Vísir - 02.11.1954, Page 1
VI
I *
■I
\
\
44. árg.
ÞriSjudaginn 2. nóvember 1954.
250. tbl.
2000 hafnarverkajnefin í
London í nýju verkfalH.
Bretar biðu af verkfallinu tjón, sem
þeir verða lengi að vinna upp.
Einkaskeyti fr!á AP. —
London í morgun.
Monckton verkamálaráðherra
kvað svo að orði í ræðu sem
hann flutti í neðri málstofunni
í gær, að áhrifanna af verkfall-
inu myndi gæta lengi.
Hann kvað yerkamenn hafa
byrjað vinnu aftur í gærmorg-
un og yæri vinna komin aftur
í venjulegt horft í Liverpool,
Hull og Southampton. en í
London hefði risið upp ný deila
í -einu hafnarhverfi og 2000
verkamenn þátttakendur í
henni og biðu 13 skip afgreiðslu
vegna þessarar riýju deilu.
Fundur um deiluna var haldirm
í gærkvöld.
Butler fjármálaráðherra
sagði, að matvælaskip semværu
í förum til Ástralíu og tafist
hefðu mundu vart koma aftur
með matvæli fyrr en eftir ný-
ár, og gæti afleiðing þess orðið,
að nokkur skortur yrði í bili á
smjöri, kjöti og fleiri matvæl-
um. — Það kom fram í ræðum
þingmanna, að hafnarverka-
menn hófu vinnu aftur með
Slysavarnadaildin „Gefion“
í Höfn heidur skemmtun.
Skemmtisamkoma var haldin
sunnudaginn 24. okt. s.l. til á-
góða fyrir björgunardeildina
„Gefion" nr. 200 í Kaupmanna-
höfn, sem er ein af deildum
Slysavarnarfélags íslands.
Skemmtunin var haldin i húsi
Stúdentafélagsins í Kaupmanna-
höfn og var þar samankomið um
250 manns, íslendingar og Danir.
Meðal þeirra, sem viðstaddir
voru, var Knud erfðaprins, en
liann er verndari deildarinnar,
Sigurður Nordal sendiherra og
Fr. de Fontenay, fyrrverandi
sendiherra Dana á íslandi.
Formaður deildarinnar, Jón
Helgason stórkaupmaður setti
mótið, Fr. de Fontenay flutti er-
indi, Stefano íslandi og Ida Ro-
holm óperusöngkona sungu ein-
söng, en Poul Reumert og Anna
Borg lásu upp.
Alhvít jérð á
Húsavík.
Frá friéttaritara Vísis. —
Húsavík í gær.
Jörð er alhvít hér nyrðra nú
um mánaðamótin.
Þó er enn bílfært um nær-
sveitir. og enn er haldið uppi
samgöngum við Akureyri um
þjóðveginn þangað. Fiskafli
var sæmilegur í október, þegar
á sjó hefir gefið.
svipðum kjörum og þeim stóðu
til boða fyrir mörgum mánuð-
um. Þá kom það fram, að í
meginlandshöfnum hefði veri,ð
brugðið skjótt vlð vegna deil-
unnar til þess að draga til sín
viðskipti og þeim viðskiptum.
sem þannig hefði glatast kynni
að verða erfitt að ná aftur.
Óeirðir blossa upp
í N.-Afríku.
Einkaskeyti frá AP. —
París í gærkvöld.
Óeirðir hafa blossað upp í
Alsír og Tunis. Biðu 11 menn
bana £ óeirðinn þessum.
600 menn úr öryggislögregl-
unni frönsku hafa verið sendir
loftleiðis til Alsír og fallhlífa-
lið er haft til taks, ef senda
þarf liðsauka. — Var varpað
um 30 heimatilbúnum sprengj-
um frá miðnætti og þar til birti
af degi og augljóst, að óaldaf-
seggir þeir. sem þarna voru að
verki, höfðu skipulagt þessa
hermdarverkastarfsemi vel.
Aflasölur í
Þýzkalandi.
Tveir togarar seldu í Þýzka-
landi á laugardag og mánudag.
