Vísir - 16.04.1955, Blaðsíða 5

Vísir - 16.04.1955, Blaðsíða 5
VÍSIR ' líaugardagirm 16. apríl 1955 landsins búa menn sig undir vor- og sumarsfarfið. Viðtal við Einar E. Sæjsi- lEmSsen skðigarvörð*1 Tíðindamaður frá Vísi hefir átt viðtal við Einar G. E. Sæ- mundsen skógarvörð og spurt Jiann um fyriihugaðar skcg- ræktarframkvæmdir, starfse ni skógræktarfélaganna í landinu og Skógræktarfélag Reykja- víkur sérsíaklega. Sagðist hor- um svo frá: Skammt er um liðið síðan hér var haldinn fundur skógar- varða, en skógarverðir eru nú 7 starfandi í landinu, auk skóg- ræktarstjóra. Á fundi þessum var, eins og á fundum undan- genginna ára, gerð áætlun um starfið í vor og á sumri kom- anda. Eins og á undanförnum árum varð það ofan á, að leggja megináherzlu á plöntuppeldið og eins mikla aukningu þess og framast er unnt. Önnur verk- efni eru friðun skóga og vemd og viðhald girðinga o. fl. Störf skógræktar- félaganna. Annað aðalmál fundarins .var að undirbúa störf hinna mörgu skógræktarfélaga í landinu, en þau eru nú 29 talsins, og þau sendu fulltrúa á fund hér um sama leyti. í þessum félögum eru um 7500 félagar, karlar og konur, áhugamenn, sem vilja veg og gengi skógræktarinnar sem mestan, og vinna að þ'ú marki sem sjálfboðaliðar við girðingar og gróðursetningu o. s. frv. Á þessum fundi voru teknar ákvarðanir um verkefni félaganna, sem er samræmt til- lögum skógarvarðanna, til þess að um sameiginlegt átak geti verið að ræða. Þáttur skógrækt - arfélaganna í starfinu er orðinn geysi mikill á síðari árum, eða síðan 1946, er Skógræktarfélagi íslands, sem var stofnað á Al- þingishátíðinni 1930, var breytt í landssamband skógræktarfé- laganna. Fengu skógræktarfé- lögin þá einskonar heimastjóm og framkvæmdir þeirra jukust ótrúlega mikið eftir það. Efst á blaði. Ef vikið er að félögunum úti á landi eru tvö félög langsam- lega efst á blaði með fram- kvæmdir, bæði á Norðurlandi, en athafnasamast allra skóg- ræktai-félaga í sveitum sunnan lands er Skógræktarfélag Ár- nesinga. Skógræktarfélag Suður-Þing- eyinga gróðursetti í fyrra 62.000 plöntur og hefir á 10 ár- um komið upp yfir 100 girðing- um um bæjarskóga í öllum hreppum sýslrmnar, nema tveimur. Hér má skjóta því inn í, að í skógræktarfélögunum eru ríkjandi mismunandi sjónar- mið um það á hvað leggja beri höfuðáherzlu um sinn. í sumum er lögð mest áherzla á bæjar- skóga, sem séu ekki minni en hektari! lands að flatarmáli eða 10.000 fermetrar. Ótrúlega góð- ur árangur hefir náðst í þessu starfi. Skógræktarfélag Eyfirðinga gróðursetti 71.000 plöntur í fyrra, en skógræktarfélag Ár nesinga hefir verið mjög at- hafnasamt og komið upp fjölda mörgum reitum. Ýms félög hafa lagt áherzlu á, að koma upp stærri girðingum til sameigin- legra nota, svo sem Skógrækt- arfélag- Borgfirðinga, en yfir- leitt hneigist hugur manna til bæjarskóga, til þess að hafa trjágróður nálægt sér. Nokkur félög hafa byrjað plöntuupp- eldi. Skógræktarfélag Eyfirð- inga hefur haft plöntuuppeldi um skeið, og Skógræktarfélag Borgfirðinga hefur nú lagt út á þá braut. Þá er plöntuuppeldis- stöð Skógræktarfélags Reykja- víkur hér suður í Fossvogi. Plöntumagn minna en í fyrra. Um 900.000 plöntur voru fyr- ir hendi til gróðursetningar í fyrravor, en verða nú um 600.000. —■ Á næsta ári mun plöntumagnið komast upp í talsvert á aðra milljón og mark ið er, að það komist fljótlega upp í 2 millj. plantna árlega. Aukið fjármagn til plöntu- uppeldis hefir fengizt með Sitkagrcni í Fossvogsstöðinni. Gróðursett 1944. IIæð nú 3—4 m. “ (Ljósm.