Vísir - 14.06.1955, Blaðsíða 5

Vísir - 14.06.1955, Blaðsíða 5
Þriðjudaginn 14. júní' 1955. vism 5 Mérvmiiiisl þykfa fyrir því, ef stoltur og n rsaroBinemn mm t.t era mig. iaJblfeæeÍ vi Fyrir hátíegi í gær hitíi eg prófessor Eduard Busch á her- bergi á Hóíel Borg. Það fyrsta, sem prófessorinn spurði mig um, var hversu gamall eg væri og hvort eg kynni dönsku. Þeg- ar eg svaraði spurnmgum hans kvað'st hann hafa veitt því eft- irtekt, að fóllc !hér innan við 25 ára aldur, talaði naumast önnur erlend mál en ensku. Mikill og fagur blómvöndur prýddi herbergi hins fræga skurðlæknis, gjöf frá þakklát- um, íslenzkum sjúklingi, sem prófessor Busch hafði læknað. ,,Þér eruð vinsæll meðal ís- lendinga, prófessor Busch?“ ,,Eg er að komast að raun um það,“ sagði prófssorinn. ,,Ég skrapp út þegar eg var búinn drekka morgunkaífið og á göt- unni hitti eg fimm fyrrverandi sjúklinga. Allir heilsuðu mér innilega eins og gömlum vini og eínn þeirra faðmaði mig að sér og sagði: „Þú læknaðir mig, Busch,“ og svo tók hann ofan hattinn og sýndi mér hversu fínt höfuðið var orðið eftir að- gerðina.“ Heilbrigði í Siugsunarhætti. „Þéra ekki sjúklingar yður prófessor?" ,,Jú, allir nema íslendingar og eg kann því afar vel. Þegar íslendingur er búinn að vera hjá mér 2—3 daga er hann far- inn að tala við mig frjálsmann- lega og eðlilega eins og vinur viS vin og segir þá oft: „Held- urðu, að þú getir læknað mig, Busch?“ prófessorstitinum sleppa Islendingar. oftast nær. Eg kann afar vel við þetta. Eg finn,'' feð .ég stend andspænis heilbrigðuiri mönnum í hugsun- arhæííi.1' ’ Yfirleitt taka íslend- ingar gjúdfcdómum1 með mikilli karlménnsku og æðrast ekki á hverju sem gengur. Eg held, að það sé þetta þjóðareinkenni, sem hefir valdið því, að ísienzku sjúklingarnir haia orðið vinir mínir. Eg fæ sjúklinga frá flest- um löndum heimsins, en afstað- an til annarra þjóða manna verður aldrei hin sama og til íslendinga. Þeir hafa sérstöðu bæði hjá mér og starfsfólki mínu. Mér myndi þykja fyrir því, ef stoltur og hjartahreinn norðlenzkur bóndi færi að þéra mig.“ Mikil umskipti. „Þér hafði skorið fjölda fólks upp við heilaæxlum. Getið þér sagt mér hversu mikið dánar- talan hefir lækkað sökum þess- ara sjúkdóma síðan þér hófuð starf yðar?“ „Aður fyrr dóu svo að seg'ja allir, sem fengu heilaæxli nema þau væru sérstaklega góðkynj- uð. Nú deyja urii það bil 10 pró- sent af þeim, sem til okkar' koma.“ ;,Þér hófuð starfið 'í smáum „Jú, ’éé’;;hsfðí' éínn aðstoðar- íiiscla. lækni og 11 hjúkrunarkonur. Nú hefi eg minnst 10 lækna, 2 sálfræðinga, 50 hjúkrunarkon- ur auk annars starfsfólks. Sjúkrarúm voru þá 11. Nú eru þau 80 hjá mér og jafnmörg í Árósum, 40 á Bispebjærghos- pitalet og brátt tekur til starfa ný deild með 40 rúmum. Tak- markið er eitt rúm á hverja 10.000 íbúa. íslendingar þyrftu því lfi rúm.‘- „Hvað er að segja um geð- lækningar vegna skurðað- gerða?“ „Um það efni held eg fyrir- lestur í Háskóalnum á morgun klukkan 18, svo eg vil síður ræða það mál í blaðaviðtali.“ „En lækningu fávitaháttar með skurðaðgerðum?