Vísir - 24.11.1955, Blaðsíða 1

Vísir - 24.11.1955, Blaðsíða 1
45. árg. F'íiimitudaginn 24. nóvember 1955 268. Ibl, Ryskingar vegna ölvuna í brezkum togara. fcVnit sJkipverji fluttuv ú spíkrtB* hús ú PMtrehsfiriii. inn brátt hafa runnið af hinum ölóðu sjómönnum. Að því er sýslumaðurinn tjáði Vísi, er það að vísu engin nýlunda, að tappi sé tekinn úr flösku í útlendum togurum, þegar þeir koma í höfn, en aldrei hefur þó keyrt svo um þverbak sem í þetta sinn. Á þriðjudaginn kom brezki togarinn Hekia til Patreksfjarð- ar til þess áð fá smá viðgerð, en um nóttina lenti allt í uppnámi um borð út af drykkjulátum. Var héraðslæknirinn kvadd- ur, til, og flutti hann einn skip- verja á sjúkrahús. Hafði sá hlotið skurð á höfði og heila- hristing, og liggur hann enn á sjúkrahúsinu. Nokkrir fleiri skipverjar hlutu skrámur í ryskingunum, en ekki' alvarleg- ar. — Vísir átti í morgun tal við héraðslækninn á Patreksfirði og sýslumanninn þar, og sögðu þeir, að nú væri allt með kyrr- um kjörum í togaranum. Ann- ar brezkur togari, sem kom inn á Patreksfjörð, eftir að skip- verjarnír á Heklu vöru seztir að teiti, og sá, að í óefni stefndi, geríð tilraun til að ná sam- bandi við brezkt eftirlitsskip, til þess að skakka leikínn, en það var þá hvergi nærri. Var þá eitt af íslenzku varðskipunum fengið, og samkvæmt ósk skip- stjórans á togaranum Heklu gerðu varðskipsmennirnir allt vín í togaranum upptækt, og mun þá mesti berserksgangur- ^VWVVWVVVVVUVV^nAVUVWVVUVVVUWLAAAnnjWUVVW^V Sókn hafín gegn okrurum. Húsrannsékn í gær hjá noickriini þeirra. Rætíst gamall draumur Rússa? Samkvæmt upplýsingum, sew» leyndailþjónusta NATO hefur aflað sér, eiga rússneskir sér- fræðingar að hafa með höndum umsjón með endurreisn flota- stöðvarinnar í Alexandríu. Þetta er að sögn eitt af leyni- ákvæðum tilboðs þess, sem Rússar hafa gert Egyptum um vopnakaup í Ráðstjómarríkj- unum. í staðinn eiga rússnesk herskip að fá „heimsóknar- réttindi“ í flotastöðinni, Hefur vaknað grunur um, að Rússar ætli að fara þessa krókaleið til sjá gamlan draum rætast, að koma herskipum sínum til Miðjarðarhafs, Kannsókn er nú hafin í máK um nokkurra Reykvikinga, sem Iánað hafa fé út með okur- vöxíum og mun húsrannsókn hafa farið fram Sijá þeim í gær. Vísir átti í morgun tal við Skula Guðmundsson alþingis- mann, en hann er formaður nefndar þeirrar, er Alþingi skipaði s.l. vetur til þess að rannsaka meinta okurstarfsemi í landinu. Skúli sagði að nefndin hefði kannað mál þessi eftir föngum og nýlega sent dómsmálaráðu- neytinu skýrslu, sem byggð væri á framburði ýmissa lán- takenda er þegið hefðu lán með of háum vöxtum. Seinna kvað Skúli nefndina svo mundu gefa Alþingi skýrslu um störf henn- ar. Nú hefur dómsmálaráðherra Iagt fyrir Sakadómarann í Reykjavík að hefja rannsókn i málinu og í gær var gerð hús- leit hjá nokkurum mönnum hér í bænum sem grunaðir voru um okurstarfsemi og hald lagt á skjöl þeirra og önnur gögn. Þórði Björnssyni fulltrúa Sakadómara hefur verið