í'íÓQ>£rá'>jórsárhoiti),.‘ sígarettuaurumun, því að það fé, sem þannig fæst, gengur allt beint til plöntuuppeldis. Sökum þess, að plöntumagn er nú minna en í fyrra, beinist starfsemi skógræktarfélag- anna í ár meira að girðingum og viðhaldi þeirra, m. a. verða girðingar víða stækkaðar. Skógræktarfélag Reykjavíkur. Tíðindamaðurinn bað Einar G. E. Sæmundsen, sem er framkvæmdastjóri Skógræktar- félags Reykjavíkur, að segja nánara frá félaginu, söðinni, gróðursetningu á Heiðmörk o. s. frv. Sagðist honum svo frá um þetta efni: Skógræktarfélag Reykjavík- ur var stofnað 1946, upp úr þeirri breytingu, sem eg gat. um áður. Höfuðverkefni félags- ins hefir verið plöntuuppeldi í Fossvogsstöðinni og hefir það farið vaxandi ár frá ári, og svo skógræktin á Heiðmörk, sem var friðuð haustið 1948, en gróðursetning hófst ekki fyrr en 1950, og hefir öll verið unn- in í sjálfboðavinnu sem kunn- ugt er. Heiðmörk — 1300 hektárar lands friðaðir. Á Heiðmörk er búið að friða 1300 hektara lands; til stendur að friða meira. — 3—400 hekt- arar hafa verið teknir til skóg- ræktar og skipt í reiti, sem ýms félög hafa fengið til umráða. Sjálfboðavinnu fyrirkomulagið hefir gefizt vel. Árangurinn af gróðursetn- ingunni er nú að byrja að koma í ljós og mun þó koma miklu betur í ljós á næstu árum. Nokkuð er þetta þó mismunandi eftir jarðvegi og skjóli, hversu vel hefir verið að gróðrinum búið o. s. frv. Kemur hér og til greina, að frá því skógrækt hófst á Heiðmörk fyrir 5 árum hefir veðurfar ekki verið hagstætt fyrir ungaí plöntur í þurrum jarðvegi eins og þarna er. Þarna getur nú að líta stöku lerkiplöntur, sem eru komnar í næstum meters hæð, en fjöldi plantna um 30 sm. Ekki þarf að minna á, að skógrækt er þol- inmæðiverk og allt hægfara fyrst í stað, en svo kemur örara vaxtarskeið. AIls er búið að gróðursetja á Heiðmörk um V2 milljón plantna. í fyrra voru afhentar úr Fossvogsstöðinni um 157.000 plöntur, en dreifsettar .voru um 400.000. Sáning hefur verið aukin og góður árangur náðst. Við erura vel á veg komnir með að koma upp skjólbelti krihgum alla stöðina og einnig eru skjólbelti milli reita. Yztu beltin eru 12—15 metra breið og hefir verið gróðursett í þau birki, aspir og víðiplöntur og nokkuð af sitkagreni, sem verð- ur.notað í æ vaxandi mæli. í Skógræktarfélági Reykja- víkur eru um 1600 áhugsamir félagar, karlar og konur, og á- hugi manna mikill, en félaginu væri styrkui' að því að fá sem ’flésta í félagið. — Áhugi manna Skálholtskirkja, klukkuturn og umhverfi samkvæmt tillöguni Hai-ðar Bjarnasonar húsameistára ríkisins. Hin fyrirhugaða kirkja er tæplega 30 metra á lend en 14 metra há (sama hæð og var á kirkju Brynjólfs biskups). — Turn kirkjunnar er 