Jón forseti seldi afla sinn, 232
tonn, í Þýzkalandi á laugardag
fyrir 134.230 mörk eða 479992,00
isl. krónur. Skúli Magnússon seldi
svo afla sinn í gær, 210 tonn, fyr-
ir 230 mörk eða 523497,00 ísl.
krónur.
Ingólfur Arnarson mun selja
afla sinn i dag og Egill Skalla-
grímsson á morgun. Fleiri afla-
sölur verða svo ekki i Þýzka-
landi i þessari viku.
Hún virðist ekki vera séri-
staklega áhyggjufull, stúlkau á
myndmui. Hún mun þó varlá
brosa nú. Hún gerði sig nefni-
lega seka um að giftast 52
mönnum á skömmum tíma, og
gleymdi hverju sinni að fá
skilnað frá þeim síðasta. Fyrir
þetta var hún fyrir skemmstu
dæmd í 3ja ára fangelsi i Eng-
landi. Sálsýkifræðingur lýsti
henni svo fyrid rétti, að ástar-
þörf hennar væri mikil!
Kosningarnar vestra:
Örsiifanna hvarvetna beð-
íð með eftirvæntingu.
70 milljónir hafa kosningar-
rétt.
Einkaskeyti frá AP. meirihlutaaðstöðu sinni í þjóð-*
New York í morgun. þinginu, en á það lagði Eisén-
Eisenhower forseti, Nixon vara hower áherzlu i Iokaræðu sinni,
forseti og Adlai Stevensón, leið- að því aðeins gæti stjórnin fram-
togi demokrata, fluttu lokaræður fyigt stefnu. sinni til hagsbóta
sínar í.gær. fyrir land og lýð, að hún héldi
í dag er sú spurning á allra þessari aðstöðu.
, vörum, hvort republikanar haldi
Illfært var orðið á sumum
fjallvegum, að því er Visir hef-
ir fregnað, fyrir seinustu helgi.
en frekari fregnir hafa ekki
borist síðan.
Fyrir helgina var til dæmis
orðið Rlfært eða ófært í Svíria-
dal á leið til Gilsfjarðar og í
Gilsfirði vegna snjóa. Voru þá
vegagerðarmenn þar á ferð
með dráttarbifreið aflmikla, og
komust þeir leiðar sinnar.
Siglufjarðarskarð varð ófært
fyrir nokkru og sennilega er
orðið illfært eða ófært um Lág-
heiði, sem farin er milli Ólafs-
fjarðar og Fljóta.
Ólafur ríkisarfi Norðmanna
dvelst nú í London á al-
þjóðamóti skemmtisiglinga-
manna. Hann hefir gengið á
fund Elisabetar drottningar,
frænku sinnar.
MikH áðsökti að sýiy
iitgu Nýja mymflfsta-
félagsins.
Mjög mikil aðsókn hefur ver-
ið að sýningu Nýja myndlistar-
félagsins í Þjóðminjasafninu.
Hafa hátt á annað þusund
manns skoðað sýninguna, enda
var stöðugur straumur að henni
um helgina. Um 30 listaverk hafa
þegar selzt.
Vegna hinna góðu og miklu
salarkynna sem listamennirnir
hafa til umráða fyrir verk sín,
er óvenju góður heildarsvipur á
sýninguni, enda hafa sýningar-
gestir látið óspart ánægju sina i
Ijós yfir henni.
75 Mau-Maii-menn
vegnir.
Einkaskeyti frá AP. —
London í gærkvöldi.
Tilkynnt var í Nairobi og
London í gær, að ný sókn væri
hafin gegn Mau-Mau mönnum
í Kenya. — í síðastliðinni viku
voru 75 Mau-Mau menn felldir.
Álíka margir voru teknir
höndum. Herlið og öryggis-
sveitir taka þátt í þessari nýju
sókn og nutu þær aðstoðar flug-
véla.
Er fjögurra barna faðir
Sæitskur heimiiisfaéír rektir rauuir sínar í
'óargadýr ?
víéiesmi dagbiaéi.