“ „Þess er þá fyrst að gæta, að fávitar eru mjbg misfisumndi hópur og orsakirnar til fávita- háttar margvíslegar. Sumir erfa fávitaháttinn og verður engu um þokað hvað þá snertir. Margir verða fávitar meðan á fæðingu stendur eða rétt fyrir fæðingu. Þetta getur stafað af súrefnisskorti sem veldur því, að heilafrumur deyja, þá geta þær einnig eyðilagzt við þrýst- ing og blæðingu. Eins og þér vitið eru heilafrumur einu frumur líkamans, sem ekki endurnýjast og þar éð við fæð- umst með ákveðnum frumu- fjölda verður aldrei hægt að bæta úr því, ef heilafruma | deyr. Þegar hægt er að lækna | fávitahátt með skurði er það venjulega vegna þess, að blætt hefir inn á heilann og blóðið þrýstir á frumur, sem smám saman skemmast ef ekki er að gert. Skurð við slíku verður helzt að framkvæma þegar á1 fyrsta ári eftir að barn fæðist. En sem sagt, það er aðeins ör- lítið brot af fávitum sem hægt er að lækna, oftast er fávita- háttur ólæknanlegur eftir því sem bezt verður vitað enn sem komið er. Hlutverk uppalenda er að þroska þær frumur, sem heilbrigðar eru eins og hægt er.“ „Hafa ekki íélenzkir læknar lært hjá yður?“ „Jú, vinur minn og félagi, Bjarni heitinn Oddsson, var nemandi minn. Það er persónu- lega mikil sorg fyrir mig, að hann skuli vera fallinn frá. Hann var bráðduglegur læknir, mikill fræðimaður, doktorsrit- gerð hans um mænuæxli er það bezta, sem skrifað hefir verið um þann sjúkdóm og er hún notuð hvarvetna um heim. En fyfsf'og fremst. sak'ná' eg dreng- skaparmannsins Bjarna Odds- sonar, hann var sannur og góð- ur maður. Við höfðum oft ver- ið að ráðgera, að eg ætti að heimsækja hann til íslands. Nú var það landið hans, sem tók á móti mér með allri sinni feg- urð þegar við flugum inn til strandarinnar í gær og sáum jöklana í sólarljóma. Það er ein fegursta sýn, sem eg hefi séð, jafnast á við innflug yfir Tokíó og Rio de Janeiro, en þar er fjallasýnin einnig stór- liostlega fögur. Þegar við lent- urn tóku strax á móti mér góðir félagar og eg get ekki sannara sagt en mér þykir vænt um að hafa loksins látið verða af því, að koma hingað; það' hefir lengi staðið til.“ Ó. G. verSur haldin í hátíðasal Háskólans í kvclci kl. 8.30 og er hún helguS hugmyndirini um norræna mynt. Munu fimm þekktir hagfræSingar frá öllum NorSurlöndunum flylja stutt avörp um þetta mál, en þeir eru: Thorkil Kristensen fyrrv. fjármálaráSherFfa Ðana, Erik Lundberg) prófessor írá SvíþjóS, . Bruno Suvirantar prófessor frá Finnlanái, Knut Getz Wold, skiifstolustjóri Irá Noregi, Gylíi Þ. Gíslason, prófes'sbr írá fslahdi. Samkoman verSur sett af Erlendi Emarssym, forstjóra SÍS, og ávarp ílytur Aibin johansson, for- maSur norræna samvinnusambandsins: Gunnar Turess hinn kunni sænski þjóSIagasöngvari syngur einsöng á hátíSinni. syngur undir stiórn Ragnars Björassosíar. ASgangur er ókeypis og heimill öllum, meSan húsrúm leyfir. Norræna samvinnusambaiuElð ifjnaUt Msn*»a.'»:<í'-Íö«p/I j aoAsrnífiU .:! ð79Í888Í??Lte-- ■..vi'ö'fifr-i'i... I .-j;* I ;'p. ->.V y Samband ísS. íús/hY mvi:ioYilnio u.(ií caíi-.ii ur; / y;[ Dt -fJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.