falið málið til rannsóknar og tjáði hann Vísi í morgun að enn sé ekkert byrjað að vinna úr þeim gögnum, sem lagt var hald á, aðeins byrjað að sundurgreina þau og skrá. Hann kvað því ekkert vera hægt að segja á þessu stigi málsins en auk þess myndi dómsrannsókn að meir eða minna leyti fara fram fyrir luktum dyrum. Eitt dagbla'oanna hér í Reykjavík, Þjóðviljinn, telur sig hafa örugga vissu fyrir þyí að réttarrannsóknin beinist gegn sjö mönnum og af þeim nafngreinir blaðið sex, þá Sig- urð Berndsen, Guðjón Hólm lögfræðing, Brand Brynjólfs- son lögfræðing, Jón Magnússon fasteignasala, Hörð Ólafsson lögfræðing og Hjálmtý Sig- urðson dyravörð í Útvegsbank- anum. Þann sjöunda telur blað- ið sig ekki vita hver er. Rússa. í Bretlandi og Bandaríkj- urnun hafa verið birtar fregn ir um nýja kjamorkuspreng- ingu hjá Rúsum. Hún er talin vera mesta kjamorkuspreuging þeirra til þessa og eins mikil og ef milljónir smál. af TNT hefðu verið sprengdar í loft. upp. Það voru Bandaríkjamemi, sem birtu fyrstu tilkynning- una um kjamorkuspreng- ingu hjá Rússum. Var það í september 1949. Tilkynning- ar um sprengingar hjá þehn hafa verið birtar endrum og eins síðar, en sjálfir eru Rússar næsta þögulír um þessar tilrauuir sínar. Uaihir brýtur bát sinn spón, syndir til lands. — Var5 sí^an að ganga berfætínr yfrr ap~ albraiHi og komst stórmekSdur til byggóa. Rússar kaupa meira af Bretum. AHmikiI aukning á útflutn- ingi frá Bretlandi tit Ráðstjórn- amk'janna hefir átt sér stað á undangengniun máuðum. ■ Er héir m. a. úm að ræða vél- ár' niargskonar, rafmagnsvörur o. fl. Skýcslur fyrir 10 mánuði þessa árs, sem liðnir eru, sýna, að útflutningurinn á sumum vörutegundum hefir tífaldazt miðað við árið-1953. Skipt um fög- regitt í Kiakksvík. K.höfn, í morgim. Fjórir rannsóknarlög- reglumenn og 15 götulög- reglumenn fara héðan áleið- is til Klakksvíkur í kvöld. Menn þessir eru undir stjórn Ejner Kelnæs fulltrúa. Götulögreglumemiimir eiga að sögn að leýsa af hólmi lielminginn af lögreglu- möirnum þeirn, sem nú dvelja í Kiakksvík. Talið er víst, að Fischer- Heinesen, hafnarstjóri í Klaltksvík, verði fluttur til Danmerkur rnjög fljótlega. Sennilega verður hann látinn afplána refsidóm sinn í Vridslöselille-fangelsi. 14 mæRuvefkitHfeðSi á Patreksfírði. Mænuveikin hefir nú breiðst töluvert út í Patreksfjaðarlækn ishéraði, og hefír þar orðið vai-t 14 tilfella, sem vitað er um. Samkvæmt upplýsingum, er Vísir hefir fengið hjá héraðs- lækninum á Patreksfirði, er um nokkrar vægar lamanir að ræða, en engar mjög alvarlegar. í gærkveldi lenti Hafnfirð- ingur einn i miklum hrakning- um bæði á sjó og Iandi og kom allmjög meiddur til byggða. Maður þessh- heitir Guniiar Júlíusson, Austurgötu 26 í Hafnarfirði. Hafði hann farið einn á opnum irillubát á sjó í gær. Er hann kom að landi síð- degis var skollin á nið- dimm þoka, auk þess sem þá gerðist myrkt af nóttu. Hélt Gunnar inn með landi að sunnanverðu við Hafnar- fjörð og er hann sá ljósið á Óttarsstöðum