Vísir - 09.02.1956, Síða 5

Vísir - 09.02.1956, Síða 5
Fimmtudaginn 9. febrúar 1956. VlSIE 5 Áttræðisafmæli merkismanns. „Sígur undir- sólarlag" ís- lenzkunnar í Vesturheimi. Víst er það ömurlegt að horfást í augu við þá staðreynd, og stór- um ömurlegra fyrir það, að okkar er sökin; hún mætti enn ,eiga gott skeið eftir ef við hefð- um haft vitsmuni og mannslund til að halda vörð um hana. En staðreyndin er nú þessi og ekki til neins að líta undan henni. Dagui’inn í dag er á- fangi á þessari raunaleið, því að í dag á áttræðisafmæli einn af íremstu, fafsælustu og síðustu merkisberum íslenzkfar tungu vestan hafs: Gísli Jóns- son ritstjóri Tímarits Þjóð- i-æknisfélagsms, Ekki svo að skilja að þar með þurfi starfs- deginum endilega að vera lok- ið, og að sjálfsögðu vonum við að nokkuð sé enn eftir af hon- um. En um það þarf þó aldrei' að efast, að „erum á förum eldri menn allir í kör og graf- ir“. Þegar níimdi áratugurinn hefst, er sannarlega orðið kvöldsett hjá hverjum og ein- xim. Ekki hlýðir að þessa afmælis sé látið með öllu ógetið hér heima; svo merkilega sögu á Gísli sér og svo mikið er hann búinn að vinna móðurmálinu og bókmenntum okkar. Við getum ekki minna gert en að staldra við augnablik og .beina til hans þakklátum huga. Með því að enn er .hann ekki allur, verður hér engin tikaun til þess gerð, að segja ævisögu hans, nóg að geta þess, að hann er uþprunninn af Austurlandi, fæddur á Háreksstöðum á Jökuldal 9. febrúar 1876, nam prentlíst á Ak'úreyri, en hafði áður tekið gaghfræðapróf á Möðruvöllum. Vestur um haf iluttist hann 1903 og hefir alla aevi stundað prentiðn og blaða- mennsku. Hefur hann ritað mikið, bæði í bundnu máli og óbundnu. Kvæðasafn eftir hann, Farfuglar, korn út í Winnipeg 1919; hafði hann sjálfur prentað og er bókin harla fögur hið innra, en verk ibókbmdarans var því miður með öðrum hætti, gylling svo svikin að hún varð strax svört. Síðan hefir Gísli. án efa ort fnikið, og líklega sín beztu kvæði, en ekki hefir því vérið safnað og ekki heldur ritgerð- tim hans. Er það iila farið. Við Tímaritinu tók hann eftir 3át síra Rögnvalds Pétursson- ar 1940, svo að ritstjórnartíð hans er orðin nokkuð löng. Ekki var það vandalaust, að setjast í sæti síra Rögnvalds, sem vel mátti heita afburða- maðui\ og ennþá athugaverðara fyrir það, að bersýnilega hlaut það með hverju árinu að verða vandasamara og erfiðara • að gera ritið úr garði. En það var nú öðru nær en að Gísla mis- tækist, og enn í dag mun niéga telja Tímarit Þjóðræknisfélags- ins fremst þeirra tímarita ís- lenzkra, er um bókmenntaleg efni fjalla- Það er frá öndverðu harla merkilegt, svo að nú væri nauðsyn að farið yrði að gera registur yfir það. Mætti registr- ið gjarna vera í þeim árgangi, sem væntanlega kemur næsta vetur. Gísli var kvæntur hinni ágætu menntakonu Guðrúnu H. Finnsdóttur, en missti hana fyrir tíu árum. Fer orð af því, hvílík menningarmiðstöð heimili þeirra hafí Verið, enda vorú þau um allt samhent. Þar hefir íslenzk menning átt sér traust vígi. Þeir eru, eins og kunnugt er, bræður Gísli og Einar Páll Jónsson, ritstjóri Lögbergs, og eg ætla að Gunsteinn Eyjólfs- son væri systrungur þeirra. Hefir skáldgáfa og tónlistar- gáfa bersýnilega legið fast í ættinni. Ekki getur betri dreng en Gísla Jónsson. Hann er óáleit- inn, en einarður og heldur vel á sínu máli þegar á þarf að halda; hreinlyndur, vinfastur en vinavandur. í öllum efnum vill hann láta gott af sér leiða, og gott mál er hann ætíð reiðu- búinn að styðja, hófsamur í hvívetna, svo að aldrei finnast ýkjur í máli hans. Slíkra manna er ávallt gott að minn- ast, hvort sem þeir eru lífs eða liðnir. Sn. J. Skjólabúar. Það