Vísir - 04.06.1955, Síða 5
Laugardaginn 4. júní 1955.
vtsm
a
Kvenfélagasamband: íslands 25 ára:
Fjölmennt kvennamót hefst í Reykja-
vík á mánudag og stendur í 3 daga.
I sambandinu eru 212 félög með
meolsmi og 1400 sóttu námskeið sl. ár.
nokkuð langur, en hófst að búizt er við> að mótið sæki
Kvenfélagasamband íslands
minnist 25 ára afmælis síns eft
ir helgina með fjölmennu
kvennamóti í Reykjavík, sem
til er boðið öllum formönnum
kvenfélaga landsins.
Kvenfélagasambandið varð
25 ára í janúar í vetur, en það
var stofnað um mánaðamótin
janúar—febrúar 1930. Aðdrag-
andinn að stoínun sambandsins
var
með því að 1926 var almennur
kvennafundur haldinn á Akur-
eyri, og þar rætt um hús-
mæðrafræðsluna í landinu, og
nauðsyn til úrbóta á því sviði.
Eftir þær umræður var skipuð
nefnd til frekari rannsóknar og
undirbúnings málinu, og á bún-
aðarþingi 1927 kom málið fyrir
það, og flutti frú Ragnheiður
Pétursdóttir þar erindi um
húsnræðrafræðsluna. Á þessu
búnaðarþingi var skipuð nefnd
til rannsóknar á þessum mál-
um, en í nefndinni áttu sæti
frúrnar Ragnhildur Pétursdótt-
ir og Guðrún J. Briem, svo og
SigurSur Sigurðsson búnaðar-
málastjóri. Gerðu þau ýmsar
athuganir á húsmæðrafræðsl-
unni hér og erlendis og lögðu
málið á ný fyrir búnaðarþing
1929. Var þá skorað á Alþingi
að setja lög um húsmæðra-
fræðslu, húsmæðrakennara-
skóla og að gera handavinnu að
skyldunámsgrein stúlkna í skól-
unum. Þá var lagt til að kven-
' félagasamböndin, sem voru í
landinu, sameinuðust og ynnu
að framgangi þessara mála, og
því heitið, að búnaðarfélagið
veilti þeim nokkurt fé með því
skilyrði, að sambandið yrði
stofnað eigi síðar en árið 1930.
Var síðan boðað til fundar með
fulltrúum héraðasambanda
kvenfélaganna og mættu 19
fulltrúar á þessuin stofnfundi,
sem haldinn var á heimili Sig-
urðar Sigurðssonar búnaðar-
málastjóra, sem telja má aðal-
hvalamann þess, að kvenfélaga-
sambandið var stofnað. Stofn-
endur Kvenfélagasambandsins
voru fjögur héraðasambönd,
það er Samband norðlenzkra
kvenna, sem var þeirra elzt,
Bandalag kvenna í Reykjavík,
Samband 'Austfirzkra kvenna
og Samband sunnlenzkra
kverma. — Pyrstu stjórn Kven-
félagasamands íslands skipuðu
Ragnhildur Pétursdóttir forseti,
Guðrún J. Briem og Guðrún
Pétursróttir.
í viðtali, er blaðamenn áttú í
vikunni við stjórn Kvenfélaga-
sambands íslands, var skýrt frá
því, að samkvæmt síðustu
skýrslum væru 212 kvenfélög
í sambandinu, og teldu þau
samtals um 13000 meðlimi, en
félög þessi eru í 18 héraðasam-
böndum. Á síðasta ári héldu
þessi félög 867 fundi og 424
aðrar samkomur. Þá voru og
haldin 84 námskeið, er stóðu
samtals í 260, kennsluvikur, en
þátttakendur á námskeiðunum
voru um 1400.
25 ára afmsélismót Kvfeiifé-
lagasambands Íslands hefst á
mánudaginn og stendur yfir í
3 daga. Hefur verið boðið for-
mönnum allra kvenfélaganna,
og af þeim er vitað að muni
mæta 180. Auk þess verða gestir
mótsins, þeir af stofnendum
sambandsins, sem á lífi eru og
fulltrúar á 11. landsþingi kven-
félagasambandsins, sem hefst
strax að mótinu loknu, þannig
alls um 200 konur, þar af 160
utanbæjarkonur. í sambandi
við mótið verður áhaldasýning
í Húsmæðrakennaraskólanum,
en sjálft mótið verður sett í
Sjálfstæðishúsinu. Síðasta dag
mótsins verða þátttakendur
gestir Reykjavíkurkvenna.