Frá fréttaritara Vísis.
Stokkhólmi á laugardag.
Er ósiðlugt að eiga mörg börn?
spyr sárgramur eiginmaður í
einu af stærstu kvöldblöðum
Stokkhólmsborgar.
Þetta virðist undarleg spurn-
ing, en saint er hún sett fram af
fullri alvöru í hinu sænska blaði.
Það er fjögurra barna faðir, sem
varpar þessari spurningu fram,
og telur upp ýmsa annmarka á
barnaláni. Þó eru það síður en
svo blessuð börnin, sem gera
honum lífið óþægilegt. Þvert á
móti. Hins vegar lýsir beimilis-
faðir þessi yfir því, að vinir fjöl-
skyldunnar forðist hana. Þá seg-
ir hann frá því, að vinkonur frú-
arinnar líti sig sem óargadýr, sem
aldrei „láti konu sína í friði“.
Þá hefur það reynzt með öllu
ógérlégt fyrir fjölskylduna að
taka sumarbústað á leigu, eng-
inn vill líta við barnafjölskyldu.
Jafnskjótt og eigendur slíkra bú-
staða frétta, að nokkur börn séu
i fjölskyldunni, taka þeir ekki í
mál að leigja henni sumarbú-
staði.
Faðirinn lítur svo á, að flestar
félagslegar umbætur séu gerðar
vegna foreldranna, en alls ekki
vegna barnanna. Komið sé upp
vöggustofum, leikskólum og dag-
heimilum til þess að losa heim-
ilin við börnin, og nú sé af sá
siður, að foreldrar fórni sér fyrir
börn sin. Hann veltir þvi fyrir
sér, hvort félagslegar uinbætur
ættu ekki fremur að miða til
heilla börnunum en hinum full-
orðnu, og bendir á, að fólk í hin-
um suðlægari löndum láti sér
annarra um börn sín en Norður-
landabúar.
Stevenson sagði liins vegar, að
þjóðin yrði að nota það tækifæri,
sem nú gæfist til að svifta for-
ystuaðstððu þá menn, sem hefðu
orðið Bandarikjunum til álits-
hnekkis.
Um 70 milljónir manna eru á
kjörskrá. — Þrátt fyrir að kosn-
ingabaráttan hafi harðnað gíf-
urlega seinustu vikuna ber fregn-
um úr ýmsum landshlutum sam-
an um, að kosningaáhugi sé víða
Jitill.
Eins og getið hefur verið i
fyrri fregnum er kosningabarátt-
an einna hörðust í New York.
Þar er Averil Harriman fylkis-
stjóraefni demokrata. — Út um
allan heim er kosningaúrslitanna
beðið með óþreyju, og að þvi er
virðist samkvæmt athugimum
fréttamanna víða, af litlu minni
áhuga en í Bandaríkjunum sjálf-
um.
Hafliði á leið
hingað.
Frá fréttaritara Vísis. '
Siglufirði í morgun.
Togarinn Hafliði lagði af stað
héðan áleiðis til Reykjavíkur
laust eftir miðnætti í nótt.
Varðskipið Ægir, sem náði tog-
aranum á flot, verður í fylgd með
honum suður, en gert er ráð fyr-
ir, að siglingin taki um 30 klukku
stundir.
Sjóprófum varð ekki lokið hér,
en það verður gert í Reyltjavík.
Skemmdir urðu tiltölulega litlar
á togaranum, en bráðabirgðavið-
gerð fór fram hér til þess að
þétta lekann, sem að honum
kom. Fullnaðarviðgerð fer fram
í Reykjavík.
Minnismerki við
E1 Alamein.
Bretar hafa reist minnismerki
um sigur sinu í oriustunni við
E1 Alamein haustið 1942.
Var Montgomery marðkálki
boðið að afhjúpa minnismerkið,
sem er m. a. til minningar um
rúmlega 11 þús. hermenn Breta
og samveldisins, sem hvíla í ó~
merktum gröfum á auðnum N,-
Afríku. j .. !;..j
/