Vísir - 17.11.1954, Side 1
12
44. árg.
MiSvikudaginn 17. novembar 1854.
263. tbi.
Pýzkar ferðaskfifetofar
jr
efna til Íslai'Jsferða.
Ferðaskrifsíofa ríkisins efnir til
yorferða suður um Evrópu í n.k. apríl
Nokkrar þýzkar ferðaskrif-
stofur hafa nú álcveðið að aug-
lýsa ferðir til Islands næsta
sumar og er ekki ólíklegt að
með þessu aukist ferðamanna-
straumurinn til fslands til
verulegra muna.
Þorleifur Þórðarson forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins er ný-
kominn heim úr ferð til Þýzka-
lands og Austurríkis, en erindi
hans þangað var að ræða við
ýmsar ferðaskrifstofur og helztu
ráðamenn á sviði ferðalaga og
samgangna í þessum löndum.
Vísir hitti forstjórann að
máli í morgun og innti frétta
af för hans. Þorleifur kvað
íerðina hafa verið undirbúna
að verulegu leyti í samráði við
dr. Effenberg sendiráðsúitara
við þýzka sendiráðið hér, en
hann hgíur reynzt íslendingum
og íslenzkum málum hollvinur
hinn mesti í heimalandi sínu.
Þorleifur ræddi við forstöðu-
menn ferðamála, þ. á. m. við
forstjóra ferðaskrifstofa, for-
ráðamenn flugfélaga, járn-
brautarfélaga og aðra þá sem
með ferðalög og ferðamennsku
hafa að gera, bæði í Þýzkalandi
og Austurríki. Flutti hann í
hópum þessara manna stutt
erindi um fsland og sýnd auk
þess tvær gullfallegar litkvik-
myndir sem Magnús Jóhanns-
son, Þorvaldur Jónsson og
fleiri hafa tekið. Heita þær
„Hálendi íslands“ og „Gim-
steinn norðursins" og sýna vel
hna einstæðu náttúrufegurð
og litauðgi íslands, auk þess
sem þær sýna öll helztu sér-
kenni lands og þjóðar.
Erindi sín flutti Þorleifur í
Hamborg, Frankfurt am Main,
Munchen, Stuttgart og Vínar-
borg og í sumum borgunum
oftar en einu sinni.
Sagði Þorleifur að kvik-
myndirnar hefðu hvarvetna
vakið óskerta athygil og orðið
til þess að nokkurar þýzkar
ferðaskrifstofur hafa ákveðið
að efna til íslandsferða þegar
á næsta sumri. Töldu forstöðu-
menn þeirra allar líkur benda
til þess að Þjóðverjar myndu
sækja til íslands, ekki sízt jarð-
fræðingar og aðrir vísindamenn,
Röðull seldi
fyrir y^milBj. kr.
B.v. Röðull seldi ísfiskafla í
Þýzkalandi í fyrradag fyrir
gott verð.
Togarinn hafði 206 lestir, sem
seldust fyrir 128.534 mörk, eða
rúml. 501.000 kr.
Þorsteinn Ingólfsson og Sur-
prise selja fyrir næstu helgi.
en einnig almenningur og ekk-
ert því til fyrirstöðu þótt að-
búnaður eða hótelkostur væri
ekki sem ákjósanlegastur, því
ferðamennirnir myndu fyrst og
fremst leita til óbyggðanna.
Hjá . Austurríkismönnum er
einnig áhugi, en þeiú eru fá-
tækir og telja sig síður hafa
efni á að ferðast jafn langa leið
og dýra.
Þorleifur sagði að allt benti
til þess að hinar þýzku ferða-
skrifstofur myndu notast við
íslenzk farartæk fyrir þátt-
takendur sína.
Að lokum skýrði Þorleifur
blaðinu frá því að í undirbún-
ingi væri nú ferð, sem fyrir-
hugað væri að efna til héðan
um mðjan apríl n. k. suður um
Evrópu og þar á meðal um
Þýzkaland.