Kvenfélagasambandið hefur
gefið út tímaritið Húsfreyjuna,
og hefui' það komið út 4 sinnum
á ári í 6 ár.
Núverandi stjórn sambands-
ins skipa frú Guðrún Péturs-
dóttir forseti, en hún hefur ver-
ið í stjórninni frá upphafi og
forseti frá 1947, er Ragnheiður
Pétursdóttir lét af því starfi,
Aðalbjörg Sigurðardóttir og
Rannveig Þorsteinsdóttir .
Norðmenn hafa varið geypi-
tíl sjávarútvegsins.
Síldarbræðslur þeirra afkasta 70.000
lestum á sólarhring.
Island fyrir Is-
lendinga.
Það liðu meira en 100 ár frá
því að ,Fjölnismenn“ og aðrir
baráttumenn 19. aldarinnar
hófu baráttu sína fyrir endur-
heimt stjórnmálalegs og efna-
legs sjálfstæðis íslenzku þjóðar-
innar, þar til fullur sigur
vannst á því sviði með lýðveld-
isstofnuninni á Þingvöllum
1944.
En hafið þið íslendingar gert
ykkur grein fyrir því, að ennþá
er ekki nema Vz af hinu raun-
verulpga landi ykkar raun-
verulega laus við aðra erlenda
ágengnisgalla? Já, og sem
halda því fram í fullri alvöru,
að þeir hafi rétt til þess.
Landgrunnskort íslands talar
skýru máli í táknrænum lítum
fyrir málstað þeirra aðgerða,
sem þegar hafa verið gerðar til
úrbóta af ríkisstjórn íslands, og
sannar einnig, á raunhæfan hátt
‘þá kröfu, að allt landgrunnið
sé framtíðarúrlausnin.
Á úrslitastundum hefur þjóð-
in borið gæfu til að sameinast
án pólitísks ágreinings.
Landgrunnskortið yerður til
sölu næstkomandi sunnudag.
Ef góð sala fæst á því,- verða
möguleikar til framhaldsað-
gerða, sem geta orðið þessu máli
til stuðnings. Kaupið það á Sjó-
mánnadaginn, hjá Dvalarheim-
ilinu og annars staðar, sem það
kann að verða til sölu.
Þegar býður þjóðarsómi, þá
á ísland eina sál.
fnflTffFríriÍíffllf- »"mjwwii|y
‘a™ " Þorkell Sigúrísson.
Fegrufl ísaf jarðar-
kaupstaðar.
Stjórn Blóma- og trjáræktar-
félags ísfirðinga hefur látið sig
fegrun fsafjarðarkaupstaðar
miklu skifta og gegnir félagið
áþekku hlutverki þar og t.d.1
Fegrimarfélagið hér í höfuð- ^
staðnum. (
Nýlega hefur stjórn Blóma-
og trjáræktarfélagsins ákveðið
að efna til samkeppni um feg-
usta skrúðgarðinn í bænum og
verða . einhver verðlaun eða
viðurkenning veitf. Sérstök
dómnefnd hefur verið kjörin til
þess að dæma milli garðanna.
Ennfremur mun félagið að-
stoða bæjarbúa við það að
koma sér upp skrúðgörðum m.
a. með því að selja blóm,
blómlauka, blómafræ og ann-
að þess háttar. Jafnframt ætlar
félagið að hafa á boðstólum
ýmiskonar kálplöntur, en tals-
verðir erfiðleikar hafa verið
fyrir fólk að fá slíkar plöntur
þar á staðnum. Þá ætlar félagið
að beita sér fyrir því að lóðir
í bænum verði sem bezt hirtar.
í vor fór stjórn Blóma- og
trjáræktarfélagsins þess á leit
við bæjarráð ísafjarðarkaup-
staðar að það léti girða bæjar-
landið til þess að útiloka ágang
sauðfjár og hrossa yfir sumar-
mánuðina., en á því er talin
brýn nauðsyn.
Félagið ræður yfir blóma eða
skrúðgarði við Seljalandsveg
og er ætlunin að hann. verði
opinn almenningi vissan tíma
á degi hverjum. í sumar, a. m.
k. þegar veður leyfir.
