttavellin- um, en völlurinn var blautur og þungur og því erfitt að keppa á honum. Fyrri leikurinn var milli Fram og Þróttar og bar Fram sigur úr býtum með 2 mörkum gegn 1. Seinni leikurinn, sem var úr- slitaleikur mótsins, fór þannig að Valur gerði jafntefli við KR, en staða Vals var þarínig í mót- inu, að því nægði jafntefli til sigurs. Stig félagarína em þannig að Valur hlaut 6 stig, KR 5, Fram 4, Þróttur 3 og Víkingur 2 stig. Til úrslita í haustmóti 2. flokks var keppt á laugardag- inn og áttust þar einnig við KR og Valur. Þeim leik lauk með sigri KR, er skoraði 2 mörk gegn 1 og unnu þar hina sigur- sælu Þýzkalandsfara Vals. I gærmorgun var háð bæjar- hlutakeppni milli Austurbæjar og Vesturbæjar í 3. flokki og sigruðu Austurbæingar með 2 mörkum gegn engu. Bátur ferst með tveim mönnum. Sýnt þykir, að trillubáturinn Áfrarn RE-265, hafi farizt á Faxa- flóa fyrir helgina, og með hon- um tveir menn. Þeir Jón Pétursson, Kleppsvegi 106, og Gestur Sölvason, Suður- pól, fóru i róður á bátnum s.l. fimmtudag. Ætluðu þeir félagar að koma að landi á föstudags- kvöld, en ekkert spurðist til þeirra. Var hafin gagnger leit í Faxaflóa, m. a. úr lofti, og hefur fundizt brak úr bátnum, er þykir benda til þess, hver afdrif hans urðu. 29 brúðkaup samtímis. Einkaskeyti frá AP. Bombay í gær. Innan skamms verður hér efnt til stórfenglegra brúð- kaups en nokkru sinni hefur þekkzt á Indlandi. Nizaminn af Hyderabad, sem rekinn var frá völdum fyrir þrem árum, hefur undanfarið verið að leita að hæfilegu kvonfangi fyrir uppeldissonu sína, en 29 af 40 eru ókvæntir, og verða þeir allir látnir kvongast sam- tímis. Hann á einnig nokkrar dæutr, en þær mega ekki gift- ast samkvæmt reglum trúar hans. Rússar hafa fallizt á að vera meðflutningsmenn að tillögu á vettvangi S. Þ. um afvopmmarmál. Samkvæmt jhenni verður skipuð undir- nefnd, sem fulltrúar sömu þjóða eiga sæti í og þeirri, sem áður starfaði í Londom.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.