er dr júgnr spölur fam í Miðbæ, en til að koma smáauglýsingu í Vísi, þarf ekki að fara iengra en f Péturshwkð Nesvegi 39. SÍMI 81260. Sparið fé mað því að setja smáauglýsingu í VlSI. I janúar skiptust á hlýindi og horkufrost En fanúar nú jafnast þó ekki á við sama tnánuð 191B. í meðalári er jaiiúar-hitinn í Vestmáitnaeyjum um frost- mark, en lægri annars staðar, 2ja til 3ja stiga frost í innsveit- um, en heldur minna við norð- urtsröndina. Úrkoman á láglendi er að jafnaði mikil við suðaustur- ströndina, hátt á 2. hundrað mm., mest rigning, en um 50 mm. eða .minni á Norðulandi, snjór að mestum hluta. Þótt meðaltölin gefi stundum nokkuð glögga mynd, eru þau oft ófullnægjandi ein saman og má sjá það vel á þeim janúar, sem nú er nýliðinn. Þá skiptust á hörkufrost og hlýindi, sem jöfnuðust á við meðalhita júlímáiíaðar sums staðar á landinu, því að hann er í sumiim útsveitum 8—10 stig. Frostin voru þó svo miklú langvinnari, að þau höfðu úrslitaáhrif á meðal- hitann. Einna kaldast mun hafa verið í innsveitum, ekki síður á Suð- urlandi en Norðurlandi, 5—6 stiga frost að meðaltali. Þykk- i viðrin, vindurinn og snjókom- an á Norðulandi hafa, þótt hvimleið væru, dregið þar mjög úr frostum, svo að þau urðu þar tiltölulega vægari en hjá sunnanmönnum. Við ströndina var frostið nálægt 3 stigum til jafnaðar, eða 2 stigum kaldara en í meðalári, Hefir því mánuð- urinn þrátt fvrir. allt orðið ó- venju kaldur, einkum á Suð- urlandi. Eru 20 ár síðan janúar liefir verið svo k-aldur í Reykjavik. Hinsvegar jafnast þessi janúar ekki við nafna sinn 1918, þegar frostið í Reykjavík komst í 24.5 stig kl. 6 að morgni þ. 21., móti 17 stigum nú. Meðalhitinn í Reykjavík var nú -r-3.2 stig, en -f-3.8 á Akur- ureyri. Hvar var kaldasti stað- ur á landinu, mun einhver spyrja? Sénnilegt er, að það hafi verið hæsti hnjúkur lands- ins, Örævajökull eða Bárðar- bunga. Samkvæmt háloftaat- hugunum í Keflavík var frost- ið í 2000 m, hæð um 14 stig til jafnaðar og er það lægra en nokkurt mánaðarmeðaltal g!ð- ustu ára. Má gera ráð fyrir, að á Öræfajökli hafi meðalfrostið verið minnst 14—15 st.ig. Vegna samgönguerfiðleika .h.efi.r lítið ] borizt enn af veðurbókum frá Norðurlandi, en þar var þetta harðindamánuður. Úrkoman á Akureyri varð 100 mm., lang- mest snjór, og er það um 130% umfram meðallag. Er sennilegt, að svipaða sögu sé að segja frá Öðrum héruðum norðanlands. Á Vestfjörðum var einnig mikil úrkoma norðan til, 123 mm. á Suðureyri, meðallag er- 99. Á Fljótsdalshéraði var úrkoman í meira lagi, þó ekki eins og á Akureyri. En um allt Suðurland og til Vestfjarða var úrkoman fremur lítil, víðast tveir þriðj- ungar að meðallagi, t. d. á Fag- urhólsmýri og í Reykjavík, Mánuðurinn var feikna snjcþungur á Norðurlandi. Hitt er annað mál, að undra- miklar leysingar komu um mánaðamótin, og síðustu dagana hefur mönnum orð- ið tíðræddara um !þau ó- sköp, sem leysingunum fylgdu, en um snjóana. Janúar hófst með rosaveðr- um og miklum hlákum, sem þíddu mest af jólasnjónum. Um þ. 5. gekk hann svo í norðrið og hófust þá hríðarnar á Norð- urlandi og frosthörkur urn landið allt. Limiti þeim ekki fyrr en um 25. janúar, þá dró til suðlægrar áttar og snjóa tók að leysa. Gæftir voru góðar sunnan- lands meðan kuldarnir stóðu; þótt þær væru ekki notaðar, en síðan róðrar hófust, hafa verið umhleypingar og stirðar gæft- ir. Alger jarðbönn máttu heita norðan lands, og víðast á Suð- uiiandi var þetta einnig gjaf- feldur mánuður venju fremur. En íslenzlí vetrarveður eru svipul og eins og allir vita. Hefur nú sunnanvind- urinn sniðið fannafeldinn af ~Kaupt fuít ocj áilfhr landinu, svo að enn er vom um, að veturinn verði ekki mjög liarðm’, þegar á jheild- ina er litið, þóít eg ætli engu um það að spá. (Út útvarpserindi Páls Berg- þórssonar, veðurfræðings, fluffc 7. jan. 1956). Adenauer boð- Íð tii Róxnar. Adenauer kanzlari V.