36 metra liár upp í turnspíru, en hún er öll tæplega hálf hæ$ turnsins. Fyrirhuguð Skáiholtskirkja tengir nútíð og fortíð. Húsamcistari lieíir lokið íeíkniii^um Hinn almenni áhugi, sem vakinn hefur verið um gervallt landið, fyrir viðreisn Skálholtsstaðar, beinist framar öðru að því, að reist verði kirkja í Skálholti. Málið er nú komið á góðan rekspöl með tillögum húsameistara ríkisins, Harðar Bjarnasonar, cn hann hefur nú í rúmt misseri unnið að teikningum að fyrir- hugaðri kirkju í Skálholti. Tíðindamaður frá Vísi átti þess kost í gær að skoða hið fagra líkan, sem gert er sam- kvæmt tillögum hans, af kirkj- unni, ásamt klukkuturni og umhverfi, og ber sú kirkja eins og síðar verður að vikið ein- kenni hins rómanska stíls. Með þessum tillögum húsameistara telur Skálholtsnefnd grundvöll lagðan að því, að kirkjan verði reist í Skálholti. Hér hefir verið leyst af hendi vandasamt og erfitt hlutverk og gefst nú al- menningi kostur á, að kynnast hugmynd hans og segja álit sitt um hana. Eftirfarandi nánari upplýs-: ingar hefur blaðið fengið hjá Skálholtsnefnd: Fyrir öllum þeim er afskipti hafa haft af Skálholtsmálum, hefur vakað, að mál þessi yrðu leyst á sem beztan og hag- kvæmastan hátt. Það’ mál, sem er efst á baugi og talið sjálfsagt, er að reist verði kirkja, sem í senn tengir saman fortíð og nútíð og er minnisvarði og þakklætisvott- ur þjóðarinnar til staðarins, þar sem lengst af var ein aðalmið- stöð kristninnar og menning- arinnar í þessu landi. Húsameistari ríkisins, Hörð- ur Bjarnason, hefur nú lagt fram teikningar áð nýrri kirkjiu. Sú kirkja ber í aðalatriðum fyrir skógrækt er mikill hér í bænum. Víða í nágrenninu eru komnir upp fallegir reitir, sem eru í eign einstaklingai bæ'num. einkenni hins rómanska-stíls Til þess hníga söguleg rök. Fyrir 1200 var sá stíll einráður í kirkjugerð. Ætla má að kirkja Klængs hafi í öllum höfuðat- riðum verið mótuð af þeim stíl. Hvað þá hinar fyrri kirkjur'. Með því að leggja stílgerð þá til grundvallar eru komin sýni- leg tengsl við hinar fyrstu ald- ir kristninnar hérlendis. Þar að auki sker sú stílgerð sig ekki um of úr byggingarað- ferðum nútímans. Þessi nýja kn-kja er látlaus og hrein, og leyfir afbrigði, þannig að hús- ið lýsir um leið aðferðum og viðhorfi nútímans og verður ekki dauð eftirlíking. Hinsveg- ar stuðlar hún að nokkurri íhaldssemi við lausn verkefnis- ins, sem ætti sumpart að vera skilyrði gagnvart Skálholtsstað, sem á sér langa og nierkilega sögu og á enn merka gripi not- hæfa við guðsþjónustuhöld. Þeim má auðvitað ekki fleygja, heldur verður að nota þá áfram. Ennfremur eru leg- steinar sem greypa má í veggi kirkjunnar og verða þá um leið merkileg skreyting', sem leiðir hugann aftur til fortíðar- innar. Svona má telja ýmislegt upp, sem krefst þess, að húsið verði sennilega hlutlaust í sinni gerð, og verður hún um leið að falla saman við erfðahug- myndir manna um gerð kirkju. Slíkt er auðvitað ekki til þess að auðvelda lausn verkefnisins. Þegar slíkt er haft í huga, má telja, að kirkjuteikningin ha.fl lánazt veL ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.