Vísir - 24.02.1955, Blaðsíða 8

Vísir - 24.02.1955, Blaðsíða 8
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó bað fjöl- breyttasta. — Hringið í síma 1680 og gerist áskrifendur. Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. Fimmíudagiim 24. febrúar 1955. Frfálslyitdi f@rdæitt i aust- isl Stúdentabandalag nazista £ Þýzkaiandi tók á sínum tíma upp eftirlit með hugsanagangi ng Iiugarjhræringu stúdenta, jmeð peim afleiðingum, að hver njósnaði um annan, og slíkt eft- irlit er komið í framkvæmd við ausíur-pýzka hóskóla, enda margt líkt með skyldum. Hefir samband kommúnist- iskra æskulýðsfélaga í A.Þ. hafið báráttu í þessa átt', og stúdentum í bandalaginu er gert að skyldu að skýra frá hugarhræringum og hugsjón- um, eltki aðeins stúdenta held- ur og kennara, og svo langt er gengið, að mönnum er uppálagt að skýra frá hverju einu, sem menn láta sér um munn fara, og grunsamlegt kann. að þykja. Nú er það mikil nauðsyn fyr- ir stúdentana, að vera í hinu kommúnistiska bandalagi, eins og allt er í pottinn búið, alveg eins og nazistiskum stúdentum var nauðsyn að vera í hinu nazistiska bandalagi á sínum tíma. Skýrsla, sem samband æsku- lýðsfélaganna birti fyrir nokkru gefur í skyn hvemig farið er að. Leiðtogar í bandalaginu til- kynntu, að kvenstúdent hefði varið hinn „bandaríska kanzl- ara Adenauer“ og annar kven- student var borinn þeim sök- tim, að hafa reynt að réttlæta ofsóknimar í Karlsruhe gegn kommúnistaflokknum. Stúdent nokkur var sakáður um að neita þvi, að Bandaríkin fylgdu heimsyfirráðastefnu, og enn einn var sakaður um að lesa hækúr uni úrelt, héimspekileg fræði. Allir voru háskólahem- ar þessir nafngreindir. Maður, að nafni dr. Grunewald, var sakaður um að halda því frám, að óhjákvæmilegt væivi að grípa til sömu ráða í landbúnað inum í A.Þ., sem í V.Þ., en úr- rseðin í V.Þ. höfðu sætt gagn- rýni í kommúnistablöðum V.Þ. Engum getum þarf að leiða að því, hversu þægilegt það er fyrir stúdenta að vera bomir ýmsum „sökum“ af þessu tagi og öðrum. Þeir hafa fengið á sig grunsemdarstimpilinn og þeim eru’ gefnar nánar gætur. Frjálslyndi er ekki í heiðri haft í Suðausturþý'zkufn háskólum. Aðalritari -miðstjómar samb. kommúnistisku æskulýðsfélag- Janna sagði fyrir skömmu: „Við höfum enga þörf fyrir gegnrotið frjálsyndi (liberal- isma).“ Norðfir5ingar fá nýjan togara. Tilkynnt hefur verið, að ríkis- ábyrgð verði veitt til kaupa á nýjuin dieseltogara í stað Egils rauða, sem fórst við ísafjarðar- djúp. Hefur togarakaupanefndin á- kveðið að leita tilboða hið bráð- asta og fá nýjan togara eins fljótt og auðið er. Scgir i tilkynningu frá togara- kaupanefndinni, að hún sé þakk- lát rikisstjórninni fyrir skjótar og góðar undirtektir í þessu mikla hagsmunamáli Neskaupstaðar. — í togarakaupanefndinni eru þeir Axel V. Tulinius bæjarfógeti, Ármann Magnússon, Oddur Sig- urjónsson og Lúðvik Jósepsson. SkcfræktarmyiHÍ r< 8§, [2 ® Efó/’ r i Ny-ja KiOo Stjórn Íslenzk-ameríska fé- lagsins hefur undanfarið athugað möguleika á því að fá himgað úrvals fræðslukvik- myndir. Nú hefur félaginu tekizt að fá hingað ágæta kvilímynd um skógrækt, og verður hún sýnd í Nýjá Bíó n.k. laugardag kl. 2. Er hér um fjórar myndir að ræða, allar í litum, og frábær- lega vel