-Þýzk;a lands og von Brentano utanrík- isráðherra hafa þegið boð uns að koma í opinbera heimsóka til Rómaborgar. Frá þessu er sagt í opinberri tilkynningu, sem birt var að af- lokinni heimsókn forsætisráð- herra og utanríkisráðherra f- talíu til Bonn. í yfirlýsingunni segir, að algert samkomulag hafi verið um öll mál, sem um var rætt. Eisenhower vill fieiri innflyljendur. Eisenhower Bandaríkjafor- seti hefur sent þjóðþinginu boð- skap um rýmkun á innflytjenda löggjöfinni. Vill hann leyfa aukningu árlegs innfiytjenda- fjölda um 5.000, en hann er 154.000. MARGt A SAMA STÁÍ Frá útsölunnl Herrasokkar kr. 8,75. Herranærföt kr. 30,00. Kvenbuxur kr. 17,50. Kvensokkar (ull) kr. 25,00 Kvenpeysur frá kr. 60,00 Handklæði (góð) kr. 12,00. Barnabuxur kr. 9,00. Barnasokkar kr. 9,00. Barnapeysur, ódýrar og rhargt fleira ótrúlega ó- dýrt. — Ennfremur gefinn afsláttur á öllum öðrum vörum.' * & • sísn: issj W."AVAVi%WAWdVWW Fyrsta ferð R-101 — og hin síðasta. Eftir Miles Heil- f Framlp ‘ . \ R-101 sveigði til þess að ná STéttri stefnu, fjarlægðist og minnkaði óðum. Ljósin á loft- farinu fjarlægðust og urðu lík- 'ust stjörnum. Allt 'varð kyrrt, •en mannfjöldinn hreyfðist ekld úr sporúm. Hvei’ stóð þar sem hann var kominn, þangað til lóftfarið var horfið út í geim- inn. R-101 var farið. i Farþegarnir stóðu við glug'g- íma og virtu fyrir" sér landið iyrir neðan. Umhvei’fis þrum- jtíðu hreyflarnir jafnt og þétt. shaw, blaðamann. Stjörnurnar voru horfnar og mannheimur virtist í óráfjar- lægð. Hingað og þangað mátti sjá ljós bíla, sem brunuðu eftir vegunum á, jorðu niðri. Þau lýstu upp limgirðingar, tré og símastaura meðfram vegunum. En eftir því sem loftfarið hækk- aði flugið, urðu allir hlutir á jöfðu niðri ógreinilegri og'merm héfði mátt haida^ að éngin jörð væri til, ef ekki. héfði brugðið. þar fyrir ljósbjarma við dg við. Farið brunaði áfram í nátt- myrkrinu og farþegarnir hættu að skima út um gluggana. Þeir fóru að skoða farkostinn' að innan, því að allt, sem þar bar fyrir augu, var nýstárlegt og óvenjulegt. , Það fór að rigna, er flogið Var yfir London, ' en þáð var ekici hægt að heyra dropana lemja rúðurnar vegna hávaðans í hreyflunum. Fyrst settust nokkr ir dropar á rúðurnar, svo jókst úrkoman, en það varð einungis til þess, að menn fundu enn betur til þægindanna, sem loft- farið hafði upp á.að bjóða. Hin- ir .virðulegu ferðafélagar sátu í djúpum hægindastólum og ræddu uni heima og geima. Við og við var dyrum reyksalarins lokið upp og veitingaþjónn kom eða fór. ÍShnolar glömruðu í whiskyglösum og blár vindla- reykur hlykkjaðist upp í loftið.. Ef ókunnur maður hefði skyndi lega verið kominn þarná inn, hefði hann alveg . eins getað haldið, að hann væri staddur í einhverjum af heldri manna klúbbunum í West End í Lon- doh. Það var aðéins einstaka .sinnum, sem hægt var að láta sér það til hugar koma, að þessir menn væri staddir í loftfari en ekki í einhverju af þeim þús- undum húsa, sem flogið var yf- ir. Það var þegar farþegárnir voru að geta sér til, hversu hátt væri flogið eða hratt, eða 'menn bollalögðu urrí' veðrið, Veðurspáin sem barst um borð, skömmu áður en lagt var af stað, hafði verið hin hag- stæðasta. Þar var ekki búizt við *því,-að R-101 mundi þurfa að berjast við sterkari vinda en færi með 35—50 km. hraða á klukkustund. Farþegar, . skip- verjar og yfirmenn Vom allir hinir öruggustu um að allt Framh.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.