í Hraunum suð- ur, ætlaði harm að halda ferð sinni áfram inn með landinu. Allt i einu steytti báturinn á skeri, en þar heita Lambhaga- boðar. Segir ekki af því meir nema að báturinn brotnar í tvennt og Gunnar fór í sjóinn. • Sá hann sitt ráð vænst að freista að ná til lands og komst. það lokum með því ýmist að vaða eða synda. Nú er Iandi þannig háttað eftir að upp i fjöru er komið, að við tekur úfið apalhraun, oddhvast og með fádæmum illt yfirferðar. Þarna var Gunnari vandi á höndum, því myrkt var orðið, en auk þess hafði hann íarið úr stígvélum sínum. er hann þreytti sundið frá bátn- j um. Ekki tók Gunnar þann kostinn að láta fyrirberast í fjörunni, sjóblautur sem hann var, heldur ákvað hann að halda á hraunið. Eftir nokkuð á 2. klukkustundar gang komst. hann þó loks yfir á þjóðveginn mjög særður á fótum, enda jvarð hann að ganga það ber- ( í iettuj'. Á veginum beið hann j þar til bíl bar að og koinst ,hann þannig til Hafnarfjarðar, i þar sém gert var að sárum hans. Síidarbræ&sla í Færeyingahölrt. Frá fréttaritara Vísis. Osló, 20. nóvember. Norðmeim hafa í hyggju að korna upp fuUkominni síldar- verksmiðju í Færeyingahöfn á Grænlaudi. Verður þá hægt að nýta betur og á fjölbreytilegri hátt hið mikla aflamagn, sem fæst á miðúnum við strendur landsins. Byrjað verður á byggingunni á næsta ári, en verksmiðjan á að geta tekið til starfa árið 1957. Þeir hafa tcngur tvær. Bulganin og Kruschev konnr til Bombay og var vel fagnað. I. ræðum, sem þeir fluttu, tofuðu þeir erm efnahagslegri aðstoð'. Um sama leyti og þeir komu. í heimsókn.. þessa . sakaði Bom~ bay-stjórn kommúnista þar í borg um að hafa valdið óeirð- um þeira, sem urðu í borginnl sl. mánudag, er 12 menn biðu bana, hun'druð meiddust og mikil spellivrki voru. unnin. —• 1200 manna sjálfboðalið úr Kongressflokknum hefir verið stofnað til að aðstoða við að halda uppi reglu í borginni. ★ Stjórnin i Saigon hefir á-» kveðið að kveðja heim hern- aðarlega nefnd, sem send var til Parísar til sameígin- legra viðræðna Frakka og Suður-Vietnanunanna. Or- sökin var sú, að nefudin hafði beðið etfir því í tvo mánuði, að viðræðurnar hæfust, 1000 heimiH hiíui með afgattgs- orku kjarttorkuofna. Wfgrsta- út&tmi sEáftrwr hústa« hitunar. Fre-gnir írá Richland, Wiash- ington, Bandlarikjunum, herma, að Greneral Electric íélagið sé íarið að Mta upp byggingar í Hanforú kjamorkustöðinni, með vatni, sem hitað er með afgangs hitaorku kjarnorkuofua.. þetta er i fyrsta skipti i sög- unui, segír verksmiðjustjóniín, að byggingar eru hitaðar upp með þessum hætti. Fyrir hendi er afgangs-hitaorka tii uppiiít-* unar 1000. heimila. Kostnaðurinn við hitakerfið var meiri i byrjun cn við vana- íegt upphi t unariieríi, en sá kostn aður vinnst upp á tiltölulegá fá- um óram. Vatnið var upphaflega notað í kælikerfi kjarnoi'kuofnsíns, en hitnar við það, og sætir þai- næst sérstakri meðferð, áðm- en það er látið renna í Hanford-keríið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.