gerðar. Fjalla þær um skóggræðslu, nýting skóga og þýðingu þeirra. Síðasta mynd- in, sem sýnd verður, er ís- lenzk, er gefur glögga hug- mynd um skógræktarínál á Is- landi. Mun Hákon Bjarnason skógræktarstjóri skýra mynd- ina. Íslenzk-ameríska félagið hyggst efna til fleiri slíkra kvikmyndasýninga, og verða þær í Nýja Bíó síðasta laugar- dag hvers mánaðar, á sama tíma. — Öllum er heimill að- gangur að sýningum þessum, 14 ára og eldri. Söfnun Ijósmynda ® Mcttniteejesi'fiijfs&air MÍEÆ ejcíeas' $@s* Éeciii £sjs°£s* 'BHiltifrafiimtarm Vaíalaasit er |>að meí. London (AP). — Ástralíu- maður, 47 ára gamall, át í s.l. viku 480 ostrur á eixmi klukku- stund eða átta á mínútu hverri. Heldur hann því fram, að hann hafi með þessu sett heimsmet í ostruáti. um ævintýri H. C. Andersens. Norrænu félögin efna nú til ritgerðarsamkeppni • sam- vinnu við skólayfirvöld fjög- urra Norðurlandanna, Finn- lands, íslands, Noregs og Sví- þjóðar, mcðal nemenda í barna- og gagnfnæðaskólum á aldrinum 12—14 ára. Ritgerðarefnið nefnist: — „Hvaða ævintýri H. C. Ander- sens mér finnst mest gaman að og hvers vegna“. Ritgerðar- samkeppnin er haldin í tilefni þess, að 2. apríl n.k. eru 150 ár liðin frá fæðingu skáldsins. Tvær ritgerðir verða verð- launaðar, ein eftir barnaskóla- nemenda og önnur eftir gagn- fræðaskólanemenda. Verðlaun- in eru ferð til Danmerkur. Hér á landi verður sá háttur hafður, að skólar með innan við 100 nemendur skulu senda 2 ritgerðir, sem valdar eiga að vera af kennurum og skóla- stjóra, en skólar með yfir 100 nemendur mega senda 4 rit- gerðir. Skulu þær sendar Nor- ræna félaginu í Reykjavik og hafa verið póstaðar í síðasta lagi 5. marz n.k. Því miður getur fresturinn ekki orQið lengri. Sérstök dómnefnd, sem Norræna félagið og fræðslu- málastjórnin tilnefnir, mun svo dæma um þær ritgerðir, sem berast. Keimarar og skólastjórar barna- og gagnfræðaskóla, hvar sem er á landinu, eru hvattir til að gefa nemendun- um kost á þvi að taka þátt í þessari ritgerðasamkeppni. Brídgðk&ppr:C yíklsstarfs maitsia kefst í kvoídL 14 sveifir þátfakendur. Starfsmannakeppni ríkisstofn- ana í bridgé hefst í kvöld, en þátttakendur eru alls 14 sveitir. Spilaðar verða 7 umferðir Og verður spilað eftir svokölluðu Monroe-kerfi. Keppnin verður háð í Borgartúni 7, í sal Hús- mæðrafélags Reykjavíkur og verðurspilað alla fimmtudaga. Keppt er um fagran farandbik- ar sem Starfsmannafélag rikis- stofnana gaf fyrir nokkrum ár- um og keppt liefur verið um ár- lega síðan. Núverandi handhafi bikarsins eru Brunabótafélag ís- lands og íslenzk endurtrygging, sem sent hafa sameinað lið til keppninnar. Eins og að framan greinir eru þátttakendur í keppninni að þessu sinni 14 sveitir, en þær eru: Fiskifélagið, sameiginlegt lið frá Brunabótafélagi íslands og íslenzkri endurtryggingu, Verð- gæzlan, Tryggingarstofnun rík- isins, sameinað lið frá Ríkisút- varpinu og Viðtækjaverzluninni, sameinað lið frá Innkaupastofn- un rikisins og Áfengisverzlun- inni, Gagnfræðaskóli Austurbæj- ar, Reykjavíkurflugvöllur, Lands siminn, Stjórnarráðið, Póstliúsið, Tollstjóraskrifstofan, Landssmiðj an og loks er sveit skipuð mönn- um frá ýmsum öðrum ríkisstofn- unum (þ. e. einum manni frá hverri stofnun). í kvöld eru sveitaforingjarnir