Aður hefur Þorleifur efnt til.
tilsvarandi ‘landkynningarferða
til Norðurlandanna, Englands
og víðar.
Rússar hafa næg
k]arnorku¥ðpi!.
Bandarískir sérfræðingar hafa
haft til athugunar allt, sem fyr-
ir liggur um kjarnorkuvopna-
prófanir í Ráðstjórnarríkjunum
að undanförnu.
Niðurstaðan hefur komið þeim
óvænt, þ. e. að Rússar verði svo
birgir af kjarnorkuvopnum þeg-
ar árið 1957, að .þeir gætu lagt
út i mikla styrjöld, og er það
fyrr en áætlað var samkvæmt
fyrri atlnigunum.
Talsverður
gustur.
I blaði varnarliðsins
Hvíta fálkanum, er sagt frá
því, að fyrir ári haíi-mælzt
á Keflavíkurflugvelli mesta
veðurhæð, sem þar hafi orð-
ið vart, síðan byrjað var á
veðiu-athugunum þar. Var
það hvorki meira né minna
en 167,3 km. á klst., eða um
46 metrar á sekúndu. í
storminum um daginn,
mældist ekki nærri eins
mikil veðurhæð, eða „að-
eins“ 153 km. á klst.
• í austur-þýzku þorpi ná-
lægt landamærum Tékkó-
slóvakíu hefir verkfræðing-
ur nokkur verið dæmdur' í
lífstíðarfangelsi fyrir að
láta „agenta Vesturveld-
anna“ fá sýnishom af málm-
salla.
Gunnel Broström sem Salka-Valka og Folke Sundquist sem
Arnaldur í kvikmyndinni „Sölku-Völku“, sem nú hefur verið
frumsýnd í Stokkhólmi.
Birgitta Pettersson sem Salka-
Valka á barnsaldri.
Herslvöfdlngl valinn fil
índokínafarar.
Eisenhower forseti skipaði fyr
ir nokkru J. Lawton Collins hers
höfðingja formann nefndar, sem
send var í athugunarskyni til
Indókína.
Þcss er minnzt, að tveir banda-
rískir Iiersliöfðingjar i Kóreu,
MacArtliur og Van Fleet gagn-
rýndn Collins fyrir að berjast
gegn því, að herjað yrði á kín-
verska kommúnista handan
lamlamæra Kóréu. Collins var
einn af nánum samstárfsmönnum
Eisenhowers í siðari lieims-
stýrjöld og hefur Eisenhower
lengi hai't mætur á honum.
Herskip frá Peru taka
hvalveiðiflota Onassis.
Fluttur til hafnar í Peru.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
Herskip frá Perú hafa Iar;t
hald á allan hvalveiðiflota Onas-
sis hins gríska og flutt skipin,
fimm talsins, til hafnar í Perú.
hafnir skipanna eru að mestu
þýzkar.
Fregnir um töku hvalveiði-
flotans hefur vakið mikla atliygli
í öllum löndum, sem eiga hags-
muna að gæta á þessum slóðum.
Perú og tvö önnur Siiður-
Ameríkuriki hafa sein kunnugt
er stækkað landheígi sina svo að
hún nær 200 mílur frá strönd-
unum og var sú ráðstöfun gerð
til verndar fiskimiðum. Ýmsar
aðrar þjóðir, sem eiga hagsmuna
að gæta, liafa mótmælt þessari
stækkun landhelginnar sein ó-
löglegri. Síðan lýst var yfir af
rikisstjórnum þeirra Suður-
Amerikurikja, sem hafa stækkað
landhelgina, að öll veiðiskip er-
lendra þjóða yrðutekin og flutt
til hafna, hefur verið fylgzt með
öllu, sem gerzt hefur í málinu.