Formaður félagsins er Anton
Ólafsson.
Talið er að Norðmenn hafi
varið um það bil 2230 milljón-
um íslenzkra króna til ýmissa
framkvæmda í þágu fiskveiða
og fiskiðnaðar síðan styrjöld-
inni lauk.
Ekki eru menn þó á eitt sátt-
ir um það, hvernig verja beri
miklum fjárhæðum í þágu þess-
ara atvinnuvega. Verkamanna-
stjórnin hefir lagt mesta á-
herzlu á, að reisa fiskimjöls-
verksmiðjur og síldarbræðslur,
einkum í Norður-Noregi, en
íhaldsmenn halda því hins veg-
ar fram, að skynsamlegra sé að
endurnýja og bæta fiskiskipa-
flotann, en snúa sér síðar að
verksmiðjubyggingum.
Síldar- og fiskimjölsiðnaður
Norðmanna hefir vaxið risa-
skrefum undanfarin ár, og nú er
svo komið, að um 70 síldar-
bræðslur eru í landinu, auk
þriggja síldarbræðsluskipa, en
árleg framleiðsla þeirra er um
70.000 smál. af lýsi. Verðmæti
lýsisins og mjölsins er talið um
900 millj. ísl. kr. á ári. Fyrir 25
árum síðan tóku verksmiðjur
við 5% af síldaraflanum, en í
dag um 80%.
Ehda þótt framleiðsla Norð-
inanna sé mjög mikil á þessu
sviði, framleiða þeir þó ekki
nema 6% af heildarframleiðslu
heimsins. Asíulönd, einkum
Japan, eru þar langfremst í
flokki.
Danska blaðið „Berlingske
Tidende“ sagði frá því fyrir
skömmu, samkvæmt fréttarit-
ara sínum í Björgvin, að Norð-
menn hafi gert góð kaup, er þeir
keyptu Hæring af íslendingum,
sem gátu ekki notað skipið
vegna þess, að . síldin hefði
brugðizt árum saman. Hæring-
ur getur afkastað 10.000 hektó-
lítrum á sólarhring, en auk þess ;
eiga Norðmenn síldarbræðslu-
skipin. Bras og Clupea, sem
hvort getur afkastað 5000 hl. á
sólarhring.
Björgvinjarbúar eiga nýtt
yerksmiðjuskip í smíðum í
Þýzkalandi. Það verður 6000
smál. að stærð og á að kosta
2.5 millj. norskra króna. Það
verður rekið í sambandi við
síldveiðar í Norðursjó.
FSugvélar með
tvöfaidau boð.
Farþegaflugvélar iramtíðar-
innar munu verða með tvölöld-
um bol til að draga úr hávaða.
þett.a er spádómur tveggja
verkfræðinga Douglas-verk-
smiðjanna amerísku. Er tvö-
faklur bolur naúðsynlegur til að
vernda farþega fyrir hávaða
þrýstiloftlireyfla. llugmyndin er
ekki ný, en hefir ekki verið
framkvæmd vegmi þess, hve
hinn dauði þungi flugvélanna
mundí vaxa mikið við þetta
fyrirkomulag. En það verður að
deyfa hljóð í flúgvélum framtíð-
arinnar, og þá verður þetta leið-
in sögðu verkfræðingarnir ena-
fremur.
StáSu 99alþýðu-
pySsum46.
Dómstóll í A.-Berlín hefur
nýlega dæmt fjóra menn fyrir
pylsuþjófnað.
Þessir fjórir menn fengu
samtals átján og hálfs árs
fangelsi fyrir að stela 13.000
pylsum í „alþýðueign“, en
fjórir aðrir fengu 6—21 mán-
aðar fangelsi fyrir að kaupa
þýfið.
wmmm&mm
Áðeins Shell henzín meS I.C.Á. kemur í veg lyrir glóSarkveikju og
skammhlaup í keríum. Hreyíplmn fær því jaÍRari gang, skilar meiii
orku og nýiir benzmið betur. ;
Staðreynd en ekki staðhæfing
Miiljónir manna um allan heim nota Shell með I.C.A.
Sí-aukin sala sannar ágæti þess. Ef þér notið enn ekki
Shell með I.C.A., látið þá ekki dragast lengur að gera það.
EINGðNGU SHELL BENZÍN ER MEÐ I.C.A
tr
íitú ni i'i':