vinsamlegast beðnir að mæta kl. 7.45 á keppnistað. Frá fréttaritara Vísis. — Akureyri í morguii. Menningarsjóður Kaupfclags Eyfirðinga hefur nýlega ákveð- i ið að gefa Amtsbókasfninu á ! Akureyiii tvö lestæki fyrir mikrofilmur. Kemur þessi gjöf í einkar góðar þarfir fyrir þá sem vilja eða þurfa að stunda fræðslustörf á Alcureyri. Amtsbókasafnið þar á staðnum á töluvert filmu- safn sem það hefur viðað að sér bæði af skjölum úr þjóð- skjálasafninu og víðar að. En til þessa hefur safnið ekki átt nema eitt lestæki svo að hin höfðinglega gjöf Menningar- sjóðs KEA bætir þarna úr brýnni þörf og bætir jafnframt til muna aðstöðu Norðlendinga til fræðsluiðkana. Annað mál sem Menningar- sjóður Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri hefur látið til sín taka er ljósmyndun býla og fólks í héraðinu og söfnun ör- nefna. Nýlega hefur stjóm Menningarsjóðsins ákveðið að safna gömlum og nýjum ljós- myndum úr héraðinu og þá fyrst og fremst af býlum og fólki. En þar sem þær þrjóta verður hafizt handa um ljós- myndun, væntanlega á sumri komanda og þá farið heim á bæina og þeir ljósmyndaðir, svo og ábúendur jarðanna, sögustaðir og fleira sem á einn eða annan hátt kemur við sögu héraðsins eða hefur komið við hana á einn eða annan hátt fyrr eða síðar. Fræðslufulltrúa Menningar- sjóðs, Jóhannesi Óla Sæmunds- syni kennara, hefur verið falið að skipuleggja þessa Ijós— myndun í héraðinu og sjá um framkvæmdir. mrm Asfu tli uiuræðu. Nevv York í morgun. —• Á Bangkok-ráðstefnunni er nú rætt um varnir Suðaustur- Asíu, aðallega skipulagsjhlið- ina. Dulles hefir gert ráðstefn- unni grein fyrir hemaðarlegum styrk Bandaríkjanna í Asíu. Hann kvað stefnuna varðandil SA Asíu óbreytt og varaði við tilslökunarstefnu varðandi Formósu. Gigli dregur sig í hié. Einkaskeyti frá AP. New York í morgun. Benjamino Gigli, ítalski óperu- söngvarinn heimsfrægi, hefur til- kynnt, að hann ætli að draga sig í hlé. Kveðst hann hvorki muni syngja í óperum framar, né efna til hljómleika eða taka þátt í þeim. Gigli er 5 ára að aldri. Eldur í feart- öflugeymslUi í fyrradag var' slökkviliðiS kvatt í Kringlumýri hér í bæ vegna elds, sem kvikuað hafði í kartöflugeymslu. Hafði eldufinn komizt í torf á þaki geymslunnar og tók það slökkviliðið um það bil hálfa klukkustund að kæfa eldinn að fullu. Skemmdir hlutust samt furðu litlar af. Að því er slökkviliðið hefur tjáð Vísi hafa verið töluverð brögð að því í haust að krakkar yllu íkveikjum í kartöflu- geymslum, og aðallega með þeim hætti að krakkamir kveikja í sinutoppum í grennd- inni, sem síðan læsist í geymsl- unnar. Hefur slökkviliðið nokkrum sinnum verið kvatt á vettvang af þessum sökum í haust og vetur og hefur stund- um hlotizt tilfinnanlegt tjón af5 bæði með því að geymslurnar hafa brunnið og það sem í þeira var geymt, eyðilagzt. Kínverskir þjóðernissinnar senda nú um 100 flugvéla daglega til árása á sk> er landstöðvar kommúnista o*r eru einnig nýfamir að oota þrýstiloftsorustuflugv-lr til eftírlitsferða. Undanfarið hefuv íalsvrrt verið skrifað um nýjasta kafbát Bandaríkjamanna. srm knúihn er kjarnorkú. Myndin hér að ofn var tekin, er r:\n~ lét í haf í fyrsta sinn til prófunar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.