Ef þessum hótunum væri fram-
fylgt mátti ætla, að til árekstra
kæmi vegna töku hvalveiðiskipa
ýmissa þjóða, m. a. brezkra og
norskra. Liklegt er talið, að á-
kæra á hendur yfirmanns hval-
veiðileiðangurs Onassis verði telc
in fyrir í perúskum rétti. Á-
Annar FíeM kem-
ur i leitirnar.
Ungverska fréttastofan tilkynn
ir, að sleppt hafi verið úr haldi
í Ungverjalandi hjónunum Noel
Field rithöfundi og konu hans,
en þeirra hefur verið saknað
síðan sumarið 1949. Þau eru
bandariskir þegnar.
Kona Noels og bróðir hans,
Hermann, fóru bæði austur fyr-
ir tjald eftir hvarf lians og var
ekkert kunnugt um hvað fyrir
þau hefði komið, fyrr en i s.l.
mánnði, eftir að pólskur flótta-
maður úr leyniþjónustu Póllands,
lét í té upplýsingar um Hcrmann.
Leiddi það til, að Hermanni var
sleppt úr haldi, og var liann i
hressingarhæli nálægt Varsjá, er
siðast fréttist.
Sveins-
sonar
minnzt á AlfsÍBigi.
Benedikts Sveinssonar, fyrr-
vei-andi alþingisforseta, var
minnzt á Alþingi í gær.
Fundir höfðu verið auglýstir í
báðum deildum þings í gær, en
þeiin var frestað. Var svo boð-
aður fundúr í s'ameinuðu þingi,
eu þar fliitti varaforseti deildar-
innar Jón Sigurðsson á Réyni-
stað, minningarræðu um hinn
mildlhæfa forystuinahn i sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar og
kunna þingskörung. Þingmenn
vottuðu hinum Játna virðingu
sína með því að rísa úr sætum.
Fregnin um andlát Benedikts
Sveinssóriar barst skjótt út um
bæinn fyrir hádegi í gær, og
brátt voru fánar dregnir í hálfa
stöng livarvetna i bænum. Kom
glöggt í ljós, hvílíkra vinsælda
og virðingar Benedikt naut, svo
mikill og almennur var harmur*
inn í bænum.
Spartak beiö
ósigur.
Einkaskeyti frá AP.
London í gærkveldi.
Svo fóru leikar í knattspyrnu-
keppninni í Wolverhampton, að
brezka liðið sigraði Rússana með
4:0 og komu úrslitin óvænt, þótt
Wolverhampton Wanderers sé
sterkasti knattspyrnuflokkur
Breta, en Spartakflokkurinn
rússneski hefur unnið glæsilega
sigra, og þótti mörgum hann lík-
legúr til sigurs.
Iíeppnin fór fram svo se.int, að
völlurinn var allur ljósum lýstur.
Tiðarfar hefur verið umhleyp-
ingasamt og var völlurinn þung-
ur. Fyrri liálfleik laulc með 0:0,
en í síðari hálfleik, einkum er
dró að leikslokum, sóttu Bret-
arnir sig, og eftir að þeir Iiöfðu
skorað eitt mark skoruðu þeir 3
á seiniistn 5 mínútum leiksins.
í keppni sinni við Arsenal-
flokkinn á dögunum sigruðii
Bússarnir með 2:1.
SVIosley býr nú
á Irlandi.
Sir Oswald Mosley, sem fyrir
seinustu heimsstyrjöld var
höfuðleiðtogi ábrezkra fascista,
á nú heima á sveitarsetri nálægt
Duhlin.
Hann fer iðulega til London
og heldur fundi með fylgis-
mönnum sínum, sem hafa enn
með sér félagsskap. — Gengið
hefur af Mosley, en samt hefur
hann enn góð fjárráð, og styður
flokk sinn fjárhagslega. Kveðst
hann hafa flutzt til írlands af
því, að hann hafi raunverulega
verið pólitískur fangi á Eng-
landi. i